24 stundir - 31.05.2008, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp
til og hvers vegna?
Ég lít upp til svona hundrað persóna.
Það eru yfirleitt hinir og þessir þættir
sem ég dáist að og reyni að læra af þeim
kostum sem þetta fólk hefur.
Hver er þín fyrsta minning?
Mín fyrsta minning er þegar ég er
inni í stofu með kókflösku sem hljóð-
nema að syngja Sókrates. Ég rúllaði
upp textanum 18 mánaða dansandi á
stofugólfinu
Hver eru helstu vonbrigðin hingað
til?
Ég hef sem betur fer ekki upplifað
nein stórkostleg vonbrigði. Það er mun
algengara að ég eigi dag þar sem öll
vonbrigðin sameinast.
Hvað í samfélaginu gerir þig dapr-
an?
Ég hugsa að við lifum í frekar góðu
samfélagi og ættum frekar að reyna að
vera jákvæð en döpur yfir þáttum þess.
Það hefur allt sína kosti og galla en
kostirnir við íslenskt samfélag miðað
við mörg önnur eru klárlega margir.
Leiðinlegasta vinnan?
Ég vann einu sinni eitt sumar í
Krónunni. Hillurnar þar hafa aldrei
verið jafnfullar en ég var ekki samur
maður eftir það sumar.
Uppáhaldsbókin þín?
Ilmurinn – saga af morðingja. Njála
er líka mjög góð, allavega glósurnar úr
henni.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góð-
ur kokkur?
Ég eldaði síðast í matreiðslu í 8.
bekk. Þá hnoðaði ég pitsudeig sem
endaði fast í loftinu á matreiðslustof-
unni. Sjálfur endaði ég á kennarastof-
unni. Ég hugsa að ég sé samt fínn kokk-
ur. Mamma eldar toppmat og ég er nú
einu sinni sonur hennar.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
byggðri á ævi þinni?
Ef James Dean væri á lífi myndi
hann eflaust hafa fengið hlutverkið en
það er á hreinu að Robert De Niro
myndi leika Víði Leifsson vin minn.
Að frátalinni húseign, hvað er það
dýrasta sem þú hefur fest kaup á?
WW Golf. Ég klessti hann stuttu síð-
ar enda hef ég aldrei verið lunkinn við
stýrið. Ég held að ég fikti of mikið í út-
varpinu.
Mesta skammarstrikið?
Það voru nokkur góð tekin í síðustu
knattspyrnuferð mfl. Selfoss. Gunnar
Borgþórsson heitir arkitektinn, ég
framkvæmdi þau. Stóra fiskamálið og
,,hvar er klukkan“ voru þau umdeild-
ustu ásamt stóra reykelsismálinu.
Hvað er hamingja að þínu mati?
Hamingjan er leitin að hamingjunni.
Hvaða galla hefurðu?
Rauðan Pumagalla.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum
hæfileikum, hverjir væru þeir?
Ég gæti séð fyrir öll úrslit í komandi
kappleikjum.
Hvernig tilfinning er ástin?
Það er frekar einhver ástfanginn sem
getur svarað því.
Hvað grætir þig?
Ég græt ekki. Ég er úr stáli.
Hefurðu einhvern tímann lent í
lífshættu?
Nei aldrei. 7-9-13.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu
mest?
Ég hugsa að það sé gítarinn minn.
Þegar ég keypti mér nýjan leið mér eins
og ég væri að hætta með kærustunni
minni.
Hvað gerirðu til að láta þér líða vel?
Ég sit og hugsa, borða, fer í sund,
spila lag á gítarinn minn. Annars líður
mér oftast vel en ef mér líður illa er
voða erfitt að breyta því.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Ég er grannur með krullur.
Hvað langaði þig að verða þegar þú
varst lítill?
Löggiltur endurskoðandi.
Er gott að búa á Íslandi?
Það fer eftir viðmiðinu. Sennilega
finnst Íslendingum það best þó svo að
einhverjum í Angóla fyndist það ekkert
spes þrátt fyrir að hér sé meiri velmeg-
un. Það finnst örugglega öllum best að
búa nálægt þeim stað það sem þeir ól-
ust upp eða í svipuðu umhverfi.
Hefurðu einhvern tímann bjargað
lífi einhvers?
Nei, aldrei. Ég fékk samt 9 í björg-
unarsundi í 10. bekk. Ég hef beðið eftir
því að það próf komi að góðum not-
um.
Hvert er draumastarfið?
Að vera frjáls og geta ráðið mér sjálf-
ur. Starfið mitt í dag hentar mér virki-
lega vel. Hvað ertu að gera núna?
Ég er að borða Cheerios, læra undir
próf í opinberri stjórnsýslu, senda sms
og hugsa um daginn og veginn.
24spurningar
Ingólfur Þórarinsson
Ingó sló rækilega í gegn
þegar hann keppti í Idol
stjörnuleit um árið en lítið
hafði heyrst til hans síðan.
Nú hefur hann snúið aftur
hressari en nokkru sinni
með sumarsmellinn Baha-
mas þar sem hann syngur
um ungan mann sem
ákveður að lækna brostið
hjarta með ferð til Bahama-
eyja. Ingó er nú meðlimur í
hljómsveitinni Veðurguð-
unum en þeir félagar eiga
heiðurinn af laginu sem óm-
ar nú í hvert sinn sem kveikt
er á útvarpstækinu.
Við vonum að veðurguð-
irnir verði okkur hliðhollir í
sumar.
a
Ég hugsa að við lifum í
frekar góðu samfélagi
og ættum frekar að reyna
að vera jákvæð en döpur yf-
ir þáttum þess. Það hefur
allt sína kosti og galla en
kostirnir við íslenskt sam-
félag miðað við mörg önnur
eru klárlega margir.
24stundir/Kristinn Ingvarsson
Efnalaugin Björg
Áratuga reynsla og þekking
- í þína þágu
.....alltaf í leiðinni
Opið: mán-fim 8:00-18:00 • fös 8:00-19:00 • laugardaga 10:00-13:00