Eintak

Tölublað

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 45

Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 45
WortdCup 94 .VÆ El "94 NOREGUR - MEXIKO Martin Dahlin er 26 ára gamall og var kjörinn knattspyrnumaður Svíþjóðar í fyrra. Sjö mörk hans í níu leikjum með landsliðinu áttu ekki lítinn þátt íþvíkjöri. Dahlin sem leikur með Borussia Mönchengladbach. og Thomas Brolin sem leikur með Parma á ítaliu munu eflaust verða vörn Kamerún skeinuhættir.Q SVÍÞJOÐ - KAMERÚN Svíar æstir í að sýna betri leik en á HM ‘90 Hæpið að Kamerún endurtaki leikinn frá Ítalíu. HM á Ítalíu '90 var mar- tröð fyrir Svíþjóð en þá tapaði liðið öllum þrem WorhlCiip 94 * * »v ur leikjunum sem það lék. Þó Svíar hafi lent í erfiðasta riðli keppninnar að þessu sinni, með Kamerún, Rússum og Brasilíu, eru möguleik- ar þeirra ágætir. Sænska liðið hefur bætt sig verulega frá því fyrir fjór- um árum og fyrirfram geta frændur okkar, Svíar, gert sér ágætar vonir um gengi sinna manna, ekki síst þegar Evrópukeppnin fyrir tveimur árum er höfð í huga en þá náði sænska liðið í undanúrslit. Sóknar- dúett Svía er ekki af verri endanum, Thomas Brolin sem leikur með Parma á Ítalíu og Martin Dahlin sem leikur með Borussia Mönc- hengladbach. Það þekkja sjálfsagt flestir Brolin úr ítalska boltanum en færri Dahlin, þar sem leikir úr þýsku knattspyrnunni eru ekki oft sýndir hér. Dahlin er 26 ára gamall og var kjörinn knattspyrnumaður Svíþjóðar í fyrra. Sjö mörk hans í níu leikjum með landsliðinu áttu ekki lítinn þátt í því kjöri. Þegar þessir sóknarmenn hafa síðan leik- menn eins og Jonas Thern og Stefan Schwarz til að mata sig af sendingum getur voðinn verið vís íyrii anusiæoingana. Að þessu sinni eru það Kame- rúnmenn sem slógu í gegn í sömu keppni og Svíum gekk svo hörmu- lega. Það er lítil von unt að Kame- rún endurtaki leikinn frá Italíu. Liðið hefur svo til ekkert fengið af nýjum leikmönnum og það er dæmigert að öldungurinn Roger Milla, sem vann hug og hjörtu knattspyrnuunnenda fyrir fjórum árum, er í hópnum núna, orðinn 42 ára gamall. Það mun þó hjálpa mikið að þjálfari liðsins, Frakkinn Henri Michael er ekki af verri endanum, en það var hann sem stýrði ffanska liðinu í þriðja sætið á HM í Mexíkó ‘86. Q Norðrið mætir suðrinu Hvemig standa Norðmenn sig í hitanum á móti svækjuvönum Mexíkómönnum? Noregur og Mexíkó mæt- ast á sunnudag í Wash- ington en þá verða liðin WoddCup .'SSs fimmtíu og sex ár síðan Norðmenn hafa tekið þátt í úrslitakeppni HM. Síðast voru þeir með í Frakklandi 1948. Norðmenn koma geysisterkir til leiks í Bandaríkjunum. Þeir unnu sinn riðil í undankeppninni og þar skutu þeir ekki minni þjóðum en Hollendingum og Englendingum ref fyrir rass. Þeir sigruðu bæði þessi lið í Osló og gerðu jafntefli i útileikjunum, en það er meira en að segja það að fara heim með annað stigið frá Wembley. Norska liðið leikur kannski ekki áferðarfallegustu knattspyrnu í heimi en hún hefúr svo sannarlega verið árangursrík. Þennan góða ár- angur má fyrst og fremst þakka ein- um manni, Agli Olsen sem tók við þjálfun norska landsliðsins 1990. FÍann er orðinn þjóðhetja í Noregi og eru miklar væntingar gerðar til liðsins. Egill leggur mikla áherslu á traustan varnarleik og sterkt miðju- spil og þar sem norska liðið leikur venjulega aðeins með einn fram- herja mæðir mikið á miðjumönn- unum sem verða að fylgja vel með í sóknina. Fremsti maður liðsins er Jan Age Fjortoft sem íslenskir knattspyrnuunnendur þekkja vel úr ensku knattspyrnunni þar sem hann leikur með Swindon. Erfiðasti mótherji Norðmanna í keppninni gæti orðið hitinn. Leik- imir fara flestir fram síðdegis þegar sólin er enn á lofti og hitinn getur farið allt upp í 35-40 gráður á celsí- us. Mótherjar Norðmanna á sunnu- daginn, Mexíkómenn, eru hins vegar vanir svækjunni og getur það reynst þeim drjúgt í leikjunum við Evrópuþjóðirnar þrjár sem eru með þeim í riðli. Mexókó leikur „aggresíva“ sókn- arknattspyrnu með þrjá leikmenn í fremstu víglínu. Þessi Ieikaðferð hefur skilað liðinu mörgum góðum sigrum síðasta árið og það fellur að sjálfsögðu hinum blóðheitu áhang- endum liðsins ákaflega vel. Þjálfari Mexíkó er Miguel Mejia Baron en eins og Egill, hinn norski kollegi hans, er Baron orðinn þjóðhetja í heimalandi sínu. I undankeppninni skoraði Mexí- kó að meðaltali 3 mörk í leik og ættu knattspyrnuunnendur að fylgjast vel með liðinu sem hefur marga skrautlega leikmenn innan- borðs. Ef liðið gleymir sér ekki al- gjörlega í sókninni hefur það alla burði til þess að ná langt en vissu- lega er við ramman reip að draga því E-riðillinn, þar sem Italía og ír- land eru einnig, er gífurlega erfið- ur.© Ketill Rekdal 25 ára miðvallarleikmaður. Aflstöð norsku miðjunnar, geysilega líkamlega sterkur og trúrþeirri stefnu þjálf- ara síns að leika fast og hlífa ekki andstæðingunum. Það er dæmigert fyrir leikstíl Noregs að miðjumaðurinn Ketill var marka- hæsti maður liðsins í undankeppninni. Hann er mjög skotviss og hikarekki við að láta vaða aflöngu færi. Ketill lék síðasta keppn- istímabil með Lierse í Belgíu. Q -RIÐILL ÍTALÍA ÍRLAND Noregur Mexíkó Fvrstu leikir: 18/6 kl, 20:05 Ítalía - írland 19/6 kl. 20:05 Noregur - Mexíkó I / r SI I 1—31 ■ «. «« m. - - rvJi-UiviDiM - MUMtNIA Vérður Kólumbía lið keppninnar? Þriðji leikurinn á laugar- daginn verður síðan við- ureign Kólumbíumanna og Rúmena. Báðar þjóðirnar tóku þátt í úr- slitakeppninni fyrir fjórum árum og þá stóðu Rúmenar sig betur. Nú er hins vegar talið líklegt að Kól- umbíumenn standi sig vel, sumir ganga svo langt að tala um lið keppninnar. 5:0 burst Kólumbíumanna á Argentínumönnum úr undan- keppninni sýnir svo ekki verður um villst að þetta er lið sem ber að taka alvarlega. Sigurinn gulltryggði þeim ekki einungis farmiðann til Bandaríkjanna heldur gerði hann einnig lýðum ljóst að hér er komið lið sem á möguleika á að fara alla leið og vinna sjálfan titillinn. Fyrir þjóð sem aldrei hefúr náð neinum árangri í keppninni áður, að komast í aðra umferðina á Italíu árið 1990 var þeirra besti árangur til þessa, eru þetta auðvitað mikil tíð- indi. Það er hins vegar alveg ljóst að liðið hefur mikla getu, þjálfarinn Francisco Maturana hefur úr frábærum hóp að velja og stjörnur eins og Valderama, Herrera og Asprilla komast í hvaða lið sem er. Spurningin er sú hvort Kólumbíu- menn með alla þessa snilld og tækni geta fengið stálið til sín líka, baráttan verður einnig að vera fyrir hendi til að ná árangri. Rúmenska liðið er tiltölulega óskrifað blað fyrir keppnina. Þeir eru hins vegar staðráðnir í að bæta árangurinn á HM á Italíu þegar þeir voru óheppnir að vera slegnir út í YÍtaspymukeppni við fra f sex- tán liða úrslitum. Anghel loarde- nescu þjálfari er bjartsýnn og telur að leikmenn eins og Florín Raducioiu, sem leikur með AC Milan eigi eftir að slá í gegn. Florin þessi er frábær ffamherji sem lítið hefur fengið að spreyta sig með AC. Leikstjórnandinn Ghe- orghe Hagi er maður- inn sem traust manna er sett á. Hann er 29 ára gamall og er talinn besti knattspyrnumaður sinn- ar kynsióðar í Rúmeníu. Hann hefur undanfarin tvö ár leikið með ítalska liðinu Brescia eftir eitt ár mikilla vonbrigða hjá spænska liðinu Real Madrid. © Gheorghe Hagi, er maðurínn sem Rúmenar setja traust sitt á. Hann er talinn besti knattspymu- maður sinnar kynslóð- ar iRúmeniu. Jorge Campos, 27 ára markvörður. Mjög litrikur og skemmtilegur leikmaður. Aðdáendur mexíkóska liðsins hafa ósjaldan sopið djúpar hveljuryfir tilþrifum Camposar, ekki bara á milli stanganna heldur líka úti á velli. Campos á það nefnilega til að bregða sér með í sóknina og minnir á köflum all óþyrmilega á annan latneskan markvörð, René Higuita sem eitt sinn varði mark Kólumbíu. Það er spurning hvort knattspyrnuaðdáendur séu reiðubúnir fyrir annan geggjaðan markmann. Campos hefur sér til afsökunar að hafa einu sinni verið sóknarmaður og þörfin fyrir að sóla á það til að brjótast upp í honum. Ef Campos hefur stjórn á þeirri þörf má þekkja hann á öðru eink&nni’ <zkær-nnnn nraannm hi'irtirtnm irn ozam honn oþorfar iafn- an á vellinum. Q 4-5-1 Noregur 4-3 Pi 1 Erik Thorstved 2 Gunnar Halle 4 Rune Bratseth 5 Stig Inge Bjorneby u Josíen río 7 Erik Mykland 9 Jan Age Fjortoft 10 Kjetil Rekdal 11 Jahn Ivar Jakobsen 20 Henning Berg 22 Lars Bohinen Þjálfari: Egil Olsen Mexíkó 1 Jorge Campos 2 Claudio Suarez 3 Juan Ramirez Perales 4 Ignacio Ambriz 5 Ramon Ramirez 6 Marcelino Bemal 7 Carlos Hermosillio 8 Alberto Garcia Aspe 10 LuisGarcia 11 Zague 21 Raul Gutierrez Þjálfari: Miguel Mejia Baron FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.