Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 11

Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 11 FRÉTTIR Mörkinni 6, sími 588 5518. ÚTSALA 50% afsláttur af ullarkápum og síðum pelskápum. Mörg góð tilboð Opið virka daga frá kl. 10-18 Opið laugardaga frá kl. 10-16 Opið sunnudaga frá kl. 12-17 Útsalan er hafin 40% afsláttur Laugavegi 51, sími 552 2201 Laugavegi 68 • Sími 551 7015 Útsalan er hafin Opið í dag til kl. 17 NEMENDAFÉLAGIÐ Framtíðin í Mennta- skólanum í Reykjavík (MR) efndi í gær til söfnunarinnar „Gleði til góðgerða“. Rennur ágóði hennar í söfnunina Neyðarhjálp úr norðri, sem fer í gang hér á landi eftir helgina. Söfnuðu nemendur áheitum í skólanum, bæði innan sinna raða og meðal kennara, og efndu til margs konar áskorana í hádeg- ishléinu í gær. Síðdegis höfðu um 300 þúsund krónur safnast en enn var von á fleiri áheitum. Skora MR-ingar á aðra skóla að gera eitthvað svipað til að leggja hjálparstarfi á flóðasvæð- unum við Indlandshaf lið. Meðal þess sem nemendur gerðu til að safna áheitum var að faðma ráðherrana í ríkisstjórn- inni. Tókst einum nemanda að faðma um helm- ing ríkisstjórnarinnar og var uppátækið sýnt á myndbandi í gær. Spurningar voru lagðar fyrir keppnislið MR í Gettu betur, einn nemandi límdi sig fastan við ræðupúlt í nemendaaðstöðunni, annar kyssti 20 stelpur og heill bekkur tróð sér inn í einn fólksbíl. Þá létu nokkrir nemendur krúnuraka sig, einn teygaði heila þrjá lítra af mjólk og kennurum var „rænt“ út úr kennslustofunum. Því meira sem nemendur borguðu því lengur var kennaranum haldið úti. Spurningunum rigndi yfir piltana í Gettu betur-liði MR-inga þegar Morgunblaðsmenn komu við í gær. Þeir Tómas, Hilmar og Ásgeir virtust hafa í fullu tré við félaga sína og sögðu þeir áheitasöfnunina vera góðan undirbúning fyrir fyrstu viðureignina í keppninni á mið- vikudag. Ásgeir sagði málefnið gott og tóku fé- lagar hans undir það. Steindór Grétar Jónsson, formaður Fram- tíðarinnar, fylgdist vel með í gær og var ánægður með hve söfnunin gekk vel. „Þetta er framar okkar björtustu vonum,“ sagði hann. Spurður hvort nemendafélaginu hefði þótt við- eigandi að sprella með þessum hætti, í ljósi hörmunganna í Asíu, sagði Steindór þetta bestu leiðina til að fá nemendur til að styrkja gott málefni og skemmta sér um leið. Enginn tilgangur væri með því að vekja upp sekt- arkennd meðal nemenda. „Fólk verður örlát- ara fyrir vikið. Ef við hefðum dreift blöðum með hvatningu til nemenda um að styðja hjálp- arstarfið þá hefðum við ekki fengið eins mikla fjármuni og við fengum,“ sagði Steindór og vildi ítreka áskorun til annarra skóla að grípa til svipaðrar góðgerðargleði. Nemendur Menntaskólans í Reykjavík söfnuðu áheitum fyrir um 300 þúsund krónur Morgunblaðið/Árni Sæberg Elmar Johnson gekk um sali MR í gær og safnaði áheitum með því að kyssa 20 stúlkur. Var kossunum misvel tekið, svona eftir á, en flest gert fyrir góðan málstað. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gettu betur-kapparnir Tómas Halldór Pajdak, Hilmar Þorsteinsson og Ásgeir Pétur Þorvalds- son svöruðu spurningum félaga sinna upp úr Trivial Pursuit. Ráðherrar faðmaðir og stelpur kysstar Hafnfirðingar gefa milljón BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur samþykkt að leggja fram eina milljón króna til fjársöfnunar Rauða kross Íslands vegna neyðarhjálpar til handa íbúum þeirra landa í Suður-Asíu sem nú þjást vegna afleið- inga þeirra miklu náttúruhamfara sem urðu þann 26. desember sl., eins og segir í tilkynningu frá Hafn- arfjarðarbæ. SAMBAND íslenskra bankamanna (SÍB) hefur ákveðið að í stað þess að halda veislu í tilefni 70 ára afmælis sambandsins þá fer andvirði veisluhaldanna til styrktar hjálparstarfi Rauða krossins á flóðasvæðunum í Asíu. Voru fjármunirnir afhentir í húsakynnum SÍB í gær. Hinn 30. janúar næstkomandi verður SÍB 70 ára. Stjórn sambandsins hafði áform um að fagna þeim tíma- mótum með því að bjóða félagsmönnum og velunnurum til afmælisfagnaðar föstudaginn 28. janúar. Til að mæta kostnaði vegna þessa hafði stjórn SÍB lagt til hliðar fjármuni undanfarin misseri. Vegna hörmunganna í Suður-Asíu og hluta Afríku ákváðu bankamenn hins vegar að verja afmælispening- unum í hjálparstarfið. Segja þeir hörmungarnar sýna enn og aftur að ógnarkraftar náttúrunnar geta tekið líf þúsunda einstaklinga og kollvarpað lífsviðurværi og lífi þeirra sem lifa hremmingarnar af. Einnig beinir stjórn SÍB því til velunnara stétt- arfélagsins að þeir sem hafi hugsað sér að færa því af- mælisgjafir geri það í formi peninga sem lagðir verða inn á sérstakan söfnunarreikning vegna flóðanna. Sú upphæð sem þannig safnast verður afhent Rauða kross- inum á afmælisdag SÍB hinn 30. janúar nk. Morgunblaðið/RAX Friðbert Traustason, formaður SÍB, afhendir Sigrúnu Árnadóttur frá RKÍ framlag bankamanna. Bankamenn gefa andvirði afmælishátíðar Lionsmenn gefa milljón LIONSHREYFINGIN á Íslandi hef- ur ákveðið að leggja eina milljón króna í alþjóðahjálparstöð Lions til fyrstu neyðaraðstoðar vegna náttúruhamfaranna í Suður-Asíu. Hér á landi eru starfandi hátt í 90 Lionsklúbbar. Í tilkynningu frá Lions á Íslandi segir að daglega berist fréttir af framlögum Lionsfélaga um allan heim. Þannig hafi danska hreyf- ingin sent 1.600 þúsund danskar krónur í neyðarstoð og sænskir Lionsmenn gefið 800 þúsund sænskar krónur. Lions er starfandi í 193 þjóðlöndum heims og hefur þegar verið úthlutað fyrsta fram- lagi til neyðarhjálpar úr al- þjóðahjálparsjóði hreyfingarinnar. Lionsfélagar í S-Asíu eru um 73 þúsund og leggja þeir einnig fram fé og vinnu á svæðunum við Bengal- flóa. Frá Evrópulöndum hafa nokkrir talsmenn Lions farið á flóðasvæðin til aðstoðar og könn- unar á brýnustu neyðaraðstoð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.