24 stundir - 12.01.2008, Blaðsíða 17

24 stundir - 12.01.2008, Blaðsíða 17
asson telur að heilbrigðis- og orkumálin verði prófsteinninn á samstöðu flokkanna en líka á þol almennings gagnvart ríkisstjórninni. Sérstaklega þó stuðningsmanna Samfylkingarinnar. „Þar hlýtur Samfylkingin að vera að nálgast þau mörk sem hún þolir, eða ætlar hún bara að sitja hjá meðan Sjálfstæðisflokkurinn einkavæðir heilbrigðiskerfið?“ spyr Ögmundur. En þótt stjórnarandstaðan sjái marga vankanta á starfi ríkisstjórnarinnar sér hún fáar leiðir til sam- starfs innbyrðis. „Það er engin ástæða til að hlaupa saman í eina sæng, við buðum ekki fram saman. Hringtrúlofun stjórnarandstöðu væri sjónarspil, líkt og samstaða stjórnarandstöðu fyrir síðustu kosningar sem end- aði með keppni Vinstri grænna og Samfylkingar um að komast upp í hjá sjálfstæðismönnum,“ segir Kristinn. Valgerður segir stóra málið að end- urheimta traust á efnahagskerfinu. „Fallið í Kaup- höllinni hefur mikil áhrif. Búið er að guma af fjörutíu milljarða tekjuafgangi sem eru meira eða minna froðufærslur. Fróðlegt verður að sjá nýja þjóðhagsspá um hana,“ segir Valgerður. Hjónaband eftir brúðkaupsferð Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, óttast ekki um samstarfið, þrátt fyrir efnahags- samdrátt og kjarasamninga. Samfylkingin er í rík- isstjórn með Sjálfstæðisflokknum en ekki ASÍ, segir Kjartan, hjónabandið haldi áfram, nýjasta konan sé alltaf sú besta en í öllum hjónaböndum komi upp erfiðleikar. „Þeir eru til að sigrast á.“ beva@24stundir.is aBjörg Eva Erlendsdóttir Hringtrúlofun stjórn- arandstöðu væri sjón- arspil, líkt og samstaða stjórnarandstöðu fyrir síðustu kosningar sem endaði með keppni Vinstri grænna og Sam- fylkingar um að komast upp í hjá sjálfstæðismönnum. 24stundir LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2008 17 Engum blöðum er um það að fletta að ein helsta ástæða þess að kjósendur höfnuðu áframhaldandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var óánægja með vaxandi ójöfnuð og kjör hinna verst settu. Um það vitnar pólitísk umræða undanfarinna ára og margháttaðar upplýsingar sem staðfest hafa það. Það var þess vegna mjög mik- ilvægt fyrir nýja ríkisstjórn að leggja strax í stjórnarsáttmálanum áherslu á bætt kjör lífeyrishafa, sem sannarlega var ekki vanþörf á. Enn betra var að því skyldi fylgt eftir með jafn myndarlegum hætti og raun ber vitni strax í fyrstu fjár- lögum nýrrar ríkisstjórnar. Og það eru ekki aðeins fjármunirnir sem þar skipta máli heldur líka brýn mannréttindamál, eins og afnám tenginga við tekjur maka og aukið frelsi til sjálfsbjargar. Báðir stjórn- arflokkarnir lögðu áherslu á kjör lífeyrisþega í kosningabaráttunni og því mikilvægt fyrir trúverðug- leika þeirra að láta verkin sýna merkin, þó þetta séu auðvitað bara fyrstu skrefin. Kjarasamningar En það er miklu fleira fólk en líf- eyrishafar sem býr við kröpp kjör og þarf að rétta sinn hlut. Það kem- ur auðvitað glöggt fram þessa daga í tengslum við kjarasamninga. Bæði lágtekju- og meðaltekjufólk hefur þurft að horfa upp á vaxandi tekjumun og breytingar á skattkerfi hafa miðað að því að létta sköttum af hátekjufólki og eignamönnum. Skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun sem leitt hefur til þess að fólk með mjög lágar tekjur greiðir talsvert í skatta. Þá dró bæði úr vaxta- og barnabótum á síðustu kjörtímabilum. Á þetta höfum við í Samfylkingunni lagt áherslu í okk- ar málflutningi. Í stjórnarsáttmálanum hafa flokkarnir náð saman um að stefnt skuli að skattalækkunum á kjör- tímabilinu, en það mun auðvitað að miklu leyti ráðast af því svig- rúmi sem verður í ríkisfjármálum til þess. Sérstaklega er þar vísað m.a. til hækkunar persónuafsláttar og aukinna barnabóta til hinna tekjulægstu, o.fl. Það verður spennandi að sjá hve mikið svig- rúm við munum hafa til að fylgja þessum viljayfirlýsingum eftir og hvernig til tekst almennt. Barnabæturnar eru hér ekki síst mikilvægar því í skýrslu sem ég kallaði eftir frá forsætisráðherra ár- ið 2006, kom fram að um fimm þúsund börn ælust upp á heim- ilum sem væru undir fátæktar- mörkum. Þetta kom okkur mörg- um á óvart og ég held að það sé þverpólitísk samstaða um að huga þurfi sérstaklega að þessum hópi. Það athyglisverða í skýrslu for- sætisráðherra var að á hinum Norðurlöndunum var ekki mikill munur á stöðu fátækra barnafjöl- skyldna fyrir skatta. En þegar skatt- ar og bætur voru teknar með tókst hinum Norðurlöndunum að draga mun meira úr fátækt barna en okk- ur, svo munaði allt að helmingi. Þannig eigum við augljóslega sókn- arfæri í skatta- og bótakerfinu að þessu leyti. Tillögur ASÍ Eins og kunnugt er hefur ASÍ sett fram tillögur um skattalækk- anir fyrir meðal- og lágtekjufólk. Þær miða að því að mæta einmitt þeim hópum sem við í Samfylking- unni höfum lagt áherslu á og eru allrar athygli verðar. Tillagan er um barnabætur og að auka persónu- afslátt fyrir lágtekjufólk upp á 20 þúsund á mánuði, sem muna myndi verulega um. Slík tillaga hefur þann kost að vegna þess að hún nær ekki til allra eins og al- menni persónuafslátturinn, þá verður hún ekki eins dýr. Gallinn er hins vegar sá að það flækir skatt- kerfið, sem er umdeilt og því geta fylgt talsverð jaðaráhrif. Þó ekki hafi verið fallist á tillögurnar eins og þær voru fram settar, er það eftir sem áður brýnasta verkefnið næstu vikur að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika. Því þurfa að nást samningar um kjarabætur hinna lægst launuðu og auðvitað mun ríkisstjórnin vilja greiða fyrir því eins og kostur er. Höfundur er alþingismaður Vaxandi ójöfnuður VIÐHORF aHelgi Hjörvar Bæði lág- tekju- og meðaltekju- fólk hefur þurft að horfa upp á vaxandi tekjumun og breytingar á skattkerfi hafa miðað að því að létta sköttum af hátekjufólki og eigna- mönnum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is frá kr. 19.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Vikuferð frá 49.990 - flug og gisting Heimsferðir bjóða beint morgunflug til Salzburgar í vetur og þar með tryggjum við þér aðgang að bestu skíðasvæðum Austurríkis, s.s. Flachau, Lungau og Zell am See. Bjóðum nú frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í janúar. Bjóðum 11 nátta ferð 15. janúar og 7 nátta ferð 26. janúar. Í boði er sértilboð á Hotel Speiereck í Lungau og á hinu glæsilega Hotel Unterberghof í Flachau. Tryggðu þér flugsæti og gistingu á besta verðinu og taktu þátt í skíðaveislu Heimsferða í Austurríki. Mjög takmarkaður framboð á þessum frábæru kjörum! Skíðaveisla í Austurríki 15. og 26. janúar Kr. 49.990 Flug og gisting í viku. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað án nafns í Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála stökktu tilboðs) með morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 26. janúar. Kr. 69.990 7 eða 11 nátta ferð með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í 7 (26. jan.) eða 11 nætur (15. jan.). Sértilboð 15. eða 26. janúar. Kr. 94.590 Frábært **** hótel með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku, sértilboð 26. janúar. Sértilboð í 11 nátta ferð 15. jan. m.v. gistingu í tvíbýli kr. 99.990. Kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. Sértilboð 15. janúar. Flugsæti með sköttum 26. janúar kr. 29.990. Það eru tvær góðar ástæður til að skoða húsbíla... ...McLouis og Weinsberg Sýning á laugardag og sunnudag frá eitt til fimm. Skemmtileg námskeið Námskeið fyrir börn og unglinga: * Gítarnámskeið * Trommunámskeið * Bassanámskeið 10 vikna hljóðfæranámskeið ætlað byrjendum. Kennt í litlum hóptímum þar sem þátttakendum er raðað í hópa eftir aldri og getu. Námskeið fyrir fullorðna: * Partýgítarnámskeið * Leikskólagítarnámskeið 6 vikna skemmtileg gítarnámskeið ætluð byrjendum í gítarleik Upplýsingar og skráning á www.tonsalir.is ónsalir Bæjarlind 2 - Sími 534-3700 - www.tonsalir.is Tónsalir er ryþmískur tónlistarskóli þar sem leitast er við að viðhalda gleðinni í hljóðfæraleiknum. WWW.EBK.DK Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Anders Ingemann Jensen farsími nr. +45 40 20 32 38 netfang: aj@ebk.dk Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.