Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VERTU ÞÚ SJÁLF - VERTU BELLADONNA Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15. www.belladonna.is Regnbogadögum fækkar 20% aukaafsláttur á kassa og að auki 20% afsláttur af öllum vörum* fimmtud. 20/1 - Laugard. 22/1 Núna er tækifæri til að gera frábær kaup *Gildir ekki um samkvæmiskjóla HJÓNIN Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson hafa stofnað minningarsjóð um dóttur sína Margréti Björgólfsdóttur með það að markmiði að auka almanna- heill og bæta mannlíf á Íslandi. Hafa þau lagt fram stofnfé að fjár- hæð 500 milljónir króna. Í fréttatilkynningu um stofnun minningarsjóðsins segir að mark- mið sjóðsins sé að stuðla að heil- brigðu líferni og bættu mannlífi og efla menntir, menningu og íþróttir. „Markmiðum sínum hyggst sjóð- urinn ná með því að styrkja ein- staklinga, verkefni og félög til mennta, framtaks, athafna og keppni, – ekki síst á alþjóðlegum vettvangi,“ segir í fréttatilkynningu um stofnun sjóðsins. Áætlað að styrkveitingar nemi 75–100 milljónum á ári Áætlað er að styrkveitingar nemi um 75 til 100 milljónum króna á ári. Stjórn sjóðsins skipa Björgólfur Guðmundsson, formaður, Bentína Björgólfsdóttir og Þórunn Guð- mundsdóttir, hæstaréttarlögmaður. Sjóðurinn auglýsir tvisvar á ári eftir umsóknum og nú fyrst í febrúar á þessu ári. Dómsmálaráðherra hefur staðfest skipu- lagsskrá fyrir minn- ingarsjóðinn. Margrét Björgólfs- dóttir fæddist árið 1955 en hún lést af slysförum árið 1989, aðeins 33 ára að aldri. Margrét var alin upp í Vesturbænum í Reykjavík og í fréttatilkynningu um stofnun minning- arsjóðsins kemur fram að í æsku hafi orðið ljóst að hún fór ótroðnar slóð- ir og kom hún sínum nánustu sífellt á óvart. „Á unglingsárum hneigðist hugur hennar að heilbrigðu lífi og and- legri og líkamlegri vellíðan allra í kringum sig. Lengst af bjó Margrét í Reykjavík en hún dvaldi einnig um nokkurra ára skeið í Kaliforníu í Bandaríkjunum og í Lundúnum á Englandi,“ segir í til- kynningunni. „Margrét hafði alltaf mörg járn í eldi. Sterk réttlætiskennd, blíða og kraftur einkenndi hana alla tíð. Meðfram vinnu, m.a. hjá Flugleiðum, sótti hún námskeið auk þess sem hún stundaði söngnám við Söngskól- ann í Reykjavík þar sem hún lauk einsöngv- araprófi. Erlendis lagði Margrét stund á nám í austurlenskum lækn- ingum samhliða frekara söngnámi. Hún stofnaði og rak fyrirtæki sem framleiddi og dreifði hollustuvörum á borð við Morg- ungull og þá rak hún um tíma mat- stofu hjá Náttúrulækningafélagi Ís- lands. Eiginmaður Margrétar var Jónas Sen píanóleikari.“ Hlýja og mannkærleikur Þuríður Pálsdóttir, söngkona, skrif- aði minningargrein um fyrrum nemanda sinn á útfarardegi Mar- grétar. Þar sagði hún: „Það fyrsta sem ég kynntist í fari Margrétar var sérkennileg hlýja og mann- kærleikur sem var hennar leið- arljós. Hún trúði á allt gott og heil- brigt í náttúrunni og skynjaði þær víddir í daglegu lífi sem venjulegu fólki sést yfir. Hún var skemmtileg blanda af hugsjónakonu um andleg málefni og hugmyndaríkri fram- kvæmdakonu.“ Í minningargrein um Margréti komst vinur hennar Hallgrímur Helgason svo að orði: „En mitt í sínu þéttofna lífsmynstri mundi hún þó alltaf eftir okkur öllum, hún gleymdi aldrei að líta inn, hún gaf sér alltaf tíma, þáði te og settist niður til að tala. Hún talaði við mann þar til manni fór að líða vel og ég gat sæll haldið áfram við málverkið á meðan hún sat og sagði manni allt það sem satt er, allt það sem gott er og allt það sem er okk- ur fyrir bestu, allt það sem við get- um ræktað betur. Því þannig var Magga, allt um nýtt og betra líf, betri heilsu, betri líðan, allt það kunni hún svo vel, allt varðandi lífið sjálft, það var hennar sérgrein.“ Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur og er stofnfé hans 500 milljónir króna Margrét Björgólfsdóttir lést af slysförum árið 1989, 33 ára að aldri. Markmiðið að auka almanna- heill og bæta mannlíf á Íslandi „ÉG LÍT með ánægju yfir farinn veg og þetta tímabil hjá Alþingi,“ sagði Friðrik Ólafsson í samtali við Morgunblaðið í gær en þá lét hann formlega af störfum sem skrifstofustjóri Alþingis eftir tutt- ugu ár í embætti. „Ég á auðvitað eftir að sakna þessa góða samstarfsfólks og allra þeirra ánægjustunda sem við höfum átt saman. Ég er hreyk- inn af starfsliðinu, sem er sér- staklega samhentur hópur. Ég tel það mikla gæfu að hafa starfað með slíkum hópi.“ Starfsfólkið kvaddi sinn gamla yfirmann með pompi og prakt í gær en í dag tekur Helgi Bernód- usson við embættinu. En hvað finnst Friðriki helst standa upp úr eftir tvo áratugi í starfi skrifstofustjóra Alþingis? „Miklar breytingar hafa orðið á þessu tímabili og það er gaman að hafa fengið að vera þátttakandi í því,“ segir Friðrik. Nefnir hann sem dæmi aukinn húsakost þings- ins. Þegar hann hóf störf var mjög þröngt um starfsemi þings- ins, var henni komið fyrir í 3–4 húsum. Þingmenn voru þá ekki með sér skrifstofur en í dag hefur hver og einn skrifstofuaðstöðu og starfsemi þingsins er komið fyrir í 8–9 húsum. Friðrik segist þekkja vel til starfa Helga Bernódussonar sem tekur nú við embætti skrif- stofustjóra Alþingis. „Hann þekk- ir öll þessi störf sem þarna eru unnin,“ segir Friðrik um eft- irmann sinn. „Hann á vafalaust eftir að hrista margt fram úr erm- inni, margar góðar hugmyndir. Það er ekki neinu að kvíða með hann sem eftirmann.“ En hvað tekur nú við hjá Frið- riki? „Það má vel vera að skákin fái meiri tíma núna hjá mér,“ segir Friðrik, en hann varð stórmeist- ari fyrstur Íslendinga og lengi vel í hópi sterkustu skákmanna heims. „Ég þarf eiginlega að setj- ast niður og skipuleggja tímann. Þetta verður ekkert áfall [að hætta störfum] því það er af nógu að taka.“ Friðrik Ólafsson hættir sem skrifstofustjóri Alþingis „Ég á eftir að sakna samstarfsfólksins“ Friðrik afhendir Helga Bernódussyni lyklavöldin að Alþingi. Morgunblaðið/Golli Vigdís Jónsdóttir færði Friðriki gjöf frá samstarfsmönnum hans. OLÍUFÉLAGIÐ Esso lækkaði verð á bensíni og olíu á þriðjudag um sömu krónutölu og það hafði hækkað verðið um sólarhring áður. Verð á eldsneyti hjá félaginu er því nú það sama og það var um síð- ustu helgi, en verðbreytingin fól í sér tveggja króna hækkun á bensíni og einnar krónu hækkun á olíu og svo aftur lækkun um sömu krónutölu. „Þær eru bara samkeppnislegar,“ sagði Hjörleifur Jakobsson forstjóri Essó, aðspurður um ástæðuna fyrir þessum verðbreytingum. Hann sagði að Olíufélagið reyndi að fylgja mjög ábyrgri verðstefnu og væri verðum breytt vikulega ef ástæða væri til. Farið væri yfir verðþróunina í nýliðinni viku á hverj- um mánudagsmorgni og þá teknar ákvarðanir um hvað bæri að gera í ljósi þróunar á heimsmarkaði með eldsneyti og verðið lækkaði eða hækkaði í samræmi við það hvernig verð á heimsmarkaði hefði breyst. Flestir hækkuðu ekki „Við hækkuðum verð á mánudag- inn og síðan fylgdumst við með hvað gerðist og hvort aðrir hækkuðu eða hækkuðu ekki í þessu tilviki. Um miðjan dag á þriðjudag hafði einn samkeppnisaðili hækkað verð og aðrir ekki og við töldum því eðlilegt að lækka verðin aftur,“ sagði Hjör- leifur Jakobsson. Essó lækkar bensínverð um tvær kr. VEGAGERÐIN fer nú yfir tilboðin sem bárust í hluta Suðurstrandar- vegar og að sögn Rögnvaldar Gunn- arssonar, forstöðumanns fram- kvæmdadeildar Vegagerðarinnar, má fullyrða að lægsta tilboðinu verði ekki tekið. Það kom frá Vegamönn- um ehf. í Reykjavík og var 23,6% af kostnaðaráætlun. Rögnvaldur segist aldrei hafa séð slíka tölu áður og full- yrða megi að um óraunhæft tilboð sé að ræða. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær bárust 22 tilboð í verk- ið, sem er 5,6 km kafli af Suður- strandarvegi vestanverðum frá Grindavík. Kostnaðaráætlun var upp á 150 milljónir króna og voru tilboðin frá verktökum alls staðar að af landinu. Rögnvaldur telur að þegar yfirferð ljúki verði haft samband við þá bjóð- endur sem teljast verða með þrjú hagstæðustu tilboðin og þau sem uppfylla kröfur Vegagerðarinnar. Yfirferðin muni taka um vikutíma. Óvenju mörg tilboð „Ég man ekki eftir að hafa séð svona mörg tilboð í einu útboði. Það virðist vera einhver skortur á jarð- vinnuverkefnum og miðað við stærð þessa verks eru tilboðin líka í lægri kantinum,“ segir Rögnvaldur, en næst á eftir Vegamönnum voru nokkrir verktakar með tilboð frá 56– 70% af áætlun. Næsta stóra vegagerðarverkefnið er mislæg gatnamót og færsla á Suð- urlandsveginum í Svínahrauni. Rögnvaldur segir að fróðlegt verði að sjá niðurstöðu þess útboðs og hvort þátttaka verði jafnmikil og í Suður- strandarvegi. Lægsta tilboðið talið óraunhæft Vegagerðin er að yfirfara tilboðin sem bárust í hluta Suðurstrandarvegar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.