Eintak - 16.06.1994, Page 20
Er til eitthvað sem heitir
íslensk heilsa?
Islenska heilsufélagið hf. - Grímur Sæmundsen
„Það er til íslensk heilsa. Hún mótast af því hvað hér eru hrein og
ómenguð náttúrugæði og hvað við borðum holla fæðu,“ segir Grímur
Sæmundsen, framkvæmdastjóri íslenska heilsufélagsins hf. „Islendingar
eru á margan hátt mjög vel á sig komnir. Þeir eru langlífari en aðrar þjóð-
ir og sömuleiðis er minna um ungbarnadauða en annars staðar þekkist.
Hvort tveggja ber merki um almenna hollustu og góða heilbrigðisþjón-
ustu, en sú sem við búum við hér á landi er talin í hæsta gæðaflokki af al-
þjóðlegum heilbrigðisstofnunum."
vera íslenskur o
ur bifreiðaeiean
Félag íslenskra bifreiðaeigérrda - Runólfur
„Ef við miðum við nágrannalöndin þá þurfa íslenskir bifreiðaeigend-
ur gegnumsneitt að þola meiri álögur," segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB. „Vegna legu iandsins og vegakerfis eru sam-
göngur hér erfiðari en víðast hvar annars staðar. Þó þeim hafi fleygt
fram er vegakerfið ennþá mjög vanþróað. Við vildum gjarnan að félags-
menn okkar væru fleiri því bifreiðaeigendur eru svo margir. í upphafi
var félagið stofnað af þeim sem betur máttu sin því fáir áttu bíla. Þá var
félagið í anda konunglegra bílakiúbba í Evrópu, en nú er það fyrst og
ffemst hagsmunasamtök.“
Jivað er íslenskt við
Islenska útvarpsfélaeið?
Islenska útvarpsfélagið - Ingimundur Sigfússon
„Vissulega höfum
við sýnt mikið af am-
erísku efni en við
höfum unnið gott
starf að öðru leyti.
Til dæmis vorum við
brautryðjendur í ís-
lenskri talsetningu á
barnaefni,“ segir
Ingimundur Sig-
fússon, stjórnarfor-
maður hjá íslenska
útvarpsfélaginu. „Svo
er náttúrlega ffábær
fréttastofa á Stöð 2.
hennar höfum
við verið með alls
kyns íslenska þætti.“
Hvernig
styrkir pú
þjóðernis-
kenndina?
Landslið íslenskra pnat-
reiðslumeistara - Ulfar
Finnbjörnsson
„Með því að segja „ísland, já
takk“ og nota sem mest af íslensku
hráefni. Mér fmnst fáránlegt þegar
kokkarnir inni í eldhúsi eru að
væla að ekki sé til neitt annað en
steinselja. Á leiðinni í vinnuna eru
þeir búnir að vera að traðka á
hundasúrum, blóðbergi og fíflum.
Ég fer svona annan hvern dag 40
kílómetra hring í kringum Reykja-
víkursvæðið og tíni allan fjandann.
Ég nota mikið af hundasúrum,
blóðbergi, maríustakk, kerfli og
skessujurt. Hundasúrur eru til
dæmis mjög góðar í sorbet og fiski-
sósur. Mér finnst fáránlegt að taka
íslenskan fisk eða kjöt og fela
bragðið með karrí eða einhverju
þess háttar."
Er ísland miðpunktur
heimsins?
Sterkasta kona á Islandi - Unnur Sigurðardóttir
„Já, frá mínu sjónarhorni séð er Island miðpunktur alheimsins
því ég er svo hátt uppi,“ segir Unnur Sigurðardóttir sterkasta
kona á íslandi. „Mérfinnst bæði land og þjóð vera talsvert þekkt
úti í heimi og bæði á neikvæðan og jákvæðan hátt. Það nei-
kvæða er vegna hvalamálanna en það jákvæða á sviði sölumála.
Eins og fram kom í grein í New York Times um daginn hefur
okkur tekist að hafa það jákvæða ofan á. Við þurfum að koma
því betur á framfæri hvað það er sálarhreinsandi að koma til ís-
lands og hvað það er hreint og tært.“
Tekur þú
með þer
matarkex oe
harðfisk til
útlanda?
Glímukóngur Islands -
Skarphéðinn Orri Björnsson
„Nei, ég man ekki eftir neinni ís-
lenskri matvöru sem ég hef tekið
með mér út. Ég reyni bara að drekka
í mig erlenda menningu á ferðum
mínum út fyrir landssteinana. Marg-
ar ferða minna miðast að því að
kynna land og þjóð og íslensku glím-
una. Ég hef farið til Bandaríkjanna,
Bretlands og Norðurlandanna á veg-
um Glímusambandsins og viðtök-
urnar verið mjög góðar. Islensk
glíma þykir mjög áhugaverð og
öðruvísi. í Svíþjóð og Danmörku er
glíman komin vel á veg og fyrsta
Norðurlandamótið verður haldið í
lok júlí í Hróarskeldu."
Hvað finnst
þér það þjóð-
iegasta sem
Islendingar
taka sér ryrir
hendur?
Islenska álfélagið - Ragnar
Halldórsson
Ragnar Halldórsson, stjórnarfor-
maður Islenska álfélagsins og fyrrver-
andi forstjóri þess, er ekki í vafa um
það hvað er það þjóðlegasta sem Is-
lendingar geta gert: „Að borða hákarl
og drekka brennivín með.“
Ragnar segist þó ekki gera mikið af
því.
„Það er ekki hægt að vera Islending-
ur í hástert alla daga vikunnar. Það er
helst á þorrablótum, enda eru þau líka
afskaplega íslensk," segir hann.
20
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994