Eintak - 16.06.1994, Qupperneq 6
Utanríkisráðherra um þorskastríð við Norðmenn:
TeQum aðgerðir
Norðmanna ólöglegar
en viljum leysa deiluna með samningum.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að ríkisstjórn-
in hafi „þungar áhyggjur" af að-
gerðum Norðmanna á Svalbarða-
svæðinu, en á þriðjudagskvöld
voru veiðarfæri þriggja fiskiskipa á
vegum íslendinga klippt aftan úr
þeim af norskum varðbátum. í
gærkvöldi höfðu íslensku skipin
siglt út af svæðinu umdeilda.
Mótmælum ekki
Aðspurður sagði Jón Baldvin að
ríkisstjórnin hafi ekki lýst yfir
formlegum mótmælum, heldur
áhyggjum sínum. „Við notuðum
ekki orðið „mótmæli" því við vilj-
um stilla orðum okkar í hóf. Kon-
ungur Norðmanna, Haraldur V. er
væntanlegur hingað til lands á
rnorgun vegna þjóðhátíðarinnar og
ég vil leggja áherslu á að það ríkir
engin óvild milli íslensku og norsku
þjóðarinnar,“ sagði Jón Baldvin.
Umdeild réttarstaða
Ráðherrann sagði að íslensk yfir-
völd litu á aðgerðir Norðmanna á
Svalbarðasvæðinu sem ólöglegar og
viðurkenndu ekki lögsögu þeirra á
fiskverndarsvæðinu, sem reyndar
eigi sér enga stoð í lögum. „Við er-
um aðilar að Svalbarðasamkomu-
laginu en höfum alla tíð slegið fyr-
irvara við þann einhliða rétt sem
Norðmenn tóku sér á þessu svæði.
Hugtakið „fiskverndunarsvæði" á
sér ekki stoð í alþjóðlegum lögum
og er umdeild meðal þjóðréttar-
fræðinga. Ég bendi einnig á að eng-
in aðildarþjóð Svalbarðasamkomu-
lagsins hefur samþykkt yfirráð
„Noregur
varðað
bregðast
við“
segir Björn Tore
Godal, utanríkis-
ráðherra Noregs
„Aukin rányrkja erlendra skipa á
Svalbarðasvæðinu er mjög óheppi-
leg með hliðsjón af eðlilegri fisk-
veiðistjórnun. Þetta mál var í raun
prófsteinn á það hvort hefjast ættu
frjálsar veiðar á svæðinu. Afleiðing-
ar þess hefðu verið að fleiri erlendar
þjóðir myndu grípa tækfærið og
hefja veiðar," sagði Björn Tore
Godal í samtali við blaðamann Af-
tenposten í gærkvöld, í viðtali sem
birtist í dag. Björn segist engar
áhyggjur hafa af því að íslendingar
fari með málið fyrir alþjóðadóm-
stólinn í Haag. Noregur standi
sterkt.
Að sögn Björns er munurinn á
afstöðu landanna mun minni en
hann hafði óttast og segir hann að
Eiður Guðnason hafi fullvissað sig
um að Islendingar hafi ekki hvatt
fiskiskip út á miðin heldur þvert á
móti beðið útgerðarmenn um að
veiða ekki með hliðsjón af lang-
tímahagsmunum íslands.
Að lokum var utanríkisráðherra
Noregs spurður hvort honum
fyndist ekki þessar aðgerðir
óheppileg „50-ára afmælisgjöf‘ til
íslendinga.
„Við hefðum gjarnan viljað að
þetta hefði farið á annan veg. Per-
sónulega held ég að atburðirnir í
Barentshafi muni ekki hafa áhrif á
andrúmsloftið þegar Haraldur
konungur og Silvía drottning fara
á morgun til Islands til að taka þátt
í hátíðarhöldunum á Þingvöllum,"
svaraði Björn. 0
Norðmanna, utan Finna, sem ekki
eru þekktir sem mikil fiskveiðiþjóð.
Aðildarþjóðir samkomulagsins
hafa áður hafnað afstöðu Norð-
manna gagnvart þessu svæði og
veitt þar. Þær deilur hafa endað
með samningum um veiðiréttindi.
íslendingar eru hins vegar fyrsta
aðildarþjóðin sem verður fyrir
þessum aðgerðum Norðmanna, „
sagði Jón Baldvin.
Klippur og skot
Það var um áttaleytið á þriðju-
„Stórþingið styður aðgerðirnar
heilshugar,“ segir í fyrirsögn í Verd-
ens Gang í fyrradag. Undir henni
má lesa: „Lauslega eftir miðnætti
komu fréttirnar til Stórþingsins:
Noregur á í þorskastríði við Island!
Þeir átta flokkar sem á Stórþinginu
eru höfðu rifist um tímasetningar í
sambandi við ESB-málið í einn
klukkutíma. Enginn var ósammála
um þorskastríöið."
Verdens Gang fékk viðbrögð frá
forystumönnum allra stjórnmála-
flokka í Noregi við aðgerðunum:
Jan Petersen úr Hægriflokkn-
um (Hoyre) segir:
dagskvöldið að norsk strandgæslu-
skip klipptu veiðarfærin aftan úr
þremur íslenskum fiskiskipum sem
voru að veiðum á Svalbarðasvæð-
inu. Þetta voru skipin Bliki, Hegra-
nesið og Hágangur II, en Hágangur
er skráður undir hentifána í Belize,
en gerður út af íslenskum aðilum.
Skipstjórnarmenn á Má, sem einn-
ig er staddur á þessu svæði skýrðu
síðan frá því að annað norsku skip-
anna hefði skotið á þá.
Eítir fund forsætis- og utanríkis-
ráðherra í morgun, og fund utan-
„Það er rétt að bregðast við sam-
stundis og af krafti þegar reglurnar
eru brotnar. Ekki bendir annað til
þess en að aðgerðir okkar hafi
heppnast vel.“
Erling Folkvort úr Rauða kosn-
ingabandalaginu (RV) segir:
„Við erum sammála um að Nor-
egur noti fljótvirkar aðferðir gegn
ólöglegum veiðum. Ég vona þó að
litla Island sé ekki eina ríkið sem
Noregur þorir að hefja harðar að-
gerðir gegn. Það á að meðhöndla
alla sem brjóta lög eins, líka ef þeir
eru frá Rússlandi eða einhverju
ESB-landanna.“
Kjell Magne Bondevik úr
ríkismálanefndar Alþingis, var
sendiherra Isla'nds í Noregi sendur
á fund norskra yfirvalda, þar sem
hann lýsti afstöðu íslendinga. Enn
hefur ekkert svar borist frá Norð-
mönnum, en í gær sagði norski ut-
anríkisráðherrann, Bjorn Tore
Godal, að munurinn á afstöðu ís-
lenskra og norskra stjórnvalda væri
minni en margir héldu.
Engin íslensk varðskip
Jón Baldvin segir að íslensk
stjórnvöld muni ekki senda varð-
Kristilega þjóðarflokknum (KrF)
segir:
„Við styðjum aðgerðirnar. Island
hefur fengið ítrekaðar viðvaranir.
Það er því nauðsynlegt að gera það
skýrt fyrir íslendingum hvað sé rétt
og hvað sé rangt.“
Erik Solheim úr Sósíalíska
vinstriflokknum (SV) segir:
„Við höfum ekkert út á þessar
aðgerðir að setja. Það er nauðsyn-
legt að stöðva ólöglegar veiðar og
koma á reglu á verndarsvæðinu.“
Carl I. Hagen úr Framfara-
flokknum (Frp) segir:
„Þetta er stórkostlegt. Nú er
Landhelgisgæslan farin að vernda
skip inn á svæðið. „Við teljum að
þessa deilu eigi að leysa með samn-
ingum, eins og hefð er fyrir í sam-
skiptum þessara þjóða. Ef samn-
ingaviðræður skila ekki árangri þá
er eina leiðin sú að leggja deiluna
fyrir alþjóðadómstól, því þetta mál
snýst um þjóðarrétt. Við viljum alls
ekki stigmagna þessa deilu, og
leggjum áherslu á að hún verði leyst
með friðsamlegum hætti,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra. O
lög og reglur. Á þessu svæði verður
að hafa örugga yfirsýn og stjórn.
Þetta svæði þolir ekki frekari veið-
ar. Við verðum að halda uppi lög-
um og reglu.“
Oscar D. Hillgaar, leiðtogi
klofningsflokks úr Frp, segir:
„Styðjum aðgerðirnar fullkom-
lega. Noregur hefur teygt sig langt
og eftirlátið Islendingum þýðinga-
mikil hafsvæði. Við verðum að
koma á aga á verndarsvæðinu. Við
erum loksins farin að tala tungumál
sem íslendingar skilja.“
Lars Spansheim úr Vinstri-
flokknum (Venstre) segir:
Útgerðarmenn tog-
aranna Hegraness
og Blika sem klippt
var hjá:
Ætlaímála-
reksturgegn
norska ríkinu
„Látum reyna á rétt-
arstöðu okkar fyrir
norskum dómstólum
segir Einar Svansson,
framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar.
Útgerðarmenn togaranna
Hegraness og Blika hafa ákveðið
að höfða mál gegn norska ríkinu
sökum þess að norska strand-
gæslan klippti á togvíra togar-
anna eins og kunnugt er af frétt-
um. Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Skagfirðings, sem gerir út
Hegranesið, og Ottó Jakobs-
son sem gerir út Blika, funduðu
um málið í gærdag og tóku þessa
ákvörðun. „Við viljum láta
reyna á réttarstöðu okkar í þessu
máli fyrir norskum dómstól-
um,“ segir Einar Svansson í sam-
tali við EINTAK. „Það ræðst svo
af framhaldi málsins hvort við
vísum því til alþjóðlegs dóm-
stóls.“
I máli Einars kemur fram að
þeir hafi sent ríkisstjórninni
greinargerð um málið af sinni
hálfu þar sem greint var frá þess-
um áformum. Einar telur þau '
samræmi við stefnu ríkisstjórn-
arinnar um að vísa deilunni til
alþjóðlegs dómstóls ef ekki náist
samningar við Norðmenn.
Stuðningur frá LÍÚ
Einar segir að sönnunargögn-
in í málinu liggi ljós fyrir því
klippingar norsku strandgæsl-
unnar á togvírunum séu til á
myndbandsspólum. Á þeim sé
einnig að finna það er skotið var
á togarann Má frá Ólafsfirði en
norska strandgæslan neitar nú
að slíkt hafi verið gert.
LÍÚ mun styðja við bakið á
útgerðarmönnunum í mála-
rekstri þeirra gegn norska rík-
inu, enda segir Einar að hags-
munir allra íslenskra útgerðar-
manna séu í húfi í þessu máli.
„Við erum orðnir aðilar að Sval-
barðasamkonrulaginu og það er
eins og Norðmenn hafi ekki átt-
að sig á því,“ segir Einar. „Staða
okkar í málarekstrinum hlýtur
því að vera sterk.“
Að sögn Einars verða næstu
skref þau að útvega lögfræðinga í
Noregi sem eru tilbúnir að taka
að sér málið. „Við munum síðan
bíða niðurstöðu dómstólsins
hvað varðar framhaldið, en ég
vona að sú niðurstaða liggi fljót-
lega fýrir.“0
„Ég trúi því ekki að allar leiðir
hafi verið reyndar áður en gripið
var til þessara aðgerða. Það getur
ekki verið nauðsynlegt að beita of-
beidisaðgerðum gegn vinsamlegum
nágranna.“
Jan Henry T. Olesen, sjávarút-
vegsráðhcrra Noregs, sem er úr
Verkamannaflokknum (Arbeit-
spartyet) segir:
„Þessar aðgerðir sýna að Noreg-
ur mun sýna styrk sinn til að
vernda þetta svæði. Þetta sýnir að
við erum ákveðnir í að nota þær
aðferðir sem þarf til að stöðva ólög-
legar veiðar.“ 0
Viðbrögð norskra stjórnmálamanna við þorskastríðinu:
Breið samstaða á norska Stórþinginu
um aðgerðimar á Svalbarða
„Noreaur svnir styrK,“ seqir Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráðherra Noregs.
6
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994