24 stundir - 27.11.2007, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
!"
#!"
$% &
' (
&' )
& & *
& +
!"#$
Jólin eru um margt dularfullur tími; þá eru
dýr sögð tala og álfar og huldufólk fara á stjá og
flytjast búferlum. Ýmiss konar hjátrú er tengd
jólunum, en gömul trú segir t.d. að sé tunglið
vaxandi á jólum verði næsta ár gott en sé þessu
öfugt farið og tunglið sé þverrandi megi búast
við slæmu ári. Hjátrú í kringum jólin einskorð-
ast ekki við Ísland heldur er þekkt um allan
heim. Í Wales er það t.d. talið boða ógæfu ef
fyrsti gesturinn sem ber að dyrum á nýju ári er
rauðhærður en hins vegar boðar það mikla
gæfu ef ókunnugur, dökkhærður maður bankar
upp á. Þá er einnig talið óheillaráð að lána
nokkurn hlut á nýársdag, alveg sama þótt það sé
bara bolli af sykri.
Ekki skó í jólapakkann
Í Englandi gaf hjátrúarfullt fólk aldrei vinum
sínum skó í jólagjöf þar sem það var talið geta
orðið til þess að slitnaði upp úr vináttunni. Þá
var einnig talið boða ógæfu að klæðast nýjum
skóm á jóladag. Sama var hins vegar ekki upp á
teningnum þegar kom að fátæku fólki en það
var talið boða gæfu að gefa því skópar í það
minnsta einu sinni á ári. Eins þótti mikið
óheillaráð að klæðast nýjum skóm á jóladag.
Þá áttu ógiftar stúlkur að geta komist að því
hvort þær myndu giftast á árinu með því að
fleygja skó yfir öxlina og í áttina að útidyra-
hurðinni. Lenti skórinn þannig að táin beindist
að hurðinni myndin stúlkan giftast en annars
ekki. Á Grikklandi er svipaða sögu að segja en
þar brenndi fólk gamla skó yfir jólahátíðina til
að forðast óhöpp á komandi ári. Ekki skal
ákveðið hér hvort slíkt beri árangur heldur
verður hver að trúa sem vill.
Hjátrú á jólum þekkt um víðan heim
Skóbrenna talin boða gæfu
Skór Ekki vinsælir í jólapakkann samkvæmt enskri
hjátrú og betra að brenna þá til að forðast óhöpp.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona
segist verða meira og meira jóla-
barn með aldrinum. Hún segist
ekki vera mikið fyrir hefðir um jól-
in, en hún og eiginmaðurinn borði
þó ætíð hjá tengdaforeldrunum á
aðfangadag.
Jól í kössum
„Það skiptir mestu að hafa það
sem notalegast um jólin. Núna
verðum við reyndar á fullu að
flytja og mestur tíminn mun fara í
það. Því er ég í raun lítið farin að
hugsa um jólin núna þar sem hug-
urinn er við flutningana. Ég skreyti
ekkert sérlega mikið með jóla-
skrauti en hef frekar kerti um allt
og finnst líka kósí að hengja upp
seríur. Síðan keyptum við okkur
hvítt gervijólatré ein jólin sem er
tilbúið að fara inn í stofu og það er
mjög þægilegt. Ég er lítið fyrir kjöt
og því er yfirleitt eldaður fyrir mig
humar á aðfangadagskvöld. Síðan
fær maður sér konfekt og nýtur
allra kræsinganna sem eru í boði
yfir hátíðarnar. Ég held mikið upp
á þennan tíma og nota hann vel til
að hitta vini og ættingja. Það er
hefð að haldið er jólaboð í móð-
urfjölskyldunni á jóladag og síðan
hittir maður vinina, spilar og hefur
það gott. Þá finnst mér óneit-
anlegra jólalegra að hafa snjó,“ seg-
ir Elma Lísa.
Æfingar fram að jólum
Elma Lísa segir að þó hún ætli
sér alltaf að vera skipulagðari um
næstu jól þá sé hún bara þannig að
hún endi yfirleitt á því að vera á
síðustu stundu og kaupi síðustu
jólagjafirnar á Þorláksmessu. „Ég
verð ekki að frumsýna yfir jólin en
verð að æfa til 20. desember í Bað-
stofunni eftir Hugleik Dagsson.
Síðan verð ég að leika áfram í des-
ember í þeim verkum sem ég hef
verið að leika í undanfarið,
Óhappi, Hér og nú og Legi. Pásk-
arnir eru yfirleitt betri fyrir leikara
því þá eiga þeir lögbundið viku
frí,“ segir Elma Lísa.
Persónulegar gjafir
Ekki er hægt að ljúka jólaspjalli
án þess að spyrja viðmælandann
hvað hann vilji helst fá í jólapakk-
ann og það stendur ekki á svörum
hjá Elmu Lísu: „Mig vantar svo
sem ekkert en mér finnst voðalega
kósí að fá bók og náttföt. Síðan
finnst mér gaman að fá persónu-
legar gjafir. Dóttir Reynis, manns-
ins míns, gefur okkur t.d. alltaf
eitthvað sem hún býr til og það
finnst mér mjög skemmtilegt,“
segir Elma Lísa að lokum.
Meira jólabarn með aldrinum
➤ Finnst skemmtilegast að fápersónulegar jólagjafir.
➤ Verður að æfa í Baðstofunnieftir Hugleik Dagsson fram að
jólum.
➤ Segir óneitanlega jólalegraað hafa snjó um jólin.
➤ Gæðir sér á humri á að-fangadagskvöldi.
➤ Er lítið fyrir hefðir en borðarþó ætíð hjá tengdaforeldr-
unum á aðfangadag og fer í
jólaboð á jóladag.
ELMA LÍSA
Elma Lísa Gunnarsdóttir skreytir með kertum og seríum um jólin
Jólin eru tíminn til að
hafa það gott og njóta
lífsins í faðmi fjölskyldu
og vina. Sumir eru út um
allt í boðum á meðan aðr-
ir eru í rólegheitunum
heima við en öll eigum
við það sameiginlegt að
vilja gera vel við okkur á
þessum tíma.
Jólasnjór Elmu Lísu finnst
óneitanlega jólalegra að hafa
jólasnjó á þessum tíma.
Á Indlandi er á þrettándanum
sérstök hátíð sem heitir pindi
perunaal eftir innsta hluta
bananatrésins. Kvöldið áður
er pindi-drumbur reistur fyrir
utan hús og í hann stungið
kókoshnetulaufum sem eru
vafin í klút vættan í olíu.
Kveikt er á laufunum til að
vísa vitringunum þremur veg-
inn. Nú á dögum eru einnig
notaðir litlir leirlampar.
Saga jólanna eftir Árna Björnsson.
Indversk þrettándahátíð
Að vísa vitring-
unum veginn
Alla þessa daga varð fólk fyrir
áreitni af púkum sem kallaðir
eru kalikantsari og taldi sig
heyra í þeim læti og fyrirgang.
Fólk losaði sig við þá á þrett-
ándanum með því að kasta
pylsum og kjöti upp á húsþök
því þeir vildu mat.
Saga jólanna, Árni Björnsson.
Púkar á Kýpur
Svangir og
með læti
Á aðfangadag er jólatréð
skreytt og um kvöldið er borð-
uð fiskisúpa, steiktur vatna-
karfi í raspi með kartöflusalati
og eplakaka á eftir. Eftir það er
kveikt á jólatrénu, sungin jóla-
lög og útbýtt gjöfum sem oftast
eru sagðar vera frá Jesú-
barninu. Sumir sækja messu
um miðnættið. Á jóladag koma
stórfjölskyldur oft saman.
Saga jólanna eftir Árna Björnsson.
Jól í Tékklandi
Vatnakarfar