24 stundir - 05.02.2008, Side 24

24 stundir - 05.02.2008, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Smart-bíllinn er einn af fáum örbíl- um sem enn eru framleiddir í heiminum. Bíllinn er framleiddur af Daimler Chrysler AG sem fram- leiðir Mercedes Benz og þeir hafa verið til sölu í nærri áratug í Evr- ópu. Þrátt fyrir það eru aðeins seldir rúmlega 100.000 bílar í heiminum öllum á hverju ári. Bílaáhugamenn eru á einu máli, þótt örbílar séu skemmtileg og framúrstefnuleg hugmynd, hefur almenningur hafn- að örbílnum. Tími þeirra þykir lið- inn. Aaron Bragman sérfræðingur hjá Global Insight segist ekki hafa trú á því að framleiðsla á bílnum borgi sig mikið lengur. „Allir þeir sem vildu eignast þennan bíl í heiminum, eiga hann nú og útséð er um að bíllinn verði tískufyr- irbrigði.“ Þessu er Gordon Murray hönnuður hjá McLaren F1 algerlega Ekki smart á SMART? Tími örbílanna liðinn? Fullkominn til ferðalaga um kræklóttar götur mið- bæjarins, vistvænn og ódýr í rekstri í landi þar sem bensín og olía eru fljótandi gull. Hagkvæm- ari í rokrassinum 66 gráð- ur norður en vespurnar sem unga fólkið sveimar um bæinn á, skjálfandi af kulda. Hvers vegna eru göturnar ekki fylltar ör- bílum á við Smart-bílinn? Smart örbílar Smart- bílarnir þykja nútíma- legir og liprir. Þeir eru þrátt fyrir smæðina taldir öruggir í akstri. Þessi er til sölu! Fiat 500 til sölu á Ebay fyrir um 6000 dollara. Ör-rúta? Ótrúlegt en satt. Þessi Fiat- bifreið/rúta frá 1975 rúmar 6 manns. Sportútgáfa Margar Smart- bifreiðanna eru hannaðar í anda gömlu tímanna með nútímalegu yfirbragði. Isettan BMW Isetta þykir einn fagursti örbíll allra tíma. 3ja hjóla og opnast að framanverðu. ósammála og vill sjá veg örbílanna sem mestan. „Ég dáist að því hversu mörgu þarf að huga að við hönnun smábíla,“ segir hann. „Það þarf að reyna að hafa rýmið sem þægilegast þrátt fyrir smæðina og bíllinn þarf að vera öruggur í umferðinni. Þá er útlitið skemmtilegt og hugsunin á bak við framleiðslu þeirra göfug.“ Askja flytur ekki inn Smart „Við flytjum ekki inn smart- bifreiðarnar, höfum ekki séð að hér á landi sé markaður til þess,“ segir Jón Trausti Ólafsson markaðsstjóri hjá bílaumboðinu Öskju. Að- spurður hvort þeir þjónusti eig- endur bifreiðanna ef þeir leita til þeirra segir hann að svo sé ekki. „Eigendurnir verða að axla ábyrgð- ina sjálfir.“ Jón Trausti er þó ekki sammála um að tími örbíla sé lið- inn. Ég er afar hrifin af hugmynd- inni um vistvænan borgarbíl. Í London og öðrum borgum eru þeir í mikilli uppsveiflu og njóta vin- sælda enda hentugir til ferðalaga. nei tími örbílanna er ekki liðinn. “ Þrátt fyrir að úti sé snjór yfir öllu, og þar á meðal bílunum, er ekki síður mikilvægt að þrífa bíl- inn á svona vetrardögum. Hinar sí- vinsælu Sonax-hreinsivörur hafa verið á íslenskum markaði í yfir 30 ár og Sonax Hard wax er eitt mest selda bón á Íslandi, að sögn Þrastar Ríkharðssonar, vörustjóra hjá Ás- birni Ólafssyni ehf. „Sonax Hard wax er hreinsibón sem hreinsar tjöru og óhreinindi. Tjaran á Ís- landi er vandamál og þetta bón er því sérblandað fyrir íslenskar að- stæður. Það hreinsar tjöruna alveg af bílunum en önnur bón gera það síður. Við erum líka með glans- þvottalög sem er notaður áður en bíllinn er bónaður en það er önnur vinsæl sápa úr okkar línu. Bíllinn glansar allur eftir þann þvott,“ seg- ir Þröstur og hlær. Aðspurður af hverju hann telji að Sonax-vörurnar séu svona vin- sælar segir hann að það sé margt sem stuðli að því. „Til að mynda eru allar Sonax-umbúðir á íslensku svo það er auðveldara fyrir fólk að nálgast upplýsingar um hvernig ber að nota vöruna. Eins hafa So- nax-bónin alltaf verið mjög vinsæl vegna þess hve auðvelt og þægilegt er að vinna með þau. Eftir að bón- ið hefur verið borið á bílinn er mjög létt að strjúka það af sem ger- ir vinnuna við þrifin mun auðveld- ari og skemmtilegri,“ segir Þröstur að lokum og bætir við að Sonax- vörurnar fáist á öllum bensín- stöðvum. Sérhannað bón fyrir íslenskar aðstæður Mest selda bónið á Íslandi Sonax Sonax hafa verið á ís- lenskum markaði í yfir 30 ár. KYNNING SJÁLFVIRK 6v / 12v / 24v 0,8A - 25A Fyrir allar gerðir rafgeyma Mega vera í sambandi allt árið. Bíldshöfða 12 - 110 Reykjavík - Sími 577 1515 - www.skorri.is Hleðslutæki Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Ökunám í fjarnámi !!!! Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni heima þegar þér hentar. Skoðaðu þennan frábæra kost á www.ekill.is Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra nám- skeið til almennra ökuréttinda (Ö1), bifhjólanámskeið og námskeið fyrir lesblinda. Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum, Ö2 námskeið og námskeið til aukinna ökuréttinda. Skráning hafin á febrúarnámskeið         !"#$$$%&%        

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.