Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 44
H M-I'
ITALIA - IRLAND: EINN AF STORLEIKJUM HM ‘94
Ekkert gefíð eftir
Á laugardaginn, 18 júní,
verður leikinn í New
York í Bandaríkjunum
ieim leikjum sem spark-
fræðingar telja hvað líklegastan til
að verða minnst í sögunni.
Þá mætast, í beinni útsendingu
Sjónvarpsins kl. 20:05, Italir og Irar
á hinum glæsilega Giants leikvangi
í New York, líklega frægasta knatt-
spyrnuvelli Bandaríkjanna fyrr og
síðar en hann var heimavöllur hins
fræga New York Cosmos á byrjun-
arárum bandarískrar knattspyrnu.
Þá léku á vellinum kappar eins
og Beckenbauer, Pelé og Ne-
eskens og reyndu að kynna þessa
frábæru íþrótt fyrir Bandaríkja-
mönnum. Völlurinn, sem byggður
var árið 1976, er reyndar þremur
metrum þrengri en alþjóðlegar
reglur segja til um en þótti samt
alitof góður og frægur til að standa
ónotaður í keppninni.
Byrjunarleikurinn á vellinum,
Italía á móti Irlandi, er merkilegur
fyrir margra hluta sakir. New York
er mikið til byggð innflytjendum,
mörgum sem enn muna æskuárin í
Evrópu, og því má segja að íbúar
írsku og ítölsku hverfanna í borg-
inni geri það að verkum að þjóð-
irnar leika nánast sem á heimavelli í
borginni.
Itali er farið að þyrsta í titil eftir
mögur ár að afloknum heimsmeist-
aratitlinum 1982. Arrigo Sacchi,
hinn 48 ára gamli landsliðsþjálfari
Itala, er sá maður sem mikið mun
mæða á í keppninni. Hann hefur
aldrei látið lið sín spila varnarbolta
heldur er sóknarbolti hans ær og
kýr. Sacchi hefur í undirbúningn-
um verið sakaður um of mikla til-
raunastarfssemi og ringulreið í
mannavali og keppnin verður því
endanlegur dómur á verkum hans.
Kollegi hans í írska liðinu, Jack
Charlton, er hetja á Irlandi og
nánast í dýrlingatölu. Þrátt fyrir að
hann sé Englendingur segir hann
tilfínningar sínar þær sömu og inn-
fæddra í garð liðsins og liðið sé
honum allt. Irar náði frábærum ár-
angri á Ítalíu fýrir fjórum árum,
komust þá í fjórðungsúrslit, og
verður erfitt fyrir þá að bæta þann
árangur nú. ©
einn af
Denis Irwin, 28 ára gamall varnarmaður er ein helsta
stjarna ira í keppninni. Einn mikilvægasti (en þó vanmetnasti)
hlekkurinn í frábæru liði Manchester United sem vann tvöfalt á
Englandi íár og menn gera að því skóna að irwin muni skipa
sama sess íliði íra.
Irwin er vinstri bakvörður hjá United en hefur venjulega leikið
hinum megin hjá Charlton. En hinn efnilegi Gary Kelly er lík-
legur til að gera það að verkum að hann flytji sig enn um set í
vörninni. Einn helsti kostur Irwins sem leikmanns er jafnvægi
hans og hversu auðvelt er að treysta honum. Sumir kalla hann
draum þjálfarans, hann liggi ekki á boltanum og sé afar ná-
kvæmur í sendingum sinum. Á seinni árum hefur Irwin siðan tek-
ið upp á þvíað æða upp völlinn og þruma að marki og eftir
glæsilegt mark úr aukaspyrnu fyrir tveimur árum er hann nú sér-
legur aukaspyrnusérfræðingur liðsins. ©
Bandaríkjamenn eru í erfiðum riðli
Hafa Kólumbíumenn
kraftinn sem þarf?
Riðill gestgjafanna, Bandaríkj-
anna, er í meira lagi erfíður. Þótt
segja megi kannski um flesta riðl-
ana í keppninni að allir leikir séu
erfiðir og engin stig séu gefin fyrir-
fram, er ljóst að lið Bandaríkjanna
mun eiga í vandræðum með að
komast upp úr riðlinum, nokkuð
sem talið er nauðsynlegt eigi knatt-
spyrnan að ná fótfestu í landinu.
Á laugardaginn verða leiknir
tveir leikir í A-riðli og verða þeir
báðir sýndir í beinni útsendingu
Sjónvarpsins. Annars vegar er leikur
heimamanna gegn öflugu liði Sviss
og hins vegar mætast Kólumbíu-
menn og Rúmenar. ©
A-riðill
Bandaríkin
Kólumbía
Sviss
Rúmenía
Fvrstu leikir:
18/6 kl. 15:35
Bandaríkin - Sviss
18/6 kl. 23:35
Kólumbía - Rúmenía
4-4-1-1 írland
1 Pat Bonner
2 Dennis Irwin
5 Paul McGrath
3 Terry Phelan
8 Ray Houghton
6 Roy Keane
7 Andy Townsend
10 JohnSheridan
11 Steve Stounton
14 Phil Babb
15 Tommy Coyne
Þjáifari: Jack Charlton
4-4-2
Italía
j
I Gianluca Pagliuca
9 Mauro Tassotti
4 Alessandro Costacurta
6 Franco Baresi
5 Paolo Maldini
13 Dino Baggio
II Demetrio Albertini
14 Nicola Berti
16 Roberto Donadoni
10 Roberto Baggio
20 Giuseppi Signori
Þjálfari: Arrigo Sacchi
Enzo Scifo
Skærasta stjarna Belga.
Noureddine Naybet
Traustur Varnarmaður.
BELGÍA - MAROKKÓ
Leikið í eyði
merkurhita
Belgía og Marokkó leika
opnunarleik F-riðils sem
hlýtur að teljast slakasti
riðill keppninnar en auk þessara
þjóða eru Holland og Saudi-Arabía
í riðiinum.
Belgar hafa verið með í síðustu
þremur HM-keppnum og ávallt
sýnt skemmtilega knattspyrnu þó
liðið hafi ekki enn uppskorið verð-
launasæti. Það er ekki útlit fyrir að
Belgum takist að bæta úr málmleysi
sínu í Bandaríkjunum. Þó að í lið-
inu séu reyndir leikmenn eins og
Enzo Scifo, þeirra skærasta
stjarna, Michael Preud’Homme
ogVan der Elst sem hafa leikið yf-
ir fimmtíu landsleiki, er liðið ekki
nógu sterkt til að komast mikið
lengra en í riðlakeppnina. Belgar
gætu þó komið á óvart, sérstaklega
ef markahrókurinn Luc Nilis verð-
ur í stuði og ekki skemmir það fyrir
þeim að nýverið bættist þeim góður
liðsstyrkur í Króatanum Josip
Weber en hann varð belgískur rík-
isborgari all snögglega fyrir stuttu.
Weber lék sinn fyrsta leik með
landsliðinu um þarsíðustu helgi
gegn Zambiu og skoraði þá fimm
mörk.
Það kemur sér vel fyrir Mar-
okkómenn að mæta Belgum í eyði-
merkurhitanum í Orlando en það
er þó hæpið að hitinn sigri fyrir þá
leikinn. Liðið er ekki sérlega sterkt
en hefur góða einstaklinga innan-
borðs. Efstur á þeim lista er Nour-
eddine Naybet sem hefur nýlokið
sínu fyrsta tímabili með Nantes í
Frakklandi. Hann leikur stöðu aft-
asta varnarmanns, er sterkur í loft-
inu og einnig traustur vel á velli.
Stærsti möguleiki í keppninni
Marokkó er leikurinn við Saudi-
Arabíu sem væntanlega verður úr-
slitaleikurinn um þriðja sætið í
riðlinum, en það gefur möguleika á
að komast áfram í milliriðil. ©
port
Roberto Baggio, 27 ára gamall sóknarmaður, talinn besti
knattspyrnumaður heims. Keppnin í Bandaríkjunum 1994 gæti
lyft honum á stall goðsagna á borð við Paolo Rossi og Mar-
adona og hann veit afþví. Enginn annar ieikmaður mun þurfa
að sitja undir öðrum eins rannsóknum á getu í keppninni og
hann og sumir segja að pressan á honum sé nánast óbærileg.
Baggio var valinn besti leikmaður Evrópu og síðar heims á síð-
asta ári og ítalir setja allt sitt traust á að hann verði í sannkölluðu
toppformi á réttum tíma fyrir átökin. Það að lið hans, Juventus,
reið ekki feitum hesti á síðustu leiktíð þykir vera honum til tekna,
hann hefur haft undanfarna mánuði tii að undirbúa sig andlega
undir þessi miklu átök og þessa gríðarlegu ábyrgð. ©
BANDARÍKIN - SVISS
Fáar stiömur
[ÍT5S5] Lið Bandaríkjanna
mæt'r nlr Lklega til leiks
sterkara en nokkru sinni
fyrr. Lið Velibor „Bora“ Mjulit-
onic er þó eins og áður sagði í afar
erfiðum riðli og hver leikur liðsins
verður upp á líf og dauða.
Bandaríska liðið hefur verið í
mótun undanfarin þrjú ár. Það er
því afar sorglegt til þess að hugsa ef
því tekst ekki að leika meira en átta
daga í keppninni. Ólíkt mörgum
gestgjöfum undangenginna móta
eru taldar litlar líkur á að liðið
komist áfram og ef það tekst ekki er
það í fyrsta sinn sem gestgjafarnir
komast ekki áfram.
Bandaríska liðið hefur fáum
stjörnum á að skipa. Efenginn leik-
manna þess kemst á flug, eins og til
dæmis Salvatore Schillaci gerði
fyrir Itala 1990, er ljóst að róðurinn
verður þungur. Eini plúsinn er sá
að þjálfari liðsins er öllum hnútum
kunnugur og er vanur því að gera
mikið úr litlu; í síðustu keppni kom
hann á óvart með liði Costa Rica og
þar áður komust Mexíkómenn í
fjórðungsúrslit undir hans stjórn.
Stjarna liðsins, ef stjörnu skyldi
kalla, er Eric Wynalda Hann er 25
ára gamalla framherji og er hvað
líklegastur bandarísku leikmann-
anna til að verða stjarna í heima-
landinu. Hann þykir íþrótta-
mannslega vaxinn og ekki spillir
fyrir að hann er mjög markhepp-
inn. Wynalda var í HM liði Banda-
ríkjanna á Italíu fyrir fjórurn árum
og hóf atvinnumennsku hjá þýska
liðinu Saarbrucken tveimur árum
síðar. Hann var hins vegar nýlega
seldur til Bochum og mun leika í
framlínu þess í úrvalsdeildinni
þýsku á næsta tímabili, við hlið
Þórðar Guðjónssonar.
Svisslendingar eru hins vegar
með lið sem gæti komið í keppn-
inni, séð og sigrað eins og til dæmis
Kamerúnmenn gerðu eftirminni-
lega 1990. Enski þjálfarinn Roy
Hodgson hefur nánast gert krafta-
verk með liðið og er það nú talið
með þeim sterkari í heiminum.
Liðinu gekk afar vel í undan-
keppninni og slógu meðal annars í
gegn í leikjunum við ítali. Þetta er
fyrsta alvöru úrslitakeppni liðsins
síðan 1966 og því er metnaðurinn
mikill til afreka. Helsti styrkleiki
liðsins er talinn vera mjög beittur
sóknarleikur, bæði í formi pressu
og skyndisókna.
Sá leikmaður sem Svisslendingar
reiða sig hvað mest á þegar til kast-
anna á að koma heitir Ciriaco
Sforza og er 24 ára gamall miðvall-
arleikmaður. Sforza er leikstjórn-
andi liðsins og þykir einkar laginn
við að koma boltanum á samherja
auk þess sem skot hans þykja einkar
hnitmiðuð. Sforza þykir hafa staðið
sig stórkostlega í vetur með þýska
liðinu Kaiserlautern en þangað
kom hann fyrir ári frá Grasshopp-
ers í Sviss þar sem hann lék við hlið
Sigurðar Grétarssonar.
Það er því alveg ljóst að róðurinn
verður þungur fyrir Bandaríkja-
menn og að búast má við skemmti-
legum leik. ©
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994