24 stundir


24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 30

24 stundir - 31.05.2008, Qupperneq 30
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008ATVINNA30 stundir Auglýsingasíminn er 510 3728 og 510 3726 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið, Álfabakka 16, 109 Reykjavík www.heilsugaeslan.is Reykjavík 1. júní 2008. Hjúkrunarfræðingur við Heilsugæsluna Seltjarnarnesi Leitað er að hjúkrunarfræðingi til starfa á Heilsugæsluna Seltjarnarnesi. Um er að ræða starf hjúkrunarfræðings þar sem starfssviðið er m.a. í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu, heilsuvernd eldri borgara og almennri móttöku. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall getur verið samkomulagsatriði. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heilsugæsluhjúkrun eða búi yfir góðri reynslu í hjúkrun. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 16. júní 2008. Ljósmóðir við Heilsugæsluna Miðbæ Ljósmóðir óskast til starfa við Heilsugæsluna Miðbæ sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 90% starf sem skiptist í mæðravernd og ungbarnavernd. Leitað er eftir ljósmóður sem hefur einnig lokið hjúkrunarfræðimenntun og býr yfir klíniskri reynslu. Krafist er sjálfstæðra vinnubragða. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laus störf: Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Emilía P. Jóhannsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar Seltjarnarnesi í síma 561-2070 eða netfangi:emilia.p.johannsdottir@seltj.hg.is. Ljósmóðir við Heilsugæsluna Seltjarnarnesi Ljósmóðir óskast til starfa við Heilsugæsluna Seltjarnarnesi sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða starf við mæðravernd og foreldrafræðslu. Leitað er eftir ljósmóður sem hefur einnig lokið hjúkrunarfræðimenntun og býr yfir klíniskri reynslu. Krafist er sjálfstæðra vinnubragða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Nánari upplýsingar veitir Margrét Magnúsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar Miðbæ í síma 525-2600 eða á netfangi: margret.magnusdottir@mid.hg.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Mýrdalshreppur er um 500 manna sveitarfélag. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem grunn- leik- og tónskóli, heilsugæsla, dvalar- og hjúkrunarheimili, íþróttahús og sundlaug. Mikil áhersla er lögð á æskulýðs- og íþróttamál. Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og margir möguleikar til útivistar. Vík er í um 2 klst. fjarlægð frá Reykjavík og samgöngur eru greiðar árið um kring. Ferðaþjónusta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu og fjölbreyttir möguleikar eru fyrir fólk með ferskar hugmyndir. Sveitarfélagið og stofnanir þess eru þátttakendur í verkefni Lýðheilsustöðvar Allt hefur áhrif einkum við sjálf og umhverfisverkefninu Green Globe 21. Tónskólakennari - organisti Kennara vantar að Tónskóla Mýrdælinga og organista að Víkur- og Skeiðflatarkirkjum. Æskilegar kennslugreinar eru píanó, blásturshljóðfæri og tónfræði. Nánari upplýsingar veita: Kristinn Níelsson skólastjóri s:487 1485, ton_vik@ismennt.is Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 487 1210, sveitarstjori@vik.is Helga Halldórsdóttir, form. sóknarnefndar s: 487 1210, helga.halldorsdottir@vik.is Umsóknarfrestur er til 13. júní Grunnskólakennarar Við Grunnskóla Mýrdalshrepps eru lausar til umsóknar tvær stöður umsjónarkennara. • Umsjónarkennari fyrir 7.-8. bekk. Æskilegar kennslugreinar, stærðfræði, náttúrufræði og íslenska • Umsjónarkennari fyrir 9.-10. bekk. Æskilegar kennslugreinar stærðfræði og náttúrufræði Aðrar kennslugreinar eða námshópar koma til greina. Nánari upplýsingar veitir: Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri s: 866 7580, 895 3936, kolbrun@ismennt.is Umsóknarfrestur er til 13. júní Grunnskóli Mýrdalshrepps er fámennur samkennsluskóli. Við skólann starfar öflugur og samhentur hópur starfsfólks sem tekur nýju starfsfólki fagnandi. http://gsm.ismennt.is Mýrdalshreppur www.vik.is Leikskólastjóri Staða leikskólastjóra við leikskólann Suður-Vík er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar veita: Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 487 1210, sveitarstjori@vik.is Björgvin Jóhannesson form. fræðslunefndar s: 861 2299 Umsóknarfrestur er til 13. júní Vík í Mýrdal - fjölskylduvænt samfélag í fallegu umhverfi Jákvæð samskipti á vinnustað eru lykilatriði Flest verjum við stærstum hluta dagsins á vinnustaðnum. Hefðbundinn vinnudagur er átta klukkustunda langur og flestir fara að sofa 5-6 klukkustundum eftir að heim er komið. Það er því augljóslega mikilvægt að við séum ánægð í vinnunni. Góð samskipti á milli undirmanna og yfirmanna eru lykilatriði ef samstarfið á að ganga vel. Það kann til dæmis ekki góðri lukku að stýra ef undirmaður óttast yfirmanninn og telur sig ekki geta leitað til hans ef eitthvað er óskýrt eða jafnvel með öllu óskiljanlegt. Slíkt mun óhjákvæmilega leiða til þess að starfsmaðurinn skilar verki sem ekki uppfyllir kröfur yfirmannsins. Þetta mætti að sjálfsögðu forðast ef yfirmaðurinn sæi sér fært að fræða starfsmanninn nægilega í upphafi og benda honum nákvæmlega á til hvers er ætlast af honum. Óttaslegni starfsmaðurinn þarf þá líklega ekki að leita jafnoft til yfirmannsins. Verstu mögulegu starfsaðstæðurnar eru þegar undirmaður vinnur með yfirmanni sem veitir hvorki fræðslu né tækifæri til þess að nálgast hann með spurningar. Þá getur það orðið óbærileg kvöl fyrir starfsmanninn að mæta í vinnuna og næsta víst að verkefni hans munu bera þess skýr merki. Erfitt getur verið að leysa þetta mál en starfsmaður getur til dæmis prófað að leita til einhvers sem er hærra settur en sá sem erfiðleikunum veldur. Ef slíkt er ekki í boði og starfsmaður telur sig ekki geta leitað lausna gæti verið kominn tími til að leita að öðru starfi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.