Eintak

Tölublað

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 46

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 46
WorldCup 94 V EE Þrátt fyrir að ekki verði séð að neinn skortur verði á stjörnum á HM verða margir af bestu knattspyrnumönnum samtímans fjarri góðu gamni. Súpeisljömur á áhorfendabe unum Hver verður knattspyrnumaður heimsmeistarakeppninnar í Banda- ríkjunum; Roberto Baggio frá Italíu, Faustino Asprilla frá Kol- umbíu, Lothar Matthaus frá Þýskalandi, Redondo frá Argent- ínu, Romario frá Brasilíu eða Dennis Bergkamp frá Holiandi? Eða jafnvel Martin Dahlin frá Sví- þjóð, Hristo Stoitchkov frá Búlg- aríu eða Rune Bratseth frá Nor- egi? Eða einhver ailt annar? En hver svo sem fær þennan titil þá verður það ekki Ruud Gullit sem gekk út af æfingu hjá hollenska landsliðinu fyrir tveimur vikum og stimplaði sig þar með út úr keppn- inni. Og þar sem Frökkum tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslita- keppninni verður það ekki heldur Eric Cantona, knattspyrnumaður ársins í Englandi og þriðji besti knattspyrnumaður Evrópu á eftir þeim Roberto Baggio og Dennis Bergkamp. Og þannig verður það með fleiri af bestu knattspyrnu- mönnum samtímans. Ef þeir koma við sögu í keppninni verður það á áhorfendapöllunum. Aðdáendur ensku knattspyrn- unnar mun eflaust sakna margra af uppáhaldsleikmönnum sínum. Al- an Shearer, Mark Huges, David Platt, Paul Ince, Gary McAllister og Ryan Giggs verða allir fjarri góðu gamni eftir að Englendingar misstu af úrslitakeppninni eftir ósanngjarnt tap gegn Hoilending- um í Rotterdam. En fjarvera enska landsliðsins er ekki eina áfallið fyrir aðdáendur enska boltans og þá sérstaklega fylgjendur Manchester United. Eins og áður sagði verður Eric Can- tona ekki með, Peter Schmeichel verður líka heima eins oe aðrir Eric Cantona Ruud Gullit Knattspyrnumaður Englands horfir á heimsmeistarakeppnina í sjón- Hann tók pokann sinn eftir landsliðsæfingu fyrir tveimur vikum og varpinu eins og við hin. Ekki vegna þess að Englendingar komust lofaði þvíað segja okkur hvers vegna, þegar hollenska liðið hefði ekki í úrslit heldur vegna þess að Frakkar gerðu það ekki heldur. lokið keppni. landsliðsnefndarinnar og lögðu blátt bann við að Marco van Bas- ten, þrefaldur knattspyrnumaður ársins í Evrópu, fengi að leika með því vegna þrálátra meiðsla. Van Basten er ekki eini leikmað- urinn í heimsklassa sem situr heima vegna meiðsla. Svíinn Par Zetterberg er meiddur, þýsku miðjumennirnir Christian Ziege og Thomas Doll, Búlgarinn Liu- boslav Penev, Rúmaninn loan Sabau, Hollendingurinn Erwin Koeman, ítalski miðjumaðurinn Steano Eranio, brasilíski varnar- maðurinn Mozer, Norðmaðurinn Tore Pedersen og írski senterinn Niall Quinn. Annar hópur leikmanna á heimsmælikvarða tókst óvænt ekki að vinna sér sæti í hópi landa sinna sem fara á HM. Má þar nefna markvörð Inter Milan Walter Zenga og Attilio Lombardo frá Sampdoria. Tveir ítalskir leikmenn eru nýkomnir af sjúkralista og tókst ekki að komast í nægjanlega góða leikþjálfun; Gianluca Vialli frá Ju- ventus og Gianluigi Lentini frá AC Milan. Tvær brasilískar stjörnur úr franska boltanum, Valdo úr París Saint-German og Anderson úr Marseille, eru elcki með sínu liði. Tveir gamalreyndir Svíar drógu sig í hlé fyrir keppnina; Johnny Ekström og Stefan Pattersson og fjóreykið úr Real Madrid; Mich- ei, Butragueno, Sanchis og Martin Vazques fengu ekki náð fyrir augum spánska einvaldsins Javier Clemente. Fleiri af bestu leikmönnum Real Madrid sitja heima; Prosinecki frá Króatíu, Dubrovsky frá Slóvakíu og Za- morano frá Chile sitja allir heima þar sem landslið þeirra unnu sér ekki rétt til þátttöku. Danir og Kanchelskí er einn af þeim sex Rússum sem neituðu að spila með landsliði sínu vegna ósættis við Pavel Sadyrin þjálfara. Aðeins tveir af leikmönnum Manc- hester United, sem unnu tvöfalt síðasta vetur, verða með á HM. Það eru írarnir Roy Keane og Denis Irwin. Englendingar eru annað af tveimur liðum sem hafa unnið heimsmeistaratitilinn sem ekki verða með í Bandaríkjunum, en fyrir fjórum árum voru öll sex sig- urliðin með. Nú vantar Uruguay auk Englands. Og þar með verða leikmenn á borð við Ruben Sosa frá Inter Milan og Daniel Fonseca frá Napólí utan vallar. Það er full ástæða til að sakna þessara tveggja þar sem þeir voru markahæstir allra útlendinga í ítölsku deildinni í vetur. Af öðrum leikmönnum í ítölsku deildinni sem verða ekki með á HM má nefna sóknarmann Cagliari, Luis Oliveira, sem á sama hátt og Gullit talaði sig út úr belg- íska landsliðinu. Félagi hans í Cagliari, Julio Cesar Dely Vald- es, tókst ekki að tryggja sér þátt- töku með Panama-mönnum. Af þeim sextíu útlendu leik- mönnum sem léku með ítölskum liðum síðastliðinn vetur mun að- eins einn þriðji af hópnum leika í Bandaríkjunum. Sem dæmi má netna at sjö útlenaum íeiKmonnum AC Milan mun aðeins Rúmeníu- maðurinn Florin Raducioiu spila á HM. Allir þrír útlendingarnar sem tóku þátt í stórsigri AC Milan á Barcelona í vor sitja heima. Dejan Savicevic er frá Svartfjallalandi og hefur ekki fengið að leika með landsliði í tvö ár og sömu sögu er að segja af fyrrum félaga hans með júgóslavneska liðinu, Króatanum Zvonimie Boban. Marcel Desa- £Mi.m «« lílrrt. c.iÁ Á oftir forcprUinJim lliy lllctlll ÍIAU OJCl a Cllll iui til Bandaríkjanna þegar Búlgarar slógu Frakka út óvænt í París. Je- an-Pierre Papin situr einnig heima með franska landsliðinu (eins og hann hefúr reyndar setið á bekknum á Milan). Það sama gildir um Brian Laudrup úr danska landsliðinu. Hollenska liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppninni en for- ráðamenn AC Milan létu hins veg- ar ekki undan þrábeiðni hollensku Fíns no áður sasði hætti Manc- hester United-maðurinn Kanchel- skí í rússneska liðinu vegna óánægju með ráðningu Pavel Sa- dyrin sem landsliðseinvalds. Og sama gerðu fimm aðrir rússneskir leikmenn sem spila í Vestur-Evr- ópu; Shalimov, Kolyvanov, Kulkov, Dobrovolski og Kiry- akov. Það má því segja að rúss- neska liðið í keppninni sé hálfgert B-lið. f MHlÉÍMÍite K'W \ wwrv iltl jéíil ííóiwik- 09 mymtocstefc «0 oto hæfi, hvorl sem vontpr vM tei' í s íorpsherbergið, th iM í svefnherbergié, ó ,aupa yma Fótboltafíklar búa sig nú óðum undir þjóðhátíðardaginn. Ekki til að hlusta á Fjallkonuna, heldur til að fylgjast með fýrsta leiknum, milli Þýskalands og Bólivíu í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar. En það eru fleiri sem hugsa sér gott til glóð- Nýtt sjónvarp Eins og oft áður þegar stórvið- burðir eiga sér stað í sjónvarpinu, rjúka nú margir til og nota tækifær- ið til að endurnýja sjónvarpstækin sín. Síðustu vikurnar hafa verslanir hamrað á veglegum tilboðum á sjónvarpstækjum og að sögn versl- unarmanna í bransanum hafa þau runnið út eins og heitar lummur. Videotækin seijast einnig vel og fyr- ir þá sem sjá vilja hvern einasta leik, eru nú í gangi tilboð á myndbönd- um til að taka upp leikina sem þeir missa af í beinni. Stór bjór og stærri skermar Þeir sjónvarpslausu og hinir sem eiga bara þetta gamla svarthvíta (og ætla sér ekki að endurnýja), þurfa heldur ekki að örvænta, því fyrir þeim verður einnig séð. Ýmsir vin- veitingastaðir bjóða upp á sjónvarp fyrir gesti sína, þar sem útsendingar frá HM verða sýndar á risaskjám. Fleira en fótbolti verður á boðstól- um; bjórinn verður seldur á vægu verði og sums staðar geta spark- fræðingar veðjað um úrslitin í von um að vinna pottinn. Flatböku- meistarar búast einnig við auknum viðskiptum þegar fótboltinn fer í gang og á einum flatbökustaðnum sem EINTAK hafði samband við, geta kúnnarnír keppst um að eign- ast fótbolta, áritaðan af sjálfum Pelé. HM-MM Bókaútgáfur láta heldur ekki sitt eftir liggja í fótboltafárinu. Mál og menning gaf í síðustu viku út bók um þessa göfugu íþrótt, og þar fylgja límmiðar og yfirlit yfir leikina í heimsmeistarakeppninni, svipað eins og dagblöðin gera fyrir kosn- ingar - eða Eurovision. Handbók um keppnina er einnig nýkomin út, en þar leiðir hinn valinkunni íþróttafréttamaður, Arnar Björns- son, okkur í allan sannleika um lið- in, leikmenn og leyndardóma knattspyrnunnar. Með eigin augum En þeim allra áhugasömustu nægir ekki að sjá fótboltann í nýju sjónvarpi, eða á risaskjá með bjór- glas í hendi. Rúmlega tugur Islend- inga er nú staddur, eða er á leiðinni til Bandaríkjanna til að sjá nokkra leiki með eigin augum. Ferðaskrif- stofan Ratvís seldi þessar pakka- ferðir og að sögn fólks þar á bæ, var þetta spurning um að leggja út rúmar hundrað þúsund krónur fyrir flug, gistingu og miða á tvo leiki í undankeppninni og 16 liða úrslitum. Það er hins vegar aðeins dýrara að fara á völlinn þar vestra en hér, því miðarnir kosta á bilinu 170 til 250 dollara. Og þá er ekki ver- } ið að tala um úrslit, heldur undan- V1 keppni. Heima við Flestir áhugamenn um fótbolta láta sér hins vegar nægja að sitja heima við og sjá leikina í gegnum augu sjónvarpsmyndavélanna - sumir jafnvel í óþökk annarra heimilismeðlima. Þegar úrslitaleik- urinn hefur verið flautaður af á Rósarvellinum í Los Angeles, þann 17. júlí, hefur sá sem fylgdist með hverjum einasta leik, eytt um 78 klukkustundum fyrir framan sjón- varpið, eða rúmum þremur og hálf- um sólarhring samtals. En, þetta er jú bara á fjögurra ára fresti. © 46 Sport Eins og áður sagði var Eric Can- tona þriðji í valinu um knatt- spyrnumann Evrópu en þarf eftir sem aour ao Diia i patrsuia horfa á HM í sjónvarpinu eins og við hin. Sömu sögu er að segja af þeim sem urðu í fjórða og fimmta sæti í þessu vali; Alen Boksic, Kró- atanum í liði Lazio, og Michael Laudrup, Dananum hjá Barcelona. Knattspyrnumenn Asíu og Afríku eru einnig fjarverandi; japanski sóknarmaðurinn Kazuyoshi Mi- ura og miðjumaðurinn Abedi Pele frá Ghana. I afríska valinu kom landi Pele og leikmaður Frankfurt, Anthony Yeboah, sem var einn markahæsti maður Bund- eslígunnar. Hann situr heima eins og markahæsti maður hollensku deildarinnar; Finninn Jari Lit- manen, sóknarmaður í Ajax. Og í lokin á þessari upptalningu má spyrja hvað orðið hafi um alla þá sem vöktu hvað mesta athygli á Italíu fyrir fjórum árum; Schillaci, Lineker, Gascoigne, Careca, Stojkovic ög Skuhravy? Enginn þeirra verður með í Bandaríkjun- um — ekki nema þá á áhorfenda- pöllunum. © FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.