Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 08.01.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 43 MINNINGAR andlát hans var átakalaust og frið- sælt. Eg votta frænda mínum Friðriki Baldvin yngra hluttekningu mína og innilega samhryggð, svo og Steini bróður Frissa og öðrum skyldmenn- um hans. Blessuð sé minning Friðriks Bald- vins Jónssonar. Björn G. Eiríksson. Fjallahringurinn er fagur, horft frá Hraunkoti í Lóni. Bærinn stend- ur niðri á flatlendinu, í skjóli kletta- borga, eða „hrauna“ eins og sýslubú- ar nefna þær. Sjóndeildarhringurinn nær frá Eystrahorni eða Hvalnesi í austri, til Vestrahorns í vestri og milli þeirra dalir og tindar, með Stafafellsfjöllin fyrir miðri mynd. Engan skyldi undra að hér hafi lifað og starfað fólk með sterkar taugar til heimkynna sinna. Kynni okkar af Hraunkotsfólkinu eru löng og góð. En tíminn líður og gefur engum grið, gamlir vinir kveðja og halda á braut úr þessu jarðlífi. Áður voru gengin heiðurs- hjónin Skafti Benediktsson og Sig- urlaug Árnadóttir og systir Skafta, Guðlaug Benediktsdóttir. Nú kveðj- um við kæran vin okkar, Friðrik Baldvin Jónsson. Hér mun lífshlaup Friðriks ekki rakið í neinum smáatriðum, því verða gerð betri skil annars staðar. En komu hans að Hraunkoti bar þannig til, að eftir lát eiginkonu hans, Krist- ínar Jónsdóttur, tóku Skafti mágur hans og Sigurlaug kona hans í fóstur son Friðriks á fyrsta ári. Friðrik fylgdi syni sínum, Friðriki B. Frið- rikssyni í Hraunkot og átti þar heim- ili síðan. Það var gæfa hans, eftir það áfall sem lát konu hans var honum, að sjá syni sínum borgið í faðmi sam- heldinnar „stórfjölskyldu“ og hafa tækifæri til að sinna áhugamálum sínum í faðmi Lónssveitar. Friðrik var sannkallað náttúrubarn, ef hægt er að gefa einhverjum slíka einkunn. Veiðiskapur og útivera var honum alla tíð nautn. Og þegar líða tók á æv- ina, og margir jafnaldrar hans tóku að hætta störfum og leita eftir plássi á elliheimili, þá byrjaði hann af krafti á skógrækt í Hraunkoti. Ýmsir urðu til að furða sig á að svo aldraður mað- ur væri að gróðursetja tré – hann myndi tæpast lifa það að sjá þau vaxa upp og verða stór. Eða eins og ágæt- ur maður sagði við hann: „Ja, þú verður þá bara að horfa á þau ofan frá, þegar þar að kemur.“ Og Friðrik svaraði að bragði: „Nú, eða þá horfa í ræturnar á þeim.“ En hvað sem öll- um efasemdum líður, þá eru nú að vaxa upp í Hraunkoti stórir skógar- reitir, sem vafalaust munu í framtíð- inni prýða þennan bæ enn frekar en nú er – og er þó fallegt þar fyrir. Margar voru þær ferðir sem Frið- rik fór með okkur vítt og breitt um Lónið og í eina hringferð um landið. Hann átti ágætan Land-Rover jeppa, óragur við að leggja í misjafna vegi og þekkti reyndar götuslóðana flest- um öðrum betur eftir ferðir á hverju vori í grenjavinnslu um fjöll og dali í Lóni. Þessar ferðir eru okkur ógleymanlegar. Friðrik var besti fé- lagi á ferðalögum sem hægt er að hugsa sér, kátur og fróður um landið sjálft og flesta aðra hluti. Úrræða- góður ef eitthvað bjátaði á og þegar þeir félagar, hann og Ingvar heitinn, lögðu saman var fátt sem ekki var hægt. Hann var kærkominn gestur, hvort heldur var heima á Höfn eða í sumarbústaðnum okkar í Laxárdal í Lóni. Reyndar var hann ekki talinn til gesta, hann var eins og einn úr fjölskyldunni. Þau Agnes glettust oft með, hvernig fyrstu komu hans á heimili foreldra hennar bar að. Þegar bankað var þaut hún, lítið stelpu- korn, til dyra, leit út og sá þar ókunnan mann sem spurði eftir Ingv- ari Þorlákssyni. Hún þaut inn aftur og kallaði: „Pabbi, pabbi, það er kom- inn útlendingur hér.“ Höfn var á þessum tíma fámennari en nú er og smáfólkið taldi aðkomumenn vera út- lendinga. En þessi „meinti“ útlend- ingur var fljótur að vinna traust og trúnað heimasætunnar ungu, eins og annarra heimilismanna. Næsta vetur á eftir var Friðrik í vertíðarvinnu á Höfn og bjó þá á heimili foreldra Agnesar, sem hefur alla tíð síðan ver- ið eins og hans annað barn. Hann var einstaklega barngóður og gaf sér alltaf tíma til að ræða við hana og út- skýra hlutina. Mörg kvöldin, þegar heiðskírt var, fór hann með henni út og kenndi henni nöfnin á stjörnun- um. Friðrik var einstaklega fjölfróður maður, sama var hvað um var rætt, hann var heima í flestum hlutum. Hann las mikið, ekki aðeins á ís- lenzku, heldur hafði hann tileinkað sér góða þekkingu í ensku og norð- urlandamálum og las bækur á þeim málum sér til fulls gagns. Og hann hafði það umfram marga, að hann mundi og skildi til hlítar það sem hann las. Allt sem laut að náttúru- og landafræði var þó í sérstöku uppá- haldi hjá honum. Síðustu árin hafa þeir verið tveir í Hraunkoti, feðgarnir Friðrik eldri og Friðrik yngri. Það voru viðbrigði frá því sem áður var, þegar húsið var fullt af fólki. Áfram var þó jafngott að koma að Hraunkoti, gestrisnin óbreytt frá því sem áður var og við- mótið hið sama. Og þó að Friðrik yngri sé nú einn orðinn eftir, þá held- ur hann uppi merki fósturforeldra sinna og föður. Við vottum honum samúð á þessum degi og biðjum hon- um Guðs blessunar. Hugur Friðriks heitins var löngum bundinn við óbyggðirnar og drjúgur hluti ævistarfs hans var unninn á þeim vettvangi. Því þykir okkur við hæfi að kveðja hann með litlu ljóði: Efst á öræfatindum ennþá má greina spor, máð af veðri og vindum en vitna um styrk og þor veiðimannsins sem víðernin dáði og vökustundir á fjöllunum þráði, hin nóttlausu, norrænu vor. Þarna í gamalli gjótu er greni sem fáir sjá, hreindýrin fimu og fljótu fara þar stundum hjá. Lá hann og beið um langar nætur á lágfótu þurfti að hafa gætur. Í fjarskanum fjöllin blá. Spor í óbyggðum eyðast sem annað í veröld hér, en minningin merlar heiðast og mönnunum styrkinn ber. Kæri vinur, þér kveðju sendum við könnun á nýjum veiðilendum og vináttu þökkum við þér. (G.Ö.) Guðrún, Agnes og Guðbjartur. Nú er elsku Geiri farinn. Vil ég með nokkrum orðum til hans þakka honum fyr- ir allar þær gleði-, vinnu- og uppeld- isstundir sem við systkinin áttum með honum. Hann Geiri okkar í Holti átti viða- mikinn þátt í uppeldi okkar systk- inanna í Laxárdal, kenndi hann okk- ur til verka í fjárhúsunum sínum, Hólmahúsunum, sem við vorum svo heppin að hafa okkar megin í dalnum þannig að alltaf var stutt fyrir okkur að hlaupa til Geira. Hann hafði ein- staka lund og átti mjög auðvelt með að ná til barna. Á sinn einstaka hátt gerði hann öll verk auðveld og skemmtileg. Aldrei var nein kvöð að hjálpa Geira í húsunum og alltaf lét hann okkur finnast við vera ómiss- andi þannig að verkin urðu enn þýð- ingarmeiri fyrir okkur. Geiri kenndi okkur margt, að keyra Löduna sína, vélsleðann og Ferguna, að spila, ófáum morgnum eftir morgunverkin eyddi hann í að kenna okkur að spila. Kom skilning- ur hans á börnum vel fram þar því hann hafði fullan skilning á hvaða spil hentaði hverjum aldri og hvenær væri kominn tími til að læra nýtt og jafnvel erfiðara spil. Á veturna þreyttist hann aldrei við að keyra okkur um á vélsleðanum sínum og oft var hann með okkur í eftirdragi á sleðum eða skíðum. Þolinmæðin gagnvart okkur þraut hann aldrei. Á hverju sumri fór Geiri með okk- ur í heiðartúr, oft var farið um versl- unarmannahelgi og þá lærðum við fljótt hver þekkti heiðina best og hver ætti innsta rúmstæðið í gagna- kofanum. Eigum við okkur skýra FRIÐGEIR GUÐJÓNSSON ✝ Friðgeir Guð-jónsson fæddist að Hermundarfelli í Þistilfirði 3. ágúst 1919. Hann lést á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn 20. desember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Sval- barðskirkju 28. des- ember. mynd í huganum af Geira á kollinum sínum undir glugganum með kaffikrúsina sína í hendi. Alltaf var lang skemmtilegast að fá að vera í bílnum með Geira því hann átti allt- af molapoka í hanska- hólfinu á Lödunni og alltaf þóttist hann vera jafnhissa þegar við fundum pokann. Elsku Geiri, þín verður ætíð sárt sakn- að í Laxárdal og mun minning þín lifa í okkar hjarta. Hvíl í friði, kæri frændi. Vilborg Stefánsdóttir. Kæri frændi, þegar maður hugsar til baka og ætlar að rifja upp ein- hverjar eftirminnilegar stundir sem við áttum saman er erfitt að velja eitthvað sérstakt, því allar stundir með þér voru sérstakar, eftirminni- legar og skemmtilegar. Fyrstu minningar mínar um þig voru þegar við systkinin komum í gömlu fjár- húsin þín á Hólmanum. Þar var al- veg sérstaklega gaman leika sér. Á veturna var vinsælast að fara upp á þak og stökkva niður af stafninum, niður í skaflinn. Einnig var mikið sport að klifra niður strompinn, því þú sagðist oft fara niður strompinn ef dyrnar væru á kafi í snjó, ef þú gerðir það þá hljótum við að geta það líka, var oft hugsað. Það skemmti- legasta sem þú gast gert fyrir okkur krakkana var að koma í kaffi eftir morgunverkin, grípa aðeins í spil og fara út og skreppa rúnt á sleðanum, stundum var farið á næstu bæi en ef veðrið var bjart og gott var vinsælast að fara inn í Dalsheiðarkofa, svona rétt til að skrifa í gestabókina og halda síðan heim. Eftir að ég fór að keyra sleða sjálfur var það ein af mínum fyrstu ferðum út fyrir tún- garðinn þegar ég fékk að fara með þér inn að heiðargirðingu með girð- ingarefni, staura og gaddavír. Þessu var hlaðið á aftanídrögurnar og síðan brunað af stað, þú á undan og valdir leiðina en ég fast á eftir. Þegar við vorum staddir vestan undir Selásn- um, á Sellæknum, brotnaði undan drögunni hjá þér svo myndaðist mik- ið gat, en ég keyrði svo nálægt að ég lenti ofan í gatið. Ekki leist mér á blikuna, að við mundum geta lyft sleðanum upp á skörina. Á meðan við vorum að lyfta sleðanum skildi ég ekki hvað þú virtist hafa gaman af þessu brasi, en ég var alveg niður- brotinn yfir þessu öllu. En þetta hafðist nú allt og kláruðum við ferð- ina en ég talaði um að fara aldrei aft- ur á vélsleða, nema í mesta lagi á túninu heima. Það þótti þér fyndið að heyra mig segja enda urðu ferðirnar margar eftir þetta. Elsku Geiri minn, ég vil þakka fyrir að hafa feng- ið að umgangast þig á uppvaxtarár- um mínum. Þú hefur kennt mér svo margt og á ég eftir að búa að því alla ævi. Eggert Stefánsson. Þökkum hlýhug og samúðarkveðjur vegna andláts eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, ÓLÍNU INGVELDAR JÓNSDÓTTUR frá Skipanesi, Höfðagrund 2, Akranesi. Stefán Gunnarsson, Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Ármann Árni Stefánsson, Ingibjörg Valdimardóttir, Svandís Guðrún Stefánsdóttir, Jóhanna Gunnhildur Stefánsdóttir, Ásta Jónsdóttir og ömmubörn. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við fráfall ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS KRISTINS PÁLSSONAR skipstjóra, Botnahlíð 21, Seyðisfirði. Helga Þorgeirsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Árni Kristinn Magnússon, Jónas Pétur Jónsson, Anna Maren Sveinbjörnsdóttir, Páll Sigurgeir Jónsson, Bettina Nielsen, Kristján Jónsson, Birna Guðmundsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Þórður Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. Hugheilar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, KRISTÍNAR HELGADÓTTUR frá Fróðhúsum, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi. Kristvin Guðmundsson, Ólöf Ágústsdóttir, Elsabet Jónsdóttir, Þórir Jónsson, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og Gunnar Helgason. MINNINGARSJÓÐUR UM GUÐLAUG BERGMANN RÉTT reikningsnúmer minningarsjóðsins er: 1143-18-640230, kt. 430105-2130 Aðstandendur Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning- argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.