24 stundir - 12.01.2008, Qupperneq 37
24stundir LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2008 37
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til
og hvers vegna?
Ég lít upp til náins ættingja sem er sér-
lega heilsteypt manneskja.
Hver er þín fyrsta minning?
4 ára tók ég ein strætó. Ég var svo lítil að
ég náði ekki upp í bjölluna og því gargaði
ég: stopp!
Hver eru helstu vonbrigðin hingað til?
Að hafa ekki eignast fleiri börn.
Hvað í samfélaginu gerir þig dapra?
Allir gervipeningarnir í samfélaginu og
hvursu ósjálfstætt og óöruggt fólk getur
verið.
Leiðinlegasta vinnan?
Þegar ég vann í vörugeymslu Landflutn-
inga í 2 daga, brrr … Það var mjög kalt.
Uppáhaldsbókin þín?
Ég er mikill bókaunnandi og get ekki
gert upp á milli ánægjustundanna með
þeim.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góður kokk-
ur?
Ég elda yfirleitt það sem bragð- og lykt-
arskyn kallar fram og engum hefur orðið
meint af því hingað til.
Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri
á ævi þinni?
Dætur mínar þrjár en ég myndi sjálf taka
atriðin á efri árum.
Að frátaldinni húseign, hvað er það dýr-
asta sem þú hefur fest kaup á?
Land Rover Discovery-jeppinn minn, ár-
gerð 2000.
Mesta skammarstrikið?
Þegar ég keypti fimmaurakúlur fyrir
peninga sem ég tók frá ömmu minni. Ég
fékk mikla skammir.
Hvað er hamingja að þínu mati?
Að vera sáttur við hlutskipti sitt og eiga
gott samneyti við sína nánustu.
Hvaða galla hefurðu?
Óstundvísi (það er að lagast), fljótfærni
og ég eyði of mikilli orku í óþarfa hluti.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi-
leikum, hverjir væru þeir?
Að láta allar góðar óskir og væntingar í
heiminum rætast.
Hvernig tilfinning er ástin?
Djúp, hlý, heit, yndisleg.
Hvað grætir þig?
Allt fallegt og hreint og beint en líka
óréttlæti og yfirgangur.
Hefurðu einhvern tímann lent í lífs-
hættu?
Já, nokkrum sinnum.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Allar nótnabækurnar sem ég hef þurft
að læra utan að.
Hvað gerirðu til að láta þér líða vel?
Skelli fram matarveislu með góðu og
skemmtilegu fólki!
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Að vera bara ég sjálf í einu og öllu.
Hvað langaði þig að verða þegar þú
varst lítil?
Hjúkrunarkona og söngvari.
Er gott að búa á Íslandi?
Dásemd, hvernig sem viðrar.
Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi
einhvers?
Ég er ekki alveg viss.
Hvert er draumastarfið?
Ég er á kafi í draumastarfinu.
Hvað ertu að gera núna?
Undirbúa nýárstónleika með Bergþóri
Pálssyni og Tríói Reykjavíkur. Þeir verða í
Hafnarborg sunnudaginn 20. janúar kl.
20.00. Þetta verður skemmtidagskrá með
óperettu-, söngleikja- og Vínartónlist.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
hefur verið á ferð og flugi allt
síðasta ár auk þess að stíga á
svið Íslensku óperunnar nú síð-
asta ár eftir 8 ára hlé. Þar söng
hún í Óperuperlum við mikinn
fögnuð gesta. Diddú er mikill
matgæðingur og finnst það sinn
lífselixír að elda góðan mat
handa góðu fólki.
Um þessar mundir undirbýr hún
nýárstónleika ásamt Bergþóri
Pálssyni og Tríói Reykjavíkur í
Hafnarborg.
a
4 ára tók ég ein strætó. Ég var svo lítil að ég náði ekki upp í
bjölluna og því gargaði ég: stopp!
24 stundir/Kristinn Ingvarsson
24spurningar