Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 28

Morgunblaðið - 08.01.2005, Side 28
28 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Starfsmenn VSB verk-fræðistofu í Hafnarfirði eruduglegir við að krydda til-veruna og skapa sér tæki- færi til afþreyingar og skemmtunar þegar þannig liggur á þeim. Dæmi um slíkar uppákomur eru fjöl- skylduútilegur á sumrin, jólaboð á aðventunni og síðast en ekki síst ferðalög til útlanda. Nokkrir starfs- menn og makar þeirra tóku stefnuna á Róm á Ítalíu í nóvember síðast- liðnum þar sem fjórir dagar voru fljótir að líða. Sveinn Áki Sverrisson er tæknifræðingur sem starfar á VSB verkfræðistofu var í ferðinni. Hvert var tilefni ferðarinnar? „Við á VSB verkfræðistofu höfum í nokkur ár haft þann sið að halda árshátíð í erlendri stórborg og höf- um áður heimsótt Búdapest, Lond- on, Barcelona og Halifax. Nú höfum við hins vegar ákveðið að hætta árshátíðarhaldi erlendis, en þess í stað var ákveðið að búa til ferðasjóð, sem hver og einn starfsmaður getur lagt í eftir vild og safnað fyrir ferð. Í Rómaferðina, sem varði frá 18.–22. nóvember, fórum við fjórir starfs- menn ásamt mökum í hópferð á veg- um Úrvals-Útsýnar.“ Hvers vegna varð Róm fyrir valinu nú? „Rómaborg hafði oft lent í um- ræðunni hjá okkur, en ekkert hefur orðið úr slíku ferðalagi fyrr en nú þar sem að okkur hefur fundist flug- tíminn þangað bæði langur og kostn- aður mikill samanborið við aðrar borgir.“ Hvernig var aðbúnaðurinn? „Við gistum á glænýju glæsihóteli, sem heitir Exedra og stendur við hið sögufræga torg Rómaborgar, Republic Square, steinsnar frá hinni frægu götu ViaVeneto. Exedra er í flokki áttatíu bestu hótela í heimi. Aðbúnaðurinn var mjög góður og morgunverðarborðið frábært að hætti Ítala. Gestir geta valið um þrjá veitingastaði, þar af einn japanskan, glæsilega bari og á efstu hæðinni er þakgarður með útsýni yfir borgina.“ Hvernig vörðuð þið svo Rómardögunum? „Við fórum í tvær skipulagðar skoðunarferðir, í hringleikahúsið Kollosseum og í Vatikanið. Skoðun- arferðir byrja snemma morguns og standa fram undir tvö. Seinnihluta daganna notuðum við svo til að skoða markverða staði í borginni. Búðaráp og kaffihúsastopp fylgdi svo auðvit- að líka. Kaffiunnendur eru í góðum höndum þarna því kaffið á Ítalíu er engu líkt. Svo gleymdum við því alls ekki að slaka vel á uppi á hóteli áður en haldið var út á kvöldin, en þá fór hópurinn saman út að borða. Veit- ingahús í Róm eru frekar mikið á víð og dreif, en þó fundum við götur með nokkrum veitingahúsum, sem hægt var að velja úr, án þess að fara langt. Maturinn reyndist frábær og sér- staklega langar mig að nefna ítalska veitingastaðinn Girarrosto Fiorent- ino, sem að okkar mati var hreint út sagt magnaður. Þar áttu þjónarnir frumkvæði að frábærum forréttum, sem okkur hefði aldrei dottið í hug að panta. Aðalréttirnir, góðar steik- ur og fiskréttir, voru þar heldur ekki af verri endanum og í eftirrétt má fá bestu súkkulaðitertu í heimi.“ Hvílst við Campo De Fiori, lítið markaðstorg í hliðargötu við miðborgina. Sveinn Áki Sverrisson, Herborg Ívarsdóttir, Björn Gústafsson, Helga Krist- jánsdóttir, Stefán Veturliðason, Unndís Ólafsdóttir og Þorvarður Sigfússon.  HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? Kaffið í Rómar- ferðinni engu líkt Sveinn Áki Sverrisson vinnur hjá VSB verk- fræðistofu og fór fyrir nokkru með vinnu- félögum sínum og mökum til Rómar. Veitingastaðurinn Girarrosto Fiorentino, Via Sicilia, 46 Roma. www.girarrostofiorentino.it/ join@mbl.is Í Vatikansafninu í Róm. „VIÐBRÖGÐIN hafa ekki látið á sér standa og um hátíðarnar bókuðu sig yfir fjögur hundruð manns á Netinu til Alicante eftir að við kynntum 36% lækkun á fargjöldum þangað frá fyrra ári,“ segir Andri Már Ingólfs- son, forstjóri Heimsferða, sem býður nú 14.800 króna fargjald til og frá Alicante, það er bæði fram og til baka. Flugvallarskattar leggjast ofan á þetta verð, en þeir nema þrjú þús- und krónum á einstaklinga yngri en tólf ára og 4.190 kr. á þá sem eldri eru. Helst eru það sumarhúsaeigend- ur á Spáni sem nýta sér þessi ferða- tilboð, að sögn Andra Más. „Við erum að njóta hagkvæmni stærðarinnar og góðra samninga, sem hefur tekið okkur marga mánuði að vinna að. Á liðnu ári fluttum við 35 þúsund farþega og erum orðnir lang- stærstir í leiguflugi á Íslandi. Verðið okkar hefur lækkað ár hvert und- anfarin fimm ár. Við hyggjumst halda áfram á þeirri braut. Þá hafa samningar tekist við forsvarsmenn íbúðahótels í strandbænum Fueng- irola á Costa del Sol. Heimur út af fyrir sig „Hótelið, sem heitir Castle Beach og tilheyrir Myramar-hótelkeðjunni, er aðeins ársgamalt og er án efa glæsilegasta íbúðahótelið á strönd- inni með aðbúnaði, sem menn hafa vart upplifað áður í hefðbundnum sólarlandaferðum,“ segir Andri Már og bætir við að nýi áfangastaðurinn verði formlega kynntur til sögunnar um helgina. „Á hótelinu eru 229 rúm- góðar og fallega innréttaðar íbúðir fyrir allt að sjö manns sem allar eru búnar loftkælingu, sjónvarpi, síma, örbylgjuofni og brauðrist, svo eitt- hvað sé nefnt. 800 fermetra líkams- ræktarsalur er á svæðinu auk sauna, heitra potta, barnaleiksals og vallar. Veitingastaðir eru innan veggja hót- elsins og efnt er reglulega til skemmti- og íþróttadagskrár alla daga og kvöld, ýmist úti eða inni. Það má í raun segja að hér sé á ferðinni heimur út af fyrir sig, en við erum að bjóða vikuferð til Fuengirola með gistingu á Castle Beach á 39.780 kr. á manninn miðað við hjón og tvö börn án skatta. Fyrir tvo fullorðna í stúd- íó-íbúð er verðið um 59 þúsund kr. fyrir vikuna. Þetta er svipað verð og ódýrasta verðið var í fyrra á ódýr- ustu gistingunni. Við erum því að færa gæðin upp um nokkra klassa án þess að hækka verðið,“ segir Andri Már. Heimsferðir munu svo í maí- mánuði hefja vikulegt flug til Bo- logna á Ítalíu sem staðsett er í klukkustundar akstursfjarlægð frá Rimini, einum af aðaláfangastöðum ferðaskrifstofunnar. Einnig verður flogið vikulega til Trieste á Ítalíu í sumar. Að sögn Andra Más er byrjað að bóka í Ítalíuferðir, en fargjöldin þangað nema 19.900 krónum fram og til baka án skatta.  HEIMSFERÐIR | Verð á flugi til Alicante lækkar um 36% milli ára Fuengirola er nýr áfangastaður í sumar Morgunblaðið/Ómar Heimsferðir hafa gert samning við íbúðahótel í strandbænum Fuengirola á Costa del Sol. join@mbl.is LONDON er vinsæll áfangastaður hjá Íslendingum. Þeir eru enda ófáir sem bregða sér í helgarferðir til borgarinnar að vetri jafnt sem sumri og hvort sem um er að ræða menn- ingar-, verslunar- eða afslöpp- unarferðir er víst að London hefur upp á heilmargt að bjóða. Götu- markaðir borgarinnar eru þá gjarn- an vinsæll viðkomustaður á helg- arröltinu og gjarnan komið við ýmist á Camden- eða Portobello- markaðnum sem þau Julia Roberts og Hugh Grant komu svo eft- irminnilega á kortið í myndinni Notting Hill. Fjölda annarra markaða er þó að finna í London og eru sumir sér- markaðir þar eingöngu ætlaðir viss- um vöruflokkum s.s. matvælum, leð- urvöru o.fl. Bermondsey-antíkmarkaðurinn er einn þessara fjölmörgu markaða sem borgin hefur að geyma. Mark- aðurinn, sem er í suðurhluta borg- arinnar í nágrenni London Bridge, er vel þekktur meðal antíksala og sérfræðinga sem heimsækja hann reglulega í leit að forvitnilegum munum fyrir verslanir sínar. Á Ber- mondsey má finna úrval ýmiskonar smáhluta, skartgripa og skrautmuna frá hinum ýmsu tímabilum þótt flestir gripanna séu frá 19. eða 20. öldinni. Sá sérhæfði hópur viðskiptavina sem markaðinn sækir á líkast til sinn þátt í allsérstæðum afgreiðslutíma hans, en Bermondsey-markaðurinn er aðeins opinn á föstudags- morgnum og hefst starfsemin þar þá kl. 4. Á þessum stað á máltækið „morgunstund gefur gull í mund“ líka einkar vel við því áhugaverðustu gripirnir eru fljótir að fara og því um að gera fyrir þá sem vilja kynnast þeirri sérstæðu stemningu sem þarna ríkir að stilla vekjaraklukkuna snemma og freista gæfunnar. Antíkmarkaður fyrir sérfræðingana  LONDON Bermondsey-markaðurinn: Þar kennir margra grasa. Bermondsey-antíkmarkaðurinn er á horni Long Lane og Bermondsey Street í SE1. Um 10 mínútna gang- ur er frá næstu neðanjarðarlest- arstöð sem er London Bridge.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.