Eintak

Eksemplar

Eintak - 16.06.1994, Side 5

Eintak - 16.06.1994, Side 5
Indverska prinsessan Leon- ice sem nú er orðin íslenskur ríkisborgari hyggur á tón- leikaferð í átthagana til Ind- lands. Hún hefur þegar bókað fimmtán tónleika og ætlar að gefa ágóðann af sjö þeirra til munaðarlausra barna á Ind- landi. Svona eiga tónlistarmenn að vera. Leonice er þessa dag- ana að taka upp myndband sem varpar Ijósi á líf hennar á (slandi og verður að hennar sögn sýnt á einni stærstu sjón- varpsstöðinni í Asíu. Hún bætir því við að þetta sé að sjálf- sögðu fyrirtaks landkynning fyr- ir l'sland og þessa dagana geislar Leonice af ánægju og bíður eftir meira sólskini... Þeir sem ekki fengu miða á tónleika Bjarkar, eða hafa af einhverjum ástæðum ekki áhuga á að bregða sér í Höllina á sunnu- daginn, geta plantað sér fyrir framan sjónvarpið og horft á nýja sjónvarpsmynd frá félög- unum Arnari Þóri Þórissyni og Jóni Gústafssyni. Jón, sem í vetur var umsjónarmaður spurningaþáttar Ríkissjónvarps- ins fyrir unglinga og tryllti þar ungar ástfangnar meyjar með útgeislun sinni hefur snúið sér að alvarlegri þáttagerð. Hann skrifaði handrit þessarar stuttu myndar sem nefnist Jóns- messunótt. Fjallar myndin um Reykjavíkurstúlkuna Lísu sem leikin er af Katrínu Lousie Hamilton. Lísa er eitthvað óhamingjusöm í ástarsamband- inu sínu og Georgs, sem leikinn er af Þóri Bergssyni. Lísa slær því ekki hendinni á móti smá ástarævinrýri með skoskum sjóliða, Alec, sem kemur hér í höfn á Jónsmessunótt. Málin verða þó flóknari en Lísa ætlaði í fyrstu og afinn, sem er leikinn af Steindóri Hjörleifssyni, blandast í málið. Eins og allir vita getur allt gerst á sólskins- bjartri Jónsmessunótt og hver veit nema Lísa hafi fundið óskasteininn sinn... Þingvallanefnd hefur aldeilis hugsað fyrir bílastæðum meðan á þjóðhátíð stendur og á að vera hægt að leggja 30 þúsund bílum í þau. Stæðin verða prýdd fánaborgum svo enginn leggi nú út í móa. Nöfnin draga stæðin af kennileitum í næsta nágreini;; Öxará, Tæpistígur, Skógarhólar, Gjábakki, Leirar og Almannagjá, sem einkum er ætlað fötluðum.... ÁTAK UM SKRÁSETNINGU Á SENDIBRÉFUM EFTIR KJARVAL OG ÁSMUND SVEINSSON Vegna átaks um varðveislu heimilda um íslenska listasögu fara Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn þess vinsamlega á leit við eigendur sendibréfa frá listamönnunum Jóhannesi S. Kjarval og Ásmundi Sveinssyni, að fá aðgang að þessum sendibréfum til skrásetningar. Góðfúslega hafið samband við Ásmund Helgason að Kjarvalsstöðum ísíma 91-26288 ARISTON ARISTON Regnúðakerfi Síulaus 18 þvottakerfi Magnskynjari 49,900% AV1147TX Stiglaus þeytivinda 400/1200 snún Regnúðakerfi Síulaus A R I S N 18 þvottakerfi Magnskynjari 56,450- uppþvotia- IfÉl ÍARISTON VEL |LS 1032 •12 manna vél • Hraðþvotfaval • Hljóðlót • 4 þvoffakerfi 49.900% KJÖLUR hf. Armúla 30 s: 678890 - 678891 ARISTON "p'KZ&æ'i c 75 án, FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994 R0KKAÐAST1 SKBVWmSTAÐUR Á ÍSLANDI OPNARÍKVÖLD LIFANDITÓNUST ÖLL FÖSTUDAGSKVÖLD EINGÖNGU BESTU ROKKHLJÓMSVEITIRNAR LS UJÍLAL) ROKKDISKÓTEK MEÐ RICHARD SCOBIE ÖLL LAUGARDAGSKVÖLD KJALLARINN FYRIR ÞÁSEM ÞORA! 5

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.