Eintak - 16.06.1994, Qupperneq 35
Herra
Pókus
„Ég er búinn að vera í þessum bransa
frá því ég var sjö ára gamall, en var
hins vegar sextán þegar ég fór að
koma fram,“ segir Pétur Finn-
bjömsson, öðru nafni Pétur Pókus,
sem skemmta mun Reykvíkingum
með töfrabrögðum um helgina. Á
föstudaginn ætlar hann að frumsýna
töfrabragð sem hann segir vera það
stærsta sem íslenskur töframaður hafi
leikið.
Hvað ætlarðu að gera á föstudag-
inn?
„Það er leyndó, komdu bara og
sjáðu."
En hvernig lærir maður töfra-
brögðin?
„Sko, ég hef nú aðallega lært af bók-
um og sjálfum mér,“ segir Pótur. „En
vinur minn Baldur Brjánsson hefur
hjálpað mér að fínpússa töfrabrögðin
mín, enda hefur hann langa reynslu af
töfrum og sjónhverfingum. En þótt
hann hafi hjálpað mér mikið, getur
maður ekki sagt honum frá öllu, því
maður verður jú að hafa einhverja
leyndardóma, út á það gengur þetta
starf!"
Pétur töfrar í sumar með leikhópnum
Sumargríni sem ferðast á milli skóla og
barnaheimila. „Bömin hafa mest gam-
an af atriðum þar sem hlutir eru látnir
hverfa og birtast aftur. Lokaatriðið er
hins vegar vinsælast, þegar töfra-
sprotinn minn breytist i súkkulaðipill-
ur."
Og það er auðvitað leyndarmál,
hvemig þú ferð að því?
„Að sjálfsögðu."
En þú töfrar væntanlega fyrir fleiri
en börn og unglinga?
„Já, ég skemmti fullorðnum líka, en þá
eru töfrabrögðin kannski aðeins ann-
ars eðlis."
Hvers eðlis verða þau?
„Þá fara þau að líta aðeins hættulegar
út. Ég hef verið að fikra mig áfram
með brögð þar sem eldur er notaður.
Stundum sýni ég hvernig hægt er að
stinga nálum í gegnum handlegginn á
sér, og það vekur venjulega sterk við-
brögð hjá áhorfendum.'1
Og hvernig í ósköpunum ferðu að
þvíl? Nei, lof mér að geta — það
er auðvitað leyndarmál?
„Rétt," sagði Pétur Pókus og dreif sig
upp í Fellahelli að æfa nýjasta bragðið.
Frá Kramhúsinu. Fyrir miðju situr stjornandinn, Orville J. Pennant.
„Markmiðið með þessari sýn-
ingu er að þjóðhátíðin í Reykjavík
endurspegli menningu allra land-
nema á Islandi, hvort sem þeir
komu frá Noregi fyrir löngu, eða
frá Asíu fyrir nokkrum árum.
Menninguna okkar ætlurn við að
endurspegla í tónlist og dansi.“
Þetta segir Orville J. Pennant,
sem er fæddur á Jamaíku, ólst upp í
Bandaríkjunum og hefur búið hér á
landi síðustu tvö árin. Hann er
stjórnandi dansatriða sem íslenskir
nýbúar sýna á morgun, laugardag
og sunnudag.
Orville hefur unnið mikið með
danshópum í Kramhúsinu, en hef-
ur einnig verið með danskennslu,
meðal annars með unglingahópum
og á barnaheimilum. „Islenskir
krakkar eru ósköp svipaðir krökk-
um annars staðar í heiminum. Þeir
eru forvitnir og frakkir, og það er
afskaplega gaman að vinna með
þeiin. Ég tek hins vegar eftir því að
þeir vita meira en jafnaldrar þeirra
annars staðar, jafnvel um heims-
málin!“
„Hóparnir sem sýna munu á
þjóðhátíðinni eru skipaðir fólki frá
Kína, Tælandi og Filippseyjum og
þarna verður hægt að sjá þjóðlega
dansa, meðal annars bambusdans
frá Tælandi, sem er mjög merkileg-
ur,“ segir Orville. „Ég er einnig að
æfa íslenskan danshóp sem sýnir
dansana frá mínu landi, Jamaíku,
en það eru kalypsódansar með afr-
ískum áhrifum. Ég sé um að sam-
ræma öll atriðin, en get hins vegar
lítið hjálpað asísku hópunum með
þeirra dansa, þau kunna þá miklu
betur en ég!“
Nýbúarnir munu taka þátt í mik-
illi skrúðgöngu sem leggur af stað
frá Hlemmi niður Laugaveginn,
klukkan hálftvö á morgun. Þegar
gangan kemur niður í bæ verður
safnast saman í Kvosinni, þar sem
stanslaus skemmtiatriði verða í
boði frá þrjú til hálfsjö.
Danssýningar nýbúanna verða á
sviði í Lækjargötunni, og hefjast
með kínverskri leikfimi, sem er
nokkurs konar Tai-chi leikfimi og á
rætur sínar að rekja í aldagamaili
bardagalist.
„Við sýnum ekki aðeins á þjóð-
iiátíðardaginn," segir Orville, „því á
laugardaginn verðum við með sýn-
ingu í Fjölskyldugarðinum í Laug-
ardal. Þar koma sömu hóparnir
fram, en þeir verða með aðra dansa
en áður.“
Þótt nýbúarnir séu af margvís-
legu þjóðerni, segir Orville að sam-
starfíð hafi gengið einkar vel. „Við
erum í rauninni öll á sama báti.
Þótt hver hópur eigi sín menning-
arlegu séreinkenni þá eigum við
það sameiginlegt að vera útlend-
ingar í þessu landi. Við viljum öll
læra að meta íslensku menninguna
og fá íslendinga til að meta okkar,
því við viljum verða Islendingar,1
sagði Orville J. Pennant. ©
Bambusdans og
kínversk leikfim
i
08.25 Allar kirkjuklukkur höfuðborgarinnar
breytast í vekjaraklukkur (fimm mfnútur og gefa
tóninn fyrir daginn.
15.00 - 18.00 Tóti Trúöur skemmtir ungum
og öldnum f Hallargaröinum viö Fríkirkjuveg
11. Auk þess veröur Tjörnin full af róörarbátum
og I Hljómskálagarðinum veröa skátar meö dag-
skrá.
14.30 Skrúöganga frá Hlemmi niður Lauga-
veginn. í fararbroddi veröa félagar úr Fornbfla-
klúbbnum á bílum sfnum. Bílarnir veröa síöan
til sýnis á bílastæðinu viö Vonarstræti milli
15.00 og 16.00
16.00 - 17.30 Götuleikhús ungs fólks með
sýningu sem nefnist Landnám. Sýningin veröur
á ferðinni eftir Lækjargötunni og endar við
Tjörnina þar sem stórsýning fer fram.
16.40 -17.15 Kínverskir, tælenskir og fili-
peyskir dansarar sýna þjóðlega dansa og
leikfimiæfingar í Lækjargötunni. Þeir sem
taka þátt eru nýbúarnir okkar, sem ætla að setja
alþjóðlegan svip á þjóöhátíðina i Reykjavík. Góð
hugmynd.
21:00 - 03:00 Þjóðhátíðarnefnd á Þingvöllum
er búin að vera eftir daginn og dagskránni lokað
en f Reykjavík er fjörið rétt aö byrja. Helstu
rokkgoð landsins verða samankomin í Lækjar-
götu og tónleikum sem hefjast klukkan 21.00 og
standa til klukkan 03.00. KK stígur fyrstur á
svið ásamt Bubba vini sfnum. Þar á eftir poppa
plaststrákarnir í Pláhnetunni. Diskóboltinn
Páll Óskar kemur f kjölfarið og upp úr mið-
nætti er það Sigga Beinteins og hljómsveitin
N1+ sem gaular á sviðinu. SSSól hristir upp í
fólki með alvöru rokki eftir að Sigga hefur lokið
sér af og spilar það sem eftir lifir tónleikana.
SVEITABÖLL
Klisjurokksveitin Lipstick Lovers heldur sig
norðan heiða og spilar á Dropanum á Akureyri í
kvöld.
Sigtryggur dyravörður er f afmælisskapi og
hefur gefið út opinbera yfirlýsingu um að hann
muni gera allt vitlaust á Akureyri í kvöld. Þið
finnið hann á skemmtistaðnum 1929.
Á Hótel Selfossi verða miðnæturtónleikar í sum-
arnóttinni og er það sveitaballabandið Plá-
hnetan sem spilar ásamt hjómsveifinni Spo-
on. Þetta eru tónleikar sem er vel þess virði að
faraá. Poppaö fram eftir nóttu.
Stórsveitirnar flykjast úr bænum á Þjóðhátfðar-
daginn. Sniglabandið fylgir lestinni og verður
á útiskemmtun á Djúpavogi sem hefst klukkan
15.00. Um kvöldið verður slegið upp dansleik
og munu Sniglarnir þá láta í sér heyra svo um
munar.
Hornfiröingar ættu að halda upp á afmælið í
Sindrabæ í kvöld þar sem Örkin hans Nóa
heldur stórtónleika fyrir 18 ára og eldri.
F E R Ð I R
Ferðafélag Islands: Þingvellir Feröatélagið
tekur að sér að skipuleggja gönguferðir á Þing-
völlum 17. júnf og verða það stuttar gönguferðir
frá stjórnstöð eins og hér segir: Kl. 10.00
Langistigur, kl. 13.00 Flosagjá, kl.14.00 Langi-
stígur.
í Þ R Ó T T I R
Sjónvarpsfótbolti Hæ hó jibbf jei og jibbí jei,
það er kominn Heimsmeistarakeppni. Gamanið
er hafið og meirihluti jarðarbúa sestur fyrír
framan tækið. Hvort sem þú ert á Fiji eyjum, ís-
landi eða í landi hinnar rísandi sólar er þetta at-
burður sem þú vilt ekki missa af. f kvöld eigast
við í opnunarleik hátíðarinnar, heimsmeistarar
Þjóðverja og Bólivíumenn. Seinna um kvöldið
taka Spánverjar Suður-Kóreumenn líklega I
nösina.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 09.00 Þjóðhátið á Þing-
völlum. Þeir sem ekki komast á lýðveldishátið-
ina á Þingvöllum geta lylgst með þvisem þar er
að gerast i beinni útsendingu. Sjónvarpað verð-
ur trá ötlum helstu atburðunum og geslir teknir
tali. Alls taka 70 manns þátt i þessari viðamestu
útsendingu Sjónvarpsins til þessa. Dagsijóss-
gengið, Aslaug Dóra, Fjalar, ÓlölFtún, Þorfinn-
ur og Sigurðursjá um kynningar og viðtöl
ásamt Boga Ágústssyni, Árna Þórði Jónssyni
og Kristinu Þorsteinsdóttur. Dagsljósstjórnend-
urnir Jón Egill Bergþórsson og Styrmir Sig-
urðsson stjórna útsendingunni sem stendur til
klukkan 18.00.18.10 Táknmálsfréttir 18.15
Setningarathöfn heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu í beinni 19.00 HM í knattspyrnu
Þýskatand - Bótivía. Bein útsending. 20.00
Fréttayfirlit 20.10 Veður 20.15 HM i knatt-
spyrnu Þýskatand - Bólivla, Iramhald. 21.00
Jón Sigurösson, maður og foringi Heimilda-
mynd með leiknum atriðum um líl og starí lyrsta
forseta lýðveldisins. Egilt Ólalsson og Margrét
Ákadóttireru íaðathlutverkum. 22.00 Fréttir
22.15 Frá þjóðhátíð Samantekt frá hátiðinniá
Þingvöllum. 23.25 HM i knattspyrnu Spánn -
Suður-Kórea. Bein útsending. 01.10 Útvarps-
fréttir í dagskrárlok
STÖÐ 213.30 Frami og fláræði True Col-
ors 15.15 Alice Meistara Atten helur oft tekist
betur upp en hér. Þessi mynd fjallar um undir-
gelna eiginkonu i leitað sjállrisér. Leikaraliðið
er pottþétt sem endranær. MiaFarrow, William
Hurt, Atec Baldwin og Joe Mantega. 17.00
Fagri Blakkur Tatsett teiknimynd um hest.
17.45 Anthony Hopkins og konungur dýranna
Hopkins erkominn íIjónagrylju.MAO NBA
tilþrif 19.19 19:19 20.00 Saga McGregor fjöl-
skyldunnar 20.50 Sódðma Reykjavík Besta
íslenska gamanmyndin litþessa. Grátbroslegir
karakterar og undirheimar Beykjavíkur skoðaðir
á kaldhæðinn hátt. Óskar Jónasson teikstýriren
með aðalhlutverk tara Bjórn Jörundur Frið-
björnsson, Eggert Þorleilsson, Sóley Elíasdóttir
og Heigi Björnsson. Sódóma Beykavík er bönn-
uð börnum. 22.20 Siðleysi Indecency. Léleg
mynd sem snýst um ágirnd, kúgun og morð.
23.45 Úlfahúsið Legend of Wolf Lodge.
Ógeðsteg og óhugnanleg mynd sem gerist í
óbyggðum Kanada þar semmorðingar og ill-
gjarnirandar leika iausum hala. 01.10 Roboc-
op II Fyrirþá sem eru gelnir lyrir spennandi
vísindaskáldsögur er þessi lyrirtaks afþreying.
03.05 Dagskrárlok
Laugardagur
P O P P
Black Out heldur rólinu áfram og syngur bæði
lög eftir sjálfa sig og aðra á Tveimur vinum i
kvöld.
llndir Tunglinu, þriðja kvöldið í röð á Gauki á
Stöng. Spurningin er: tekst þeim að halda uppi
T ó n 1 i i s t G a u k s i n s ii i æ s t u i v i k u
FIMMTUDAGUR 16. júní FÖSTUDAGUR 17. júní LAUGARDAGUR 18. júní SUNNUDAGUR 19. júní MÁNUDAGUR 20. júní ÞRIDJUDAGUR 21. júní MIÐVIKUDAGUR 22. júní
UNDIR UNDIR UNDIR RICHIE SCOBIE & RICHIE SCOBIE & KINKÍ SOULDELUXE
TUNGLINU TUNGLINU TUNGLINU SIGGI DAGBJARTS SIGGI DAGBJARTS
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994
35