24 stundir - 12.01.2008, Qupperneq 62
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Þetta er óþarfa vesen og ég nenni
ekki að vera að aðlaga mig að
tölvu. Það kemur ekki til greina,“
segir sjónvarpsmaðurinn góð-
kunni Helgi Seljan.
Helgi og Katrín Rut Bessadóttir,
sambýliskona hans, eignuðust á
dögunum dóttur sem þau ætla að
nefna Indíönu Karítas Seljan
Helgadóttur. Babb kom í bátinn
þegar þau sendu Þjóðskrá nafnið,
en tölva hennar ræður ekki við að
skrá nafn sem er lengra en 32 stafir
með stafabilum. Nafn dóttur
Helga og Katrínar er 34 stafir og
stafabil.
Fjölmargir breyta vegna tölvu
„Ég velti fyrir mér hvort ég eigi
að vísa málinu til umboðsmanns
barna eða umboðsmanns Alþing-
is,“ segir Helgi sem hefur kynnt sér
málið undanfarið og komist að því
að á milli 100 og 200 manns hafa
beygt sig undir limbóstöng tölv-
unnar og stytt nöfn barna sinna.
Það ætlar Helgi ekki að láta bjóða
sér. „Ef það er ekki til einhver
stofnun í landinu sem getur varið
mann fyrir svona bullstjórnsýslu
þá þarf hún að vera til nú þegar. “
Helgi hefur þá kosti í stöðunni
að annaðhvort fella niður eitt
nafna dóttur sinnar eða skipta því
út fyrir upphafsstaf þess. „Ég veit
ekki til þess að mannanafnanefnd
hafi leyft einhverjum að heita K,“
segir hann. „Ég ætla ekki að fara að
brjóta mannanafnalög til að þókn-
ast tölvu í Borgartúni. Það kemur
ekki til greina. Hvers vegna í
ósköpunum getur Hagstofa, sem á
að halda utan um allan mannfjölda
landsins, ekki verið í stakk búin
fyrir þetta? Það eru engin lög um
lengd nafna á Íslandi, það verður
að laga tölvuna að því – ekki fólkið
að tölvunni.“
Unnið að endurbótum
Skúli Guðmundsson, skrif-
stofustjóri Þjóðskrár, segir að verið
sé að vinna að heildarendurskoðun
Þjóðskrár, en getur ekki sagt til um
hvenær breytingar ganga í gegn.
„...lengd nafna er eitt atriði sem
verður tekið á,“ segir hann. „Þótt
lengri nöfn komist ekki fyrir í
tölvukerfi sem er í almennri dreif-
ingu þá fær fólk fullt nafn inn á
vottorð, vegabréf og annað. Þetta
er eingöngu svona í þeirri tölvu
sem er verið að nota til póstáritana
og annars.“
Helgi Seljan ætlar ekki að stytta nafn dóttur sinnar
„Nenni ekki að að-
laga mig að tölvu“
Þjóðskrá getur ekki skráð
nöfn sem eru lengri en 32
stafir með stafabilum.
Nafn dóttur Helga Seljan
og Katrínar Bessadóttur
er 34 stafir en þau neita
að stytta.
24 stundir/Steinar Hugi
Helgi Seljan Ósáttur
við gamaldags tölvu-
kerfi Þjóðskrár.
➤ Helgi Seljan er sjónvarps-maður í Kastljósinu og Katrín
Rut Bessadóttir, sambýlis-
kona hans og barnsmóðir, er
sjónvarpskona í Íslandi í dag.
➤ Indíana Karítas Seljan, dóttirþeirra, kom í heiminn 15. des-
ember klukkan 8:55.
HELGI OG KATRÍN
62 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2008 24stundir
Útsala
30-70%
afsláttur
Laugavegi 44 - s:561 4000Diza
N
ýt
t
ko
rt
at
ím
ab
il
„Vegagerð ríkisins minnir mig oft
á staða belju sem gerði mér lífið
leitt þegar ég var kúasmali. Það
var ómögulegt að koma henni úr
stað ef hún hafði ákveðið eitthvað
– hversu heimskulegt sem það
var. Ef hún vildi ekki af básnum
út í góða veðrið – þá var nánast
ómögulegt að hnika henni.“
Hallur Magnússon
hallurmagg.blog.is
„Engan þarf að undra þótt Moha-
med Zaidi hafi orðið hlessa og
móðgast er hann áttaði sig á lyk-
ilorðinu sem Orange-símafyr-
irtækið úthlutaði honum er hann
tengdi verkstæði sitt í Pessac í Gi-
ronde Internetinu. [...] lykilorðið
„salearabe“, sem útleggja mætti
sem „arabadurtur“.
Ágúst Ásgeirsson
franseis.blog.is
„Ekki hérna í gegn kallinn
minn... Þetta voru orðin sem
maður fékk að heyra frá örygg-
isvörðunum í Kastrup þegar ég
ætlaði í gegnum öryggishliðið. Þú
ferð ekki með þessar byssur
hérna inn og ég skildi ekkert fyrr
en hann greip í upphandleggina á
mér á glotti;)“
Logi Geirsson
logi-geirsson.de
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Árið 2007 reyndist Hannesi Smárasyni erfitt. En til
að kóróna allt saman var það ekki bara FL Group
sem rann á hausinn, heldur Hannes sjálfur. Í einu
jólaboði fína fólksins milli jóla og nýárs, vildi ekki
betur til en svo, að þegar Hannes kom inn úr kulda
og snjó, rann hann til á marmaralögðu gólfinu og
rak hausinn í svo úr blæddi. Táknrænn viðburður,
sem kannski lýsir ári Hannesar í hnotskurn … tsk
Tónlistarmaðurinn og ritstjóri Monitor, Birgir Örn
Steinarsson, best þekktur sem Biggi í Maus, ætlar
sér að ganga í það heilaga í sumar, nema sú heppna,
Kolbrún Magnea Kristjánsdóttir, „kjósi að mæta
ekki í kirkjuna“ eins og Birgir sagði sjálfur í samtali
við blaðamann. Dagsetning er þegar ákveðin, 19.
júlí, og fer brúðkaupið fram í kirkju einni í Eyja-
fjarðarsveit … tsk
Sara Dögg Ásgeirsdóttir er á hraðri leið upp á
stjörnuhimininn. Hún leikur aðalhlutverkið í
Pressu, sem Stöð 2 sýnir um þessar mundir, og átti
góða innkomu sem starfsmannastjóri í Næturvakt-
inni þar sem hún lét Georg Bjarnfreðarson heyra
það. Nú velta menn fyrir sér hvaða hlutverk hún
tekur að sér næst og gárungarnir vona að það verði
í sjónvarpi þar sem það virðist eiga vel við hana. afb
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er
spurður: Karlinn minn, þú ætlar þó
ekki að reyna að komast inn með
þetta? Svo kleip hann í bíseppinn
og sagði: Hingað og ekki lengra, þú
ferð ekki með þessar byssur í gegn og
glotti,“ segir handboltakappinn
Logi Geirsson, sem leikur með
þýska liðinu TBV Lemgo og ís-
lenska landsliðinu.
Logi var á leiðinni í gegnum
Kastrup-flugvöll í Danmörku þeg-
ar spaugsami öryggisvörðurinn
varð á vegi hans. „Ég skildi byss-
urnar eftir og tek þær með í leið-
inni til Noregs,“ segir hann og
kímir.
Logi hefur jafnan verið talinn
með líkamlega sterkari leik-
mönnum íslenska landsliðsins og
sögur um að hann taki mest allra
leikmanna liðsins í bekkpressu
hafa loðað við hann.
Barátta í liðinu
Logi segist ekki viss um hvort
einhver leikmaður landsliðsins sé
farinn að lyfta meira en hann á
bekknum. „Ég veit það ekki. Ég get
ekki svarað því – en ég ætla að
vona ekki,“ segir hann. „Það er
ágætiskeppni innan hópsins um
hver er að pumpa mest.“
Evrópumótið í Noregi hefst 16.
janúar næstkomandi og undirbún-
ingur landsliðsins er í fullum
gangi. Logi segist hlakka virkilega
til að takast á við verkefnið. „Við
erum búnir að setja á okkur mikla
pressu sem við verðum að standa
undir. Við erum með heims-
klassalið og ætlum að reyna að
vinna alla leiki.“
atli@24stundir.is
Danskur öryggisvörður stríddi Loga Geirs
Stoppaður með
„byssur“ í tollinum
Sterkur Logi hefur „byssurnar“
umdeildu til lofts.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 6 4 5 9 1 8 3 2
8 2 3 7 4 6 1 9 5
1 5 9 8 2 3 6 4 7
3 1 8 9 6 2 5 7 4
4 7 5 1 3 8 9 2 6
6 9 2 4 7 5 3 1 8
9 8 1 2 5 4 7 6 3
2 3 7 6 8 9 4 5 1
5 4 6 3 1 7 2 8 9
Sæl fröken, ég er Einar spæjó.
Hringdirðu út af týndum ketti?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Það er ágætis hugmynd.
Sundsvall-konurnar eru
greinilega alvöru konur.
Geiri, á ekki að kaupa sér sundlaug?
Ásgeir Davíðsson er eigandi Goldfinger, en mikil umræða
hefur orðið undanfarna daga um baráttu sænskra kvenna
í Sundsvall fyrir að mega bera brjóst sín í sundlaugum.
Slíkt er leyfilegt hér á landi, en stripp og súludans liggur
undir ámæli femínista.