24 stundir - 27.11.2007, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
KYNNING
Á undanförnum árum hafa orðið
miklar breytingar á Glófa ehf., sem
er nú stærsti framleiðandi landsins
í prjónavörum. Glófi var stofnaður
á Akureyri fyrir röskum tveimur
áratugum og á sér því ríka sögu.
Auk starfsstöðvarinnar við Hrísa-
lund á Akureyri er Glófi einnig
með framleiðslu á Hvolsvelli, en
hönnunardeild, yfirstjórn og sölu-
menn eru að Auðbrekku 21 í
Kópavogi.
Logi A. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Glófa, segir að á
þessu ári hafi verið gerðar miklar
breytingar í rekstri fyrirtækisins,
sem m.a. fólust í því að sameina
framleiðslu þriggja fyrirtækja und-
ir nafni Glófa á Hvolsvelli. „Á Ak-
ureyri er lögð hvað mest áhersla á
framleiðslu hinna víðfrægu
Varma-sokka, t.d. Varma-
útivistarsokkanna og Varma-
angórusokkanna, sem fyrir löngu
hafa markað sér pláss á mark-
aðnum og eru í dag mest seldu
vetrarsokkar á Íslandi. Einnig er
þar framleiðsla á smávörum eins
og t.d. húfum, vettlingum, hár-
böndum og sjölum. Lengi vel var
einnig töluverð framleiðsla úr
mokkaskinnum, en úr henni dró
verulega með lokun Skinnaiðnaðar
á Akureyri.
Á Hvolsvelli eru framleiddar flíkur
úr íslenskri ull – t.d. peysur og
jakkar.“ Logi getur þess að töluvert
sé um að Glófi framleiði efni fyrir
íslenska hönnuði, sem sé mjög
ánægjulegt og til marks um að ís-
lensku ullarvörurnar séu vinsælar í
tískuheiminum.
Stærsti framleiðandi íslenskra prjónavara
Ullarvörur vinsælar í tískuheiminum
Glófi Logi A. Guðjónsson, Guðni
Ágústsson í peysu úr nýrri vöru-
línu og Páll Kr. Pálsson.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Mér fannst sem tilfinnanlega
vantaði bækur fyrir yngsta aldurs-
hópinn og fór því að leita á netinu.
Ég keypti nokkrar slíkar bækur á
Amazon, sem aftur vakti með mér
þá hugmynd að líklega væri þörf
fyrir þessar bækur í íslenskri útgáfu.
Það hefur sannarlega verið raunin,“
segir Sara Hlín.
Unga ástin mín er lítið fjöl-
skyldufyrirtæki sem rekið er úr einu
litlu herbergi á heimili í Galtalind í
Kópavogi. „Við sjáum sjálf um að
panta, þýða og dreifa bókunum,“
segir Sara Hlín. „Við keyptum ný-
lega sendiferðabíl sem kemur sér
vel þegar þarf að keyra út mörgum
bókum. Sem betur fer erum við
heppin að fá aðstoð þegar álagið er
mikið, þá sérstaklega frá afa og
ömmu sem eru 76 ára og búa í
Vestmannaeyjum en koma reglu-
lega í bæinn til að létta undir með
okkur. Þetta hefst ekki nema með
mikilli vinnu og stuðningi fjöl-
skyldunnar.“
Þroskandi og skemmtilegar
Bækurnar sem þau Sara Hlín og
Davíð gefa út eru allar úr ranni
bandarísks forlags sem sérhæfir sig í
útgáfu bóka fyrir börn. „Í fyrra gáf-
um við út sex bækur sem voru fyrst
og fremst ætlaðar yngstu börn-
unum. Nokkrar þeirra seldust upp
og því fórum við í endurprentun
fyrr á þessu ári. Þar sem viðtök-
urnar hafa verið framar björtustu
vonum ákváðum við að halda
áfram og gefum nú út ellefu nýjar
bækur, bæði fyrir yngstu börnin en
einnig þau eldri, meðal annars
þroskandi verkefnabækur fyrir
börn sem eru að byrja eða eru nú
þegar byrjuð í grunnskóla. Hugsun
okkar var að koma með fjölbreyttar
bækur fyrir breiðari aldurshóp sem
örva rökhugsun, ímyndunarafl og
fínhreyfingar og eru sömuleiðis
skemmtilegar og litríkar.“
Bækurnar góðu þýðir Sara Hlín
sjálf með aðstoð föður síns, Hálf-
danar Ómars Hálfdanarsonar, sem
starfar í Þýðingamiðstöð utanrík-
isráðuneytisins. „Pabbi lagði mikla
áherslu á það við mig sem barn að
ég talaði rétt og fallegt íslenskt mál
sem vonandi skilar sér í bókunum.
Ég vil að texti bókanna minna sé á
fallegri íslensku,“ segir Sara og bæt-
ir við að synir þeirra Davíðs sem
eru sjö mánaða og þriggja og hálfs
árs, séu mikilvægir ráðgjafar við út-
gáfuna.
„Þegar við erum að meta hvaða
bækur skuli gefa út notum við
strákana stundum sem tilraunadýr
ef svo má að orði komast. Ef sá
eldri gleymdir sér yfir bókunum og
verkefnunum í þeim gefur slíkt vís-
bendingar um notagildið. Það er
dýrmætt að fá slíka umsögn og að-
stoð, að ekki sé minnst á hve gaman
er að synirnir eigi þátt í því að
byggja fyrirtækið upp með okkur
þrátt fyrir ungan aldur.“
Þakkarbréf frá foreldrum
Nafnið á útgáfufyrirtækinu,
Unga ástin mín, er tilvitnun í ljóðið
fræga eftir Jóhann Sigurjónsson.
„Það hefur glatt mig mikið hve
bækurnar okkar hafa fengið góðar
viðtökur. Þakkarbréf í pósti frá
ánægðum foreldrum eru ánægjuleg
og nokkuð sem heldur mér við efn-
ið.“
Gefur út fjölbreyttar bækur fyrir börn frá 0 til 7 ára:
Allir eiga unga ást
➤ Fjölbreyttar bækur sem örvarökhugsun, ímyndunarafl og
fínhreyfingar
➤ Alls gefur forlagið út 11 nýjarbækur fyrir þessi jól.
UNGA ÁSTIN MÍN
Fyrir þessi jól sendir
bókaútgáfan Unga ástin
mín frá sér ellefu nýjar
þroskandi barnabækur
sem ætlaðar eru börnum
til sjö ára aldurs. Fyr-
irtækið sem Sara Hlín
Hálfdanardóttir og Davíð
Guðjónsson settu á lagg-
irnar á síðasta ári hefur
dafnað vel og bækurnar
fengið góðar viðtökur.
Þroskandi bækur Með Söru er sonurinn
Hávar Daníel, sem ásamt bróður sínum
gegnir mikilvægu hlutverki í útgáfunni.
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
MultiMaster
Ný fjölnotavél
slípar - sagar - skefur - raspar - brýnir