24 stundir - 31.05.2008, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir
Viltu bjarga mannslífum í Reykjavík,
New York eða Kampala?
Komdu þá í hjúkrunarfræði. Framúrskarandi
menntun með mikla atvinnumöguleika.
Hjúkrunarfræðideild
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ www.hjukrun.hi.is
» Umsóknarfrestur er til 5. júní 2008
» Rafræn umsókn er á www.hjukrun.hi.is
» Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarfræðideildar í síma 525 4960
„Við fögnum því að ríkisstjórnin
hafi tekið þá ákvörðun að siglingar
milli Vestmannaeyja og Landeyja-
hafnar hefjist 1. júlí 2010,“ segir El-
liði Vignisson, bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, en smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju hefur tafist
nokkuð vegna útboðsmála.
„Við óttumst auðvitað að þessi
seinagangur verði til þess að tíma-
setningar standist ekki en við von-
um að ríkisstjórnin standi við sitt.
Við vitum ekki hversu stórt skip
þeir hafa í hyggju, en krafa okkar
gerir ráð fyrir 400 farþegum og 68
bílum, sem er þónokkuð minna
skip en Herjólfur,“ sagði Elliði.
Hann taldi þó ekki að nýtt
Grímseyjarferjuklúður væri í upp-
siglingu, því vítin væru til þess að
varast þau. ts
Ríkið mun sjá um smíði Vestmannaeyjaferju
Vonast til að tíma-
setningar standist
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Sjávarútvegsráðherra hefur ekki
lesið það sem stendur í áliti mann-
réttindanefndarinnar, eða ekki
skilið það,“ segir Örn Snævar
Sveinsson stýrimaður, sem ásamt
Erlingi Sveini Haraldssyni höfðaði
mál á hendur íslenska ríkinu á
þeim forsendum að fiskveiðistjórn-
unarkerfið mismuni landsmönn-
um.
Í ræðu á Alþingi á fimmtudag
sagði Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráherra að það væri mat
ríkisins að ekki væru forsendur til
að greiða áðurnefndum kærendum
skaðabætur.
Í áliti mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna vegna máls-
ins, sem kunngert var í byrjun árs,
kemur fram að nefndin telur fisk-
veiðistjórnunarkerfið brjóta í bága
við sáttmála SÞ. Nefndin álítur að
íslenska ríkinu beri að veita þeim
Erni og Erlingi fullar bætur og gera
viðeigandi breytingar á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu.
Örn segir ummæli sjávarútvegs-
ráðherra ekki valda sér vonbrigð-
um. „Ég bjóst aldrei við miklu frá
honum.“ Hann segist eiga eftir að
hugsa næst skref. „En það verður
eitthvað gert.“
Ekki standa efni til bóta
Sjávarútvegsráðherra bendir á
að íslensk dómsyfirvöld hafi fjallað
um sambærileg mál, svo sem í
Vatnseyrarmálinu svokallaða, og
komist að niðurstöðu andstæðri
þeirri sem mannréttindanefndin
komst að. „Þess vegna tel ég að
samkvæmt íslenskum landsrétti
standi ekki efni til neinna slíkra
skaðabóta.“
Í alþingisræðunni sagði sjávar-
útvegsráðherra einnig að íslenska
ríkið muni huga að áætlun um
endurskoðun á íslenska fiskveiði-
stjórnunarkerfinu eða aðlögun í átt
að áliti mannréttindanefndarinnar.
Slíkt sé þó langtímaverkefni.
Sjávarútvegsráðherra segir álit
mannréttindanefndarinnar vera af-
skaplega óljóst.
„Hér er ekki um að ræða dóms-
orð sem hægt er að byggja á. Ég
legg áherslu á að stigið verði var-
lega til jarðar. Þær breytingar sem
gerðar verða á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu eiga að vera þróun en ekki
kollsteypa.“
Spurður að því hvort hér kveði
ekki við nýjan tón segir hann: „Í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
kemur fram að skipa skuli nefnd til
að fara yfir reynsluna af aflamarks-
kerfinu, og ég tel að þessi vinna sé
innan þess ramma.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir sjávarút-
vegsráðherra verða að skýra orð sín
betur og útskýra til hvaða aðgerða
verði gripið. Hann segir óvissuna í
þessu vera slæma, þar sem málið
snerti einstaklinga sem hafi fjárfest
fyrir háar upphæðir í veiðiheim-
ildum, tækjum og tólum.
Sjómennirnir
fá ekki bætur
Hugað að breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu, segir ráðherra
Segir ráðherra ekki hafa lesið eða misskilja álit nefndarinnar
➤ Sjávarútvegsráðherra sagði áAlþingi að hugað yrði að
áætlun um langtímaend-
urskoðun á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu.
➤ Hann sagði ekki forsendur tilþess að greiða bætur til sjó-
mannanna sem álit mannrétt-
indnefndar SÞ snerist um.
KERFIÐ ENDURSKOÐAÐ
24stundir/Kristinn Að veiðum Mannréttindanefnd SÞ álítur fiskveiðistjórnunarkerfið brjóta gegn sáttmála SÞ.
Orlofshúsin í Ölfusborgum
austan við Hveragerði eru
mjög illa farin eftir jarð-
skjálftann á fimmtudag að
sögn Kristjáns Finnssonar,
forstöðumanns Ölfusborga.
„Það er allt lauslegt í rúst
inni í bústöðunum og svo
fóru náttúrlega í sundur
vatnsleiðslur,“ segir hann.
Kristján segir ekki komið í
ljós hvort vatnstjón hefur
orðið í bústöðunum þar sem hann hafi lokað fyrir vatn inn í hverfið
við skjálftann til að koma í veg fyrir skemmdir. „En þetta er alveg feiki-
legt tjón. Þjónustuhúsin eru mjög mikið skemmd og hérna niður frá
þar sem er íbúð fyrir fatlaða eru alveg rosalegar skemmdir. Við höfum
grun um að frárennsli og slíkt sé líka illa farið. Flestir voru úti við þeg-
ar skjálftinn varð en fátt var í húsunum. aak
Leiðslur líklega illa farnar
Hópur fólks kom saman við Ráð-
herrabústaðinn um hádegi í gær
til þess að mótmæla komu
Condoleezzu Rice hingað til
lands.
Á Austurvelli mótmæltu svo
Samtök hernaðarandstæðinga
pyntingum Bandaríkjahers.
Þau stóðu fyrir því sem þau köll-
uðu sýnikennslu með vatns-
pyntingabekk og buðu Condo-
leezzu Rice sérstaklega velkomna
til að kynna sér eðli þessarar um-
deildu píningaraðferðar. aak
Buðust til að
pynta Rice
„Venjulega eru klefarnir lokaðir
klukkan 10 en þeir voru hafðir opnir í
nótt og í staðinn var aukin gæsla, þeim
fannst það ákveðið öryggi,“ segir Mar-
grét Frímannsdóttir, forstöðumaður
fangelsisins á Litla-Hrauni, en fang-
elsið var rýmt um tíma vegna jarð-
skjálftans á fimmtudag. Hún segir
starfsmenn hafa staðið sig mjög vel
enda margir kallaðir út sem ekki áttu
að vera á vakt. „Þeir komu jafnvel þótt þeir væru að fara frá heimilum
þar sem allt var í rúst. Fangarnir voru sem einn maður og það komu
engin vandamál upp,“ segir hún. aak
Klefarnir hafðir opnir yfir nóttina
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu verð á Finish Powerball 5
in 1 uppþvottatöflum (30 stk.). Verðmunur er 37,9%
sem er 409 króna munur á hæsta og lægsta verði.
Lægsta verðið var í Hagkaup og það hæsta í 10-11. Vert
er að taka það fram að könnunin er ekki tæmandi.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
38% munur á þvottatöflum
Jóhannes
Gunnarsson
NEYTENDAVAKTIN
Finish Powerball-uppþvottatöflur (30 stk.)
Verslun Verð Verðmunur
Hagkaup 1.080
Spar Bæjarlind 1.145 6,0 %
Krónan 1.149 6,4 %
Fjarðarkaup 1.190 10,2 %
Melabúðin 1.198 10,9 %
10-11 1.489 37,9 %