Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR LANDIÐ Blönduós | Það er eðli grágæsa að fara suður á bóginn, annaðhvort til Bretlandseyja eða Noregs þegar hausta tekur. Þetta ferli getur rask- ast af ýmsum ástæðum og kemur þar margt til. Grágæsin sem gistir nú hjá Jónasi Skaftasyni á Blöndu- ósi yfir hörðustu vetrarmánuðina varð að öllum líkindum fyrir slysi sem kom í veg fyrir suðurferð henn- ar. Lengi vel voru tvær gæsir á vappi um bæjarfélagið löngu eftir að aðr- ar gæsir voru farnar en nú er ein- ungis ein eftir og hefur hún fundið vin í Jónasi. Hefur hann opnað heimili sitt fyrir gæsinni, nánar til- tekið viðbyggingu sem áður gegndi hlutverki haughúss og er henni frjálst að fara allra sinna ferða þeg- ar henni hentar en hún leitar gjarn- an skjóls þegar harðnar á dalnum. Jónas hefur gert braut eða rennu fyrir gæsina þannig að leið hennar ofan í Blöndu og heim aftur er til þess að gera greið. Í fyrradag var Jónas farinn að óttast um gæsina því hún hafði ekki skilað sér um hríð. Fór hann því að huga að gæs- inni og fann hana við enda renn- unnar (heimreiðarinnar) í ánni Blöndu. Kom þá í ljós að brautin var orðin ófær fyrir gæsina, einkum vegna hálku, þannig að fyrir lá að lagfæra þurfti leiðina. Bæklaða gæsin beið hin rólegasta eftir því að samgöngubótum þessum lyki, og sjá, þegar Jónas var búinn að greiða götuna fyrir grágæsina þá kjagaði hún heim í skjól hjá vini sínum á bakka Blöndu. Jónas segir mjög ánægjulegt að hafa þennan vetrargest og finnst honum afar óvenjulegt að villtur fugl skuli skynja aðstæður sínar svo fljótt og finna leiðina sem eykur lík- urnar á því að komast af. Auk þess að veita gæsinni skjól fóðrar Jónas Skaftason hana með því sem til fell- ur í eldhúsinu, allt frá kart- öfluskrælingi til grænna bauna. Grágæs í vetrargistingu Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Vinur í raun Jónas Skaftason fylgist með fiðruðum vini sínum við Blöndu. Þar hefur hann útbúið nýja heimreið. Útsala Útsala Útsala Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Opið laugardaga kl. 10-16 Hveragerði | Sparisjóður Vest- mannaeyja er að færa út kvíarnar á fastalandinu. Nýlega var opnuð af- greiðsla í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði. Sjóður- inn er nú með starfsemi þremur stöðum á Suðurlandi, utan Eyja. Sparisjóður Vestmannaeyja hóf útrás sína á árinu 2000 með opnun útibús á Selfossi. Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri í Vestmannaeyjum, segir að sjóðnum hafi vegnað ágæt- lega þar. Nú séu fimm starfsmenn á Selfossi. Afgreiðslan í Hveragerði sé eðlilegt framhald þess starfs en þar eru tveir starfsmenn. Spari- sjóðurinn þjónar einkum einstak- lingum og minni fyrirtækjum á Suðurlandi. Þá annast afgreiðslan í Hveragerði upplýsingagjöf fyrir Orkuveitu Reykjavíkur sem hefur yfirtekið veiturnar í Hveragerði en er ekki með skrifstofu þar. Vaxtarbroddarnir á Suðurlandi „Við höfum verið hér í Vest- mannaeyjum síðan 1942 og vegnað ágætlega. Við sjáum tækifæri til að dafna á okkar nærsvæði en vaxt- arbroddarnir á Suðurlandi eru á þessum tveimur stöðum. Þá hefur enginn sparisjóður verið starfandi í tugi ára á svæð- inu frá Reykjavík og austur á Hornafjörð,“ segir Ólafur þeg- ar hann er spurð- ur um markmiðið með aukinni starfsemi á fasta- landinu. Spurður að því hvort Rangárvallasýsla sé næst á dag- skrá segir Ólafur að ekkert hafi verið ákveðið um það. Þangað sé vissulega greið leið frá Vestmanna- eyjum og muni sparisjóðurinn fylgjast með markaðnum þar. Auk þessara staða tengist Spari- sjóður Vestmannaeyja sparisjóðn- um á Hornafirði sterkum böndum. Hefur hann átt mikinn meirihluta stofnfjár í Sparisjóði Hornafjarðar, eða um 77%, í hálft annað ár en þá var stofnfé þess sparisjóðs aukið verulega. Sparisjóðurinn í Horna- firði er áfram rekinn sem sjálfstæð stofnun en í nánu samstarfi við stjórnendur Sparisjóðs Vest- mannaeyja. Ólafur segir samein- ingu ekki á dagskrá, hún sé erfið vegna ólíkrar uppbyggingar eign- arhalds þessarra tveggja spari- sjóða. Sparisjóður Vestmannaeyja færir út kvíarnar á fastalandinu Starfsemi á þremur stöðum utan Eyja Ólafur Elísson AKUREYRI ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra og Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu, voru í Eyjafirði í gær í boði Samherja. Þeir skoðuðu landvinnslu félagsins á Dalvík og fóru um borð í fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA og Vil- helm Þorsteinsson EA, fylgdust m.a. með loðnufrystingu sem var í fullum gangi í báðum skipum og snæddu hádegisverð um borð í Baldvini úti á Eyjafirði. Sjáv- arútvegsráðherra var ánægður með ferðina og sagði að þessi tvö skip sköpuðu mikil verðmæti en slíkt gerðist ekki af sjálfu sér. „Það er vel fyrir öllu séð og vel þjálfað starfsfólk alls staðar.“ Árni sagði það mjög sérstakt að fjöl- veiðiskip Samherja skyldu bæði hafa verið við loðnufrystingu í firðinum á sama tíma, slíkt gerðist ekki á hverjum degi. Kristján Vilhelmsson, útgerð- arstjóri Samherja, sagði mikið um að vera hjá fyrirtækinu. „Við er- um að frysta, landa og skipa út, þannig að það gengur mikið á.“ Vilhelm Þorsteinsson og Baldvin Þorsteinsson lönduðu samtals um 1.200 tonnum af frystum loðnu- afurðum í gær og er aflaverðmæt- ið um 35–40 milljónir króna. Þá er von á Þorsteini ÞH til Akureyrar í dag, með um 400 tonn af frystri loðnu. Loðnufrysting í Eyjafirði Sjávarút- vegsráð- herra fylgd- ist með Morgunblaðið/Kristján Loðnuvinnsla Þorsteinn Már Bald- vinsson, Vilhjálmur Egilsson, Árni M. Mathiesen, Hákon Þröstur Guð- mundsson og Kristján Vilhelmsson kanna ástand loðnunnar á vinnslu- línunni um borð í Baldvini Þor- steinssyni EA. AFKOMA Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er í samræmi við fjárlög að því er fram kemur í rekstrarupp- gjöri spítalans fyrir tímabilið janúar til nóvember á nýliðnu ári, en gjöld umfram tekjur í lok nóvember nema 3,5 milljónum króna þannig að frávik miðað við fjárlög eru 0,1%. Rekstur sjúkrahússins er því í jafnvægi og ekki útlit fyrir annað en svo verði út allt árið að því er fram kemur í yfirlitinu. Reksturinn í heild er 1% innan áætlunar og starfsemin svipuð og gert hafði verið ráð fyrir. Í yfirlitinu kemur fram að launa- kostnaður hafi hækkað um tæp 2% milli ára, nam 2.050 milljónum króna og yfirvinna hækkað um 1,2%. Launakostnaður er um 72% af heild- argjöldum sjúkrahússins. Setnum stöðum hefur fækkað um 11 og er einkum um að ræða stöður innan hjúkrunar. Almenn rekstrargjöld námu í lok nóvember síðastliðins tæpum 729 milljónum og hækkuðu um 5,8%. Margs konar hagræðing náðist hvað varðar rekstarvörur og þá dró úr lagerhaldi, auk þess sem ferðakostnaður lækkaði um 3 millj- ónir eða um 10%. Sértekjur hafa vaxið verulega milli ára eða um 19%. Fyrst og fremst er um að ræða aukna þjón- ustu við útlendinga en einnig hafa komugjöld sjúklinga hækkað nokk- uð. Fram kemur í yfirlitinu að aukn- ar sértekjur eigi stóran þátt í góðri afkomu sjúkrahússins. Fjöldi sjúklinga hefur aukist um 1,2% miðað við sama tímabil í fyrra, en legudögum fækkaði um 3,3%. Skurðaðgerðum fækkað um 100 frá fyrra ári og fæðingum um 20, eða 5%. Hins vegar komu fleiri á slysa- deild en árið á undan og starfsemi myndgreiningadeildar hefur aukist með tilkomu segulómstækis. Velta FSA er áætluð um 3 milljarðar á árinu 2004. Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri Rekstur í samræmi við fjárlög Svarfaðardalur | Margmenni var við þrettándabrennuna á Húsa- bakka á þrettándakvöld. Brennuvargar Foreldrafélagsins höfðu safnað í veglega brennu sem logaði glatt á meðan mann- fjöldinn fylgdist með flugeldum, söng álfa- og huldufólkssöngva, drakk kakó, maulaði kex og ósk- aði sveitungum sínum gleðilegs árs. Þrettándabrennan er ein af þeim samkomum sem Húsabakka- skóli og Foreldrafélagið samein- ast um og eru viðburðir af þessu tagi því nauðsynlegri sem sam- félögin eru fámennari, þáttakan og samveran gefa lífinu gildi. Glatt logaði í þrettándabrennu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.