Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Fáar sögur eru íslensku þjóðinni hjart-fólgnari en Egla, sagan af hreysti-menninu og dróttkvæðaskáldinuAgli Skallagrímssyni sem bar hróð-
ur lands og lýðs út á meðal þjóða. Engir kapp-
ar stóðu honum á sporði.
Í dag kl. 14 leggur leikhúsið Sögusvuntan af
stað í ferðalag með þessa dýrmætu gersemi í
gamalli tösku. Töskunni verður lokið upp á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins, þaðan liggur
leiðin í grunnskólana og síðan ef að líkum læt-
ur í kjölfar Egils – til útlanda.
Hallveig Thorlacius er sem fyrr potturinn
og pannan í starfi Sögusvuntunnar og stýrir
brúðunum á sviðinu. Það er Þórhallur Sigurðs-
son sem er leikstjóri en Hallveig segir að hann
sé tvímælalaust langreyndastur allra íslenskra
leikstjóra á sviði brúðuleikhúss, hefur leikstýrt
níu brúðuleiksýningum í ýmsum leikhúsum.
Helga Arnalds býr til brúður og leikmynd
en hún rekur eigið brúðuleikhús, Leikhúsið 10
fingur.
Hallveigu hafði lengi langað að setja Eglu á
svið en vissi ekki hvernig hún átti að nálgast
verkið fyrr en hún fékk skothelda hugmynd á
óvæntum stað – trúðanámskeiði.
„Þetta var algjör himnasending. Aðaltrúður
Cirque de Soleil kom hingað til lands síðast-
liðið sumar og hélt námskeið fyrir íslenskt
leikhúsfólk sem raunar fór ekki hátt. Á þessu
námskeiði komst ég í tæri við trúðinn í sjálfri
mér og varð ljóst að það væri engin önnur leið
til að nálgast þessa blóðugu víkingasögu.“
Dæmir engan
Og Hallveig heldur áfram: „Trúðurinn er með
huga byrjandans, eins og búddistar segja.
Hugur hans er hreinn. Hann dæmir engan.
Þetta þótti mér skemmtileg leið til að segja
svona grimma sögu. Það má vitaskuld ekki
segja við börnin: Þetta er allt saman í lagi! Við
höfum nefnilega þroskast frá þessum hugs-
unarhætti sem kemur fram í fornsögunum,
hefndinni, sæmdinni og öllu því. Eða það skul-
um við vona. Egill var barn síns tíma. Stór-
kostlegt barn. Það má bara ekki dæma hann út
frá okkar tíma. Hið hryggilega er hins vegar
að allur óhugnaðurinn, sem frá er sagt í sög-
unni, er ekki horfinn úr heiminum í dag. Um
hann er fjallað í fréttum á hverjum degi. Hann
hefur bara tekið á sig aðra mynd.“
Hallveig veltir sér samt ekki upp úr hinum
myrku hliðum mannsins. Enda er sýningin
fyrir börn. „Hlutverk mitt er að segja þessa
sögu og ég verð að stikla á stóru þar sem sýn-
ingin tekur aðeins um fimmtíu mínútur, miðast
við eina kennslustund. Það sem var erfiðast við
þetta var að skera niður. Það var t.d. sorglegt
að kveðja margar söguhetjur, svo sem Brák,
ambátt Skallagríms, og sleppa atburðum, eins
og aðdragandanum að Höfuðlausn. En það var
ekki um annað að velja, ég varð að taka upp
sverðið og höggva. Það er svo merkilegt að
trúðsvinkillinn leiddi mig sjálfkrafa áfram í
þeirri vinnu.“
Njála næst á dagskrá?
Eftir frumsýninguna á Smíðaverkstæðinu er
ferðalaginu heitið út í grunnskólana. Hallveig
segir sýninguna henta fyrir sex til tólf ára
börn og jafnvel unglingadeildirnar líka. Það
muni koma í ljós. „Og svo er sýningin auðvitað
líka fyrir fullorðna.“
Og Íslendingar eru ekki eini markhópurinn.
„Ég held að þessi sýning geti hentað fyrir út-
lendinga og stefni að því að fara með hana ut-
an. Það hefur þegar komið ein pöntun frá
Norðurlöndunum en ég get einnig leikið sýn-
inguna á ensku, frönsku og jafnvel þýsku.
Einu sinni æfði ég meira að segja og lék sýn-
ingu á færeysku. Það gekk bara vel, þannig að
það er allt hægt í þessu,“ segir Hallveig og
hlær þegar hún rifjar þetta upp.
Hallveig reiknar með að ferðast með Eglu
næstu mánuðina. Hvað þá tekur við er óráðið.
En hefur hún áhuga á því að þróa trúðinn
áfram?
„Það er aldrei að vita. Ég er nú alltaf að lofa
sjálfri mér því að hætta. Snúa mér að ein-
hverju öðru. Það gengur hægt. Íslendingasög-
urnar hafa hins vegar alltaf heillað mig og á
sínum tíma var ég komin hálfa leið inn í Njálu.
Þá fékk ég áskorun frá Eglusérfræðingi fyrir
vestan sem langaði í brúðu-Egil og ég hlýddi
því kalli. Og ef þetta gengur upp gæti ég alveg
hugsað mér að taka Njálu líka. Ég lofa samt
engu!“
Sýningin á Smíðaverkstæðinu í dag er að-
eins fyrir boðsgesti.
Höfundar leikgerðar:
Hallveig Thorlacius
og Þórhallur Sigurðsson.
Leikmynd og brúður:
Helga Arnalds.
Sögumaður:
Hallveig Thorlacius.
Leikstjóri:
Þórhallur Sigurðsson
Egla í nýjum
spegli
Leikhús | Sögusvuntan frumsýnir brúðuleikinn Egla í nýjum spegli sem byggður er á Egilssögu
Hinn hreini hugur
Hallveig Thorlacius í hlutverki sögumannsins í Egla í nýjum spegli.
orri@mbl.is
„ÞETTA kemur mér mjög á óvart.
Ég steingleymdi þessu eftir að ég
sendi inn umsóknina,“ sagði Helgi
Þórsson myndlistarmaður í samtali
við Morgunblaðið, en hann hlaut í
gær 500.000 króna styrk úr Lista-
sjóði Pennans. „En það er mjög
hvetjandi að fá svona styrk, því ég er
stöðugt að gera eitthvað. Þá er enn
meiri pressa á mann að halda áfram
að vinna.“
Helgi vinnur meðal annars skúlpt-
úra og innsetningar, sem hann segir
marga telja kitch þótt hann sé því
ekki alltaf sammála sjálfur, og reyn-
ir að skapa sinn eigin heim. „Ég
reyni að halda öllu opnu, enda er ég
með svo mörg áhugasvið. Ég geri
það sem mér dettur í hug og fæ inn-
blástur á alls konar stöðum – stund-
um er maður að krota í bók, stund-
um sér maður eitthvað í sjónvarpinu
eða úti í búð. Allt getur þetta nýst
mér,“ segir hann.
Helgi fæddist í Reykjavík 1975.
Hann stundaði nám í Hollandi og
lauk nýverið mastersnámi í myndlist
frá Sandberg Institute í Amst-
erdam. Áður hafði hann lokið BA-
gráðu frá Gerrit Rietveldt Academie
í Amsterdam og stundað nám við hið
Konunglega Conservatorium Den
Haag.
Á síðasta ári tók Helgi þátt í átta
samsýningum og hélt tvær einka-
sýningar, m.a. í Galleri Van Gelder í
Amsterdam. Helgi er félagi í hljóm-
sveitinni Stilluppsteypu.
Að mati dómnefndar er ljóst að
Helgi muni láta að sér kveða í mynd-
listinni. Í umsögn hennar segir m.a.:
„Hann kemur til leiks fullur af
áræði. Í myndlistinni skapar Helgi
ævintýraheima. Litríkar innsetn-
ingar þar sem gálgahúmor ræður
ríkjum og allt getur gerst.“
Nýtist í næstu mynd
„Styrkurinn mun nýtast mér í næsta
verk sem ég er að fara að vinna, sem
er nýtt myndbandsverk,“ sagði Sig-
urður Guðjónsson þegar Morg-
unblaðið náði af honum tali, en hann
hlaut 300.000 kr. styrk úr sjóðnum
og vinnur með myndbönd, hljóð,
ljósmyndir og skúlptúra. „Ég vinn
grunnhandrit að myndbandsverk-
unum sem ég tek síðan upp. Í ferlinu
reyni ég að skapa ákveðið ástand í
verkin sem mætti kalla draugkennt
ástand.
Myndbandsverkunum er hægt að
líkja við litlar bíómyndir með óljósri
frásögn og þau leiða síðan af sér ný
verk, til dæmis ljósmyndir og
skúlptúra.“
Sigurður Guðjónsson fæddist í
Reykjavík 1975. Hann stundaði nám
við Billedskolen í Kaupmannahöfn
1998 til 1999 og útskrifaðist frá
myndlistardeild Listaháskóla Ís-
lands 2003. Veturinn 2003 til 2004
nam Sigurður við Akademie der bil-
denden Künste í Vínarborg hjá
Frans Graf.
Fyrr á árinu tók hann meðal ann-
ars þátt í samsýningunum Berlin
North í Hamburger Bahnhof-
safninu í Berlín, og Behind the Eyes
í Bergen Kunsthall, og nýverið lauk
einkasýningu Sigurðar, Hýsli, í gall-
eríi Kling og Bang. Framundan eru
einkasýningar á Íslandi og í Vín-
arborg.
Að mati dómnefndar ber nýaf-
staðin einkasýning Sigurðar í gall-
eríi Kling og Bang því vitni að hann
er ört vaxandi listamaður. Í sýning-
arskrá hefur Þórhallur Magnússon
ritað: „Sigurður Guðjónsson á sér
bakgrunn í tónlist, þar sem hann
meðal annars spilaði í einni hörðustu
og þéttustu dauðarokkhljómsveit í
manna minnum, Cranium. Sú gagn-
lega reynsla ómar augljóslega í
verkum hans, þar sem orka og djúp
alvara sameinast ásamt undarlegri
kímnigáfu. Sigurður tekst í verkum
sínum með áhrifamiklum hætti á við
tvö hrá náttúruöfl. Þau sem búa í
eðli mannsins og þau í náttúrunni
sjálfri.“
Dómnefnd skipuðu Kristján
Steingrímur Jónsson, deildarforseti
myndlistardeildar Listaháskóla Ís-
lands, formaður, Guðrún Ein-
arsdóttir, myndlistarmaður, fulltrúi
SÍM, og Gunnar B. Dungal, forstjóri
Pennans.
„Það er merkilegt með þessa tvo
styrkþega, að hjá þeim báðum er
mjög sterk tenging í tónlist,“ segir
Kristján Steingrímur, formaður
dómnefndar. „Það er líka merkilegt
hve mikið þeir hafa sýnt þrátt fyrir
ungan aldur, og hve margar þeirra
sýninga hafa verið í útlöndum. Helgi
Þórsson hefur til dæmis sama og
ekkert sýnt hér á landi, en samt tók
hann þátt í tíu sýningum á síðasta
ári. Þetta er merkilegt og segir okk-
ur ef til vill hvað starfsumhverfi
myndlistarmanna hefur breyst.“
Að mati dómnefndar eru Helgi
Þórsson og Sigurður Guðjónsson
verðugir fulltrúar yngstu kynslóðar
listamanna. „Þeir hafa báðir náð
góðum árangri, haldið fjölda sýninga
og tekið þátt í margvíslegum uppá-
komum þar sem blandað er saman
ólíkum miðlum. List þeirra á það
sameiginlegt að endurspegla þær
hræringar sem eiga sér stað í sam-
tímanum. Þeir velta upp áleitnum
spurningum um manninn, náttúruna
og samfélagið sem við búum í,“ segir
í áliti hennar.
Veitt hefur verið árlega úr Lista-
sjóði Pennans undanfarin ellefu ár
og er styrknum ætlað að styðja við
bakið á upprennandi listamönnum
sem eru að stíga sín fyrstu skref á
myndlistarbrautinni. Það er athygl-
isvert að af þeim tuttugu listamönn-
um sem verk eiga á sýningunni
Nýrri íslenskri myndlist, sem nú
stendur yfir í Listasafni Íslands,
hafa tólf hlotið styrk úr Listasjóði
Pennans. Hvað það varðar segir
Kristján Steingrímur að vissulega sé
hægt að skilgreina og tala um mynd-
list að ákveðnu marki og ef til vill
beri þessi tengsl þess merki að dóm-
nefndin hafi verið nösk. „En þrátt
fyrir þetta vitum við ekkert hvað
framtíðin ber í skauti sér. Kannski
hafa verðandi meistarar íslenskrar
myndlistar hvorki fengið Penna-
verðlaunin né sýnt í Listasafni Ís-
lands.“
Styrkir | Myndlistarmennirnir Sigurður Guðjónsson og Helgi Þórsson hljóta styrk úr Listasjóði Pennans
Sterk tenging í tónlist
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafarnir Helgi Þórsson og Sigurður Guðjónsson, ásamt Gunnari
Dungal, forstjóra Pennans, og eiginkonu hans Þórdísi A. Sigurðardóttur,
myndlistarmanni, við verðlaunaafhendinguna í gær.
SAMHLIÐA sýningunni
Ný íslensk myndlist; um
veruleikann, manninn og
ímyndina, hefur gestum
Listasafns Íslands gefist
kostur á að hlýða á lista-
mennina sem þar sýna,
eiga „samtal við listaverk“
– eins og það er orðað af
hálfu safnsins. Á morgun,
sunnudag, er komið að
þeim Erlingi Klingenberg,
Hildi Bjarnadóttur, Helga Hjaltalín og Pétri Erni Friðrikssyni að ræða
um verk sín og verða þau í safninu frá kl. 15 til 16. Egill Sæbjörnsson
mun jafnframt leika og syngja í verkinu sínu „You take all my time“.
Þess ber að geta að þessari sýningu yngri kynslóðarinnar í Listasafn-
inu lýkur sunnudaginn 16. janúar og fer því hver að verða síðastur að
sækja hana heim til að kynnast mörgu því sem hæst ber í listum sam-
tímans hér á landi.
Myndlist | Listasafn Íslands á morgun
Samtöl við listaverk
Verk Helga Hjaltalín í Listasafni Ís-
lands, en hann er einn þeirra sem munu
ræða um verk sín í safninu á morgun.