Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 15
MINNSTAÐUR
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
Dagskrá
13.15 Aðalfundur Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Ávarp varaformanns Sjálfstæðisflokksins og
fjármálaráðherra, Geirs H. Haarde.
14.30 Opinn fundur:
Bættur hagur heimilanna - Áfram
Formaður Varðar - Fulltrúaráðsins flytur inngangsorð.
Sr. Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur.
Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Landsbankans.
Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri
peningamálasviðs Seðlabanka Íslands.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur hjá Ráðgjöf
og efnahagsspá ehf.
Pallborðsumræður
Stjórnandi: Pétur Blöndal
Þingforseti: Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
20.0 Þorrablót sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
fer fram í Gullhömrum, Grafarholti
Húsið opnað kl. 19.00
Heiðursgestur: Geir H. Haarde fjármálaráðherra
Blótsstjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Bættur hagur heimilanna
- Áfram
Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna
laugardaginn 22. janúar 2005 á Hótel Sögu, Sunnusal
Ka
na
rí
í a
lla
n
ve
tu
r
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
49.880 kr.
Nettilboð frá
m.v. að 2 ferðist saman.
Innifalið er flug, gisting í
14 nætur í íbúð
á Parque Golf,
íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Komdu me› til Kanarí
-á sólríkar og su›rænar
strendur og njóttu
sólar í skammdeginu.
á mann
26. jan., 9., 16.
og 23. feb. og 2. mars
Álftanes | Ákveðið var að lækka
álagningarprósentu fasteignaskatts
af íbúðarhúsnæði á Álftanesi úr
0,34% í 0,32% til þess að draga úr
áhrifum mikillar hækkunar fast-
eignamats um síðustu áramót á fast-
eignagjöld í sveitarfélaginu. Þetta
var samþykkt á fundi bæjarstjórnar
á þriðjudag. Jafnframt var sam-
þykkt að lækka lóðarleigu úr 0,40% í
0,32% af lóðarmati.
Í greinargerð bæjarstjórnar með
tillögu um lækkun skattsins kemur
fram að fasteignamat íbúðahúsnæðis
á Álftanesi hækkaði að meðaltali um
13% í fjölbýli og 20% í sérbýli um
áramótin. Með þeirri ákvörðun að
lækka álagningarprósentuna séu að
fullu felld út áhrif hækkunar fast-
eignamatsins umfram forsendur
fjárhagsáætlunar 2005.
Lækka
fasteignaskatta
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Garðabær | Til stendur að leggja
hringtorg á Arnarnesveg, og sameina
með því gatnamót vegarins við Fífu-
hvammsveg annars vegar og Bæj-
arbraut hins vegar í eitt stórt fimm
arma hringtorg, og mun fimmti arm-
urinn tengja hið nýja Akrahverfi við
veginn.
Mikið hefur verið um slys á þessum
kafla vegarins og á hringtorgið að
draga verulega úr þeim, segir Eiríkur
Bjarnason, bæjarverkfræðingur í
Garðabæ. Bæjarráð Garðabæjar hef-
ur samþykkt þessar framkvæmdir
fyrir sitt leyti, en bæjaryfirvöld í
Kópavogi koma einnig að málinu, og
verður fjallað um málið í ráðum bæj-
arins í þessari viku. Garðabær og
Vegagerðin munu fjármagna verkið,
en Vegagerðin hefur enn ekki tryggt
fjármögnun á því.
Vilja hringtorg
á Arnarnesveg
Kópavogur | Nýtt heimili og dag-
þjálfun fyrir einstaklinga með
minnissjúkdóma var opnað form-
lega í gær, og munu fyrstu íbú-
arnir flytja í húsið um næstu
helgi. Húsið hefur fengið nafnið
Roðasalir, en þar er aðstaða fyrir
átta íbúa, auk þess sem dag-
þjálfun verður á staðnum fyrir
fólk sem enn býr í eigin húsnæði.
Roðasalir er nýtt 700 fermetra
hús sem er sérhannað fyrir þá
starfsemi sem í því verður.
Starfsemin þar verður tvenns-
konar, segir Svanhildur Þeng-
ilsdóttir, forstöðumaður heimilis-
ins.
„Roðasalir eru ætlaðir til að
mæta þörfum einstaklinga með
minnissjúkdóma. Annars vegar er-
um við með sambýli fyrir átta ein-
staklinga. Þar eru átta ein-
staklingsherbergi þar sem fólk
dvelur, allt í mjög heimilislegum
anda. Hins vegar er það svokölluð
dagdvöl. Þá kemur fólk til okkar
klukkan 8 á morgnana og dvelur
fram til klukkan 16 á daginn.“
Dagdvölin er ætluð þeim sem
enn geta búið á eigin heimili, en
þurfa ef til vill aðstoð og umönnun
á daginn. „Fólkið kemur hingað og
borðar hjá okkur morgunverð, og
er svo hjá okkur við ýmiskonar
tómstundaiðju og afþreyingu. Hér
fær það ýmsa þjónustu, aðstoð við
böðun og annað slíkt, og fær alla
málsverði hér,“ segir Svanhildur.
Hún segir mjög mikilvægt fyrir
fólk að geta búið eins lengi á eigin
heimili og hægt er, og þar hjálpi
dagvist eins og boðið verður upp á
í Roðasölum vissulega mikið til.
Hlutverk heimilisins er að auka
lífsgæði þeirra einstaklinga sem
þangað koma, og fá íbúar og gest-
ir í dagvist bæði andlega upp-
örvun og líkamlega þjálfun. Einn-
ig léttir dagvistin undir með
aðstandendum, sem eru þá örugg-
ir um maka eða foreldri á daginn.
Umhverfi Roðasala hentar mjög
vel til útivistar og segir Svanhild-
ur mikils vert að íbúar og fólk
sem kemur í dagvist eigi greiða
leið á göngustíg og geti fengið
fjölbreytta hreyfingu. „Allt að-
gengi hér er mjög þægilegt til
gönguferða og almennrar hreyf-
ingar. Svo erum við með leikfimi,
létta stólaleikfimi þar sem við
hreyfum bæði hendur og fætur,
lítil lóð, teygjur og ýmiskonar
þjálfun.“
Svanhildur segir mikilvægt að
hafa heimilisbrag á starfseminni.
Allur matur er eldaður á staðnum,
og íbúar hjálpa gjarnan til eftir
getu, t.d. við að leggja á borð,
skræla grænmeti, hella upp á kaffi
eða annað við hæfi. Markmiðið er
að standa vörð um sjálfsmynd og
sjálfsvirðingu allra einstaklinga
sem dvelja innan veggja hússins,
og munu starfsmenn fá sérstaka
fræðslu um sjúkdóminn, þróun
hans og eðli, sem og um umönnun
og samskipti við einstaklinga með
minnissjúkdóma.
Nýtt heimili og dagþjálfun fyrir minnissjúka opnað
Morgunblaðið/Jim Smart
Roðasalir er nýtt 700 fermetra hús, sérhannað fyrir þá starfsemi sem í því verður.
Eykur lífsgæði fólks
með minnissjúkdóma
Reykjavík | Fundur í Félagi eldri
borgara í Reykjavík samþykkti á
þriðjudag að selja húseign félagsins
við Glæsibæ. Félagið hefur átt eign-
ina undanfarinn áratug og er um að
ræða tæplega 900 m2 hæð í húsinu.
Að sögn Ólafs Ólafssonar for-
manns félagsins var húseignin orðin
það dýr í rekstri að félaginu var
ekki stætt á öðru en að selja hana.
Söluverðið er trúnaðarmál. Félagið
leitar nú að 3–400 fermetra húsnæði
til leigu eða kaups fyrir starfsemi
sína.
Húsnæði
Félags eldri
borgara selt