Eintak

Eksemplar

Eintak - 16.06.1994, Side 18

Eintak - 16.06.1994, Side 18
Það er til fólk sem er tengdara íslandi en við hin. Fólk eins og umsjónarmaður íslands í dag, glímukóngur íslands, Ungfrú ísland og stjórnarformaður íslenska útvarpsfélagsins. eintak leitaði til þessa fólks sem hlýtur að tengjast landinu. sínu og þjóðinni sterkari böndum en flestir aðrir og spurði það ýmissa spurninga um þjóðernið, stoltið og sjálfstæðið. Islandsfólk Hvernie eflir þú þjóðernis- vitund þína? Þjóðernisfélag íslendinga - Jón Ásgeirsson „Búa til þjóðhátíðarbúning," svarar Jón hiæjandi. Ég hef ailtaf verið fullur þjóðernisvitundar og ekki þurft að efla hana neitt sér- staklega. Ég fínn alltaf meira og meira fyrir henni eftir því sem kynnist þeim Islendingum betur sem búa annars staðar í veröld- inni. Og fyrir svona fólk eins og mig sem hefur ferðast mikið út um allan heim finnur maður betur hvað er gott að vera bú- settur á íslandi. Það eflir kannski þjóðernisvitundina fyrst og fremst. Ég tek samt yfirleitt ekki með mér harðfisk eða ORA- baunir til eigin neyslu á ferðum erlendis. Það er frekar að ég geri það ef ég vil gefa einhverjum eitthvað slíkt.“ - >*»***«’ >, , *’■ ' >«*w**l8- Er til séríslenskur vöxtur? Islandsmeistari i vaxtarrækt - Kjartan Guðbrandsson Kjartan Guðbrandsson, nýtur þess að vera íslands- meistari í vaxtarrækt á sjálfu lýðveldisárinu. Hann er ekki frá því að til sé séríslenskur vöxtur. „íslenskar konur eru bústnar og fallegar og karlmenn irnir grófir og þrekvaxnir,“ segir hann. Hvað er svona merkileet yið að vera lur Ræðumaður Islan - Ingibjörg Lind Karlsdottir Ingibjörg Lind Karlsdóttir var kjörin ræðumaður íslands í síðustu MORFÍS-keppni sem er mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Islandi. Hún ér mjög stolt af því að vera íslend- ingur. „Við erum á allan hátt miklu merkilegri en aðrar þjóðir. Við erum líka fallegri, eða er ekki allt- verið að segja það? Við erum æðisleg,“ segir Ingibjörg. Af hverju heitir íslandsflug Islandsflug? Islandsflug - Omar Benediktsson Ómar Benediktsson, stjórnarformað- ur Islandsflugs, segir nafnið hafa orðið fyr- ir valinu vegna þeirrar einföldu ástæðu að vélar fyrirtækisins fljúga aðeins innan Is- lands. „Þetta er virðulegt nafn, eins og öll nöfn ef Island er í því, og svo er það líka notalegt því þetta er landið okkar. Eg vona að við- skiptavinirnir kunni jafn vel við það,“ segir Ómar. Hann segir Islandsflug hljóma vel sé það þýtt yfir á þýsku og hin Norðurlandamálin en aftur á móti vandist málið þegar kemur að enskunni. „Þá verður nafnið Icelandair sem Flug- leiðir nota en það nafn yrði bara Airways á enskunni," segir Ómar. 18 FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.