Eintak - 16.06.1994, Blaðsíða 36
\ -
fjörinu eöa ekki?
Bílskúrsbönd Reykjavíkur fá lækifæri fil aö
koma sér á framfæri á tónleikum á Gervigrasinu
í Laugardal frá klukkan 16.40 til 19.00.
Útlagarnir alltaf viö sama heygaröshornið á
Feita dvergnum í kvöld.
Pláhnetan endasendist um landið og veröur í
félagsheimilinu í Miðgarði í Varmahlíð. Hnetan
mun að öllum likindum spila lög af nýju Plast-
plötunni í bland við eldri og sfgildari lög sveit-
arinnar.
Sigtryggur dyravörður rúntar um landið og
liggur leiðin austur á Langanes þar sem slegið
verður upp rokkdansleik í Þórsveri í Þórshöfn.
í Hrísey verður slegið upp utiskemmtun og gefst
eyjaskeggjum kostur á að hlusta á rokkarana í
Sniglabandinu
BAKGRUNNSTÓNUST
Tríó Ola Stephensen í Klúbbi Listahátíöar
millikl. 11.00 og 02.00.
K L A S S í K
Oratórian Milska eftir Kjell Mörk Karlsen flutt í
Hallgrímskirkju kl. 16:00. Þetta er framlag
Nlorðmanna til lýðveldisafmælisins.
PANSSTAÐIR
Grétar plötusnúður spilar tónlist í Venus og
einnig kemur hljómsveitin T-world fram.
O P N U N
Sýning Evu G. Sigurðardóttur hefst í Gallerí
Greip. Eva notar olíu og blandaða tækni á striga
og krossvið. Einnig gerir hún innísetningar.
UPPÁKOMUR
13.00 -18.00 Götukarfa (þrfr á móti þremur)
á bílastæðinu við gervigrasið í Laugardal.
14.00 Spaugstofumenn verða með leikþátt á
gervigrasinu.
15.10 Stórsöngvarinn og leikarinn Valdimar
Örn Flygenring syngur og stýrir fjöldasöng.
14.00 -14.30 Á Skautasvellinu (Laugardal
sýna liðsmenn skautafélaga leikni sína á línu-
skautum.
15.15 -16.00 Heljarmennip Magnús Ver
Magnússon og Hjalti Úrsus Árnason sýna krafta
sína á Víkingavöllum (hvar annars staöar?) í
Fjöiskyldugarðinum. Víkingarnir fara í leiki með
börnunum og draga þau í vögnum. Gaman,
gaman. Eftir að Magnús og Hjalti hafa leikið
sér, verður farið í leiki sem börnin stunduðu á
þjóðhátiðarárinu, 1944.
17.00 Skautasvellið (án svellsins) breytist í
dansgólf, þar sem haldið verður dansskólaball
barna og unglinga. Allir eiga að mæta í balldr-
essinu. Stjórnandi verður Hermann Ragnar.
F E R Ð 1 R
Ferðafélag Islands: Fimmvörðuháls Helg-
arferð 18. -19. júní. Gengið yfir Fimmvörðuháls
frá Skógum. Brottför frá BSÍ, austanmegin, kl.
08.00.
Ferðafélag íslands: Þórsmörk Helgarferð.
Þórsmörk - gönguferðir, góð gisting i Skag-
fjörðsskála. Brottför laugardaginn 18. júní kl.
08:00 frá BSÍ austanmegin.
Úfivist: Básar við Þérsmörk Helgarferð 18 -
19. júní. Fjölbreyttar gönguferðir, góð gistiað-
staða í skála félagsins. Brottför laugardaginn
18. júní kl. 08:00.
í P R Ó T T I R
Fótbolti Heil umferð er i kvennaknattspyrnunni
í dag og hefjast allir leikir kl. 14:00. Leikirnir
eru: Haukar- Stjarnan, Breiðablik - ÍA, Valur -
Höttur og Dalvík - KR.
Sjónvarpsfótbolti Haldið ykkur heima.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 09.00 Morgunsjónvarp
barnanna Þór og Óbinn lenda í alvöru ævintýr-
um og Valli reynir ad leysa gátu Hvítskeggs
tötramanns. 10.25 Hlé 12.00 Staður og stund
Endursýndur þáttur frá mánudegi um tugla
landsins. 12.15 Eldhúsið Endursýndurþáttur
frá miðvikudegi. 12.30 Mótorsport Endursýnt
trá miðvikudegi. 13.00 Reykjavíkurleikarnir
Bein útsending trá alþjóðlegu frjálstþróttamóti í
Laugardat. 15.25 HM í knattspyrnu Bandaríkin
-Sviss, bein útsending. 17.10lþróttaþátturinn
Samantekt frá Reykjavtkurleikunum í frjátsum
fyrrum daginn. 18.20 Táknmálsfréttir 18.30
Völundur Breskur teiknimyndaflokkur um
hversdagshetju. 18.55 Fréttaskeyti 19.00
Geimstöðin Nýr myndaflokkur sem geristí
framtíðinni I útjaðri vetrarbrautarinnar20.00
Fréttir og veður 20.20 HM í knattspyrnu ítalfa -
írtand. 21.50 Lottó 22.00 Konur og karlar
Women & Men: In Love There Are No Rules.
Missið ekki afþessu. Þrjár úrvals smásögur eft-
ir Irwin Shaw, Henry Miller og Carson McCull-
ers ieinni kvikmynd. Leikaralið skipað meðal
annarra Andy McDowell, Matt Dillon, Juliette
Binoche og Scott Glenn. Walter Bernstein, Kristi
Zea og Mike Figgis leikstýra. Hetur allt upp á að
bjóða tilað vera frábærskemmtun. 23.25 HM í
knattspyrnu Kólombía - Rúmenla, bein útsend-
ing. 01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
STÖÐ 2 09.00 Morgunstund 10.00 Sögur úr
Andabæ 10.30 Skot og mark 10.55 Jarðarvin-
ir 11.15 Simmi og Sammi 11.35 Furðudýrið
snýr aftur 12.00 NBA tilþrif 12.25 Skólalíf i
Ölpunum 13.20 Geimfarinn Algjör þvæla um
geimfara sem verður ástfanginn afgeim veru.
15.00 Brostin fjöiskyldubönd Crooked
Hearts. Hjón leggja ofurásl á börn sfn sem þota
ekkiálagið. 16.55 Marlin í nærmynd 17.55
Evrópski vinsældalistinn 18.45 Sjónvarps-
markaðurinn 19.1919:19 20.00 Falin mynda-
vél 20.25 Mæðgur 20.55 Laumuspil Snea-
kers. Söguþráðurinn snýsl um innbrot ítölvu-
kerfi og öryggiskerfi fyrirtækja. Ágætis spennu-
mynd með Robert Bedíord, Mary McDonnel,
Ben Kingsley, Sidney Poitier, DanAykroydog
River Phoenix. Myndin er ekki eins góð og þella
úrvals leikaralið gefur til kynna en þó vel þess
virði að horta á, þó ekki væri nema til að fytgjast
með Phoenix, sem dó alltot, alltof snemma.
22.55 Hrói höttur Robin Hood. Enn ein
myndin um Hróa og vini hans í Skirisskógi.
Patrick Bergin og Uma Thurman eru í aðalhlut-
verkum. Þette ersvona meðalmynd. 01.25
Rauðu skórnir Red Shoe Diaries. Ferðalag
um lendur lostans. Þokkatega erótiskir þættir Irá
gæjanum sem gerði 9 1/2 viku. Kynlífgetur llka
verið fallegt. Bönnuð innan tóli 01.55 Ref-
Leikarar Götuleikhússins brugðu sér íbúningum niður í bae á þriðjudaginn og sprelluðu fyrir vegfarendur.
FYRIR ÚRILLA
Farið á Þingvöll með það í huga að fá lit á
kroppinn og bölvið rigningunni. Farið á Þing-
völl og sleppið ykkur yfir því að geta hvergi
keypt Pepsi. Farið á Þingvöll og berið saman
þá aðstöðu sem erlendu heiðursgestunum
er búin og þá sem almenningur á að sætta
sig við. Spyrjið hátt yfir hópinn hvort þetta
sé hátíð þjóðarinnar eða einhvers erlends
snobbliðs. Farið á Þingvöll og krefjist þess
að fá að leggja fyrir framan Valhöll eins og
þið eruð vön. Farið á Þingvöll.
skák Paint it Black. Spennumynd sem gerist annarrí. Þetta er léleg mynd um brenglaðan Ví-
meðallistakrfsunnar íSantaBarbara IKaliforn- etnamhermann eftirstríð. 05.05 Dagskrárlok
fu. Strangiega bönnuð börnum. 03.40 Dreka-
eldur Dragonfire Hver olbeldismyndin á fætur
|—■* J
Evjmy
Islendingar eiga afmæli á morg-
un. Leikfélagið Augnablik ætlar af
því tilefni að efna til stærðarinnar
afmælisveislu á Þingvöllum.
Augnablik sérhæfir sig í barnaleik-
ritum og því verður afmælið fyrst
og fremst stílað inn á þá sem hafa
ekki, af einhverjum ástæðum, glat-
að sakleysi æskunnar. Afmælið
stendur allan daginn og það helsta
á dagskrá eru leikþættirnir Dimma-
limm, Júlía og Mánafólkið og
Blámasystur. Dimmalimm, sem
Muggur málaði og skrifaði um á
sínum tíma, er eitt þekktasta ís-
lenska ævintýrið og jafnframt það
eina sem gæti engan veginn átt sér
stað hér á landi. Þrátt fyrir það ætl-
ar Dimmalimm að skunda á Þing-
völl, rétt eins og íjölmargar aðrar
ímyndaðar persónur bókmennt-
anna. Júlía og Mánafólkið er frá-
bært Ieikrit eftir þá Friðrik Er-
lingsson og Karl Aspelund sem
hingað til hefúr verið þekktari fyrir
að hanna leikmyndir og búninga en
að skrifa sögur. Júlía og Mánafólkið
var sýnt í Héðinshúsinu í vetur og
vakti ósvikna kátínu hjá áhorfend-
um. Ekki voru viðtökurnar síðri á
leiklistarhátíðinni í Óðinsvéum þar
sem Júlía og Mánafólkið komu fyr-
ir sjónir fyrrum landa okkar í Dan-
mörku. Rétt er að geta þess að Júlía
og Mánafólkið verður ekki sýnt í
heild sinni á Þingvöllum heldur er
aðeins um stytta ferðaútgáfu á leik-
ritinu að ræða.
Blámasystur eru þær Anna Borg
og Steinunn Ólafsdóttir og ef þær
eru samar við sig ættu þær ekki að
vera í vandræðum með að fá áhorf-
endur til að hlæja.
Á milli leikþáttanna kíkja góðir
gestir í afmælið og fá börnin harm-
onikkuleik, þjóðdansa, Fjallkonur
og lúðrasveitaspil beint í æð í af-
mælistjaldinu. Shakespeare-hópur
úr Kramhúsinu sem samanstendur
af þrettán til fimmtán ára krökkum
sem hafa sérhæft sig i leikritum
skáldsins sjá um að enginn fari villu
vegar í afmælistjaldinu, rati á réttan
stað og hafi gaman af.
Eins og áður sagði mæðir mest á
leikhópnum Augnabliki í barnaaf-
mælinu. Auk Blámasystranna,
Önnu og Steinunnar, eru það
Harpa Arnardóttir, Kristín Guð-
mundsdóttir, Björn Ingi Hilm-
arsson, Erling Jóhannsson og
Ásta Arnardóttir sem standa á bak
við þetta allt saman. Þeir Björn Ingi
og Erling, betur þekktir sem
Skemmill uppfinningadvergur og
Snigill njósnadvergur, verða vænt-
anlega á ferð og flugi milli Reykja-
víkur og Þingvalla því félagarnir úr
Skilaboðaskjóðunni munu yfirgefa
Þjóðleikhúsið á lýðveldisdaginn og
bregða sér bæði í miðbæ Reykjavík-
ur og á Þingvelli. ©
Gjósandi eldfjöll
og fljúgandi menn
„Það verður mikilfengleg skrautsýning í kringum Tjörnina
um fimmleytið á föstudaginn. Menn fara þar í loftinu og eld-
fjöll munu gjósa. Annars er réttara að segja ekki frá of miklu
núna, en ég get lofað því að sýningin verður stórkostleg," segir
Benóný Ægisson, sem unnið hefur síðustu mánuðina að
undirbúningi götuleikhúss sem fara mun um stræti og torg
Reykjavíkur á þjóðhátíðardaginn. Hann er einnig annar af
leikstjórum sýningarinnar, en hinn er Rúnar Guðbrandsson.
Kjarni þessa leikhóps er Sumarleikhús ungs fólks, sem
stofnað var í vor, en fjölmargir aðrir hópar taka þátt í fjörinu,
sem stendur á föstudag, laugardag og sunnudag. Sumarleikhús
barna lætur sjá sig, hópur nýbúa verður á staðnum og ekki má
gleyma sveiflusveitinni Stalla-hú sem sér um tónlistina.
„Dagskráin verður þannig að um fjögurleytið verður farin
mikil skrúðganga eftir Lækjargötunni. Þegar hún kemur að
Tjörninni klofnar hún í tvær fylkingar, sem mætast síðan aftur
fýrir neðan barnaheimilið Tjarnarborg. Þar verður síðan hald-
in þessi líka svakalega sýning, sem ég spái að verði lengi í
minnum höfð,“ segir Benóný.
Götuleikhúsið hefur hins vegar aldeilis ekki lokið störfum
þegar föstudagur líður að kveldi. Á laugardaginn verður keim-
lík skrúðganga haldin í Laugardalnum og þar verða síðan
óvæntar uppákomur úti um allan dal, í tengsium við önnur
hátíðarhöld.
„Og á sunnudeginum verðum við með aðra skrautsýningu í
Laugardalnum og hún mun fara fram á láði, legi og í lofti, án
þess að ég vilji ljóstra meiru upp um innihaldið,“ sagði Benóný
leyndardómsfullur á svip, þegar EINTAK talaði við hann á
þriðjudag. ©
36
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994