24 stundir - 05.02.2008, Síða 38

24 stundir - 05.02.2008, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 24stundir LÍFSSTÍLLMENNTUN menntun@24stundir.is Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Síðastliðið sumar tók hópur fram- haldsskólanema sig saman og stofnaði fyrirtækið Ad Astra með það að markmiði að bjóða upp á námskeið fyrir bráðger börn. Gunnar Dofri Ólafsson, formaður stjórnar Ad Astra, segir að fyr- irtækið sé á vissan hátt sprottið upp úr verkefni sem Háskóli Ís- lands og Heimili og skóli stóðu að á árunum 2001-2004. „Ég og flest- ir sem koma að þessu fyrirtæki vorum á námskeiðum fyrir bráð- ger börn sem voru nokkurn veg- inn eins og þau sem við erum að halda núna. Það má segja að þetta sé framhald af því þó að rekstr- arformið sé allt annað,“ segir hann. Framhaldsskólanám er full vinna og hafa krakkarnir því nóg fyrir stafni. „Þetta er 150 prósent vinna þannig að maður er farinn að sverja sig í ætt við þjóðina. En þetta er afskaplega skemmtilegt og í raun og veru miklu meira gefandi en formlegt bóknám,“ segir hann. Sá eini með stúdentspróf Auk nemendanna kemur Pétur Blöndal alþingismaður að fyrir- tækinu. „Við grínumst með það að hann er sá eini í hópnum sem er með stúdentspróf,“ segir Gunnar Dofri. „Hann hafði samband við mig fyrir 8-9 mánuðum og spurði hvort við ættum ekki að leggja út í að stofna fyrirtæki um þetta. Ég hafði fram að þeim tíma verið að suða í honum að gera eitthvað í þessu á hans vettvangi, sem sagt í þinginu,“ segir Gunnar Dofri. Námskeiðin sem boðið er upp á eru á ýmsum sviðum svo sem eðl- isfræði, hagfræði, heimspeki og ræðumennsku svo fátt eitt sé nefnt. Kennarar við Háskólann í Reykjavík sjá um kennsluna auk fólks úr atvinnulífinu. Þá sér Pétur Blöndal þingmaður um námskeið í fjármálastærðfræði. „Það lítur út fyrir að það verði þingmannaþema á því námskeiði. Pétur verður í út- löndum einn laugardaginn og við ætlum að reyna að lokka Illuga Gunnarsson til að leysa hann af,“ segir Gunnar Dofri. Vannýttur mannauður Tilgangur námskeiðahaldsins er tvíþættur að sögn Gunnars Dofra. „Í fyrsta lagi höldum við því fram að þarna sé gífurlega mikill van- nýttur mannauður sem er nauð- synlegt að virkja,“ segir hann. „Svo eru þessir krakkar oft mjög fé- lagslega einangraðir og hafa gott af því að komast í hóp jafnaldra,“ segir hann og bendir á að það sé misjafnt eftir skólum hvernig komið er á móts við þarfir þessara barna. „Sumir skólar sinna þessu mjög vel. Kópavogsskóli er mjög gott dæmi um það á meðan aðrir skólar gera það síður,“ segir hann. „Það er oft álitið að þessi hópur eigi bara að bjarga sér og það er mjög miður,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson að lokum. Framhaldsskólanemar og þingmaður í fyrirtækjarekstri Halda námskeið fyrir bráðger börn Hópur framhaldsskóla- nema og þingmaður bjóða upp á námskeið fyrir bráðger börn. Nauð- synlegt er að virkja þann mannauð sem í þeim felst að mati stjórnarfor- mannsins sem fyllti sjálf- ur flokk bráðgerra barna. ➤ Námskeiðin eru ætluð nem-endum í 6.-10. bekk grunn- skólanna. ➤ Kennsla fer fram á laug-ardögum í Háskólanum í Reykjavík. ➤ Nemendur geta valið eitt eðatvö námskeið. ➤ Ad Astra er rekið á styrkjumeinkafyrirtækja og þátt- tökugjöldum en ekki op- inberu fé. NÁMSKEIÐ AD ASTRA Mynd/Gísli Baldur Bráðger börn á námskeiði Ásgeir Jónsson hagfræðingur ásamt hópi bráðgerra barna. Kennarar á námskeiðunum koma úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu. Yfir 100 viðskiptahugmyndir bárust í Frumkvöðlakeppni Innovit 2008 fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða en umsóknarfrestur rann út 30. janúar. Hugmyndir bárust úr öllum háskólum landsins og að auki frá Íslendingum í er- lendum háskólum. Á þriðja hundr- að þátttakendur standa að baki hugmyndunum. Keppa um Gulleggið Tíu framsæknustu viðskipta- hugmyndirnar verða verðlaunaðar í þessum fyrsta hluta keppninnar. Í síðari hluta hennar verður keppt um bestu viðskiptaáætlunina. Verðlaunahugmyndin hlýtur Gull- eggið 2008 ásamt 1.500.000 kr. peningaverðlaunum og ráðgjöf hjá sérfræðingum Innovit að verðmæti 500.000 kr. Þátttakendur þurfa nú að skila inn fullmótaðri viðskipta- áætlun fyrir 25. mars. Einungis tíu hugmyndir komast áfram í loka- áfanga keppninnar en þar þurfa keppendur að kynna hugmynd sína fyrir dómnefnd. Þetta er í fyrsta skipti sem Frum- kvöðlakeppni Innovit er haldin en fyrirmynd hennar er sambærileg keppni við MIT-háskólann í Bandaríkjunum. Frumkvöðlakeppni Innovit fær góðar viðtökur Yfir hundrað hugmyndir bárust Úr öllum skólum Nemendur úr öllum há- skólum á Íslandi taka þátt í Frumkvöðla- keppni Innovit.                        !"#$"  % &     ' ("                       !! "         #$$%&'('   )))!   6. - 9. mars Upledger stofnunin á Íslandi heldur fyrsta áfangann í námi í höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð, CSTI, 6. - 9. mars næstkomandi í Reykjavík. Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103 www.yogaheilsa.is Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla. Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur. Morgun, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar Heimsferðir bjóða frábær tilboð allra síðustu sætunum á skíðin í Austurríki í febrúar. Bjóðum einnig frábærar vikuferðir 16. og 23. febrúar á sértilboði, flug og gistingu. Tryggðu þér skíðafrí á besta verðinu og bókaðu strax. Ath. mjög takmarkað framboð! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Skíðaveisla í Austurríki 16. og 23. febrúar frá kr. 29.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 29.990 Flugsæti með sköttum. Sértilboð 16. og 23. febrúar. Netverð á mann. Verð kr. 59.990 Flug og gisting í viku. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað „án nafns“ í Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála "„stökktu tilboðs“) með morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 16. febrúar. Verð kr. 64.990 Vikuferð með hálfu fæði. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Stranachwirt *** í Lungau með hálfu fæði í 7 nætur. Sértilboð 16. eða 23. febrúar. Verð kr. 84.990 Frábært **** hótel með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku. Sértilboð 1. mars. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.