24 stundir - 27.11.2007, Blaðsíða 35
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 35
Á jólunum ættu allir að samein-
ast í spilum og gleði. Hér eru leikir
sem allir ættu að geta skemmt sér
vel yfir á hátíð ljóss og friðar.
Í fyrri leiknum eiga þátttakendur
að giska á lög. Hentar hann vel
þegar búið er að ljúka við eftirrétt-
inn og allir sitja enn við borðið.
Leikurinn byrjar á því að einn
velur eitt orð úr jólalagi að eigin
vali. Eiga hinir þátttakendurnir þá
að finna jólalag sem inniheldur
þetta orð og sem sagt giska á lagið.
Til að sanna það að lagið sem var
giskað á innihaldi orðið getur
þáttastjórnandi beðið viðkomandi
að syngja það.
Annar jólasöngvaleikur felur
það í sér að hver þátttakandi
skrifar nafnið á fjórum uppá-
haldslögunum sínum niður á
blað. Þegar allir hafa skrifað nið-
ur lögin fær hvert lag tölustaf á
bilinu 1 til 20. Þegar keppnin
byrjar kallar þáttastjórnandinn
einn tölustaf, frá 1 og upp í 20. Ef
einn af þínum fjórum tölustöfum
er kallaður þarft þú að syngja það
lag sem númerið var skráð á. Sá
sem er fyrstur að syngja öll fjögur
lögin vinnur keppnina.
Lagið Jólahjól eiga væntanlega
ófáir eftir að heyra eða syngja í
þessum leikjum. Hér er byrjunin
á laginu fyrir þá sem þurfa að
rifja það upp:
Undir jólahjólatré er pakki
Undir jólahjólatré er voðalega stór pakki
í silfurpappír og mamma og pabbi
glotta í laumi í kampinn.
Skyldi það vera jólahjól.
Skyldi þetta vera jólahjól.
Skyldi það vera jólahjól.
Skyldi þetta vera jólahjól.
Úti í jólahjólabæ slær klukka.
Úti í jólahjólabæ hringir jólahjóla-
klukkan jólin inn.
Ég mæni út um gráan glugga
og jólasveinninn glottir bak við ský
út í bæði.
Jólasöngvaleikir
Á jólunum er gleði og gaman
24 stundir/Eggert
Finnst ykkur gaman að syngja? Haldið þá ykkar eigin stórtónleika við
jólaborðið.
Aðfangadagsmorgni ætti að eyða
í friði og ró, en þá er nauðsynlegt
að vera búinn að sinna öllum
gjafakaupum og öðru slíku stússi.
Farið snemma á fætur og gerið
vel við ykkur í mat og drykk eða
færið makanum morgunmat í
rúmið. Heitar brauðbollur, úrval
osta, kakó og smákökur eru góð
byrjun á deginum. Að matnum
loknum er tilvalið að fá sér í
göngutúr eða setjast niður með
góða bók ef tími gefst.
Huggulegt í
byrjun hátíðar
Gleddu makann á aðfangadags-
morgun með dýrindis kremi sem
dregur úr óþægindum og daglegu
áreiti út af rakstrinum. Ultra
Confort frá Biotherm Homme
hefur olíulausa áferð og gengur
fljótt inn í húðina. Kremið nærir
húðina, mýkir og róar eftir rakst-
urinn. Hentu með góðum kasm-
írtrefli og leðurhönskum en þetta
þrennt er tilvalið í kuldanum á
Íslandi og góð gjöf á aðfanga-
dagsmorgun.
Gjöf á aðfanga-
dagsmorgun
Jólalínan frá Guerlain saman-
stendur af ótrúlega spennandi og
skemmtilegum vörum. Gylltir
tónar eru áberandi og er bæði
hægt að fá gullmaskara sem má
nota eina og sér og yfir svartan
maskara og gullið púður sem gef-
ur húðinni gullið og glóandi yf-
irbragð. Púðrið kemur í fallegum
jólalegum umbúðum og er til-
valið í jólapakkann ásamt mask-
aranum og augnskuggum með
gylltum ögnum í.
Gull, gull, gull
á jólunum
Gjafabréf Hraðlestrarskólans
er jólagjöf sem endist alla ævi
Gjöf með æviábyrgð
“Ólýsanlegt.”
Sara Ben, 18 ára nemi.
“Rúmlega tvöfaldað hraðann”
Edda Emilsdóttir, 74 ára húsmóðir.
“..þegar farið að skila mér árangri..”
Kolbrún Kjartansdóttir, 51 árs Kennari.
“..þetta er eiginlega of gott til að vera satt.”
B. Helgi Björgvinsson, 33 ára Forstöðum. UT. Air Atlanta .
“Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu prófunum.”
Jökull Torfason, 15 ára nemi.
“..ég bæði skil efnið betur og kemst hraðar yfir það.”
Daníel Eldjárn Vilhjámsson, 16 ára nemi
.
“Magnað námskeið, virkilega metnaðarfullt og vel skipulagt.”
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, 32 ára Kennari.
“..hvetjandi að sjá framför strax í fyrsta tíma. Takk fyrir.”
Emilía Kristjánsdóttir, 35 ára Leikskólakennari.
“..jók hraðann tæplega fimmfalt með skilning á prófi upp á 10.”
Hafdís Björk Jónsdóttir, 20 ára á leið í tannlæknanám.
“Mikið aðhald og mjög markvisst námskeið. Hverrar krónu virði.”
Guðrún María Ómarsdóttir, 20 ára.
“Átti ekki von á að fjórfalda hraðann og auka skilning úr 50% í 80%”
Róbert Rafnsson, 36 ára Rafeindavirki.
“..náði að þrefalda lestrarhraðann með 100% skilningi. Mæli með þessu.”
María Björg Magnúsdóttir, 18 ára nemi í MR.
“..alveg ótrúlegt að geta, með lítilli fyrirhöfn, lesið 746 orð á mínútu.”
Einar Brynjólfsson, 37 ára Framhaldsskólakennari
“Af hverju að skríða í gegnum textann þegar það er skemmtilegra að hlaupa.”
Einar, 29 ára eilífðarstúdent
“Á þriggja vikna námskeiði fimmfaldaði ég lestrarhraða minn. Takk fyrir mig.”
Karólína Finnbjörnsdóttir, 22 ára laganemi.
“Takk fyrir mig”
Rakel Jóhanna Ragnarsdóttir, 12 ára grunnskólanemi.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Ný hraðlestrarnámskeið að hefjast í hverjum mánuði
Allar upplýsingar á www.h.is
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning,
einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.