Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 16.06.1994, Qupperneq 9

Eintak - 16.06.1994, Qupperneq 9
Eftir atburði síðustu vikna kemur ekki mörgum á óvart að Páll Magnússon skuli vera á förum frá íslenska útvarpsfélaginu. Meiri athygli vekur hins vegar sérstaklega rausnarlegur starfslokasamningur sem Ingimundur Sigfússon hefur gert við hann fyrir hönd fráfarandi meirihluta félagsins. Sá samningur kostar (slenska útvarpsfélagið um tíu milljónir króna sem er tæplega sjö milljónum meira en starfslok Páls ættu að kosta samkvæmt ráðningarsamningi hans. Jón Kaldal bar þessa tvo samninga saman. Páll kvaddur með fimm milQónum umfram samninaa Eins og fram hefur komið í frétt- um hefur Páll Magnússon sjón- varpsstjóri gengið frá starfsloka- samningi við Ingimund Sigfús- son, stjórnarformann fráfarandi stjórnar íslenska útvarpsfélagsins. Þessi samningur hefur vakið upp hörð viðbrögð hins nýja meirihluta en einn af stærstu aðilunum innan hans segir að það séu varla önnur ráð í stöðunni en að „fara í skaða- bótamál við þá aðila sem stóðu að þessum samningi og láta þá bæta það tjón sem hann veldur félag- inu“. Eins eru menn innan hins nýja meirihluta illir í garð Páls þar sem þeim þykir hann hafa brotið freklega þau ákvæði sem ráðning- arsamningurinn kvað á um starfs- lok hans og þykir hann hafa nýtt sér mjög þann glundroða sem er ríkj- andi innan stjórnar félagsins. Samkvæmt samningnum er áætlað að Páll láti af störfum eigi síðar en 8. júlí næstkomandi. Þann dag verður haldinn hluthafafundur í félaginu og nýr meirihluti mun taka við stjórn þess. Það kemur ekki á óvart að Páll Magnússon hættir senn störfum hjá íslenska útvarpsfélaginu. Und- anfarið hafa vangaveltur manna helst snúist um það hvort hann myndi sjálfur segja upp störfum eða hvort ný stjórn félagsins myndi segja honum upp. En vitað er að stórir hluthafar hafa verið mjög óánægðir með stjórnunarhætti hans og vinnubrögð í ýmsum mál- um. Það sem vekur hins vegar at- hygli við brottför Páls er fyrrnefnd- ur starfslokasamningur sem Ingi- mundur Sigfússon gerði við hann og var undirritaður á mánudaginn var, 13. júní. Sá samningur kostar Islenska útvarpsfélagið hátt í tíu milljónir króna og er í engu sam- ræmi við hvernig starfslok Páls áttu að vera samkvæmt ráðningarsamn- ingi sem var gerður við hann þegar hann var ráðinn sjónvarpsstjóri Is- lenska útvarpsfélagsins í lok ágúst 1992. Misræmi í samningum I ráðningarsamningi Islenska út- varpsfélagsins við Pál Magnússon, sem var undirritaður 27. ágúst 1992, segir: „Islenska útvarpsfélagið leggur Páli til bifreið af gerðinni BMW 520Í, eða sambærilega, og greiðir allan rekstrarkostnað bílsins. Páll getur óskað endurnýjunar á bif- reiðinni á fimm ára fresti“. Eins og menn muna sjálfsagt eft- ir var Páll kominn á töluvert dýrari bíl síðasta haust, Toyota Landcruis- er jeppa, sem kostaði á fimmtu milljón. Þegar aðhaldsaðgerðir voru ákveðnar í fyrirtækinu skömmu eftir áramót ákvað Páll að taka þátt í þeim með því að selja þennan jeppa og kaupa nýjan, Toy- ota Fourrunner sem metinn er á um það bil þrjár milljónir króna. Samkvæmt starfslokasamningi Páls eignast hann þennan jeppa sem hann hefur haít til umráða en þegar ráðningarsamningur hans er skoð- aður fmnst hins vegar engin stoð fyrir því að hann hafi átt að fá bíl- inn til eignar. I sjöunda tölulið ráðningarsamningsins segir: „Gagnkvæmur uppsagnarfrestur samningsins er sex mánuðir miðað við mánaðamót. Segi íslenska út- varpsfélagið hf. samningnum upp fellur bíllinn, skv. tölulið 5, til Páls án endurgjalds. Segi Páll samn- ingnum upp á hann rétt á að kaupa bílinn af félaginu á bókfærðu verði.“ I lokamálsgreininni kemur skýrt fram að Páll eigi ekki að eignast bíl- inn nema honum sé sagt upp störf- um en hann megi aftur á móti kaupa hann á réttu verði ef hann vilji, ef hann kýs sjálfur að hætta. Og það var einmitt það sem Páll kaus eins og kemur greinilega fram í bréfi sem hann ritaði til stjórnar- manna og varamanna íslenska út- varpsfélagsins og dagsett er 14. júní 1994: „Ég hef nú bundið endi á ráðningarsamning minn við Is- lenska útvarpsfélagið...“ og enn fremur: „Ástæður þess að ég óskaði eftir lokum fyrrgreinds ráðningar- samnings..." Því má í raun skoða jeppann sem hreina gjöf ffáfarandi meirihluta til Páls. Og jeppinn er ekki það eina sem Páll fær aukreitis. Starfslok Páls tæplega sjö milljónum of dýr Þrátt fyrir að það standi skýrum stöfum í ráðningarsamningnum að uppsagnarfrestur Páls séu sex mán- uðir fær hann samkvæmt starfs- lokasamningnum greidd laun fyrir mun lengri tíma, eða tæplega tólf mánuði. Sá tími er fenginn þannig að til viðbótar sex mánaða upp- sagnarfrestinum fær Páll greidd full mánaðarlaun, 550 þúsund, fýrir júlímánuð, en starfslok hans sam- kvæmt samningnum verða ekki síðar en 8. júlí eins og áður hefur komið fram, hann fær greidda tvo mánuði í áunnið en ótekið sumar- leyfi og aðra tvo mánuði sem hann ávann sér á árunum 1986 til 1990, þegar ráðningarsamningur hans tók mið af kjarasamningi Blaða- mannafélags Islands. Að auki fær Páll greidda risnu sem nemur 8/12 af mánaðarlaunum, þar er þó ekki látið staðar numið því hann fær einnig greiddan allan símakostnað, fyrir heimasíma og bílasíma, og rekstrarkostnað bifreiðar átta mán- uði frá og með 1. ágúst. Erfitt er að meta þennan síðasttalda lið samn- ingsins en varlega áætlað er hann ekki undir 400 þúsund krónum. I samningnum er kveðið á um að til grundvallar greiðslunni fyrir þessa Iiði verði lagður kostnaður Páls við síma og bifreið síðustu átta mán- uði. Samkvæmt ráðningarsamningn- um frá 1992, er ekki minnst einu orði á neitt af framantöldu utan sex mánaða uppsagnarfrestsins, og þá var allt eins gert ráð fyrir að hann myndi vinna hann en í þessum samningi tekur uppsagnarfrestur- inn ekki gildi fyrr en 1. ágúst. Sér- staka furðu vekja líka greiðslur fýrir tvo mánuði frá því að ráðningar- samningur Páls tók mið af samn- ingum Blaðamannafélagsins. Það væri eðlilegt að greiða þessa mán- uði ef Páll hefði verið rekinn en tíðkast afur á móti ekki þegar menn segja upp af fúsum og frjálsum vilja. Eins er það mjög rausnarlegt af fráfarandi meirihluta að greiða Páli tveggja mánaða ótekið orlof þegar á það er litið að hann fær sex mánaða uppsagnarfrestinn greidd- an með orlofsálagi. Það verður því að ætla að venjulega hafi hann fengið orlof sitt greitt með launum sínum og hann því ekki átt sumar- leyfisgreiðslur inni. Enn eitt atriði sem vekur mikla athygli í þessum samningi er að samkvæmt honum á íslenska út- varpsfélagið að greiða Páli þá upp- hæð sem allir þessir liðir mynda, strax við undirritun samningsins. Heimildir EINTAKS herma að þetta hafi verið gert og að gjaldkeri Islenska útvarpsfélagsins hafi greitt Páli 6,6 milljónir króna, mínus skatta, í fyrradag. Það þýðir að Páll hafi fengið rúmar 4 milljónir í beinhörðum peningum auk þess sem 3 milljóna jeppinn varð hans eign við undirskrift starfsloka- samningsins. Ef starfslokin hefðu hins vegar verið samkvæmt ráðn- ingarsamningnum hefði Páll átt að fá 3,3 milljónir í laun fýrir sex mán- aða uppsagnarfrestinn en sú upp- hæð er rétt rúmar 2 milljónir þegar skatturinn hefur verið dreginn frá. Þess í stað hefur Páll fengið um fjórar milljónir í vasann og 3 millj- óna króna jeppa að auki. Mismun- urinn er 5 milljónir og í stað þess að starfslok hans kosti íslenska út- varpsfélagið 3,3 milljónir króna, kosta þau félagið um 10 milljónir.© ■ V- PÁLL MagnÚSSON: Heimildir EINTAKS herma að gjaidkeri ístenska útvarpsfélagsins hafi greitt Páti 6,6 milljónir króna, mínus skatta, í fyrradag. Það þýðir að Páii hafi fengið rúmar 4 milljónir i beinhörðum peningum auk þess sem 3 milljóna jeppinn varð hans eign við undir- skríft starfslokasamningsins. Ef starfslokin hefðu hins vegar veríð samkvæmt raðningar- samningnum hefði Páll átt að fá 3,3 milljónir í laun fyrir sex mánaða uppsagnarfrestinn en sú upphæð er rétt rúmar tvær milljónir eftir skatt. Ingimundur SigfOsson: Starfslokasamningurinn sem hann gerði við Pál Magnússon hefur vakið upp hörð viðbrögð hins nýja meirihluta, en einn af stærstu aðilunum innan hans segir að það séu varía önnur ráð en að „fara í skaðabótamál við þá aðila sem stóðu að þessum samningi og láta þá bæta það tjón sem hann veldur félaginu". FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ1994 9

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.