Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 57
MENNING
VEITT var í fyrsta
sinn í gær úr Styrkt-
arsjóði Halldórs
Hansen til tónlist-
arnema við athöfn í
Salnum í Kópavogi,
en Halldór arfleiddi
Listaháskóla Ís-
lands að öllum eig-
um sínum með þeim
formerkjum að
stofnaður yrði
styrktarsjóður í
hans nafni.
Það eru Ingrid
Karlsdóttir fiðluleik-
ari og Melkorka
Ólafsdóttir flautu-
leikari sem hljóta
styrkinn að þessu
sinni, en þær stunda
báðar framhalds-
nám í tónlist erlend-
is. Báðar hljóta þær 300.000 kr. í
styrk, en í sjóðnum eru tæpar 90
milljónir króna. Þá var 8 milljóna
króna framlag sjóðsins til uppbygg-
ingar tónlistarbókasafni Listaháskól-
ans afhent við sömu athöfn.
„Mér líst ljómandi vel á styrkinn.
Hann kemur sér auðvitað mjög vel,
en ekki síður er það er mikil hvatning
að hljóta hann,“ sagði Ingrid í samtali
við Morgunblaðið, og bætti við að hún
vildi nota tækifærið til að koma á
framfæri þökkum til þeirra sem
standa að baki styrknum. „Vonandi
stend ég undir væntingum þeirra
sem höfðu þessa trú á mér.“
Styrkurinn mun koma að góðum
notum, að sögn Ingridar, því fram-
undan hjá henni eru inntökupróf í
eina fimm háskóla í Bandaríkjunum,
sem geta verið kostnaðarsöm. „Síðan
er ég að festa kaup á nýju hljóðfæri
og það getur verið að ég noti pen-
ingana að einhverju leyti til þess,“
segir hún.
Ingrid Karlsdóttir er fædd í
Reykjavik árið 1984 og hóf fiðlunám
sjö ára gömul hjá Lilju Hjaltadóttur.
Árið 1996 innritaðist hún í Tónlistar-
skólann í Reykjavík og haustið 2001
hóf hún nám við Listaháskóla Íslands
og útskrifaðist þaðan síðastliðið vor.
Vorið 2003 var Ingrid einn af sigur-
vegurunum í einleikarakeppni
Listaháskólans og Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og spilaði af því tilefni
fiðlukonsert eftir Jean Sibelius með
Sinfóníuhljómsveitinni vorið 2004.
Ingrid er nú við nám í Bandaríkj-
unum þar sem hún sækir einkatíma
hjá Sigurbirni Bernharðssyni.
Að sögn Melkorku líst henni að
sjálfsögðu einnig vel á styrkinn. „Það
er rosalega mikill heiður og mikils
virði að finna að það hefur einhver trú
á manni. Þetta er mikil hvatning í því
sem maður er að gera,“ sagði hún í
samtali við Morgunblaðið. Aðspurð
segist Melkorka ekki enn hafa ákveð-
ið hvernig hún hyggst ráðstafa
styrknum. „Það getur verið að ég
kaupi mér nýtt hljóðfæri, en það er
ekki ákveðið,“ sagði hún.
Melkorka Ólafsdóttir fæddist árið
1981. Flautunám sitt hóf hún í Tón-
skóla Sigursveins hjá Maríu Ceder-
borg. Síðar flutti hún sig yfir í Tón-
listarskólann í Reykjavík.Haustið
2001 hóf hún nám við Listaháskóla
Íslands og útskrifaðist þaðan vorið
2004. Melkorka tók þátt í einleikara-
keppni Listaháskólans og Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands og lék í fram-
haldi af því flautukonsert Jacques
Iberts með Sinfóníuhljómsveitinni.
Hún stundar nú framhaldsnám hjá
Harrie Starreveld við Konservatoríið
í Amsterdam og Emily Beynon við
Konunglega konservatoríið í Den
Haag.
Styrkir | Sjóður Halldórs Hansen
Hvatning og heiður
Morgunblaðið/Þorkell
Ingrid Karlsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Nokkur hefð hefur myndastfyrir því hér á landi aðmyndlistarlífið leggist í
dvala í kringum jól og áramót og
víki þá á vissan hátt fyrir bók-
menntum og tónlist. Nú, fyrstu
helgi eftir áramótin, opna sýning-
arsalirnir hver af öðrum áhuga-
verðar sýningar ungra listamanna
og hefja árið af miklum krafti.
Meðal þeirra má nefna sýningu
Egils Sæbjörnssonar, Herra Píanó
og frú Haugur
í 101 Gallerí
og sýningu
Heimis Björg-
úlfssonar Alca
torda vs. rest í
Kling & Bang gallerí. Þessir tveir
myndlistarmenn eiga það sameig-
inlegt að sækja reynslu sína víða
og leggja stund á myndlist í sín-
um víðasta skilningi.
Heimir Björgúlfsson hefur kom-
ið víða við í listalífinu og m.a.
starfað með tilraunahljómsveit-
unum Stilluppsteypu og The
Vacuum Boys. Þá hefur hann ver-
ið ötull myndlistarmaður og starf-
að um árabil í Hollandi, en hann
gerir út frá Amsterdamborg í
Hollandi.
List Heimis fjallar um samband
hans við umhverfi sitt. „Hún hef-
ur mikið mótast af þessum sjónar-
og hugsunarmun sem er milli
þessara landa, Hollands og Ís-
lands. Maður verður meðvitaðri
um bakgrunn sinn í skipulagðri
og manngerðri náttúru eins og
Holland er í raun og veru. Maður
er vanur að geta farið eitthvert
og sjá ekki neina manneskju, en
hver einasti fermetri er skipu-
lagður í Hollandi og þessi stað-
reynd hefur haft gríðarleg áhrif á
það sem ég geri,“ segir Heimir.
Á sýningu Heimis í Kling og
Bang gallerí má sjá mynd-
bandaverk, skúlptúr, veggfóður,
ljósmyndir og teikningar, en
Heimir vinnur á fjölbreyttan hátt.
„Það vegur upp á móti hvort
öðru, í stað þess að draga úr
hvort öðru finnst mér þetta efla
hvert annað innan minnar mynd-
listar. Álkan er í aðalhlutverki í
þessari sýningu, en Alca Torda er
latínuheitið yfir álkuna. Mið-
punktur sýningarinnar er skúlpt-
úr af álku í aðstæðum sem hún
myndi aldrei koma sér sjálf í, en
hin verkin má öll rekja aftur í
skúlptúrinn,“ segir Heimir. „Fólk
getur, ef það vill, séð sjálft sig í
þessum klunnalega sjófugli á
Norður-Atlantshafi, sem er ekki
alls ólíkur geirfuglinum útdauða,
þótt hann sé minni og geti flog-
ið.“
Egill Sæbjörnsson hefur einnig
átt viðkomu í tónlistarlífinu og
gaf út plötuna Tonk of the Lawn
árið 2000, þar sem hann samdi af-
ar áheyrileg popplög við bull-
texta, sem náðu þó að hljóma fá-
ránlega líkir raunverulegum
dægurljóðum. Jafnvel má ganga
svo langt að kalla plötuna nokk-
urs konar konseptlistaverk.
Tónlistin spilar einmitt hlutverk
í verkinu Herra Píanó og Frú
Haugur, en þar vinnur Egill mikið
með texta þar sem tvær sögu-
persónur ræða sín á milli um lífið
og tilveruna og taka lagið þess á
milli. Agli til halds og traust eru
þeir Helgi Svavar Helgason
trommuleikari og Frank Frede,
sem leikur á bassa.
Í verkinu er notast við sviðs-
mynd og myndbandsvarpanir og
leikur Egill öll hlutverk, þar sem
samræður snúast um félagsfræði-
leg, heimspekileg, fagurfræðileg,
tilvistarleg og pólítísk viðfangs-
efni. „Ég er að taka á því hvernig
lífið er flókið einhvern veginn.
Allt þetta dótarí er saman í einum
potti. Það er ekki bara hægt að
tala um heiminn út frá einum
punkti og skýra hann út frá hon-
um, þetta fléttast allt saman,“
segir Egill, sem sýndi þetta sama
verk í Berlín í desember sl. „Nið-
urstaða mín er á vissan hátt sú að
það er engin niðurstaða. Lífið
heldur áfram að flæða án þess að
við komumst nokkurn tíma á ein-
hvern endapunkt. Það kemur
samt ýmislegt upp á bátinn sem
er talað um. Verkið er 26 mínútur
að lengd og þeir eru alltaf að
spila lög inn á milli. Það fjallar
líka heilmikið um myndlist á öld-
inni sem leið og margar ólíkar
hugmyndir.“
Nýtt misseri myndlistar ’Þessir tveir myndlist-armenn eiga það sameig-
inlegt að sækja reynslu
sína víða og leggja stund
á myndlist í sínum víð-
asta skilningi.‘
AF LISTUM
Svavar Knútur
Kristinsson
svavar@mbl.is
Heimir Björgúlfsson sýnir Alca Torda vs.
rest í Kling & Bang Galleríi.
Morgunblaðið/Golli
Egill Sæbjörnsson sýnir verkið Herra Píanó og Frú Haugur í 101
Galleríi, en í verkinu ræða tvær sögupersónur saman og taka lagið.