Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 27
BARNASKÓLI Hjallastefnunnar er hálfgerður
sveitaskóli sem er til húsa á Vífilsstöðum. Þessi litli
skóli hefur starfað í tvö ár, en í honum eru nem-
endur á aldrinum fimm til sjö ára. Foreldrafélag
skólans stendur fyrir ýmsum uppákomum í skól-
anum, leikhús koma í heimsókn, jólagleði og vorhá-
tíð eru haldin svo eitthvað sé nefnt, og allt kostar
það sitt. Til að fjármagna slíkar uppákomur brá for-
eldrafélagið á það ráð að gefa út matreiðslubók með
myndum af öllum nemendum skólans og kennurum.
Elín Þórhallsdóttir er formaður félagsins og hún
sagði að á hverri síðu væri mynd af einum nemanda
eða kennara, einni uppskrift frá viðkomandi, lífs-
mottói, uppáhaldslit og hvað hann eða hún ætlaði að
verða þegar þau yrðu stór eða stærri. Eins eru gull-
korn sem hrotið hafa af vörum barnanna sem og
brandarar.
„Krakkarnir gefa ýmist mjög einfaldar uppskriftir
af réttum eða kökum sem þau geta gert sjálf eða þá
flóknari uppskriftir af til dæmis uppáhaldsmatnum
heima. Og sumir gefa bara einhverja sniðuga upp-
skrift. Þarna má finna fiskrétti, kjötrétti, súpur, sal-
öt, pitsur, pasta, grauta, ís, drykki, brauð og bakst-
ur. Lífsmottóin og sögurnar eru auka krydd í matinn
og því er þetta óvenjuskemmtileg matreiðslubók fyr-
ir alla fjölskylduna en alveg sérstaklega góð fyrir
krakka, enda heitir hún Orka fyrir káta krakka.
Auk þess er þetta í leiðinni minningabók fyrir
krakkana sem gaman verður að eiga þegar þau
verða stærri og þess vegna stefnum við að því að
gefa út svona bók á tveggja til þriggja ára fresti.“
Á forsíðu matreiðslubókarinnar er stór auður
rammi og þar getur gefandinn eða þiggjandinn
teiknað mynd. „Dóttir mín teiknaði til dæmis myndir
í þennan ramma á nokkur eintök og fyrir vikið verða
bækurnar enn persónulegri og svo gefum við ömmu,
afa og öðru skyldfólki og engar tvær bækur eru
eins.“
Sleikjókökur
190 g smjörlíki
170 g sykur
170 g púðursykur
2 egg
340 g hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. matarsódi
Allt hrært saman, súkkulaðibitar og mulið smar-
ties sett saman við. Sett á ofnplötu í litla toppa og
íspinna priki stungið í hvern topp, bakað í 6–8 mín.
við 185 gráður.
Uppáhaldslitur: Blár og rauður
Þegar ég verð stór ætla ég að verða:
Hjúkrunarkona eða dagmamma.
Brandari: Maður og kona voru að bíða eftir
að fara yfir götuna, svo kom grænikarlinn
og maðurinn labbar yfir og þá kallar konan
HVENÆR KEMUR GRÆNA KONAN?
Glaðningur fyrir maga og hjörtu
SKÓLI
Hægt er að nálgast Matreiðslubók Barnaskóla Hjalla-
stefnunnar, Orka fyrir káta krakka, á skrifstofu skólans
við Vífilsstaðaveg og kostar hún 1.000 krónur.
Lífsmottó: Maður
á alltaf að vera í
góðu skapi og
vera góður við
aðra og gera betur
khk@mbl.is
Thelma Rut Guðbrandsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 27
DAGLEGT LÍF
Fjarnám allt árið
Skráning stendur yfir á heimasíðu skólans www.fa.is
Skólameistari
ÁRAMÓT sjá margir sem upphaf að
nýju tímabili og þá um leið vettvang
til að taka til í ,,geymslunni. Árið
sem er að líða er gert upp og lín-
urnar lagðar fyrir það sem er að
renna upp. Margir gera þetta bók-
staflega og leggja línur fyrir lín-
urnar, finnst þeir hafa verið í full-
nánu sambandi við sófann en nú skal
tekið á því og bumbunni breytt í
bretti. Vissulega er göfugt markmið
út af fyrir sig að vilja minnka um-
málið og komast í betra líkamlegt
form en til þess að hreyfingin sé
raunveruleg heilsurækt er fyrst og
fremst mikilvægt að hún skili hverj-
um og einum aukinni vellíðan og lífs-
gleði almennt. Samkvæmt skilgrein-
ingu WHO er heilsa þríþætt: þ.e.
líkamleg, andleg og félagsleg. Þessir
þættir hafa áhrif hver á annan og
þar með heilsufar fólks. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að hreyfing getur
styrkt alla þessa þætti og er því frá-
bær leið til að efla heilsuna.
Í hraða hversdagsins finnum við
flest á einhverjum tímapunkti fyrir
streitu, kvíða og jafnvel votti af
þunglyndi. Því er áríðandi að gefa
sér tíma til að losa um andlega
spennu með því að fá líkamlega út-
rás. Þannig verðum við betur í stakk
búin til að takast á við daglegt líf og
leggja jafnframt grunn að bættri
heilsu í framtíðinni. Á sama tíma er
mikilvægt að tryggja sér næga hvíld
og svefn, drekka nóg af vatni og
borða reglulega (5–6 sinnum á dag)
fjölbreytt fæði úr öllum fæðuflokk-
um.
Markmiðið er 13.000 skref á dag
En hvað er skynsamleg hreyfing
og hvernig getur maður hreyft sig
meira? Almennt er gott að miða við
að hreyfa sig í minnst 30 mínútur
sem flesta daga. Þessu markmiði er
auðveldlega hægt að ná með því að
vera meðvituð/-aður um að velja
hreyfingu í stað hreyfingarleysis í
daglega lífinu. Reyna að skipuleggja
sig og takmarka bílnotkun eins og
hægt er – ganga þess í stað, hjóla
eða taka strætó, nota stiga í staðinn
fyrir lyftu eða rúllustiga. Takið svo
eftir því hvað úthaldið er fljótt að
aukast. Fyrir þá sem hafa áhuga á
að prófa skrefamæli er æskilegt að
ná minnst 9.000 skrefum yfir daginn
en 13.000 skref eru ákjósanlegt
markmið.
Auk þess að hreyfa sig meira í
daglega lífinu er gott að hreyfa sig
rösklegar, helst 3 sinnum í viku eða
oftar. Velja þá hreyfingu sem manni
finnst skemmtileg; fara rólega af
stað og setja sér raunhæf, einföld
markmið sem miklar líkur eru á að
maður nái. Of háleit markmið geta
verið kvíðavekjandi og valdið því að
fólk gefst upp eða kemst jafnvel
aldrei af stað. Gott er að setja niður
á blað fasta daga og tíma til hreyf-
ingar og ekki er síðra ef maður nær
að draga einhvern skemmtilegan og
jákvæðan með sér. Það veitir gagn-
kvæmt aðhald og eykur á ánægjuna.
Efla vináttuna með gönguferðum
Tilvalið er að slá tvær flugur í einu
höggi og efla fjölskyldu- og/eða vina-
bönd með t.d. reglulegum göngu-
eða sundferðum. Það er mikilvægt
að gefast ekki upp þó svo að maður
missi ein-
hverja daga
úr – öll skyn-
samleg
hreyfing er
betri en eng-
in hreyfing. Til aðstoðar við að halda
utan um hreyfinguna er hægt að
nálgast forritið Heilsufélagann án
endurgjalds á heimasíðu ÍSÍ,
www.isisport.is. Það er göfugt ára-
mótaheit að ætla sér að efla heils-
una. Verum bara viss um að hafa
hugfast hvað heilsa er og að hafa það
að leiðarljósi þegar markmið fyrir
árið 2005 eru sett.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð
Hreyfingin eflir andann
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gígja Gunnarsdóttir, íþróttafræð-
ingur, sviðsstjóri almennings-
íþróttasviðs ÍSÍ.
Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur, verkefnisstjóri Geð-
ræktar, Lýðheilsustöð.
Hreyfðu þig
daglega, það
léttir lundina
(5. geðorðið)
BÚIÐ er að opna tónlistarvef á
heimasíðu Námsgagnastofnunar
www.nams.is. Vefurinn sem heitir
Tónlist í tímans rás er nýr tónlist-
arvefur sem Námsgagnastofnun
gefur út og er opinn fyrir alla á
heimasíðu stofnunarinnar. Hann er
þó einkum ætlaður sem fjölþætt
námsgagn í tónmenntakennslu fyr-
ir eldri bekki grunnskóla. Meg-
inviðfangsefnið eru tónsmíðar með
aðferðum sem rætur eiga í verkum
helstu tónskálda sögunnar. Sam-
hliða er fjallað um tónlistarsöguna
í stórum dráttum, sem er oft tengd
samtímaviðburðum og áhrifavöld-
um.
Í fréttatilkynningu frá Náms-
gagnastofnun kemur fram að öll
megintímabil vestrænnar tónlist-
arsögu eru kynnt með stuttum
textum. Þeim fylgja bæði tóndæmi
og spurningar úr textunum.
Áhersla er lögð á hlustun ásamt
upplýsingum um tónfræðileg atriði
og á tóndæmi.
Ekki síður ætlað nemendum
Allar eru tónsmíðaaðferðirnar
miðaðar við nemendur sem ekki
hafa fengið annað formlegt nám í
tónlist en það sem grunnskólinn
býður. Leiðbeiningarnar eru
þrepaskiptar og fylgja þeim fjöl-
mörg tóndæmi til útskýringar.
Nemendur fá leiðbeiningar við að
vinna organum, mótettu, passa-
kaglíu, sönglag og atónalt verk svo
dæmi séu tekin.
Vefnum er ætlað að vera kenn-
urum handhægt aðstoðartæki.
Hægt verður að prenta út allar
síður, próf og tóndæmi og nota í
kennslu. En ekki er hann síður
ætlaður nemendum sem ráða við
að vinna sjálfstætt og eru óhrædd-
ir við það álag sem fylgir skapandi
vinnu.
Höfundur texta og tóndæma á
vefnum er Sigfríður Björnsdóttir.
Vinnsla tóndæma var í höndum
Bjarka Sveinbjörnssonar. Halldóra
Björnsdóttir sá um vinnslu mynda.
Tónlistarvefur á
heimasíðu Náms-
gagnastofnunar
MENNTUN
Morgunblaðið/Golli
Vefurinn er ætlaður sem fjölþætt
námsgagn í tónmenntakennslu fyr-
ir eldri bekki grunnskóla.
Hægt er að komast á tónlistarvef-
inn með því að fara á heimsíðu
Námsgagnastofnunar:
www.nams.is