24 stundir - 27.11.2007, Blaðsíða 32

24 stundir - 27.11.2007, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is „Það er ósköp breytilegt hvað við gerum á þessum dögum í kringum jólin,“ segir Svanberg K. Jak- obsson, talsmaður Votta Jehóva. „Okkar fólk er nú flest í fríi yfir há- tíðisdagana eins og aðrir og fjöl- skyldufólk gerir þá gjarnan eitt- hvað með börnunum. Sumir fara til dæmis út úr bænum en það er allur gangur á því.“ Aðeins ein hátíð lögboðin Að sögn Svanbergs halda Vottar aðeins einn dag hátíðlegan. „Eina hátíðin sem er í raun lögboðin í Biblíunni er minningarhátíð um dauða Jesú en hann sagði læri- sveinum sínum að minnast dauða síns og ber þann dag yfirleitt upp nálægt páskum. Við höldum held- ur ekki neitt sérstaklega upp á gamlársdag eða nýársdag og erum ekki með nein hátíðarhöld í stað- inn, þannig að það má segja að við sleppum þannig við allt jólastress- ið. Flestir reyna að leiða jólaund- irbúninginn hjá sér en auðvitað fer það ekki fram hjá okkur hvað er að gerast í samfélaginu, en ég held að flestir reyni að halda eðlilegu lífi gangandi.“ Svanberg segir söfnuðinn ekki koma sérstaklega saman á þessum tíma. „Við erum með samkomur á ákveðnum dögum og höldum þeirri dagskrá í desember óháð há- tíðisdögum. Ef aðfangadag eða jóladag ber til dæmis upp á þriðju- dag sem er eitt af samkomukvöld- unum mæta allir á samkomu eins og venjulega.“ Góð samvinna við skólana Yngstu meðlimir í söfnuði Votta Jehóva taka ekki þátt í jólaund- irbúningnum í skólanum. „Yf- irleitt hefur tekist góð samvinna við skólana varðandi jólin. Krakk- arnir fá jafnvel að gera eitthvað í staðinn og þegar skólastarfið er farið að snúast meira og minna um jólaföndur þá fá börnin okkar jafn- vel frí. En það er eflaust breytilegt hvernig þetta leggst í þau. Foreldr- arnir og söfnuðurinn reyna að hjálpa börnunum að komast vel í gegnum þetta og krakkarnir okkar vita auðvitað af hverju við höldum ekki jól. Þau vita að Jesús fæddist ekki um þetta leyti og það er þeim heilmikil hjálp í að bera höfuðið hátt og þó að þau fái ekki jólagjafir þá held ég að foreldrarnir í söfn- uðinum séu ekkert óduglegri en aðrir að gefa börnunum gjafir á ýmsum tímum. Svo eiga börnin líka vini innan safnaðarins sem halda líka hópinn. En hvort það er of langt gengið með þessu jólahaldi er ekki okkar að dæma þar sem við höldum ekki jól. Maður heyrir þó oft á tali fólks svona almennt að því finnst byrjað of snemma og oft vera of mikið stúss í kringum jólin.“ Halda aðeins minningardag um dauða Krists hátíðlegan Jólin ekki lögboðin há- tíð samkvæmt Biblíunni ➤ Virkir safnaðarmeðlimir eru330 á Íslandi, en skráðir 670. ➤ Vottar Jehóva halda hvorkiupp á jól né páska. ➤ Vottar telja að Jesús hafifæðst í kringum 1. október eða á þeim árstíma sem hirð- ar tóku hjarðir sínar ekki í hús að næturlagi. VOTTAR JEHÓVA Vottar Jehóva halda ekki jólin hátíðleg en sam- kvæmt þeirra trú er jóla- dagur ekki fæðing- ardagur Jesú Krists og fyrirskipaði hann aldrei kristnum mönnum að halda fæðingu sína hátíð- lega. Svanberg K. Jakobsson Segir Votta Jehóva ekki halda jólin há- tíðleg þar sem ekki sé um að ræða fæðingardag Krists. 24stundir/Golli Það er meira en nóg um að vera í versluninni Iðu á aðventunni og einhver uppákoma í hverri einustu viku. Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, eigandi Iðu, segir að það séu at- burðir í Iðu allt árið um kring en það verður markvissara strax í byrjun nóvember. „Það er vit- anlega svo margt að gerast í þjóð- félaginu á þessum tíma og til að mynda koma flestar íslensku bæk- urnar á þessum tíma. Við erum alltaf opin fyrir öllu og viljum helst hafa einhvern bókarviðburð í hverri viku.“ Auk þess verður ljóðalestur, tónlist, tískusýning og margt fleira á döfinni í Iðu í des- ember. „Ef ég tek dæmi þá opnum við formlega Cintamani búðina á fimmtudaginn og bókin Postulín verður kynnt, það er barna- bókakynning frá Sölku 1. og 15. desember, ljóðaupplestur með djassundirspili 13. desember, prjónakaffi 6. desember og margt margt fleira,“ segir Arndís og hvet- ur fólk til að fylgjast vel með við- burðum Iðu. „Það er alltaf mikið líf í Iðu, í desember sem og aðra mánuði. Ég vona hálfpartinn að það verði svolítið kalt í desember því það myndast alltaf ákveðin stemning þegar það er nokkurra gráða frost og stilla. Við erum með kaffihús hér uppi og fólk er duglegt að flakka á milli og dunda sér hér í rólegheitum. Svo er vitanlega skemmtilegast ef hægt er að bjóða upp á eitthvert jólaglens en hér er alltaf opið frá 9 til 22 alla daga.“ Skemmtilegar uppákomur á aðventunni Líf og fjör í Iðu í desember Arndís Björg Sig- urgeirsdóttir: „Við erum með kaffihús hér uppi og fólk er duglegt að flakka á milli og dunda sér hér í rólegheitum.“ KYNNING 24 Stundir/Kristinn Ingvarsson Jólagjöf fyrir þá sem „eiga allt“ Gefðu hlýju og samveru um jólin! Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni. Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000. E N N E M M / S IA • N M 3 0 87 7 Skeifan 8 - s. 568 2200 Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Jólagjafir fyrir yngstu börnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.