Eintak - 16.06.1994, Side 2
Ætfarðu
ÉT
Wrwöy
Junus?
„Nei. “
Afhverju ekki?
„Ég er formaður Lýðveldishátíðar-
nefndar Reykjavíkur og ég hef
töluvert mikið að gera. Ég er bú-
inn að sitja á fundum í allan dag
vegna þessa. Hátiðarhöldin hefj-
ast kl. 8:30 á föstudaginn og lýkur
með tónleikum Bjarkará sunnu-
dagskvöld. “
Myndirðu fara ef þú værir ekki i
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur?
„Því er erfitt að svara. Ég held þó
ekki. Það er hægt að sjá hátiðar-
höldin í sjónvarpinu og svo er
heimsmeistarakeppnin i fótbolta
að byrja. “
Ætiarðu þá kannski bara að
horfa á fótbolta um helgina?
„Nei, nei, ég verð að sleppa því.
Starfið gengur fyrir. “
Er ekki erfitt að vera í þessari
nefnd í ár og keppa við Þing-
velli?
„Ég er ekki að keppa við Þingvelli.
Samið var um að gæta þess að
ekki væri nein samkeppni á milli
staðanna og það tókst að lang-
mestu leyti. Morgunstundin verð-
ur mun fyrr og styttri í Reykjavík
en jafnhátíðleg og falleg og
venjulega. Svo byrjum við ekki
aftur fyrr en kl. 15:00 um daginn
þegar erlendir þjóðhöfðingjar eru
búnir að ávarpa þingheim.
Vandamálið á Þingvöllum er fyrst
og fremst veðrið en við erum ekki
eins háð því. “
Hvað ætlarðu að sjá af
skemmtiatriðunum i höfuð-
borginni?
„Ég held að ég fylgist heldur með
því hvernig gengur, en að horfa á
skemmtiatriðin. Ég verð þviá
sveimi milli staðanna. Svo tek ég
á móti forsetanum í Laugardaln-
um á laugardaginn. Hann hefur
sýnt okkur mikla velvild þrátt fyrir
að hafa mikið að gera þessa
helgi. “
Júlíus Hafstein gegnir formanns-
embætti í Lýðveldishátíðarnefnd
Reykjavikur.
© Allir veittust að Sigurði G. nema Bolli - hann komst ekki að
© Nýplatafrá Curver © Oglíka Maus
itjórnarfundur
jíslenska út-
'varpsfélagsins
síðasta föstudag var
með fjörugasta móti.
Þegar Sigurður G.
Gudjónsson, lögfræðingur og
varamaður Jóns Ólafssonar í
stjórn félagsins, ætlaði að yfirgefa
fundarherbergið og Ijósrita samning
þann sem fráfarandi meirihluti lagði
fram vegna sölunnar á hlutabréfun-
um í Sýn, risu aðrir stjórnarmenn
snarlega á fætur, gerðu aðsúg að
Sigurði og vörnuðu honum út-
göngu. Þeir sem stóðu í þessum
stimpingum voru mennirnir úr
gamla meirihlutanunrn Ingimundur
Sigfússon, Jóhann Óli Guð-
MUNDSSON, ÞóRGEIR BALDURSSON
og Stefán Gunnarsson. Fimmti
maður gamla meirihlutans, Ásgeir
Bolli Kristinsson, tók hins vegar
ekki þátt í aðförinni en hann sat
fjærst dyrunum og náði því ekki til
Sigurðar. Því miðurfyrirSigurð
hafði félagi hans í minnihlutanum
fyrrverandi, Haraldur Haraldsson
í Andra, brugðið sér augnablik af
fundi og gat því ekki komið honum
til hjálpar en Haraldur er sterklega
vaxinn og hefði eflaust reynst hon-
um vel á raunastund...
Curver er að fara að gefa út
plötu í haust en bak við_
nafnið stendur Birgir Örn
Thoroddsen sem stundar mynd-
listarnám í Fjölbraut í Breiðholti á
veturna en vinnur í Þerlunni í sum-
ar. Birgir Örn spilar á gítar en hefur
tölvur sér til fulltingis. 7-8 lög verða
á nýju plötunni sem enn hefur ekki
hlotið nafn. Birgir Örn fer í hljóðver í
júlí en Smekkleysa ætlar að gefa
plötuna út. Andrew McKenzy
hljóðblandar gripinn...
Hljómsveitin Maus sem vann
Músíktilraunir Tónabæjar síð-
astliðinn vetur gefur líka út
plötu í haust. Hljómsveitin stendur i
viðræðum við Smekkleysu en takist
samningar ekki hyggjast Mausarar
gefa plötuna ut sjálfir. Haustið er
fýsilegur útgáfutími fyrir ung bönd
því þá eiga þau ekki á hættu að
drukkna í jólaplötuflóðinu, hljóm-
sveitarmeðlimir eiga pening eftir
sumarvinnuna til að gefa gripina út
sjálfir og fara skólarnir þá í gang
sem gefur möguleika á tónleika-
haldi..
TÆKI
VIKUNNAR
Tölvu-
mynda-
vél
AUt frá því að Kodak kynnti fyrstu
kassamyndavél sína hefur mann-
skepnan verið upptekin af því að
taka myndir við alls kyns tækifæri.
Myndavélar verða æ ódýrari, film-
ur eru ódýrari og framköllun fæst
nú á innan við klukkustund. En
hvað ef menn vilja sjá myndirnar
enn hraðar? Nenna kannski ekki í
framköllun. Og hvað ef þeir vilja
nota þær í eitthvað annað en
myndaalbúm? Þá vandast málið.
Nú hefur tölvufyrirtækið Apple
hins vegar kynnt myndavélina Qu-
ickTake, sem tekur tölvumyndir
eins og ekkert sé. Með því að tengja
myndavélina við Macintosh-tölvu
er svo hægt að koma myndunum
fyrir í ritvinnsluskjölum eða teikni-
forritum og ráði menn yfir lita-
prentara geta þeir prentað mynd-
irnar út án frekari tafar. Myndavél-
in kostar um tæpar 50.000 krónur
vestur í Bandaríkjunum og ein-
hverju meira hjá Apple-um
boðinu hér á landi. ©
STELLINQ VIKONNAR
Stellíng þessarar viku einkennist af varfærni eins og maður
sé ekki alveg viss um að hafa fast land undir fótum. Það er
hreyfing í stellingunni, en jafnframt er Ijóst að hún er ekki
hröð. Stellingin er umfram allt þunglamaleg og til þess að
hún gangi upp þurfa ákveðin svipbrigði að fylgja. Á þessari
mynd sjást hin klassísku svipbrigði stellingarinnar reyndar
ekki, en þau eru hvað-í-ósköpunum-er-ég-að-gera-hér svip-
brigöin með örlitlum dreitli af hvernig-lét-ég-plata-mig-út-í-
þessa-vitleysu svipnum. Það ber að undirstrika það að líkt
og aðrar stellingar, á þessi stelling sér stað og stund. Hún
er til dæmis handónýt i sundi þrátt fyrir að hún sé vissulega
auðveldari í framkvæmd þar en til dæmis á Laugaveginum.
Þessi stelling á fyrst og fremst heima á sporbraut um Jörðu,
annað hvort á Tunglinu eða einhverjum af LaGrange-punkt-
unum fimm.
Norðmenn
á veikum
grunni
segir Gunnar G. Schram prófessor
í þjóðréttarfræði við Háskóla íslands.
LOF
„Við lítum svo á að Norðmenn
hafi ekki fullríkisrétt á þessu svæði
og um það snýst deilan. Við segjum
að við eigum að vera jafn réttháir
og Norðmenn sem aðilar að Sval-
barðasamingnum og viljum fá
kvóta eins og önnur ríki sem eru
aðilar," segir Gunnar G. Schram
prófessor í þjóðarréttarfræði við
Háskóla Islands. Gunnar telur að
Norðmenn hafi farið fram með
miklu offorsi í þessu máli og séu að
reyna að hefða sér rétt á gífurlega
stóru svæði. Það sé byggt á harla
veikum grunni.
„Réttarstaðan varðandi Sval-
barðasvæðið og Island er sú að um
Svalbarða gildir alþjóðasamningur
sem gerður var 1920. Að samningn-
um eru um 40 ríki aðilar og Island
gekk í þeirra hóp með samþykkt
Alþingis í maí síðastliðnum. I Sval-
barðasamningnum er öllum ríkjum
gert jafn hátt undir höfði varðandi
veiðar á landi og í sjó og má ekki
beita þær neinu misrétti. Noðr-
menn fara með framkvæmdavald á
eyjunum samkvæmt samningnum.
Það sem Norðmenn gerðu síðan
1977 er að þeir lýstu allt í einu yfir
200 mílna efnahagslögsögu í kring-
um Svalbarða, sem er langt frá
Noregi eins og menn vita. Þannig
að þetta er í rauninni sjálfstætt gíf-
urlega stórt hafsvæði, 200 mílur í
kringum Svalbarða sem Norðmenn
voru að reyna að eigna sér. Það
gerðu Norðmenn einhliða án þess
að ræða nokkuð við samningsþjóð-
irnar 40. Síðan þá hafa þeir talið sig
eiga einhliða rétt á því að setja allar
reglur um veiðar og kvóta. Ekkert
samningsríki nema Finnar sam-
þykktu þessa gjörð Norðmanna,
ýmis ríki mótmæltu en önnur virtu
þetta einfaldlega að vettugi og
veiddu eins og ekkert hafi í skorist,
meðal þeirra voru Rússar, Spán-
verjar, Færeyingar og Grænlend-
ingar.
Þannig að þessi einhliða gjörð
Norðmanna 1977 er mjög umdeild.
Þess vegna er réttarstaðan um Sval-
barðasvæðið sem norskrar fisveiði-
lögsögu mjög umdeild. Þeir kalla
þetta reyndar verndarsvæði sem er
hugtak sem er ekki til í rétti hafsins
og finnst ekki í hafréttarsáttmálan-
um. Norðmenn eru þarna á mjög
veikum grunni,“ segir Gunnar. ©
...fær Björk Guðmundsdóttir
fyrir að bjarga Listahátíð frá
dauða úr leiðindum. Auðvitað
varþað þess virði að fá Ashk-
enazíana hingað og níunda
sinfónian er ekkert til þess að
fýla grön út af, en það verður
samt að segja eins og er að
engin Listahátíð hefur verið
jafn ömurleg og þessi. Þá
kemur oss til bjargar Björk og
bindur enda á hátíðina með
þeim hætti að hún mun vafa-
laust skyggja á allt lista-
mannagallerí landsins, að
Kristjáni Jóhannssyni undan-
teknum. Kannski. Það eina
sem gæti toppað þetta væri ef
Björk yrði valin Fjallkona lýð-
veldisafmælisins.
...fær Jóhanna Sigurðardóttir
fyrir hótun sina til þjóðarinnar
um að „hennar dagur muni
koma“. Það getur vel verið að
hennar dagur muni koma, en
það er alger óþarfi að auka á
svartsýni og bölmóð þjóðar-
innar með því að hamra á því
fyrirfram. Við verðum að láta
hverjum degi nægja sína þján-
ingu. En ekki síður verður að
lasta Jóhönnu fyrir þessi orð
vegna þess að með þeim kom
Jóhanna algerlega úr skápn-
um sem valdagráðugur mikil-
mennskubrjálæðingur. Allt
hjalið um að verið væri að
velja milli áherslna og stefna
innan Alþýðuflokksins datt
niður dautt og ómerkt. Það
eru fleiri valdasjúklingar íís-
lenskri pólitik, en enginn hefur
afhjúpað sig með þessum
hætti.
ÞAÐ VÆRI TILQANQSLAL/ST...
að klóra í bakkann
að sitja á strák sínum
2
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994
© JÖN ÓSKAR