Morgunblaðið - 08.01.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 53
DAGBÓK
Umhverfisstofnun (UST) gengst ánæstu mánuðum fyrir fyrirlestraröðum fjölbreytt viðfangsefni sem snertaumhverfi mannsins, þar á meðal mat-
væli, ferðamennsku, meindýravarnir, sæfiefni,
skotveiði og fleira. Efni fyrirlestranna er sett
fram á einfaldan og aðgengilegan hátt þannig að
allir geti haft gagn og gaman af. Í lokin á fyr-
irlestrunum eru síðan umræður og fyrirspurnir.
Fyrirlestrarnir eru haldnir tvo þriðjudaga í mán-
uði, kl. 15–16, í húsnæði Umhverfisstofnunar að
Suðurlandsbraut 24, 5. hæð, og eru þeir öllum
opnir án kostnaðar. Fyrsti fyrirlesturinn verður
haldinn þriðjudaginn 11. janúar og lýkur röðinni
31. maí.
„Við teljum það mjög mikilvægan hluta af
okkar starfsemi að miðla fróðleik frá fagfólki til
almennings á skiljanlegu máli þannig að fólk geti
nýtt sér það í hinu daglega lífi,“ segir Hrefna
Guðmundsdóttir, fræðslu- og upplýsingastjóri
UST. „Starfsemi Umhverfisstofnunar er gíf-
urlega umfangsmikil og fjölbreytt. Hún skiptist í
7 fagsvið; Matvælasvið, Stjórnsýslusvið, Veiði-
stjórnunarsvið, Framkvæmda- og eftirlitssvið,
Náttúruverndarsvið, Fjárhags- og rekstrarsvið
og Rannsóknarstofu. Hér innanhúss er að finna
hóp sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem búa yfir
miklum fróðleik og er þessi fyrirlestraröð ein af
þeim leiðum sem við munum nýta til þess að
miðla þekkingu okkar til almennings.“
Hvaða aðrar leiðir eru nýttar til fræðslu?
„Þar má nefna heimasíðu okkar þar sem dag-
lega eru settar inn nýjustu fréttir og upplýs-
ingar um allt sem snertir matvæli og umhverf-
ismál, en slóðin á hana er www.ust.is. Þá hófum
við útgáfu á „Upplýsinga- og staðreyndariti“ um
mitt síðasta sumar. Komin eru út 6 tölublöð og
er hægt að nálgast þau í rafrænni útgáfu á
heimasíðu UST eða með því að hringja og fá þau
send.
Þá dreifum við hinum ýmsum bæklingum t.d.
á sviði náttúru og matvælamála. Auk þess sem
við gefum út fjölda plakata sem margir kannast
við, t.d. plakatið „Takið eftir merkjunum“ um
merkingu á hættulegum efnavörum.
UST er einungis 2ja ára stofnun og heyrir
undir umhverfisráðuneyti. Stofnunin tók til
starfa 1. janúar 2003 þegar hún tók við verk-
efnum Hollustuverndar ríkisins, Náttúruverndar
ríkisins og Veiðistjóraembættis, ásamt starfsemi
dýraverndarráðs, hreindýraráðs og svokallaðrar
villidýranefndar. Frá upphafi hefur verið lögð
mikil áhersla á fræðsluhlutverk hennar. Eitt af
okkar meginmarkmiðum er að auka það hlut-
verk jafnt og þétt og eru fyrirlestrar sem þessir
áformaðir um ókomna tíð.“
Umhverfisfræðsla | Umhverfisstofnun heldur fyrirlestra um fjölda málefna fyrir almenning
Fræðsluhlutverkið sífellt mikilvægara
Hrefna Guðmunds-
dóttir er fædd árið
1964 í Reykjavík. Hún
lauk BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá HÍ og
prófi í verðbréfamiðlun
frá Endurmennt-
unarstofnun Íslands.
Hún stundar nú
kennsluréttindanám í
KHÍ.
Hrefna starfaði í 3 ár
hjá Landsteinum við námskeiðahald og
fræðslustjórnun, en gegnir nú starfi fræðslu-
og upplýsingastjóra hjá Umhverfisstofnun.
Maki Hrefnu er Jens Páll Hafsteinsson verk-
fræðingur og eiga þau 4 börn.
Fjölskyldustefnan
HÁTÍÐASTUNDIR og tímamót. Þá
eru haldnar ræður um mikilvægi
hinna ýmsu gilda. Vinsælast er
menntun og fjölskyldan. Mikið gleð-
ur það kennarahjartað enda er sú
stétt eflaust best þess umkomin að
sjá hvert stefnir og stendur í miðri
baráttunni með þessum málaflokk-
um.
En svo kom athugasemdin sem
fékk mér kvíða: Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor (Mbl. 4.1.05, bls. 6) kallar á
grunnskólana til að kenna foreldra-
hlutverk og fjölskylduábyrgð.
Margir hafa spurt um hvernig
haga eigi þeim aðgerðum sem framá-
menn okkar hvetja til. Og ég spyr:
Hvernig á grunnskólinn að taka á
þessum þætti? Skal bæta nýju fagi
við? Hvaða fag skal víkja fyrir því
nýja? Hvað þarf marga tíma á viku
til kennslunnar? Hvaða námskeið
verða í boði fyrir kennara fyrir þetta
nýja fag?
Eins og sést er ég ekki viss um að
hægt sé að senda þennan málaflokk
til grunnskólanna. Í síðustu kjara-
baráttu kennara kom það svo greini-
lega fram að stétt okkar er sú síðasta
sem ætti að bæta á sig meira vinnu-
framlagi.
Í augum flestra erum við yfirborg-
aðir barnapassarar sem ættum
kannski að kenna t.d. þetta eða hitt,
svona rétt á meðan við erum að hafa
ofan af fyrir börnunum. „Og jú, ætt-
uð þið ekki að kenna nemendunum
foreldrahlutverk og fjölskyldu-
ábyrgð fyrst þau eru nú þarna hjá
ykkur yfir hádaginn?“
Og svo kemur að það sé mikilvægt
að hlúa að kennarastéttinni sem skipi
mikilvægan sess og taki við þung-
anum af því sem fjölskyldan geti ekki
sinnt með sama hætti og áður.
Háttvirta fólk. Lesið nú Ösku-
busku eða Litlu ljót og einhverjar
stjúpusögur og vitið að hlutverk okk-
ar kennaranna er að fá umbun um
síðir (í himnaríki?!) og hinir fá sína
umbun um síðir (en þeir verða nátt-
úrlega ekki til staðar?!) í framtíðinni
og afkomendunum.
Megið þið öll hafa blessunarríkt
ár.
Hildur Harðardóttir.
Undarleg þjóð
HÚN systir mín, mikill dýra- og
fuglavinur, hefur alla tíð séð um vel-
ferð smáfuglanna í vetrarhörkunni.
Hún hefur alltaf búið í austurborg-
inni en er nú flutt í fjölbýlishús í
Salahverfi í Kópavogi.
Nú ber svo við að íbúum í þessu
húsi er bannað að gefa smáfuglunum.
Af hverju? Veit einhver það? Við vit-
um öll að Íslendingar hatast við
hunda og sauðkindina þótt við gerum
okkur á sama tíma grein fyrir að
þessi þjóð hefði ekki, í eymd sinni,
komist af án þessara dýra hér áður
fyrr. En að svelta smáfuglana?!
Þórunn.
Fatnaður til Úkraínu
ÉG vil gefa fatnað og dót til fátækra í
Úkrainu, en veit ekki hvert ég á að
snúa mér. Ef einhver veit það þá vin-
samlegast sendu mér upplýsingar á
ging@simnet.is.
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA með einum lykli
fannst við Engihjalla í Kópavogi 5.
janúar sl. Upplýsingar í síma
661 1178.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 8. janúar,er níræð Auðbjörg Guðmunds-
dóttir. Hún býr á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðs-
firði.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 8. janúar,verður sjötugur myndlist-
armaðurinn Teddi, Magnús Theódór
Magnússon. Eiginkona hans er Guð-
björg Ársælsdóttir og eru þau til heim-
ilis að Eskihlíð 18a. Teddi verður með
afmælishóf fyrir vini og ættingja á veit-
ingahúsinu Sjanghæ, Laugavegi 28b, í
dag kl. 15-18 í tilefni af afmælinu.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. O-O O-O
8. c4 Rf6 9. c5 Be7 10. Dc2 b6 11. c6
Dd6 12. Re5 Rg4 13. Bf4 Rxe5 14.
Bxe5 Dxc6 15. Rc3 Be6 16. Bxh7+
Kh8 17. Bd3 Rd7 18. De2 Kg8 19. Bb5
Db7
Staðan kom upp á lokuðu al-
þjóðlegu skákmóti sem lauk fyrir
skömmu í Groningen í Hollandi. Friso
Nijboer (2567) hafði hvítt gegn Sipke
Ernst (2521). 20. Bxg7! Kxg7 21.
Bxd7 Bxd7 22. Dxe7 c6 23. Hae1
Hae8 24. Dg5+ Kh7 25. He3 hvítur
hefur nú léttunnið tafl þó að hann hafi
ekki í framhaldinu valið einföldustu
leiðina til að útkljá skákina. 25...Hg8 26.
Dh5+ Kg7 27. Hg3+ Kf8 28. Dh6+ Ke7
29. He1+ Kd8 30. Hxg8 Hxg8 31. Df6+
Kc8 32. Dxf7 Hxg2+ 33. Kh1 Hg4 34. f3
Hxd4 35. He8+ Kc7 36. De7 c5 37.
De5+ og svartur gafst upp þar sem eftir
37... Kc6 hefur hvítur unnið tafl eftir 38.
He6+ Bxe6 39. Dxe6+.
Hvítur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Skráning er hafin á hið feikivinsæla námskeið
Allir þátttakendur fá í hendur leiðbeiningarbók um helstu þætti námskeiðsins.
Leiðbeinandi er sr. Þórhallur Heimisson.
Staður: Hafnarfjarðarkirkja
Tími: Mánudagana 17/01, 24/1 og 31/1 kl. 20.00.
Upplýsingar og skráning: Alla daga á thorhallur.heimisson@kirkjan.is
mánudaga-föstudaga í síma 891 7562.
FULLORÐINSFRÆÐSLA HAFNARFJARÐARKIRKJU
OG LEIKMANNASKÓLI ÞJÓÐKIRKJUNNAR
LYKILLINN AÐ
DA VINCI LYKLINUM
sem yfir 200 manns sóttu á liðnu hausti.
Á námskeiðinu er fjallað um hugmyndir metsölubókarinnar Da Vinci lykilsins
um kirkjuna, ritsafn og myndun Nýja testamentisins, Frímúrara, musterisriddara,
konur í kirkjunni og þá sérstaklega Maríu Magdalenu, kaþólsk leynifélög
og Graal og þær hugmyndir skoðaðar í ljósi hinnar hefðbundnu kirkjusögu.
Leitað verður svara m.a.
við spurningunum:
Er saga kirkjunnar blekking
leynireglna karlaveldisins?
Hver er hinn sögulegi sannleikur bak
við myndun Nýja testamentisins?
Hverjir voru Musterisriddarar,
Jóhannesarriddarar og Teutónsku riddararnir?
Var Jesús Kristur giftur?
Hefst 18. janúar - þri. og fim. kl. 20.00.
JÓGA GEGN KVÍÐA
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi, traust og yfirgripsmikið
námskeið fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða
eða fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu.
S K Ó L I N N
Skeifan 3,
Reykjavík
Símar 544 5560 & 862 5563
www.jogaskolinn.is
Viðurkennd jógakennaraþjálfun – jógatímar – grunnnámskeið
Allar nánari upplýsingar á www.jogaskolinn.is
Nú er lag í Glæsibæ!
Harmonikudansleikur kl. 21:30 í kvöld
Harmónikuhljómsveitir Þorvaldar Björnssonar
og Þórleifs Finnssonar auk Vindbelgjanna,
leika fyrir dansi til kl. 02.
Allir dansunnendur velkomnir.
Félag harmónikuunnenda í Reykjavík. F.H.U.R
ÓTUKTIN
Námskeið í minningu Önnu Pálínu Árnadóttur fyrir konur sem hafa fengið
krabbamein, byggt á bók hennar, kvennaguðfræði og samtölum
þátttakenda, hefst mánudaginn 10. janúar og stendur yfir í fjóra
mánudaga frá kl. 17.30 til 19.00 í Kvennagarði, Laugavegi 59, 4. hæð.
Verð 4.000 krónur.
Kvennakirkjan, sími 551 3934.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 8. janúar,er áttræður Hávarður Olgeirs-
son, skipstjóri, Skólastíg 9, Bolung-
arvík.
Brúðkaup | Gefin voru saman 4.
september 2004 í Bessastaðakirkju af
sr. Hjálmari Jónssyni þau Auður Ýr
Sveinsdóttir og William S. Johnstone
III.
Skugginn/ Barbara Birgis