24 stundir - 31.05.2008, Síða 20

24 stundir - 31.05.2008, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra komu á Selfoss um miðjan dag í gær. Þar sátu þau fund með al- mannavarnarnefnd og öðrum sem hafa tekið þátt í hjálparstarfi á Suðurlandi. Geir sagði ljóst að mikið tjón hefði orðið í skjálftanum. „Hér hefur verið unnið þrekvirki í hjálparstarfi. Við- lagatryggingasjóður mun nú fara af stað með hraði til að bæta fólki tjón.“ Ingibjörg tók í sama streng og sagði mikla mildi að ekki skyldu verða al- varleg meiðsli á fólki. „Þetta hefur ver- ið gríðarsterkur skjálfti og mikið tjón orðið. Fólki hér á svæðinu verður komið til aðstoðar og allir eru tilbúnir til þess, bæði ríkisstjórnin, sveit- arfélögin og viðlagatrygging og allir þeir sem koma að þessum málum.“ Farsímakerfi voru óvirk meira og minna í fyrradag og ljóst að þau stóð- ust alls ekki álagið sem varð. Geir sagði ljóst að ríkisstjórnin myndi fara yfir þau mál. „Tetra-fjarskiptakerfið fór ekki úr sambandi og það verður tryggt að heilbrigðisstofnanir komist inn á það kerfi. Það er mjög mik- ilvægt.“ freyr@24stundir.is Forsætisráðherra og utanríkisráherra komu á vettvang skjálftans Þrekvirki unnið í hjálparstafi 24 stundir/Frikki 24stundir/Frikki Fallinn Þetta auglýsingaskilti í útjaðri Selfoss var illskiljanlegt í gær enda hafði helmingur þess fallið til jarðar í jarðskjálftanum. Á vettvangi Ráðherrarnir komu á fund almannavarnarnefndar á lögreglustöðinni á Selfossi í gærdag. Þar voru þeir fræddir um stöðu mála á svæðinu. Þeir upplýstu jafnframt um ákvarðanir ríkisstjórnarinnar til hjálpar íbúum á Suðurlandi. „Ég var stálheppinn að stórslas- ast ekki. Hér inni voru svona fimm manns og það er eiginlega krafta- verk að enginn skyldi slasast,“ segir Sævar Pétursson, verslunarstjóri í Vínbúðinni í Hveragerði. Eins og skriða færi af stað „Við bara rétt sluppum út. Þetta var ótrúlega snarpur skjálfti og mér fannst hann líka standa lengi yfir. Ég var að raða hér upp í hillur og það var eins og það færi skriða af stað. Ef mér hefði skrikað fótur hefði ég hreinlega grafist undir flöskunum og þá er bara alveg óvíst hvar ég væri í dag.“ Aðkoman í Vínbúðinni var verulega ljót í gærmorgun og mikið verk var framundan hjá starfs- mönnum. Meðan blaðamaður 24 stunda staldraði við í versluninni kom snarpur eftirskjálfti og mátti heyra gler brotna þegar vínflöskur ultu úr hillum. Sævar, sem er búsettur á Stokks- eyri, dvaldi í Reykjavík í nótt með syni sínum. „Ég vildi ekki taka neina áhættu.“ freyr@24stundir.is Verslunarstjóri Vínbúðarinnar í Hveragerði átti fótum fjör að launa Stálheppinn að stórslasast ekki 24 stundir/Frikki Skriða Allt var á tjá og tundri í Vínbúðinni í Hveragerði í gær. SKJÁLFTINN frettir@24stundir.is

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.