Eintak - 03.03.1994, Page 5
© Jón Ragnarsson keypti 130 milljóna króna
hótel á 50 milljónir © Líffœri flutt úr landi
en líffœranefndin týnd í kerfinu
© Allir vilja verða flugfreyjur
JÓN RAGNARSSON eigandi
Hótel Arkar í Hveragerði og
Hótel Valhallar á Þingvöllum
festi í janúar kaup á Hótel Norður-
landi sem var lýst gjaldþrota í lok
síðasta árs. Iðnlánasjóður, Ferða-
málasjóður og Byggðastofnun
voru stærstu lánadrottnar hótels-
ins sem metið er á meira en 130
milljónir króna samkvæmt bruna-
bótamati. Hluthafar Hótel Norður-
lands höfðu fyrr á árinu komið
með hugmyndir að skuldbreytingu
og endurskipulagningu sem meðal
annars fólu í sér hlutafjáraukningu
til að geta haldið áfram rekstrin-
um. Sjóðirnir voru hins vegar ekki
tilbúnir til að samþykkja þessar
hugmyndir og á endanum var tek-
ið tilboði Jóns í húseignina upp á
50 milljónir króna. Tap sjóðanna er
því ekki minna en sú upphæð sem
fyrir eignina fékkst og eru norðan-
menn að vonum súrir yfir þessum
málalokum...
Svíar eru farnir að gera út á
(sland í leit að líffærum til líf-
færaflutninga. Tveir hópar
sænskra lækna komu með einka-
þotum í þessum erindagjörðum til
landsins í vikunni. Að sögn ÓLAFS
Z. ÓLAFSSONAR svæfingalæknis
eru engin lög til í landinu um líf-
færaflutninga en málið er í athug-
un hjá nefnd sem er týnd einhvers
staðar í kerfinu. Eins og staðan er
í dag þarf ekki heimild frá líffæra-
gjafanum sjálfum en óskað er
samþykkis nákomnasta ættingja
viðkomandi. Á meðan ekki verður
gerð breyting á, geta einstæðingar
sem láta lífið, búist við því að
verða bútaðir niðurtil útflutnings
að sér forspurðum...
eira en 900 umsækj-
endur voru um 20 sum-
arstörf sem flugfreyjur
og flugþjónar hjá Flugleiðum.
Hópurinn þreytti hæfnispróf í
Háskólabíói og að því loknu vpru
um 100 þeirra boðaðir til viðtals.
Eftir að tilkynnt var hverjir voru
valdir úr hópnum kom í Ijós að
kandídatarnir þurfa að sækja und-
irbúningsnámskeið í sex vikur frá
kl. 6 til 10 á kvöldin. Þar sem nám-
skeiðið er haldið utan
hefðbundins vinnutíma
telja Flugleiðir sig ekki
þurfa að greiða þeim
kaup á meðan á því stendur.
Að vonum þykir þátttakendum i
námskeiðinu þetta ekki sanngjöm
meðhöndlun...
FÖSTUDAG
VINIR VORS OG
LAUGARDAG
PÁLL ÓSKAR
OG MILUÓNA-
MÆRINGARNIR
við Vitators • Vitastís 3 ® 62 85 85
p.rnr í ir •
3)r , r %
\r ■j r •
j i _
* "tntmskeið
a«*í
TÍEMLUROGUOS
Eittn bcsti tœkjasalur landsins og reyndir /tjálfarar
tryggja öruggan árangur. Fullkomnir Ijósabekkir og
gód badadstada meö heitum potti og gufubadi.
WEKIÍN!
FROSTASKJÓLI 6 • SÍMI: 12815 OG 12355
09»
VIRKU búðirnar
fluttu úr Faxafeni 1. mars og
af Klapparstíg í apríl.
Verið velkomin í nýja glæsilega
verslun fulla af fallegum efnum í vor-
og sumarlitum. Opið laugardaga frá
1. sept. - 1 júní milli kl. 10.00-14.00.
Sími 687477. Næg bílastæði.