24 stundir - 12.01.2008, Blaðsíða 43

24 stundir - 12.01.2008, Blaðsíða 43
24stundir LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2008 43 Elísabet Alba mælir með Isole e Olena Vin Santo 1999. Apríkósur, kryddlegnar per- ur, hrásykur og heslihnetur eru áberandi í nefi. Þétt og sætt í munni með hunangs-, fíkju- og mólassatónum og karamellukennda áferð. Þrúgur: Malvasia & Treb- biano Land: Ítalía Hérað: Toskana Pekankaka Á næstu grösum Fyrir eitt 20 cm form með laus- um botni. Hráefni (botn): 5 eggjahvítur 100 g döðlumauk 100 g döðlur, skornar 80 g möndlukurl Hráefni (ofnálegg): 200 g pekanhnetur 60 g púðursykur 1msk. vatn 50 ml rjómi Aðferð: Eggjahvíturnar eru stífþeyttar. ¼ af eggjahvítunum er blandað varlega saman við maukið, döðl- urnar og möndlurnar með sleikju. Þegar það er vel blandað má blanda því saman við restina af eggjahvítunum. Sett í smurt form og bakað við 150°C í 18-20 mín. Kælið lítillega og setjið á kökudisk Hneturnar eru ristaðar í ofni við 150°C í um 4-6 mín. Þeim er síðan raðað á botninn Púðursykurinn og vatnið er brún- að í potti þar til fer að bullsjóða, þá er rjóminn setur út í. Hrært í og soðið þar til að kara- mellan verður glansandi og pass- lega þykk. Ath. Döðlumauk gerir maður sjálfur með því að mauka saman 1½ dl döðlur og soðið vatn. Sé ekki matvinnsluvél fyrir hendi má sjóða þetta í mauk en athugið að þá þarf miklu meira vatn. EFTIRRÉTTUR Ljúffeng pekankaka að hætti hússins Fyllt paprika – aðalréttur fyrir 6 Hráefni: 6 paprikur, blandaðir litir 5 tómatar, skornir 1 rauðlaukur, fínt skorinn 200g ólífur 200g fetaostur í teningum. 1 kúrbítur, skorinn í litla kubba 1dl hvítvín (má sleppa en er ofsa gott) 4 brauðsneiðar, rifnar gróft pipar eftir smekk Aðferð: Skerið paprikuna til helminga og kjarnhreinsið. Blandið afganginum af hráefninu í skál og skiptið á milli papriku- helminganna. Bakið á 200°C í um 5-7 mín og berið fram með kjúklingabauna- salati og hrísgrjónum. Kjúklingabaunasalat Meðlæti fyrir 6 Hráefni: 500 g soðnar kjúklingabaunir (Geta verið hvaða baunir sem er) 150 g sólþurrkaðir tómatar 50 g kapers 1stk fennel, smátt saxaður 10 g basil 1msk. sítrónusafi eða limesafi salt, pipar ólífuolía Aðferð: Tómatarnir, ólífurnar, fennelið og basilið er skorið. Öllu blandað saman. Ath. að skola kapersið áður en því er blandað saman við. Smakkað til með salti og pipar. Gott að mýkja aðeins með góðri ólífuolíu. AÐALRÉTTUR Fyllt paprika og kjúklingabaunasalat Elísabet Alba mælir með Tommasi Rafael Valpolicella Classico Su- periore 2005. Villt blóm, svört skógarber, jarðarber og fínleg krydd veita aðlaðandi ilm. Kirsuber, hindber og trönuber ásamt jurtartónum og vott af trufflum eru tilkomumikil í munni. Þurrt milliþungt vín með mjúk rúnuð tannín. Þrúgur: Corvina, Rondinella & Molinara Land: Ítalía Hérað: Veneto Gulrótar- og paprikufrauð Forréttur fyrir 6, hluti af stærra borði fyrir 8-10. Hráefni: 500 g gulrætur, gróft skornar 2 rauðar paprikur, kjarnhreins- aðar og gróft skornar 3 egg 2 msk. saxað, ferskt estragon 1 msk. söxuð steinselja salt og pipar Aðferð: Hitið ofninn í 150°C og setjið bök- unarpappír í jólakökuform. Setjið gulræturnar í pott með söltu vatni og látið sjóða í um 5 mínútur, bætið þá paprikunni út í og sjóðið áfram í 2 mín. Hellið vatninu af. Maukið grænmetið í mat- vinnsluvél eða með töfrasprota ásamt jurtunum og salti og pipar, setjið eggin að síðustu út í og pass- ið að ofþeyta ekki eftir að þau koma saman við. Smellið öllu í jólakökuformið og passið að pappírinn sé upp með öllum köntum og yfir frauðinu líka. Gott er að setja síðan álpappír yfir allt saman. Setjið formið í ofnskúffu eða ann- að stærra form og setjið sjóðandi vatn upp að hálfu forminu. Bakað í 30 mín., takið þá álpappírinn og efstu plastfilmuna af og bakið áfram í um 10 mín. Þetta er afbragðsgott með góðu, stökku salati og grófu brauði og kryddjurtasósu Kryddjurtasósa ½ dl basil saxað, ½ dl steinselja söxuð, ½ dl eplasafi, 1 msk. sinnep, ½ dl ólífuolía og limesafi. Allt maukað saman í blandara. FORRÉTTUR Litríkt og bragðgott 24stundir/Árni Sæberg Elísabet Alba Valdimars- dóttir vínþjónn mælir með Vosevo Sannio Falanghina 2005. Hreint og opið í nefi með hvítum blómum, sítrus og melónum. Þurrt og milt í munni. Epli og perur eru af- gerandi í munni með þægi- lega sýru og vott af greipald- ini í lokin. Þrúga: Falanghina Land: Ítalía Hérað: Campania Fátt jafnast á við að fá sér bolla af rjúkandi tei á þessum árstíma þeg- ar dagur er í styttra lagi og kalt er í veðri. Þá er te einnig góður val- kostur fyrir þá sem vilja draga úr kaffidrykkju en vantar eitthvað til að fylla í tómarúmið sem kaffiboll- inn skilur eftir sig. Heimur tesins er fjölbreyttur og hafa teunnendur því úr fjölmörg- um tegundum að velja. Ef menn eru ekki vanir te- drykkjumenn er upplagt að leita ráða, til dæmis hjá starfsmönnum sérverslana með te og kaffi. Þeir vita oftar en ekki hvernig best er að laga teið og við hvaða tilefni hver tegund fyrir sig hentar. Þegar menn eru komnir á bragðið geta þeir prófað sig áfram með fleiri tegund- ir og þroskað með sér góðan og persónulegan smekk. Rjúkandi te á vel við á veturna Tími fyrir tesopa Fjölbreyttur heimur Margar tegundir eru til af tei sem hentað geta við ólík tækifæri. Leður sófasett Hornsófasett Sófasett með skemli Tungusófar Tungu hornsófar Stakir sófar Borðstofuborð og stólar Skenkar Sófaborð Eldhúsborð Rúmgaflar Leðursófasett áður 239,000 Nú 119,900 Hornsófar tau áður 198,000 Nú 103,000 Hornsófar leður áður 249,000 Nú 149,000 Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510 HÚ SG AG NA - L AG ER SA LA HÚSGAGNALAGERSALA VERÐDÆMI Opnunartími mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00 ALLTAF FRÁBÆRT VERÐ! Kór, kór kvennakór Kyrjurnar eru skemmtilegur og góður kvennakór sem getur nú bætt við sig nýjum kórfélögum. Markmiðið okkar er að vera með um 40-45 kvenna kór. Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir og sér hún einnig um raddþjálfun. Láttu nú drauminn rætast, hafðu samband og það verður tekið vel á móti þér. Upplýsingar veitir Sigurbjörg kórstjóri í síma 865 5503 eða Inga formaður í síma 825 5070.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.