Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
GREINING Íslandsbanka spáir 15%
hækkun á Úrvalsvísitölu Aðallista
Kauphallar Íslands á árinu 2005. Í
spánni segir að góður gangur sé í
efnahagslífinu og horfur í rekstri fyr-
irtækja almennt góðar. Útrás og hröð
framþróun stærstu fyrirtækjanna
muni áfram spila stórt hlutverk á
markaðnum.
Afkomuspá Greiningar Íslands-
banka var kynnt í gær. Á kynning-
arfundinum kom fram að talsvert
skiptar skoðanir voru innan hópsins
sem vann afkomuspána, um það hve
hækkun Úrvalsvísitölunnar yrði á
þessu ári, eða frá 8% í 24%, og var það
einkum háð mati á því hvað yrði með
stærstu félögin í vísitölunni en fimm
stærstu félögin vega samtals 77% í
Úrvalsvísitölunni. Kom fram að útrás
stærstu fyrirtækjanna væri einn
þeirra þátta sem hefðu hvað mest
áhrif á hlutabréfaverð í bráð. Útrásin
hefði verið stóra málið á síðasta ári og
yrði það áfram á árinu 2005. Þá ættu
aukin erlend umsvif bankanna eftir
að hafa áhrif á verð hlutabréfa. Þau
mundu aukast og stutt í að innlend
starfsemi bankanna yrði í minnihluta.
Eins mundi væntanlegur vöxtur hjá
Bakkavör og Actavis hafa áhrif á
hlutabréfaverð til skemmri tíma.
Greining Íslandsbanka telur að
hlutafjárútboð síðustu mánaða muni
halda aftur af hækkunum. Framund-
an sé von á stóru hlutafjárútboði
Bakkavarar og einkavæðingu Sím-
ans. Þetta dragi kraft úr markaðnum
til skamms tíma, flestir fjárfestur séu
yfirvigtaðir í innlendum hlutabréfum
sem birtist í minnkandi veltu á hluta-
bréfamarkaði og auknum skiptum á
bréfum þeirra á milli. Þá hafi verð-
lækkun á hlutabréfamarkaðnum í
október sl. í raun verið leiðrétting
sem haldi aftur af hækkun þegar
horft er fram á veginn. Greining Ís-
landsbanka telur að fjármögnun
hlutabréfa verði dýrari, m.a. vegna
hækkandi stýrivaxta hér heima, og að
dragi úr erlendri skuldsetningu með
sterkri krónu.
Afkomuspá Greiningar Íslandsbanka
Spáir 15% hækk-
un Úrvalsvísitölu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Greining Íslandsbanka Kynnti afkomuspá sína fyrir árið 2005 í gær.
GÓÐAR horfur eru í
rekstri fyrirtækja í
Kauphöll Íslands á
þessu ári, að mati Grein-
ingardeildar Lands-
bankans, sem gerir ráð
fyrir að samanlögð velta
tólf stærstu félaga í
framleiðslu, þjónustu og
iðnaði aukist um ríflega
12% á milli ára og nemi
samtals 344 milljörðum
króna árið 2005. Mest
verður veltuaukningin
hjá Kögun og Og Voda-
fone, en bæði félögin
standa í yfirtökum á
öðrum fyrirtækjum.
Gert er ráð fyrir að
hagnaður félaganna tólf,
fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, aukist tölu-
vert meira en velta eða
um 31%. Sem hlutfall af
veltu er talið að framlegðin aukist úr
10,6% árið 2004 í 12,4% árið 2005.
Mest aukning í krónum talið er hjá
Kögun og SÍF.
Þrátt fyrir mikla tekjuaukningu
gerir Greiningardeild Landsbank-
ans ráð fyrir að samanlagður hagn-
aður fyrirtækjanna dragist saman
um 2% á milli ára. Mikill munur er
hins vegar á þróun hagnaðar eftir
fyrirtækjum. Hagnaður hjá Flug-
leiðum, HB Granda og Samherja
dregst mikið saman milli ára, bæði
vegna óhagstæðra rekstrarskilyrða í
sjávarútvegi og vegna þess hve
gengishagnaður vó þungt í hagnaði
félaganna árið 2004.
Ger er ráð fyrir að hagnaður
Actavis, Bakkavarar, Kögunar og
SÍF aukist talsvert vegna samein-
inga við önnur félög, innri vaxtar og
bættrar framlegðar.
Samanlagður hagnaður sex
stærstu fyrirtækjanna í banka-,
trygginga- og fjárfestingastarfsemi,
að Landsbanka undanskildum, er
talinn munu dragast saman um 21%
á milli ára.
Greiningardeild Landsbankans
segir þetta athyglisverða niðurstöðu
í ljósi þess að bæði KB banki og Ís-
landsbanki hafa tvöfaldað stærð sína
á árinu með kaupum á dönskum og
norskum bönkum. Skýring lækkandi
hagnaðar liggi hins vegar í því að
gert er ráð fyrir mun minni geng-
ishagnaði af hlutabréfa- og skulda-
bréfaeign í ár, enda var síðasta ár
með eindæmum hagfellt á verðbréfa-
markaði.
Spá Greiningardeildar Landsbankans
Velta 12 stærstu
eykst um 12%
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Velta eykst Greiningardeild LÍ spáir aukinni
veltu 12 stærstu fyrirtækja í Kauphöllinni.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● GENGIÐ hefur verið frá samningum
um kaup Bílanausts hf. á hjólbarða-
fyrirtækinu Ísdekk hf. samkvæmt
fréttatilkynningu frá Bílanaust.
Seljendur eru Gúmmívinnustofan,
Viðar Halldórsson, Jóhann Krist-
jánsson auk smærri hluthafa selj-
endur Ísdekks sem er stærsti sölu-
aðili hjólbarða á Íslandi.
„Þessi kaup eru í samræmi við
stefnu Bílanausts að vera leiðandi fyr-
irtæki á sviði bíla- og iðnaðarvöru,“
segir í tilkynningunni.
Bílanaust
kaupir Ísdekk
● KAUPHÖLL Íslands hefur samþykkt
fram komna beiðni um afskráningu
hlutabréfa Opinna kerfa Group hf. af
Aðallista Kauphallarinnar. Kögun hf.
hefur eftir yfirtökutilboð eignast
97,16% af heildarhlutafé félagsins. Í
tilkynningu frá Kauphöllinni segir að
Opin kerfi uppfylli því ekki skilyrði
skráningar um dreifingu hlutafjár. Fé-
lagið var afskráð úr Kauphöllinni eftir
lokun viðskipta sl. þriðjudag með vís-
an til liðar 7.5.2 í reglum fyrir útgef-
endur verðbréfa í Kauphöll Íslands.
Opin kerfi afskráð
úr Kauphöllinni
ÚTGEFENDUR bandaríska dag-
blaðsins Boston Herald hyggjast
reyna að koma í veg fyrir að fjöl-
miðlasamsteypan New York Tim-
es Co., sem m.a. á dagblaðið Bost-
on Globe, kaupi 49% hlut í
dagblaðinu Metro Boston sem
dreift er ókeypis. Segja þeir að
kaupin beinist fyrst og fremst að
Boston Herald og muni skekkja
samkeppnisstöðu á dagblaða-
markaði. Halda þeir því fram að
með kaupunum verði New York
Times Co. komið að stærri hlut í
dreifingu í Massachusetts-fylki en
samkeppnislög gera ráð fyrir.
Útgefendur Boston Globe segja
aftur á móti ekkert athugavert við
kaupin. Alls séu gefin út 18 dag-
blöð í Boston og þar af séu nokkur í
eigu sömu aðila og eiga Boston
Herald.
Tilboðið upp á milljarð króna
Tilkynnt var um kaupin fyrr í
vikunni en tilboð New York Times
Co. í hlutinn hljóðaði upp á rúman
einn milljarð króna. Metro Boston
kom fyrst út árið 2001 og höfðar
einkum til ungra, vel menntaðra
lesenda. Talið er að um 300 þúsund
manns lesi blaðið daglega.
Dagblöð takast
á um Boston
Boston. AP.
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu tæplega 7,8 millj-
örðum króna. Mest voru viðskipti
með íbúðabréf en viðskipti með
hlutabréf námu ríflega 3 milljörðum
króna. Úrvalsvísitala hækkaði um
1,69% og er nú 3.436 stig.
Mest viðskipti vorum með bréf KB
banka, fyrir um 1,4 milljarða króna.
Mest hækkun varð á bréfum Bakka-
varar (5,8%) en mest lækkun varð á
bréfum Actavis Group (-1,3%).
Bakkavör
hækkaði mest
● ÁREIÐANLEIKAKÖNNUN sem Ís-
landsbanki hefur unnið á BN banka í
Noregi er nú lokið. Könnunin var eitt
af skilyrðum Íslandsbanka fyrir því
að yfirtökutilboð í BN banka skyldi
standa. Niðurstaða áreiðanleika-
könnunarinnar var fullnægjandi og
er skilyrði yfirtökutilboðsins því upp-
fyllt. Annað skilyrði tilboðsins er
samþykki norskra yfirvalda en því
hefur enn ekki verið fullnægt.
Áreiðanleikakönnun
lokið
%&' ()
*++'! ()
*,-
. -
/ %+
.
,
"+
0* "+
0!
1 "+
2
2
&
.
3 +)
4
. -
"/
5
!"#
.++,
(
),
,6/ 7$4 8 9,"
1:;+ $,
<=4
.
-> ,
!,!, 4,64/
? ?6,!,
@!,
7$, 8 ;"
$%#&
#' %"++
.+
A6 ,
1 : ?;+;
'
(
# BCAD
:,
',+/'
,
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
*
6 -
6 ',+/'
,
8 8
8 8
8
8 8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
E 8
FG
E FG
E FG
E 8 FG
E FG
E FG
E
FG
E FG
E FG
E 8 FG
E 8 FG
E FG
8
E 8 FG
E FG
8
8
8
8
8
8
8
8
8
E FG
8
8
8
8
8
8
8
8
8
',+)
?", : +
0)
/
/
/
/ / /
/
/
/
/ /
/ / / /
/ 8
8
8
8
8
/ /
8
/
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
@,+) : H#/ +/
%?/ I %4 . !
',+)
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
%?/8 J' -4 ! 4 -/ %?/8 +6 ,
6!+", 4
/
%?/8 $ > 4
H6++ ', * ( 4/
>! * ( 4/
SAMHERJI hf. hefur verið dæmdur
til að greiða norska ríkinu 14 millj-
ónir norskra króna, sem samsvarar
tæplega 142 milljónum króna í
skaðabætur samkvæmt tilkynningu
til Kauphallar Íslands.
Málsatvik eru þau að Samherji
gerði árið 1997 samning við skipa-
smíðastöðina Th. Hellesöy Skips-
byggeri um smíði á Vilhelmi Þor-
steinssyni EA-11. Skipasmíðastöðin
varð svo gjaldþrota og í kjölfarið
höfðuðu norsk stjórnvöld mál á hend-
ur fyrirtækjunum vegna ríkisstyrks
sem stöðin hafði fengið úthlutað.
Forsenda skaðabótakröfunnar var
sú að vegna viðbótarákvæðis í samn-
ingnum hafi hann ekki tekið gildi
fyrr en þremur mánuðum eftir und-
irritun og því hafi hann ekki verið
bindandi gagnvart styrktarreglum
þeim sem þá voru í gildi. Í máli
norska ríkisins á hendur skipasmíða-
stöðinni sem lauk á síðasta ári var
stöðin sýknuð á þeirri forsendu að
samningurinn hafi verið gildur innan
þess tímabils sem styrkjarreglurnar
leyfðu.
Samherji hf. hefur ákveðið að
áfrýja dómnum.
Samherji áfrýjar
● Atlantsskip munu frá 15. janúar nk.
hefja vikulegar viðkomur í Kollafirði í
Færeyjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að það sé í takt við vöxt Evr-
ópulínu þess. Helst sé litið til tæki-
færa í útflutningi frá Íslandi til Færeyja
og frá Færeyjum til meginlands Evr-
ópu. Nú þegar hafi verið undirritaðir
samningar við fyrirtæki um flutning af-
urða á báða þessa markaði.
Haft er eftir Eggerti H. Kjartanssyni,
sölustjóra útflutnings hjá Atlants-
skipum, að þetta sé mjög gott tæki-
færi fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Þjónusta við viðskiptavinina stórauk-
ist.
Atlantsskip vikulega
til Færeyja
< K
LM
F
F
.? A
N%O
F
F
C%C 32O
F
F
0.O
<++
F
F
BCAO NP 9
F
F