24 stundir - 05.02.2008, Blaðsíða 31
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 31
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Í um það bil fjórðungi heimsins
er vinstri umferð og flest löndin
þar sem slíkt tíðkast enn eru fyrr-
um nýlendur Breta. Þetta finnst
mörgum skrýtin tiktúra en fyrir
þessu er sögð vera afar einföld
ástæða. Hún er sú að áður fyrr
ferðuðust flestir á vinstri hlið þar
sem það var skynsamlegast á tím-
um óeirða þar sem vegamenn og
þorparar gátu legið í leyni. Rétt-
hentir menn vildu því halda sig
vinstra megin til að hægri höndin
væri nær óþokkunum en slíður
þeirra fjær. Þá eiga rétthentir auð-
veldara með að stíga af baki vinstra
megin og öruggara var að gera slíkt
við vegarkantinn frekar en á
miðjum veginum. Á sjöunda ára-
tug síðustu aldar kom um tíma til
tals að afnema vinstri umferð í
Englandi en hætt var við þá hug-
mynd og í dag er aðeins vinstri
umferð í þremur Evrópulöndum
fyrir utan Bretland, á Írlandi, Kýp-
ur og Möltu.
Bresk áhrif í Japan
Þótt Japan hafi aldrei verið hluti
af breska heimsveldinu er þar þó
vinstri handar umferð og höfðu
Bretar sín áhrif á það. Sú venja að
umferð skyldi vera til vinstri nær
þó mun lengra aftur, til Edo-
tímabilsins sem stóð frá árinu 1603
til 1867, en það var ekki fyrr en ár-
ið 1872 að þessi óskrifaða regla
varð meira eða minna opinber.
Það sama ár var hafist handa við
að byggja upp lestarkerfi Japans
með tæknilegri aðstoð frá Bretum.
Smátt og smátt dreifðust net lest-
arteina og sporvagna um allt Japan
og allt saman á vinstri hlið þar sem
Bretarnir höfðu haft puttana í
verkinu. Árið 1924 var síðan loks
skráð formlega í lög að vinstri
handar umferð skyldi ríkja í land-
inu.
Á vinstri hönd
Í dag er vinstri handar umferð
við lýði í 74 löndum. Þeirra á meðal
eru Bangladess, Suður-Afríka,
Máritíus, Kenýa, Sambía og Taíland.
Bretar Gældu við hug-
myndina um að breyta
yfir í hægri handar um-
ferð en hættu við.
Vinstri umferð enn í mörgum löndum
Bretar hættu
við að skipta
Mörgum líst ekkert á að
keyra í Bretlandi og á
þeim stöðum þar sem
vinstri umferð tíðkast
enn. Sá siður að umferð
gangi til vinstri á sér
skýringar síðan fyrr á öld-
um.
➤ Þar til á fjórða áratug síðustualdar var bæði vinstri og
hægri umferð á Spáni, allt
eftir landshlutum.
➤ Eftir seinni heimsstyrjöldinavar þrýst á Svíþjóð að taka
upp hægri umferð.
TIL HÆGRI SNÚ
Á Íslandi voru sett lög um hægri
handar umferð þann 26. maí 1968
og voru Hljómar fengnir til að
syngja lag dagsins, Varúð til vinstri
– hætta til hægri. Hægri umferð
var tekin upp í Danmörku í lok 18.
aldar en það náði ekki til Íslands,
enda varla mikil þörf á slíkum
reglum hér á landi á þeim tíma. Í
grein sinni um vinstri og hægri
umferð sem finna má á Vís-
indavefnum segir Örnólfur
Thorlacius meðal annars: „Til
gamans má geta þess að bent hefur
verið á það að konur sneru til
vinstri í íslenskum söðlum, og ef
tvær hefðarfrúr hefðu mæst í
þröngu einstigi og vikið til hægri,
hefðu þær átt á hættu að krækja
fótunum saman.“
Hernámið stöðvaði áform
Örnólfur skrifar einnig að til
hafi staðið að breyta umferðinni á
Íslandi í upphafi síðari heimsstyrj-
aldarinnar en hernám Breta hafi
gert þau áform að engu, þar sem
umferð hermanna var mun meiri
en heimamanna á vegum landsins.
Breytingin tók loks gildi klukkan 6
að morgni þann 26. maí 1968.
Varúð til vinstri – hætta til hægri
Skipt um hlið árið 1968
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR
SÍMI 440 1200
WWW.N1.IS
Hjá N1 finnur þú landsins mesta úrval af bílavarahlutum frá
viðurkenndum framleiðendum. Í verslunum okkar um land
allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf
sem þú þarfnast. N1 – Meira í leiðinni.
ÞESSI ER MEÐ TUDOR
EKKERT MÁL