Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞESSI málatilbúnaður dæmir sig sjálfur. Að bera við ósannindum er fyrir neðan virðingu manns, sem hefur verið trúað fyrir mikl- um völdum í stjórnsýslunni,“ seg- ir Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarformaður Olíuverzlunar Íslands, um yfirlýsingu Ásgeirs Einarssonar sem birt er hér á síðunni. „Það liggur fyrir að við vorum tveir frá Olíuverzlun Íslands sem sátum umræddan fund með Ás- geiri Einarssyni og okkur ber al- gjörlega saman um hvað þar fór fram. Sams konar loforð voru einnig gefin fyrirsvarsmönnum Essó á leynifundum sem haldnir voru á hóteli úti í bæ eins og fram hefur komið. Það er því ljóst að ekki er nóg með að annar einstaklingur staðfesti frásögn mína, heldur hefur verið staðfest að slík loforð voru einnig gefin öðrum,“ segir Gísli Baldur. Málflutningur á mánudag Málflutningur fyrir áfrýj- unarnefnd samkeppnismála í máli olíufélaganna hefst næstkomandi mánudag, 10. janúar, en þá verð- ur tekin fyrir kæra félaganna vegna ákvörðunar samkeppn- isráðs frá 28. október sl. Gísli Baldur Garð- arsson, stjórnar- formaður Olís Málatilbún- aðurinn dæmir sig sjálfur STARFSMÖNNUM Samkeppn- isstofnunar er ekki treystandi að mati Kristjáns Loftssonar, stjórn- arformanns Olíufélagsins, og segir hann starfsmann stofnunarinnar fara vísvitandi með rangt mál þeg- ar hann segir að Olíufélaginu hafi ekki verið lofað einu né neinu á óformlegum trúnaðarfundi 1. mars 2002. Kristján segir að eftir fund sem hann og varaformaður stjórnar Ol- íufélagsins, auk lögmanns félags- ins, áttu með Guðmundi Sigurðs- syni, starfsmanni Samkeppnisstofnunar, hafi það ver- ið skýrt í sínum huga að loforð hafi verið gefið á þeim fundi um það m.a. að ekki yrði farið með þetta mál að fyrra bragði til lögregl- unnar. Í yfirlýsingu Guðmundar til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, dagsettri 15. desember sl., segir hann engin fyrirheit hafa verið gef- in á fundinum, enda ekki á sínu færi að gefa slík fyrirheit. „Áður en við fórum og hittum hann voru menn að ræða það hvort menn ættu að gera þetta eða ekki, og leita álits [á því]. Við vorum var- aðir við að hafa samstarf við þessa starfsmenn Samkeppnisstofnunar vegna þess að það væri ekkert að marka þá,“ segir Kristján. Hann segir að ekki hafi verið lagður trún- aður á þessar skoðanir, en nú hafi menn lært það af reynslunni að ekki sé hægt að treysta starfsmönnum Samkeppnisstofnunar. Kristján varar menn við því í framtíðinni að hafa samstarf við stofnuninna, enda sé það sín reynsla að slíkt borgi sig ekki. Hann segir ljóst að ekki hefði verið farið fram á það við starfsmenn Olíufélagsins að þeir hjálpuðu til við rannsóknina ef loforð um að ekki yrði farið að fyrra bragði til lögreglu hefði ekki legið fyrir. Sú vinna hafi sparað Samkeppnisstofnun tíma og vinnu við að rannsaka gögn og flýtt rann- sókninni. Löbbuðu til ríkislögreglustjóra „Ég held að það sé flestum ljóst sem kynna sér svona mál að það dettur engum í hug að fara fram á slíkt við starfsmenn eða fyrrverandi starfs- menn, þá hefðu þeir [starfsmenn Samkeppnisstofnunar] orðið að sitja yfir þessu sjálfir og finna eitt- hvað út úr því upp á eigin spýtur. [...] Þetta var, eins og fram hefur komið, eitt af þeim skilyrðum sem við óskuðum eftir, og við fórum af þessum fundi með það að skilyrðin yrðu þessi, og heyrðum ekki af því meira. Svo sá maður bara í sjón- varpinu að þeir löbbuðu til ríkislög- reglustjóra,“ segir Kristján. Hann segir það ljóst í sínum huga að Guðmundur hafi haft umboð til þess að veita slíkt loforð, og því ekki fengið það sérstaklega staðfest hjá forstjóra Samkeppnisstofnunar, Georg Ólafssyni. Hann segir Guð- mund hafa stjórnað rannsókninni og mætt á fundinn í umboði stofn- unarinnar, og því engin ástæða til að ætla að hann hafi ekki haft um- boð til að semja um slík skilyrði. Kristinn Hallgrímsson, lögmaður Olíufélagsins, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær. Ekki náðist í Ólaf Ólafsson, varaformann stjórnar Olíufélags- ins, við vinnslu fréttarinnar. Segir starfsmönnum Samkeppnisstofnunar ekki treystandi Skýrt að loforð var gefið um að ekki yrði farið til lögreglu Morgunblaðið/Þorkell ÁSGEIR Einarsson, lögfræðingur Samkeppnisstofnunar, heldur því fram í yfirlýsingu sem Morgunblað- ið hefur undir höndum og birt er hér á eftir, að lýsing í kæru Olíu- verzlunar Íslands til áfrýjunar- nefndar samkeppnismála, á því sem fram fór á fundi fulltrúa félagsins með honum, séu að öllu leyti röng. Þá segir Guðmundur Sigurðsson, yfirmaður samkeppnissviðs Sam- keppnisstofnunar, í yfirlýsingu sem blaðið hefur undir höndum, um fund hans með forsvarsmönnum Kers hf. 1. mars árið 2001 á Grand hóteli, að hann hafi engin fyrirheit gefið á þeim fundi. Yfirlýsingar Ásgeirs og Guð- mundar fara hér á eftir í heild sinni: „Yfirlýsing Guðmundar Sigurðs- sonar til áfrýjunarnefndar sam- keppnismála vegna fundar hans með fyrirsvarsmönnum Kers hf. 1. mars 2001 á Grand hóteli í Reykja- vík. Síðasta dag febrúarmánuðar árið 2002 óskaði Olíufélagið hf. eftir því að eiga óformlegan trúnaðarfund, sem ekki yrði síðar vísað til, með Samkeppnisstofnun að Grand hóteli í Reykjavík þann 1. mars. Olíufé- lagið kallar fundinn „non meeting“ í kæru sinni til áfrýjunarnefndar. Markmið félagsins með því að óska eftir umræddum fundi var að ræða um hugsanlegt samstarf Olíufélags- ins við Samkeppnisstofnun um að upplýsa brot félagsins á samkeppn- islögum gegn því að mögulegar sektir félagsins yrðu lækkaðar. Til fundarins, sem haldinn var snemma morguns, mætti undirrit- aður starfsmaður Samkeppnisstofn- unar og formaður og varaformaður stjórnar Olíufélagsins, ásamt lög- manni félagsins. Fyrirsvarsmenn Olíufélagsins upplýstu það í upphafi fundarins að við yfirferð á þeim gögnum sem Samkeppnisstofnun hafði lagt hald á í húsrannsókn hjá félaginu 18. desember 2001 hefðu þeir orðið þess áskynja að félagið hefði gerst brotlegt við samkeppn- islög í samskiptum sínum við hin ol- íufélögin. Þeir sögðu félagið reiðubúið til samstarfs við Sam- keppnisstofnun um að upplýsa brot þess enda leiddi það til lækkunar hugsanlegra sekta. Upplýst var að stjórnarfundur Olíufélagsins yrði haldinn síðar þennan dag og þar yrði tekin afstaða til hugsanlegs samstarfs. Undirritaður benti á ákvæði 52. gr. samkeppnislaga og reglna EES/EB um niðurfellingu eða lækkun sekta vegna samkeppn- islagabrota. Í samræmi við þær reglur gæti afsláttur frá álögðum sektum numið allt að 50% ef við- komandi fyrirtæki uppfylltu öll skil- yrði. Þá lýstu fyrirsvarsmenn Olíu- félagsins yfir því í þessu samhengi að þeir legðu áherslu á að halda eignarhlut félagsins í Olíuverzlun Íslands hf. óbreyttum. Þeir lögðu jafnframt áherslu á að starfsemi Ol- íudreifingar ehf. fengi að haldast óbreytt og sömuleiðis sameiginleg eldsneytisinnkaup Olíufélagsins og Olíuverzlunar Íslands. Loks lögðu fyrirsvarsmenn Olíufélagsins áherslu á að starfsmenn félagsins yrðu ekki sóttir til saka vegna hugsanlegra brota þeirra á sam- keppnislögum. Undiritaður kvaðst mundu upp- lýsa forstjóra Samkeppnisstofnunar um það sem fram hefði komið í máli fyrirsvarsmanna Olíufélagsins. Engin fyrirheit voru gefin á fund- inum af hálfu undirritaðs enda ekki á hans færi að gefa fyrirheit varð- andi þau atriði sem Olíufélagið lagði áherslu á. Reykjavík 15. desember 2004 Guðmundur Sigurðsson.“ „Yfirlýsing Í kæru Olíuverzlunar Íslands hf. til áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála, dags. 29. nóvember 2004, er að finna eftirfarandi ummæli á bls. 11–12: „Áður en til skýrslugjafar starfs- manna kom fór fram nokkur um- ræða um réttarstöðu starfsmanna og félagsins við slíka skýrslugjöf. Gísli Baldur Garðarsson og Einar Benediktsson ræddu þau mál við Ásgeir Einarsson. Í þessum um- ræðum kom fram, að forsvarsmenn Olíuverzlunar Íslands töldu, að ef beita ætti starfsmenn refsiviðurlög- um, hlyti að koma til atbeina lög- regluyfirvalda. Þess vegna væri úti- lokað fyrir starfsmenn að gefa skýrslu hjá Samkeppnisstofnun nema fyrir lægi, að málið færi ekki til meðferðar hjá lögreglu. Fyrir- svarsmaður stofnunarinnar sam- þykkti þessi sjónarmið, en sagði jafnframt, að ef menn féllust á að gefa skýrslur hjá Samkeppnisstofn- un, þá þýddi það að málið yrði með- höndlað í heild af Samkeppnisstofn- un, eins og reyndar væri til ætlast með mál af þessu tagi. Samkeppn- isstofnun myndi þannig ekki óska eftir lögreglurannsókn á málinu ef starfsmenn féllust á að gefa skýrslur. Hins vegar gæti hann auðvitað ekki bundið hendur lög- reglu ef lögregluyfirvöld tækju upp á því af sjálfsdáðum að rannsaka málið. Í þessum samræðum kom fram, að fulltrúar Essó hefðu fengið sams konar vilyrði. Jafnframt var stað- fest að auk þess hefði Essó fengið vilyrði um að ekki yrði gerð krafa um að starfsemi Olíudreifingar yrði breytt, og að Essó fengi afslátt af væntanlegum sektarákvörðunum. Staðfesti starfsmaðurinn, að Olíu- verzlun Íslands fengi einnig afslátt, sem þó yrði minni en afsláttur Essó, þar sem það félag hafi verið fyrst til að lýsa yfir vilja til sam- starfs. Því var mótmælt, og bent á að lögmenn allra olíufélaganna hafi komið á fund með Samkeppnis- stofnun, á svokallaðan „Non meet- ing“ daginn eftir húsrannsóknina og lýst yfir vilja til samstarfs.“ Undirritaður lýsir því yfir að ofangreind ummæli eru að öllu leyti röng. Undirritaður ræddi aldrei þessi málefni við Gísla Baldur Garðarson og Einar Benediktsson. Reykjavík, 15. desember 2004 Ásgeir Einarsson.“ Yfirlýsingar starfsmanna Samkeppnisstofnunar MORGUNBLAÐINU barst í gær eft- irfarandi fréttatilkynning frá Kristni Bjarnasyni hrl., lögmanni fyrrverandi starfsmanna SÍF hf., vegna fréttaflutnings af starfs- lokum þeirra: „Í fréttum í gær og í dag hefur verið birt yfirlýsing fyrirsvars- manna SÍF sem felur í sér alvar- legar ásakanir á hendur nokkrum fyrrverandi starfsmönnum félags- ins. Mótmælt er aðdróttunum, rang- færslum og ósannindum sem þar koma fram. Undir hótunum fyrrver- andi vinnuveitenda okkar um lög- reglurannsókn og lögbannsaðgerðir munum við ekki tjá okkur frekar um efnisatriði að svo stöddu.“ Mótmæla aðdróttunum og rangfærslum BORIST hefur yfirlýsing frá lög- manni Birgis Sævars Jóhanns- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra SÍF í Frakklandi, vegna fréttar Ríkisútvarpsins um þátt Birgis í stofnun Seafood Union. Í yfirlýsingunni stendur meðal annars að frétt Ríkisútvarpsins um að Birgir Sævar tengist félaginu sé röng. Hann sé hvorki eigandi né starfsmaður félagsins. Í frétt Rík- isútvarpsins kemur einnig fram að samkvæmt ákvæðum í starfsloka- samningi Birgis Sævars sé honum ekki heimilt að taka þátt í starfsemi sem er í samkeppni við SÍF. Í yf- irlýsingunni er þetta borið til baka og vísað til ákvæðis í samningnum er segir að Birgi Sævari sé frjálst að starfa innan fyrirtækja sem starfa innan sama sviðs og SÍF. Einnig er því mótmælt að Birgir Sævar hafi „verið látinn taka pok- ann sinn“ eins og sagði í fréttinni. Samkvæmt yfirlýsingunni sagði Birgir Sævar starfi sínu lausu og er vísað til skýrslu stjórnarformanns SÍF frá 27. október 2004. Yfirlýsing vegna fréttar RÚV ÁRLEG flugeldasýning KR verður haldin í kvöld, 8. janúar, kl. 18, á mótum Ægisíðu og Sörlaskjóls. Sýn- ingin er á nýjum stað frá fyrri árum. Flugeldasýning í Vesturbænum VERKLAGI gjafsóknarnefndar hefur verið breytt, og gætir dóms- og kirkjumálaráðuneytið nú sér- staklega að rökstuðningi nefnd- arinnar þegar hún kemst að þeirri niðurstöðu að ekki séu heimildir til þess að mæla með veitingu gjaf- sóknarleyfis. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu sem send var frá dóms- málaráðuneytinu í tilefni af áliti umboðsmanns Alþingis frá 30. des- ember vegna kvartana sem honum bárust sl. sumar frá þremur ein- staklingum sem hafði ekki verið veitt gjafsókn. Þar sem gjafsókn- arnefnd hafnaði kröfu um gjafsókn átti ráðuneytið ekki annars kost en að fara að því áliti. Í tilkynningunni segir að rök- stuðningur nefndarinnar í þessum tilvikum hafi verið skýr og ákveð- inn, en síðar hafi það orðið sameig- inleg niðurstaða nefndarinnar og ráðuneytisins að rökstuðningurinn hafi mátt vera ýtarlegri. Því var ákveðið að breyta verklagsreglum nefndarinnar. Gjafsóknarnefnd er lögbundin, sjálfstæð nefnd, sem hefur það hlut- verk að fara yfir og gefa álit á gjaf- sóknarbeiðnum, og er dóms- málaráðuneytinu óheimilt að veita gjafsókn nema nefndin mæli með því. Hún er skipuð þremur mönn- um, hæstaréttardómara, héraðs- dómara og sýslumanni, sem allir hafa mikla reynslu. Verklagi gjafsóknar- nefndar breytt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.