Eintak

Útgáva

Eintak - 16.06.1994, Síða 43

Eintak - 16.06.1994, Síða 43
Þjóðvetjar hefja titilvöm sína Sigursælastir í sögu heimsmeistarakeppninnar Ekkert landslið hefur náð viðlíka árangri í heims- meistarakeppninni og Þýskaland. Liðið hefur þrisvar sinnum orðið heimsmeistari, jafn off fengið silfrið og tvisvar sinnum bronsið. Þjóðverjar hafa leikið þrjá síðustu úrslitaleiki keppninnar, eru núverandi heimsmeistarar, Þýska- land er annað tveggja liða í sögu HM sem hefur tekist að verja heimsmeistaratitilinn, og fyrir þessa keppni þykir liðið líklegur kandídat til að verða fyrsta lið sög- unnar tii að endurtaka þann leik. Það er engum blöðum um það að fletta að Þjóðverjar hafa geysi- sterku liði á að skipa, sömu sögu er að segja af ýmsum öðrum þjóðum, en það sem greinir Þjóðverja frá þeim er gríðarlegt sjálfstraust og sigurvilji sem fleytir þeim áfram þegar mest á reynir. Berti Vogts, þjálfari þýska liðs- ins, verður undir mikilli pressu í Bandaríkjunum. Undir stjórn síð- ustu fjögurra forvera hans í starfi: Herberger, Schoen, Derwall og Beckenbauer varð þýska landslið- ið annað hvort heimsmeistari eða Evrópumeistari. Vogts hefúr stýrt þýska liðinu einu sinni í stórmóti til þessa, í Evrópukeppninni 1992, en þá tapaði það fyrir danska landslið- inu í úrslitaleik. Hann veit því að keppnin nú er hans eini möguleiki til að komast í hóp fyrrnefndra þjálfara. Bólivía hefúr ekki leikið í úrslita- keppni HM síðan 1950. Megintak- mark liðsins í þessari keppni hlýtur að vera það að koma boltanum að minnsta kosti einu sinni í mark andstæðinganna en það hefúr lið- inu ekki tekist í þau tvö skipti sem það hefur áður tekið þátt í HM. Lið Bólivíu þykir hins vegar ekki líklegt til stórafreka að þessu sinni frekar en áður. Skemmst er að minnast þegar Bólivíumenn léku við ís- 1-2-5-2 <D O Andreas Möller, 26 ára gamall miðvallarleikmaður. Hann náði aldrei að sýna sitt rétta andlit íkeppninni á Ítalíu 1990 og iék aðeins tvo leiki með þýska liðinu og kom þá íbæði skiptin inn á sem varamaður. Núna, fjórum árum síðar, hefur Möller þroskast mikið sem leikmaður en undanfarin tvö keppnistímabil hefur hann leikið með ítalska stórveldinu Juventus. Möller hefur leikið frábæriega með þýska landsliðinu í síðustu leikjum og lagt upp fjölda marka. Almennt er búist við því að hann komi til með að leika álíka stórt hlutverk íliði Þjóðverja nú og Lothar Matth- áus gerði á Italíu 1990. Möller er jafnvígur á báða fætur og býr yfir miklum hraða og snerpu sem gerir varnarmönnum ákaflega erfitt að ráða við hann. Q lenska iandsliðið á Laugardalsvelli núna í maí og töpuðu. Héðan fóru Þýskaland þeir til írlands og töpuðu aftur þar, í þetta skiptið fýrir landsliði Ira sem einnig leikur á HM. Ýmsir urðu til að gagnrýna leið Bólivíu í úrslitakeppninna og höfðu á orði að það herbragð liðs- ins að leika heimaleiki sína í þunna loftinu í La Paz hafi slegið andstæð- inga þeirra út af laginu. Bólivíu- menn eru væntanlega ákafir í að Erwin Sanchez 24 ára miðvallarleikmaður. Hefur verið kallaður annar Platini fyrir frábærar aukaspyrnur sínar upp við vítateig andstæðinganna. Sanches er ekki einungis snjall við að koma boltanum í markið eftir aukaspyrnur heldur þykir hann líka mjög leikinn með knöttinn. Sanches lék alla átta leiki bólivíska liðsins í undankeppninni og skoraði íþeim fjögurmörk. Síðasta keppnistímabil lék hann íPortúgal með Boavista. Q standa sig vel í Bandaríkjunum og verjinn Xavier Azkargorta sem afsanna þar með þessa kenningu. þykir sérstaklega harður í horn að Þjálfari bólivíska liðsins er Spán- taka.© C-RIÐILL Þýskaland Spánn Bólivi'a Suður-Kórea Fyrstu leikir: 17/6 kl. 18:30 Þýskland - Bólivía 17/6 kl. 23:35 Spánn - Suður Kórea Soldier Field, heima- völlur NFL liðsins Chic- ago Bears í Chicago, verður miðpunktur alheimsins 17. júníþegar setningarathöfn heimsmeistararkeppninnar 1994 hefst þar klukkan 13.30 að staðartíma og hálftíma síðar opnunarleikur keppninnar milli heimsmeistara Þjóðverja og Bólivíu. Soldier Field var byggður 1922 til minningar allra þeirra sem höfðu gegnt her- þjónustu. Þetta er einn falleg- asti völlur keppninnar með tveimur glæsilegum neo-klass- ískum súlnaröðum og tekur rúmlega 63 þúsund áhorfendur ísæti. Lothar Mattháus hefur leikið sem fríherji, aftasti maður varn- arinnar, í vetur hjá Bayern Mu- nchen og mun leika þá stöðu með þýska landsliðinu íBanda- ríkjunum. Hinn nýji þjálfari Bay- ern Munchen, ítalinn Trappat- oni sem stjórnaði Juventus síð- asta keppnistímabil, hefur látið hafa það eftir sér að hann telji Mattháus eiga nóg eftir sem miðvallarleikmaður og ætlar að láta hann leika á miðjunni með Bayern næsta vetur. Aðeins fimm leikmenn úr liði Spánar sem tók þátt i HM á Italíu fyrir fjórum árum eru í landsliðshópnum að þessu sinni. Og af þessum fimm eru einungis tveirsem voru íbyjun- arliði Spánar þá: markvörðurinn Zubizarreta og sóknarmaður- inn Salinas. Frábærir leikmenn eins og Butrageno, Vasquez, Sanchis og Michael sitja heima en þeir hafa allir leikið í liði Real Madrid. Markvörður Suður-Kóreu, Choi In-Young, var valinn af félögum sínum besti maður liðsins. Hann sýndi frábæra frammi- stöðu í Quatar þegar Suður- Kórea tryggði sér annað sæti Asíu i HM og fékk aðeins fjögur mörk á sig i fimm leikjum. Choi er ekki hár í loftinu en bætir sér það upp með ákaflega dirfsku- fullum leik. Hann lék á Ítalíu fyrir. fjórum árum, þá tapaði Suður- Kórea öllum sínum leikjum og má búast við þvíað ekki verði minna að gera hjá honum milli stanganna að þessu sinni. Q __ © o © e o © o o 1-4-4-1 1 Bodo lllgner 2 Thomas Strunz 3 Andreas Brehme 4 Jurgen Kohler 6 Guido Buchwald 7 Andreas Möller 8 Thomas Hássler 10 Lothar Mattháus 13 Rudi Völler 16 Matthias Sammer 18 Jurgen Klinsman Þjálfari: Berti Vogts Bólivía 1 Carlos Trucco 3 Marco Sandy 4 Miguel Angel Rimba 5 Gustavo Quinteros 6 Carlos Borja 8 Jose Milton Melgar 10 Marco Antonio Etcheverry 16 Luis Cristaldo 18 William Ramallo 21 Erwin Sanchez 22 Julio Cesar Baldivieso Þjálfari: Xavier Azkargorta Spánveijar spumingamerki Afgreiða Suður-Kóreu þó væntanlega auðveldlega Síðari leikur C-riðils á föstudaginn er leikur Spánverja og Suður- Kór- eu. Spánverjar eru nokkuð óþekkt stærð og erfitt að spá fyrir um hvernig liðið kernur til með að standa sig í keppninni. Baskinn Javier Clemente tók við iiðinu fyrir tveim árum og hefur það tekið miklum breytingum undir hans stjórn. I stað þess að byggja á leik- mönnum frá Real Madrid eins og forverar hans, sækir Clemente mannskap sinn til hins frábæra Barcelonaliðs, en alls eru níu leik- menn frá þvi liði í spænska hópn- um en einungis þrír frá Real Madr- id. Spænska liðið er skipað feikilega góðunt leikmönnum sem eru ákafir í að sýna hvað í þeim býr en fæstir þeirra hafa mikla reynslu með landsliðinu og getur það háð lið- inu. Háðulegt tap Barcelona í úr- slitum Evrópukeppni meistaraliða gegn A.C. Milan hefur einnig sett spurningamerki við styrkleika landsliðsins þar sem það treystir mjög á leikmenn Barcelona. Spán- verjar niunu örugglega komast upp úr riðlinum og ef liðið smellur saman er allt eins líklegt að það nái að minnsta kosti í átta liða úrslitin. Suður-Kórea hefur tvisvar áður tekið þátt í HM, í Mexíkó 1986 og á Italíu 1990. Liðinu gekk illa í bæði skiptin og er helst minnst fyrir hörmuleg varnarmistök, ruddaleg brot og að gera aðsúg að dórnara. Suður-Kórea tryggði sér sæti í keppninni með heppnissigri á Jap- önum í úrslitakeppni Asíuþjóða um tvö sæti í HM ‘94. Eftir frammistöðuna þar er liðið ekki líklegt til að gera neinar rósir og er því hér með spáð að það snúi heirn á leið að riðlakeppnini lokinni.© WaVCupój'M Josep Guardiola Einn afsex leikmönnum Barcelona sem eru í byrjunarliði Spánar. FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994 I? 43 \port

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.