24 stundir


24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 8

24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir Taflhúsið á Hólmavík Rifið vegna vegaviðgerðar Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ákveðið að rífa Taflhúsið á Hólmavík, fimmtíu ára gam- alt hús sem sumir telja fyrsta húsið sem byggt er gagngert til að tefla í. Hefur húsið stað- ið ónotað síðustu ár og hefði þurft að rífa það fljótlega vegna viðgerða á Bröttugötu, sem það stendur við, að sögn Ásdísar Leifsdóttur sveit- arstjóra. Vonast hún til þess að búið verði að rífa húsið fyr- ir hamingjudagana, sem eru í júnílok. þkþ Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is „Það er mikið réttlætis- og sann- girnismál að hjálpa einhleypum konum sem ekki geta eignast barn,“ segir Guðmundur Arason kvensjúkdómalæknir. Hann fagnar því að á síðasta degi fyrir sumarfrí Alþingis var sam- þykkt frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra, sem meðal annars felur í sér að ein- hleypum konum verður heimilt að gangast undir tæknifrjóvgun. Fá tæknifrjóvgun erlendis Guðmundur segist hafa þurft að neita mörgum einhleypum konum um tæknifrjóvgun. „Þær hafa margar hverjar farið til útlanda og fengið þar meðferð,“ segir Guð- mundur, en samkvæmt t.d. finnsk- um og dönskum lögum mega ein- hleypar konur gangast undir tæknifrjóvgun. „Þess vegna er auð- vitað sorglegt að geta ekki með- höndlað þær nær heimilum sín- um.“ Í athugasemdum við frumvarpið segir að ljóst sé að miklar breyt- ingar hafi orðið á fjölskyldu- mynstri á undanförnum áratugum og einstæðum foreldrum fjölgað mjög. „Samfara fjölgun einstæðra foreldra og jafnari stöðu kynjanna má almennt segja að sátt hafi skap- ast um þetta fjöldskylduform í þjóðfélaginu. Er eðlilegt að litið sé til þessa þegar lagt er mat á það hvort rétt sé að heimila einhleyp- um konum að gangast undir tæknifrjóvgunarmeðferð.“ Mega staðfesta samvist Meðal annarra af fjölmörgum frumvörpum sem samþykkt voru á síðasta degi þingsins má nefna frumvarp forsætisráðherra um breytingar á lögum um staðfesta samvist. Breytingin hefur í för með sér að trúfélögum er veitt heimild til að staðfesta samvist samkyn- hneigðra. Frosti Jónsson, formaður Sam- takanna ’78, segir breytinguna vera skref í rétta átt. „Við áttum von á að þetta yrði samþykkt núna og teljum þetta vera skref í þá átt að sameina hjúskaparlöggjöfina í eina.“ Hefur mikla þýðingu Hann segir um réttlætismál vera að ræða, sem hafi mikla þýðingu fyrir mörg samkynhneigð pör. Í athugasemdum með frumvarpi forsætisráðherra er bent á að á kirkjuþingi á síðasta ári var sam- þykkt ályktun þess efnis að kirkju- þing styðji að prestum þjóðkirkj- unnar verði heimilt að staðfesta samvist, verði lögum breytt í þá átt. „Samkvæmt því hefur náðst sátt innan þjóðkirkjunnar og því betri forsendur til að lögfesta heimild þessa,“ segir þar ennfremur. Áréttað er í frumvarpinu að ekki sé um skyldu að ræða, heldur beri að virða frelsi presta og forstöðu- manna trúfélaga til að ákveða hvort þeir staðfesta samvist. „Réttlætismál“ sam- þykkt á síðasta degi  Einhleypar konur geta gengist undir tæknifrjóvgun, samkvæmt nýsamþykktu frum- varpi á Alþingi  Trúfélögum veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra ➤ Alþingi samþykkti á síðastadegi þingsins breytingar sem heimila einhleypum konum að gangast undir tækni- frjóvgun. ➤ Einnig var samþykkt breytingsem felur í sér að trúfélögum er veitt heimild til að stað- festa samvist samkyn- hneigðra. BREYTINGARNAR 24stundir/Brynjar Gauti Í frí Alþingi samþykkti fjölmörg frumvörp á síðasta degi fyrir sumarfrí. Björgunarfélag Ísafjarðar vígir nýjan björgunarbát sinn í dag þegar Ísfirðingar halda upp á sjómannadaginn. Báturinn kemur frá Bretlandi og er smíðaður 1992. Fær hann sama nafn og forverinn, Gunn- ar Friðriksson. „Þetta er nýrri bátur, kraft- meiri og að öllu leyti betri,“ segir Guðmundur Þór Ki- stjánsson, umsjónarmaður björgunarbáta félagsins. Ýmis björgunarverkefni bíða bátsins enda sinnti gamli báturinn að meðaltali einu útkalli á mán- uði, að sögn Guðmundar. þkþ Nýrri bátur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.