Morgunblaðið - 15.01.2005, Page 12
12 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Ákve›i› hefur veri› a› vi›hafa allsherjar-
atkvæ›agrei›slu um kjör stjórnar og
trúna›arrá›s Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur fyrir ári› 2005.
Frambo›slistum skal skila á skrifstofu
félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
1. hæ›, eigi sí›ar en kl. 12:00, mánudaginn
31. janúar 2005.
Kjörstjórnin
GÓÐUR undirbúningur er afar mik-
ilvægur við einkavæðingu Landssíma
Íslands, að sögn Klaus-Dieter
Scheurle, framkvæmdastjóra hjá
Credit Suisse First Boston, en hann
var á sínum tíma formaður nefndar
sem starfaði að einkavæðingu þýska
símafyrirtækisins Deutsche Tele-
kom.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ýmsir möguleikar væru fyr-
ir hendi varðandi einkavæðingu
Landssíma Íslands. „Meðal annars er
hægt að selja fagfjárfestum eða bjóða
hlutinn út í frumútboði. Þetta fer eftir
því hvaða markmiði ríkisstjórnin vill
ná. Það er hins vegar afar mikilvægt
að einkavæðing Símans sé undirbúin
mjög vel svo hægt sé að bregðast við
vandkvæðum sem kunna að koma
upp.“
Spurður hvort einkavæðing
Deutsche Telekom hafi haft góð áhrif
á rekstur fyrirtækisins sagði hann
svo vera. „Tekjurnar hafa aukist mik-
ið og starfsemin er orðin mun skil-
virkari. Þar með hefur hagnaður fyr-
irtækisins aukist verulega. Auk þess
er fyrirtækið í dag mun þjónustu-
vænna gagnvart notendum og fram-
boð á nýjum lausnum hefur einnig
aukist verulega í starfseminni.“
Aðspurður segir hann að sam-
keppni á fjarskiptamarkaði í Þýska-
landi sé veruleg en fyrir tíu árum hafi
hún ekki verið til staðar. „Markmiðið
með einkavæðingunni var að hluta til
að koma á samkeppni á markaði. Nú
er markaðshlutdeild Deutsche Tele-
kom í beinum símtölum 90% en í öll-
um fjarskiptum um 70%. Á farsíma-
markaði er markaðshlutdeild
félagsins um 40%,“ að sögn Scheurle.
Hér á landi hefur umræðan að
hluta til snúist um fjarskiptanetið
sjálft, sem er í eigu Símans. Scheurle
sagði að það hefði verið ákveðið að
Deutsche Telekom skyldi halda eign-
arhaldi á fjarskiptanetinu en hins
vegar hefðu verið sett ströng lög sem
tryggja aðgang allra fyrirtækja til að
tryggja sanngjarna samkeppni.
Þýsk-íslenska verslunarráðið og
Verslunarráð Íslands stóðu í gær fyr-
ir hádegisverðarfundi sem bar yfir-
skriftina Einkavæðing fjarskiptafyr-
irtækis. Scheurle var aðalræðumaður
á fundinum en hann rakti þar í stuttu
máli ferli einkavæðingarinnar allt frá
því að ákvörðun um einkavæðinguna
var tekin þar til þriðja útgáfa á hluta-
bréfum fór fram í júní 2003. Í máli
hans kom fram að einkavæðingarferl-
ið hefði skipst í þrjá hluta. Í fyrsta
lagi var undirbúningstímabil, sem að
sögn Scheurle tók tvö ár en á því
tímabili fór meðal annars verðmat
fyrirtækisins og verðlagning hlutar-
ins fram.
Í öðru lagi var útboðstímabilið,
sem náði yfir tvo mánuði og í þriðja
lagi var það sem Scheurle nefndi „eft-
irsölutímabilið“ en á því tímabili var
hluthöfum, sem ekki höfðu reynslu af
því að kaupa hlutabréf, veitt ýmis að-
stoð og ráðgjöf. Sagði hann að þörf
hefði verið á þessu þar sem hug-
myndin hefði verið að skapa almenn-
ingshlut, þ.e. hlut sem væri frekar í
eigu hins almenna borgara en fag-
fjárfesta, en hlutafjáreign hefði ekki
verið almenn meðal almennings í
Þýskalandi á þessum tíma. Í fyrir-
spurnatíma að erindi hans loknu kom
fram að aldrei hefði staðið til að leyfa
að stór valdablokk myndaðist meðal
hluthafa.
Í máli Scheurle kom fram að mikill
áhugi var á bréfum í Deutsche Tele-
kom en hægt var að kaupa hlutinn á
þremur mörkuðum, í Frankfurt, New
York og Tókýó. Umframáskrift að
hlutabréfunum var sexföld og var því
ákveðið að auka hlutaféð.
Mikilvægt að undir-
búa einkavæðingu vel
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skilvirkara Klaus-Dieter Scheurle segir Deutsche Telekom mun skilvirk-
ara fyrirtæki eftir einkavæðingu þess.
Úrvalsvísitalan hækk-
aði í Kauphöllinni
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær
námu samtals 10,4 milljörðum
króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 2,1 milljarð og hækk-
aði úrvalsvísitala Kauphallarinnar
um 0,9%. Mest viðskipti voru með
hlutabréf KB banka, eða fyrir um
800 milljónir króna og hækkaði
gengi þeirra um 1,1%. Af félögum í
úrvalsvísitölunni hækkuðu bréf Öss-
urar mest, um 3,7%, en bréf Flug-
leiða lækkuðu mest, um 2,5%.
!" #!$!% "% #&"%%'(&%)$'*%+
%
! "# $
%#%!
& %"' ("
) ("
)#"
*"' (" & %"'
+!%
+!'
! %#
,#
-./!
-. ! "#($
0
. & %"'
"'
1. "
1 2 $ 34 / " 5 6("
*7 8" 4 ""
9:/!
-&
-% ;%# -%"'
-%. / 2 /$
<2## "#. "
= "" % "
3.4 .. 5-8(!#
! "#
(
!%' >2
*"' 7. & %"' <8 8
"$%
&
?@>A
-7
$!
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
!2 "#
2 $!
5
5
5 5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
B
CD
B CD
B CD
B CD
B 5CD
B CD
B CD
5
B 5 CD
B CD
5
B CD
5
B CD
B
CD
5
B CD
5
5
5
5
B CD
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
1! %'
'# "
< %( 7 % '# E
) -%
$ $
$
$ $ $
$
$
$ $
$ $
$ $ $ 5
$ 5
5
5
5
$ 5
5
5
5
5
5
5
$ 5
5
5
= 7 FG $ $
<1$ H /#"% %'
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
<1$5 I . ./%'"' % /% $ <1$5 -2%' % %!## . 2 %( /! " $
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Aukin sala hjá Geest
● SALA breska matvælafyrirtækisins
Geest jókst um 5% á síðasta ári. Tals-
menn fyrirtæksisins segja að áætl-
anir gangi eftir á þessu ári, þrátt fyrir
mikla samkeppni á matvörumarkaði.
Fyrirtækið segir að verulega hafi
verið dregið úr kostnaði á síðasta ári,
eða um 22 milljónir punda, og á
þessu ári muni nást frekari sparn-
aður með því að fækka í yfirstjórn um
10%.
Reutersfréttastofan segir sérfræð-
inga hafa spáð því að hagnaður
Geest yrði 75-77 milljónir punda fyrir
afskriftir og fjármagnskostnað
(EBITDA) og hagnaður fyrir skatta yrði
35-37 milljónir punda samanborið
við 38,8 milljónir árið 2003.
Geest segir að búast megi áfram
við samkeppni á matvælamarkaði og
að verð kunni að lækka um 1-2%.
Viðræður standa nú yfir um að
Bakkavör Group yfirtaki Geest en fé-
lagið gerði 496 milljóna punda tilboð
í Geest í desember sl.
Íslenskir
bankar enn
tengdir við
yfirtöku
KB banki og Landsbankinn voru aft-
ur í gær, eins og í fyrradag, nefndir í
breskum fjölmiðlum sem hugsanleg-
ir bjóðendur í breska fjárfestingar-
bankann Durlacher. Hreiðar Már
Sigurðsson, forstjóri KB banka,
sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki vilja tjá sig um
þessi skrif. Í sama streng
tók Brynjólfur Helgason,
framkvæmdastjóri al-
þjóðasviðs Landsbank-
ans, en hann sagði að
bankinn tjáði sig ekki um
einstök verkefni sem
unnið væri að, sem er
það sama og haft var eft-
ir honum í Morgun-
blaðinu í gær vegna þessa máls.
Á vefmiðli breska blaðsins Guard-
ian segir að fram komi í yfirlýsingu
frá Durlacher að viðræður um yfir-
töku á bankanum séu í gangi. Yfir-
lýsingin sé hins vegar ekki ítarleg og
ekki fáist staðfest við hvern eða
hverja verið sé að ræða. Orðrómur
sé um að verðbréfafyrirtækið Arb-
uthnot, sem er dótturfélag Secure
Trust Banking Group, sé líklegt til
að yfirtaka Durlacher. Mikil hækkun
á gengi hlutabréfa Secure Trust í
Kauphöllinni í London hafi ýtt undir
þennan orðróm. Hins vegar er stað-
hæft í frétt Guardian að íslensku
bankarnir KB banki og Landsbanki
séu einnig mögulegir bjóðendur í
Durlacher, en báðir hafi verið á hött-
unum eftir því að fjárfesta á fjár-
málamarkaði í London.
Markaðsvirði Durlacher er nú um
21 milljón punda, um 2,4 milljarðar
íslenskra króna.
LEIÐRÉTTING
Í frétt í Morgunblaðinu í gær af
skattadegi Deloitte í fyrradag urðu
þau mistök að eftirnafn Ara Edwald,
framkvæmdastjóra Samtaka at-
vinnulífsins, féll niður. Beðist er vel-
virðingar á þessum leiðu mistökum.
Toyota semur
við Eimskip
● TOYOTA hefur samið við Eimskip
til tveggja ára um flutning á bílum til
landsins. Samskip hefur undanfarin
tvö ár annast
flutningana.
Það er Toyota í
Evrópu sem býður
út flutninga til Ís-
lands en P. Sam-
úelsson hefur um-
boð fyrir Toyota á Íslandi og kaupir
bílana með flutningum. Í útboði á
síðasta ári var gerður samningur við
Eimskip frá og með síðustu áramót-
um og gildir samningurinn til tveggja
ára. Á síðasta ári voru fluttar hingað
til lands tæplega 3.600 Toyota-
bifreiðar og reiknar Emil Grímsson,
forstjóri P. Samúelssonar, með að
fjöldinn verði svipaður á þessu ári.
Knútur G. Hauksson, forstjóri
Samskipa, segir að auðvitað sé allt-
af leiðinlegt að missa góða við-
skiptavini en félagið muni ekki þurfa
að grípa til sértakra ráðstafana
vegna þessa.
Atlantsskip hefja sigl-
ingar til Vlissingen
● ATLANTSSKIP hefja í dag vikulegar
viðkomur í Vlissingen í Hollandi.
Með þessu eiga viðskiptavinir Atl-
antsskipa að fá traustari farveg fyrir
farm sinn. Þetta var meðal þess sem
skýrt var frá á útflutningsdegi Atl-
antsskipa sem haldinn var í gær.
Eggert H. Kjartansson, sölustjóri
útflutnings hjá Atlantsskipum segir
ástæður þessarra breytinga vera
nokkrar. Atlantsskip fái betri þjón-
ustu við skipakost fyrirtækisins,
styttri siglingaleið, skemmri af-
greiðslutíma við losun og lestun.
Einnig sé tenging við meginland Evr-
ópu betri, hvort sem litið er til inn-
eða útflutnings en í Vlissingen öðlist
Atlantsskip aðgengi að öflugri frysti-
geymslu sem og dreifingu afurða.
♦♦♦
9 'J
-KL
!
"#
"#$
C
C
<->
MN
%
%
&
"#%
"#!
C
C
@@ ,+N
&
!!
'%&
"#!
"#'
C
C
)N
9 !
(
%&
"#&
"#'
C
C
?@>N MO 6"!
&
!!&
!!
"#(
"#!
C
C