Eintak - 16.06.1994, Síða 40
ÉQ VEIT PAÐ EKKI
HALLGRÍMUR HELGASON
Sumarkvöld á
Champs Élysées
Ég veit það ekki. Jú, hvað er þetta?
Svona: Halló allir Islendingar! Til
hamingju með daginn! Hugsa ég
þegar ég geng niður vatnshallandi
gangstéttina á Champs Élysées á 17.
júní sumarkvöldi í tveggja stafa hita
og alþjóðlegum blæ, einn buxnaður
íslendingur, eins og friðaður hvalur í
mannhafmu, með McDonalds í
maganum og hausinn fullan af
frönskum, ættaður út úr harðgeru
bændafólki ofan af Héraði og utan-
verðum Eyjafirði en fyrir tilstilli
Flugleiða og almennra framfara á
fimmtíu lýðveldisárum nú staddur
hér, á lulli.
Ódáinsvellir, Þingvellir Frakka
með Sigurboga og Concorde-torgi.
Og þó bjórinn kosti hér sama og
heima eru hér engin ummerki Lýð-
veldishátíðarnefndar sýnileg, engin
flugbjörgunarsveit að bjarga flugi,
engin Doddson Ovid að kikja í glas,
engin Almannagjá önnur en sú til
nautna, enginn Mattur Matt að
reyna að glansa. Bara lítil forseta-
fransós í sinni höllu nýsofnaður eins
og hann gerir á hverju kvöldi klukk-
an átta. Mittis-Randur á beinni leið
í sína næturlegu martröð. Helmut
Kohl stendur hlæjandi kátur af þýsk-
um bjór og heldur á honum í fang-
inu. Þar kemur að eitt íslenskt hirð-
skáld og þá hlær þingheimur allur.
Mittis Randur að virðing vandur
vœtir ból
Hugsar bara um Helmut Kohl
(Honum nœr í beltisól.)
Mannlífið á Champs Élysées er
snoppufítt og frekar snjólétt, engin
þyngsli, fólk er ekki að fara neitt
heldur hangsast um í róleg-heitum
sumarblænum eftir 50 metra breiðri
stéttinni sem aðallega er hástétt. Hér
eru allir herrar og dömur. Hundrað
milljón prósent menn með nisti og
nýja skó, og dömur upp á arm-
bandsúrvalinn arminn, ekta eða esc-
ort, og þó ekki á neinum Ford Esc-
ort, þeir sveifla lyklunum í sigur-
bognu sólarlaginu. „Ég á Bens.“ Og
þess vegna eru þeir á séns. Konan er
á svarthvítri köflóttri dragt og á köfl-
um er mjög teygt á efninu, til dæmis
yfir rassinn sem hún tyggur eins og
tyggjó til beggja hliða með háum
hælum. Þau eru á leið heim í drátt-
inn.
Út úr kvikmyndahúsi kemur sal-
arfylli af svöngum karlmönnum.
Þeir eru allir frekar mjóir og Jóa-leg-
ir í framan, bera þess einhvern veg-
inn allir merki að hafa setið í þrjá
tíma læstir inni í „La Cittá delle
Donne“, kvennabænum eftir Fellini
sem um þessar mundir er líklega eini
maðurinn sem stigið hefur út úr
móðurskauti hér á jörðu sem maður
væri til í að skríða inn í það aftur fyr-
ir, til þess að reyna að ná í hann og
láta hann gera fleiri myndir. En
þama gleymi ég því reyndar að í líf-
inu fer maður annars staðar út en
maður kom inn, rétt eins og í bíó.
Við innganginn bíða hundrað þurf-
andi dömur eftir því að fá að sjá
Casanova. Dónadildóið Suther-
land í aðalhlutverki. Meistaraverk.
Þeir háu herrar heima á „Listahátíð“
hefðu betur sett upp, þó ekki væri
nema, litla fingurinn á „II Maestro"
heldur en að vera að baukast við að
troða þessum alltof stóra Níðþunga-
hring eftir Wagner upp á smágerð-
an baugfingur Fjallkonunnar. En
fyrst ekki verður af því væri kannski
frekar fýrir íslendinga að fara þess á
leit við Itali að Federico Fellini verði
fluttur heim og grafinn í Þjóðargraf-
reitnum á Þingvöllum. Það væri
sannarlega ekki óverð afmælisgjöf á
lýðveldisári frá þessum skemmtilegu
vinum okkar í suðri.
En Wagner ljóti var púaður niður
í París á sínum tíma og þeir púa hér
ennþá, en nú meira upp og út í loftið
á Champs Élysées, sínar Marlboro
Lights, í því bili sem ljósin kvikna og
allt verður einhvem veginn enn al-
þjóðlegra. Finsku ljóskurnar verða
meira áberandi sjö saman, svona
skemmtilega ófríðar og þó bara
fimmtán ára en þar kemur á móti að
Finnar fegrast með aldrinum einir
þjóða og eru bestir þegar drykkju-
baugarnir eru komnir allan hringinn
og 6000 sauna-böð hafa alveg sléttað
úr gæsahúðinni sem er svo algeng á
þessum norðlægu slóðum hvar
drykkjumenn eru kallaðir bar-tré
sökum þagnar sinnar.
Þá er röðin komin að Ameríkön-
um, þjóðinni sem á svo erfitt með
gang, og sker sig því talsvert úr hér á
stéttinni. Hálf Mc-Dóna- lds-legir
rassarnir núa saman kinnum fyrir
framan mann og rafknúið talið
breytir þar litlu um. Kentucky-fried-
lærin nuddast saman og snúa upp á
litlu krummafæturna í sínum L.A.-
Gír. Þeir ganga hér einir þjóða með
svokölluðu „i8o-gráðu“-göngulagi.
Tilbúnir að taka allan heiminn utan-
fótar, enda HM ‘94 á næsta leiti, í
fyrsta sinn leikin á golfvöllum, vest-
anhafs.
Það eru sem sagt allir þessir sem
eru þátttakendur á „17. júní á
Champs Élysées'ý á að giska 80.000
manns og svo ég, sá eini sem er með
eitthvað prógramm: Það eru reyndar
fáir er hlýða á hátíðarræðu mína sem
ég flyt í tilefni dagsins af litlum stétt-
arpolla fyrir framan „La Maison de
Danemark". Hún endar á orðunum
„Áffarn Island!" sem ég endurtek
síðan hrópandi nokkrum sinnum. O
r formúlan í fyrírrúmi „
Ég væri svikinn ef þessi plata verður ekki
rosavinsæl en það væri líka gaman að heyra
hvort Stebbi eigi ekki eitthvað nýtt i
horninu. Þá fyrst væri reglulega gan
reglulega gaman.
íi
ÓTTARR
Sameign allra lands-
manna: Pláhnetan
vafin í plast
Pláhnetan
Plast
★*
Stefán Hilmarsson og félagar
hans í Pláhnetunni voru iðnir við
að endurnýta líkið af Sálinni hans
Jóns míns í fyrra. Þeir eru enn að á
fullu og ef eitthvað er að marka
tónlistina á Plasti ætla þeir að
dunda sér við þá iðju langleiðina
fram á næstu öld. Plast er vel
áheyrileg skífa. Hljómsveitin er vel
spilandi og nokkuð grófari en í
fyrrasumar. Kannski veldur því
koma Jakobs „pönkara" Magn-
ússonar úr SSSól. Fyrir vikið er
platan frískari en Speis frá því í
fyrra. Þó Plast sé ein topplagasúpa
frá upphafi til enda er galli að
manni finnst maður hafa heyrt
hana alla áður. Sálin hans Jóns
míns leystist upp þegar hún reyndi
að víkja af vel markaðri Stebba
Hilmarslínunni, Pláhnetan er ekki í
þeirri hættu. Hér er formúlan í fyr-
irrúmi og útfærslan góð. Ég væri
svikinn ef þessi plata verður ekki
rosavinsæl en það væri líka gaman
að heyra hvort Stebbi eigi ekki eitt-
hvað nýtt í pokahorninu. Þá fyrst
væri reglulega gaman. ©
Svörtustu hvítingjar í
heimi... í góðu geimi
Beastie Boys
III communications
Sjór sjór sjór
Beastie Boys slógu í gegn, glöt-
uðu vinsældunum og slógu svo aft-
ur í gegn á síðustu plötu sinni,
Check your head. Framan af voru
þessir bólugröfnu aular frá Brook-
lyn fyrst og fremst frægir fyrir brjál-
uð partý og eyðileggingu á hótelum
og starfsfólki þeirra en eftir að fyrsti
frægðarljóminn fór af þeim drengj-
um fóru þeir að spá aðeins í tónlist-
ina. Eftir að þeir byggðu sér eigið
stúdíó komplett með körfubolta-
velli og öllum græjum hafa þeir
sent frá sér eitthvað gáskafyllsta
hreðjafönk sem heyrst hefur lengi.
111 Communications er dálítið þess
leg að þeir hafi kveikt á græjunum,
djammað svo í viku og týnt það
besta úr. Þetta er ekki heilsteyptasta
plata í heimi en unglingsstúlkur
sem setja hana í botn taka ekki
mikið til í herbergjunum sínum á
meðan. ©
SöNGFLOKKURINN RjÚKANDI
FRA Ólafsvík
★ ★★★
Helgi E. Kristjánsson, skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Ólafsvík,
er augljóslega einhver kraftmesti
tónlistarmaður landsins. Á þesari
plötu hefur hann safnað saman sjó-
mönnum úr bænum og fengið þá
til að syngja 15 slagara inn á plötu
við undirleik sinn. Svo vitnað sé í
bækling sem fylgir disknum var
„markmiðið það eitt að halda, eins
og kostur var í söngnum, þessari
svellandi lífsnautn, sem einkennir
íslenska sjómenn sama hverjar ytri
aðstæður eru“. Þetta hefur heldur
betur tekist. Maður er hrifinn á haf
út um leið og fyrsta lagið hljómar
úr hátölurunum. Þvílíkt sjómanna-
stuð hefur ekki heyrst síðan Gylfi
Ægisson var upp á sitt besta. Ship-
pohoj! Gaman gaman! 0
Verrí svít œsland
sánd for foreyn Ýrs
ÍSLANDSKLUKKUR
★★
íslensk þjóðlög hafa hingað til
aðallega verið gefin út fyrir útlend-
inga en nú er komin plata með nýj-
Brúðkaupsveislan
HAskólabIói
★★★★
Það er orðið nokkuð langt síðan
kvikmynd um daglegt líf homma
hefúr verið sýnd hérlendis. Brúð-
kaupsveislan sem sýnd er í Há-
skólabíói er ein slík sem fjallar um
tvo vel stæða uppa, Simon, sem er
Kani, og Wai-Tung sem er frá Tai-
wan. Þessir tveir ungu menn búa á
Manhattan í hamingjusömu sam-
bandi þangað til foreldrar annars
þeirra ákveða að það sé kominn
tími til að festa ráð sitt og gifting er
ákveðin.
Brúðkaupsveislan er saga tveggja
heima, árekstra sem koma upp í
sambandi tveggja manna frá ólík-
um uppruna. Myndin er allan tím-
ann mjög fyndin og þó að efnið
bjóði upp á týpískan „slapstick
farsa“ verður hún aldrei þannig.
Sem betur fer. Leikstjóranum tekst
mjög vel að halda utan um efnið
þannig að bæði karakterar og leikur
verða aldrei annað en mjög trú-
verðug lýsing á stóru vandamáli
sem þeir komu sér sjálfir í með því
að reyna að leyna tilfinningum sín-
um. Brúðkaupsveislan er ein af
þessum ódýru myndum sem skjóta
upp kollinum með reglulegu milli-
bili og eru flokkaðar sem listræn
framleiðsla þó svo að sagan sjálf sé
meira „commercial“ en flestar
myndir sem koma frá Hollywood.
Ástæðan fyrir því er auðvitað sú að
myndin er gerð af sjálfstæðum
framleiðendum í New York fyrir
lítinn pening. Brúðkaupsveislan er
ein af þessum heiðarlegu myndum
sem grípa mann á fýrstu mínútu og
halda manni við efnið þar til yfir
lýkur. Ég mæli með henni fyrir alla,
bæði konur og kalla. 0
um útgáfum af helstu þjóðernis-
slögurunum fyrir okkur sjálf. Það
er Magnús Pór sem á veg og vanda
að íslandsklukkum og hefur hann
fengið til liðs við sig hóp af bestu
söngvurum landsins. Hér er fag-
mennska í fýrirrúmi og útsetningar
með ágætum. Það er samt svo að
það er erfitt að útsetja þessi lög á
nýstárlegan hátt. Til þess kunna
hlustendur lögin helst til vel. Hér er
komin singalong-plata fyrir 17.
júní. Tilvalin plata til að troða lýð-
veldisafmælinu ofan í útlenska vini
og ættingja. ©
Hornmamynd
BÍÓBORGIW
Angie ★★★ Mannlegmynd, indælogþó
nokkuð lyndin.
Af lífi og sál Heart and Souls ★ Sjaldan lynd-
in en alllal væmin mynd um lólk sem dinglar
milli llls og dauða vegna óuppgerðra hluta úr
jarðvislinni. Sem sagt eitt þreytlasta elni kvik-
myndasúgunnar.
Krossgötur Intersection ★★ Þokkaleg spenna
lyrir þá sem nenna ekki heim eflir vinnu (kl. 7)
eða eiga edill með sveln (kl. 11).
Ace Ventura ★★★★ Úgeðslega, ógeðslega
fyndin í tyrsla sinn en tólísinnum leiðinlegri í
næsta skipti, - segir Davíð Atexander, niu ára
gagnrýnandi barnaefnis /eintakl
Hús andanna Ttie House of the Spirits
★★★★ Frábær leikur. Myndin verðuraldrei
leiðinleg þrátl lyrir þriggja tíma selu.
BÍÓHÖLLiN
Þrumu-Jack ★ Astralir elska Paul Hogan og
þreytast ellaust ekki á að sjá hann í þessari
mynd.
Ace Ventura ★★★★ Jim Carrey færalla
nema þá sem eru langl leiddir alþunglyndi til
að hlæja næstum allan tímann.
Fúll á móti Grumpy Old Man ★★ Bessiog
Árni þeirra Ameríkana, Jack Lemmon og Walt-
her Matthau, I tiltölulega saklausu og góðlát-
legu grini sem gengur ekki mjög nærri hlátur-
taugunum. En það má stundum brosa.
Leynigarðurinn The Secret Garden ★★ Hug-
Ijúl Ijölskyldumynd sem er lalleg frekar en
skemmtileg.
Pelikanaskalið The Pelican Brief ★★ Þrátt
lyrir ágætt eíni kemst þessi mynd aldrei á llug.
Bókin er betri. íþað minnsta lyrir þá sem hafa
þokkalegt Imyndunarall.
Beethoven 2 ★ Börnum finnstgaman og for-
eldrar eiga bágt með að solna.
Rokna Túli ★★★ Talsettteiknimyndsem
börnum finnst bara nokkuð gaman al.
HÁSKÓLABÍÓ
Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet
★ ★ ★ ★ Gamanmynd um homma í felum.
Blue Chips ★ Myndumþjáltara sem spillist
alsigurlöngun og þrýlur lögmál áhugamennsk-
unnar. Eins konár áskorun til KR- inga að halda
þolinmæðinni. Þrátt íyrir góða meiningu ,
drukknar boðskapurinn I eigin væmni. Þeir sem
ekki hala gaman at körlubolla þjást.
Beint á ská 331/3 Naked Gun 331/3 The
Final Insult ★ Frekar döþur tilraun tilað halda
líli I þessari serlu. Með góðum hug má þó hlæja
héroghvar.
Backbeat ★★ MyndumIrekaróspennandi
samband Stu Sutcliffe og Astrid Kirchherr. Það
bjargar myndinni að það er skilið við sögu Bítl-
anna á þröskuldi trægðarinnar og við dyrnar
heíma hjá Bingó. Stjarna myndarinnar er lan
Hart—Kannski ekki lurða þar sem hann leikur
stjörnu Bítlanna, Lennon.
Nakinn Naked ★★★ Hin ágæstasta skoðun-
arterð um lægstu lendur Englands, neðan mittis
og hungurmarka.
Blár Blue ★★ Kieslowski-myndirnar verða
þynnri og þynnri eltir því sem þær verða lleiri.
Listi Schindler’s Schindlers List ★★★★
Verðskulduð Óskarsverðlaunamynd Spielbergs.
Allir skila sínu besla og úr verður heljarinnar
mynd. Meira að segja Polanski braut odd al ol-
læti sínu og lór á ameríska mynd (en hann er nú
reyndar gyðingur og missti mömmu slna I hel-
lörinni).
LAUGARÁSBÍÓ
Síðasti útlaginn The Lasl Outlaw ★ Vondur
vestri með sukkboltanum Mickey Rourke.
Myndirnar hans eru á hraðari niðurleið en hann
sjálfur.
Effitiörin The Chase ★★ Dágóður þriller el
veðrið væri verra.
Ögrun Sirens ★★ Innihaldslaus ogsnubbótt
saga sem helði mátt klára lyrir hlé. Þótt sumar
konurnar séu lull jussutegar geta karlar skemml
sér við að horta á prestslrúna. Og konurnar á
Hugh Grant. Þessi tvö eiga stjörnurnar.
REGNBOGINN
Sugar Hill ★ Sýrópið ogsykurinn drýpura/
tjatdinu I einn og hál/an tíma áður en myndin
byrjar lyrir alvöru. Stuttu síðar er hún búin.
Nytsamir sakleysingjar Needlul Things ★★
Djötullinn stigur upp til jarðar og breytir Irið-
sömu þorpi I hállgert helviti. Venjubundinn
Stephen King.
Trylltar nætur Les Nuits Fauves ★★★ Hrá
mynd sem fjallar el til vill irekar um ástsýki en
alnæmi. Ung leikkona, Romane Bohringer, stel-
ur senunni I sjállsævisögulegu hlutverki leik-
stjórans.
Píanó ★★★ Óskarsverðlaunaður leikur Iað-
al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga.
Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol-
ate ★ ★ ★ Ástir undir mexlkóskum mána.
STJÖRNUBÍÓ
Tess í pössun Guarding Tess ★★★ Hæg,
Ijúl og líklega indæl gamanmynd með smá
spennu i lokin. Söguþráðurinn skiþlir I sjálíu
sér ekki miklu eins og I mörgum svipuðum
myndum heldurandinn sem svllurylir völnun-
um.
Fíladelfía Philadelphia ★★★★ Frábærlega
leikin. Það hala allir gottataðsjá þessa mynd
og ekki kæmi á óvart þótt hún yrði notuð sem
kennsluelni I alnæmisvörnum þar til annað
betra býðst.
Dreggjar dagsins Remains ol the Day
★★★★ Magnað verk.
S ð G U B í Ó
Beint á ská 331/3 Naked Gun 331/3 The
Final Insult ★ Teygð og útþynnt úrgáfa af fyrri
myndum.
Hvað pirrar Gilbert Grape? Whats Eating
Gilbert Grape ★★★ Ein al þessum myndum
sem maður gleymir sér ylir.
Aladdin ★★★★ Meistaraverk Irá Disney.
40
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994