Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 19 ERLENT FASTEIGNASALA Skeifan 19 • Sími 533 1060 Hentug jörð fyrir ferðaþjónustu, tamninga- stöð eða félagasamtök Til sölu vel hýst jörð við fjölfarna ferðamannaleið í uppsveitum Ár- nessýslu. Jörðin mundi henta vel aðilum í ferðaþjónustu, sem tamn- ingastöð eða fyrir félagasamtök. Myndarlegt og fallegt íbúðarhús með fallegum garði og heitum potti. Glæsileg útihús með plássi fyrir 48 hross, stórri hlöðu og góðri skemmu, alls ca 600 fm. Fjögur ný- byggð smáhýsi með fullkominni aðstöðu fyrir 6 manns í hverju húsi. Myndarlega hefur verið gengið frá öllu, skipt um jarðveg í hlaði o.s.frv. Samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir þjónustusvæði við þjóðveg- inn, 17 sumarbústaðalóðum og um 20 smáhýsum. Hugmyndir eru um 18 holu golfvöll. Um 100 ha ræktuð tún. Upplýsingar gefur Valdimar Jóhannesson í síma 533 1060 eða gsm 897 2514. Verslun Dalvegi 2 • Kópavogi • Sími 564 2000 • www. quelle.is Blússur Kr. 990 Peysur Kr. 990 Bolir Kr. 990 Buxur Kr. 990 Bolirstutterma Kr. 690 Yfirhafnir Kr. 2.990 Dragtir Kr. 1.890 Útsala kr. 990,- Blússa og vesti Útsala kr. 399,- Quarz – úr með 2 aukaólum Stór og lítil númer Hnífasett í fallegum hnífastandi. Skæri fylgja með. Hnífar sem endast og prýða hvert eldhús. Útsala kr. 990,- Bolir 2 í setti Útsala kr. 1.490,- Jogging – galli Útsala 2 sett saman kr. 1.890,- Vandaður undirfatnaður Útsala kr. 1.290,- Vandaðar svart- röndóttar buxur Útsala kr. 990,- Jeans - leggings Gerðu góð kaup strax, athugið takmarkað magn! Útsala kr. 2.290,- Hnífasett fi‡skur gæ›a- fatna›ur í úrvali! Þýsk gæði! TALIÐ er að fjórtán manns hafi farist í árekstri farþegalestar og flutningalestar um 40 kílómetra norður af borginni Bologna á Ítalíu í gær. Slysið átti sér stað skömmu eftir hádegi í gær. Tala látinna var ekki fyllilega ljós en vitað var að fjöldi manna slas- aðist illa. Ekki er kunnugt um or- sök árekstrarins en mikil þoka var á þessum slóðum og lítið skyggni. Á myndinni má sjá björgunarmenn vinna að því að bjarga fólki úr braki farþegalest- arinnar. AP Fjórtán fórust í lestarslysi á Ítalíu GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti til- kynnti í gær að Robert Zoellick, viðskipta- fulltrúi Bandaríkj- anna, yrði varautan- ríkisráðherra og nánasti samstarfsmað- ur Condoleezzu Rice, sem tekur senn við ut- anríkisráðherraemb- ættinu af Colin Powell. Skipan Zoellicks kem- ur nokkuð á óvart, hann missir við þessi vistaskipti sæti sitt í ríkisstjórn Bush, auk þess sem hann hafði verið talinn koma til greina sem næsti bankastjóri Alþjóðabankans. Áhugamenn um bandarísk stjórnmál hafa beðið þess með eft- irvæntingu að Rice veldi næstráð- anda sinn í utanríkisráðuneytinu. Uppstokkun sú sem Bush forseti hefur gert á ríkisstjórn sinni hafði þótt til marks um að svonefndir „haukar“ – þeir sem litla trú hafa á gildi alþjóðasamninga og sam- starfi eins og því sem á sér stað á vettvangi Sameinuðu þjóðanna – hefðu tekið öll völd í Bandaríkj- unum. Töldu menn öruggt að harðari stefnu í utanríkismálum yrði áfram fylgt ef Rice skipaði t.d. mann eins og John Bolton, einn af aðstoðarráðherrum Powells, í embætti varautanríkisráð- herra; Bolton er nefnilega sagður hafa mótað þá hörðu stefnu sem fylgt hef- ur verið gagnvart stjórnvöldum í Norð- ur-Kóreu og Íran. Bolton hverfur frá störfum Ekki er hins vegar víst að þetta verði nú ofan á, jafnhliða skipan Zoellicks í gær var nefnilega tilkynnt að Bolt- on myndi hverfa frá störfum í ut- anríkisráðuneytinu og á það er bent að Zoellick sjálfur trúir statt og stöðugt á mikilvægi samstarfs þjóða við Atlantshafið og þykir hófsemdarmaður í skoðunum. Tilkynnt hefur verið að við starfi Boltons taki Bob Joseph, gamall samstarfsmaður Rice. Þá er haft eftir embættismönnum að Nichol- as Burns, sendiherra Bandaríkj- anna hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO), yrði þriðji valdamesti maðurinn í utanríkisráðuneytinu, á eftir þeim Zoellick og Rice. Zoellick verður varautanríkis- ráðherra Gæti bent til að Condoleezza Rice hyggist fylgja mýkri utanríkisstefnu Washington. AP. Robert Zoellick HUGH Orde, lögreglustjóri á Norð- ur-Írlandi, fullyrti í gær að Írski lýðveldisherinn (IRA) hefði staðið fyrir bankaráni í útibúi Northern Bank í Belfast 20. desember sl. en ræningjarnir höfðu rúmlega 22 milljónir punda, um 2,67 milljarða ísl. kr., upp úr krafsinu. IRA hefur ítrek- að neitað allri aðild að bankaráninu. „Á grundvelli rannsóknarvinnu okkar til dagsins í dag og þeirra gagna sem við höfum safnað saman þá er það mitt mat að IRA hafi stað- ið fyrir þessum glæp,“ sagði Orde. Hann rakti hins vegar ekki hvað ylli því að lögreglan teldi víst að IRA hefði staðið fyrir bankaráninu, sem er eitt hið mesta á Bretlandseyjum fyrr og síðar. Talsmaður Tonys Blairs, for- sætisráðherra Bretlands, sagði Blair líta þessi tíðindi alvarlegum augum. „Hann hefur ítrekað gert grein fyrir því á síðustu tveimur ár- um að ekki verði hægt að endur- reisa heimastjórnina á Norður-Ír- landi nema vopnaðar sveitir manna hætti allri starfsemi og það tekur líka til glæpaverka eins og þessara,“ sagði talsmaðurinn. Gæti skaðað friðarferlið Enginn hefur verið handtekinn vegna bankaránsins en húsleit hefur verið gerð á nokkrum heimilum lýð- veldissinna í Belfast. Fyrir yfirlýs- ingu Ordes í gær hafði Martin McGuinness, einn forystumanna Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA, sagt að það myndi skaða friðarferlið á Norður-Írlandi ef menn bæru upp ásakanir um meinta aðild IRA. Hann sagðist sjálfur hafa rætt við erindreka IRA og að þeir hefðu neitað aðild að ráninu. „Það vita all- ir að innan breska stjórnkerfisins og í röðum sambandssinna [á Norður- Írlandi] eru menn sem vilja eyði- leggja friðarferlið og vilja nota ránið í Belfast til þess að ná markmiðum sínum. Þeim má ekki takast ætl- unarverk sitt,“ sagði McGuinness við BBC. Nigel Dodds, einn þingmanna sambandssinnaflokks klerksins Ians Paisleys, sagði hins vegar að ef staðfesting fengist á því að IRA hefði staðið fyrir ráninu þá bæri að halda friðarumleitunum áfram án þátttöku Sinn Féin. Segir IRA bera ábyrgð á bankaráni í Belfast Belfast. AFP. Hugh Orde

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.