24 stundir - 31.05.2008, Side 12

24 stundir - 31.05.2008, Side 12
12 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir Lyf skipta sköpum! „Heilbrigð efri ár - mikilvægt hagsmunamál!“ „Miklar breytingar hafa átt sér stað á almennri lýðheilsu Íslendinga síðustu áratugi. Ber þá ekki síst að þakka eftirliti með hjarta- og æðasjúkdómum, m.a. með mælingum á blóðþrýstingi og blóðfitu og viðeigandi með- ferðarúrræðum. Aukin þekking, almenn heilsuefling og það að fylgst er mun fyrr með almennu heilsufari fólks, hefur leitt til þess að hægt hefur verið að koma í veg fyrir eða seinka ýmsum alvarlegum áföllum. Slíkar forvarnir stuðla ekki einungis að auknu heilbrigði á efri árum heldur einnig meiri lífsgæðum. Meiri þekking, árvekni og fjölbreytilegar meðferðarlausnir gera okkur því kleift að horfa björtum augum til langrar framtíðar án óþarfa kvilla og verkja.“ Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarfræðingur. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Myndir hafa náðst af alveg ein- angruðum ættbálki indíána í frum- skógum Amazon í Brasilíu, nærri landamærunum að Perú. Fulltrúar brasilískra yfirvalda náðu myndun- um á flugi yfir Acre-hérað, að sögn til að sanna tilvist ættbálksins svo að hægt verði að vernda land hans. Á myndunum sjást meðal ann- ars menn málaðir með appelsínu- gulum lit sem beina vopnum sín- um að flugvélinni, þaðan sem myndirnar voru teknar. Einangraðir Ættbálkurinn er meðal þeirra síðustu á jörðinni sem hafa ekki átt í neinum samskiptum við um- heiminn. Talið er að helminginn af þeim um hundrað ættbálkum sem lifa einangraðir frá heiminum sé að finna á þessum slóðum, það er í frumskógum Brasilíu og Perú. „Hætta er á að allir þessir ætt- bálkar verði reknir af landi sínu, drepnir eða deyi út vegna sjúk- dóma,“ segir Stephen Corry, for- maður Survival International, samtaka sem berjast fyrir rétti ein- angraðra ættbálka. Verði land þeirra ekki verndað muni hópar sem þessir brátt líða undir lok. Hætta á átökum Jose Meirelles, talsmaður yfir- valda, segir að þessi ættbálkur búi í sex litlum og nálægum samfélög- um, hvert með um fimm kofa. Á vef Telegraph segir að einangr- aðir ættbálkar í Perú eigi nú veru- lega undir högg að sækja vegna ólöglegs skógarhöggs og að þeir neyðist til að flytja heimkynni sín yfir til Brasilíu. Margir óttast að flutningarnar komi til með að leiða til innbyrðis átaka komist ættbálk- arnir í tæri hverjir við aðra. Fulltrúar brasilískra yfirvalda flugu yfir frumskóga Amazon til að sanna tilvist ættbálks Náðu myndum af einangruðum ættbálki indíána ➤ Myndirnar voru teknar á flugiyfir svæðið um síðustu mán- aðamót. ➤ Brasilísk yfirvöld hafa fundiðfjóra einangraða ættbálka í Amazon síðustu 20 árin. ÆTTBÁLKAR Einangraðir Fólkið beindi vopnum sínum að flugvélinni sem flaug yfir kofa þess. Stjórnandi byggingarkrana lést og tveir slösuðust er krani féll af þaki húss á Manhattan í New York í gær. Kraninn rakst á hús hinum meg- in við götuna og olli miklum skemmdum eftir að hafa fallið margar hæðir til jarðar. Slysið varð á horni 91. þvergötu og fyrsta breiðstrætis í hinu fína Upper East Side hverfi borgarinnar. Þetta er annar kraninn sem veld- ur manntjóni á árinu en sjö manns létust og fimm byggingar skemmd- ust mikið þegar krani hrundi á svipuðum slóðum í mars síðast- liðnum. Formaður byggingarsviðs New York-borgar sagði af sér í kjöl- farið vegna tíðra slysa við bygging- arframkvæmdir í borginni. aí Manntjón í New York Byggingarkrani féll Mótmæli gegn háu eldsneytis- verði hafa breiðst út til fleiri landa í álfunni og hafa fleiri þúsundir sjó- manna nú lagt niður vinnu. Mót- mæli spænskra sjómanna leiddu til þess að allur sjávarútvegurinn lá niðri í gær. Franskir sjómenn hafa staðið fyrir mótmælum svo vikum skiptir og hafa starfsbræður þeirra í Portúgal, Belgíu og Ítalíu slegist í hópinn að undanförnu. Auk þess hafa vörubílstjórar í Bretlandi og Hollandi mótmælt hækkandi elds- neytisverði með því að trufla um- ferð. Verkalýðsfélög segja hið háa ol- íuverð nú standa viðskiptum fyrir þrifum, en verð á hráolíu hefur þrefaldast á síðustu fimm árum. Sjómenn hafa víða lokað höfn- um með bátum sínum og lokað vegum að olíubirgðastöðvum. Í Frakklandi hafa yfirvöld boðið sjómönnum 100 milljónir evra í styrk og hefur nokkur fjöldi þeirra snúið aftur til sjós. atlii@24stundir.is Evrópubúar óánægðir með hátt olíuverð Mótmæli breiðast út Hæstiréttur í Texas-ríki í Bandaríkjunum hefur úr- skurðað að börnum, sem voru fjarlægð af búgarði sér- trúarsafnaðar í apríl, skuli skilað aftur til foreldra sinna. Rétturinn taldi barnavernd- aryfirvöld hafa farið út fyrir sín lagalegu mörk þegar þau tóku börnin, og að ekki væri hægt að sanna að börnin 460 hafi verið í hættu. Börnin voru fjarlægð vegna gruns um að stúlkur undir lögaldri væru neyddar til sam- ræðis og hjónabands. mbl.is Söfnuðurinn í Texas Börn verði af- hent foreldrum Kínversk yfirvöld hafa fyr- irskipað 1,3 milljónum manna að yfirgefa svæði nærri stífl- um af ótta við að þær bresti. Sérstaklega er fylgst með þró- um mála við Tangjiashan þar sem stórt stöðuvatn mynd- aðist eftir aurskriður. aí Skjálftasvæðin í Kína 1,3 milljónir fluttar á brott

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.