Morgunblaðið - 20.01.2005, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TALSýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 6, 8 og 10.
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10 ára
QUEEN
LATIFAH
JIMMY
FALLON
GISELE
BÜNDCHEN
I
Á FULLRI FERÐ
MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI
GAMANSPENNUMYND
QUEEN
LATIFAH
JIMMY
FALLON
GISELE
BÜNDCHEN
I
Á FULLRI FERÐ
MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI
GAMANSPENNUMYND
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
ÍSLANDSBANKI
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Einstök mynd um höfund hinnar
sígildu sögu um Pétur Pan.
Stórkostleg upplifun!
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6 og 10. Síðasta sýning.
MMJ kvikmyndir.com
SV Mbl.
Ó.Ö.H. DV
Ó.Ö.H. DV
„Ein snjallasta mynd ársins...
Ógleymanleg...ljúf
kvikmyndaperla“
SV Mbl.
MMJ kvikmyndir.com
„Ein snjallasta mynd ársins...
Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“
SIDEWAYS
FRUMSÝND Á MORGUN
Udo Kier er tvímælalaust einhver kyn-legasti kvistur kvikmyndanna, leik-ari sem allir þekkja í sjón en fæstirvita nafnið, hvað þá einhver frekari
deili á. Það þarf heldur ekki að eyða löngum
tíma í að kanna feril hans til að komast að því að
fáir núlifandi leikarar hafa leikið í eins mörgum
myndum og hann og fáir hafa leikið í eins fjöl-
breyttum myndum og hann. Það er nefnilega
leitun að þeim sem jöfnum höndum leika í
Hollywood-blöðrum á borð við Ace Ventura og
Blade og evrópskum listaspírum á borð við Lili
Marleen og Dogville – sem hefur unnið með eins
ólíkum og heimskunnum kvikmyndagerð-
armönnum og Paul Morrissey, R.W. Fass-
binder, Gus Van Sant, Lars Von Trier, Michael
Bay og Wim Wenders.
„Ég kann að meta hvorutveggja; verksmiðju-
vinnuna í Hollywood og að vinna þar sem hjart-
að mitt er, að gerð smærri listrænni mynda með
djörfum leikstjórum og allra helst byrjendum,“
bunaði Kier út úr sér af ákefð og áhuga þar sem
hann sat í morgunsólinni á heimili sínu í Palm
Springs í Kaliforníu-ríki.
Prófar allar myndir einu sinni
Einn þessara „byrjenda“ er Marteinn Þórsson
en hann og félagi hans Jeff Renfroe leikstýrðu
Kier í sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd, vís-
indaskotna sálfræðitryllinum One Point O, sem
frumsýnd er hér á landi í kvöld.
„Það jafnast ekkert á við það að fá að taka
þátt í gerð fyrstu mynda einhvers,“ skýrir Kier.
„Ég sækist sérstaklega eftir því vegna þess að
engir eru ástríðufyllri en leikstjórar sem eru að
gera sína fyrstu mynd. Þeir Marteinn og Jeff
voru það svo sannarlega og ég myndi ekki hika
við að gera fleiri myndir með þeim.“
Udo Kier var einn fyrsti leikarinn sem féllst á
að fara með hlutverk í myndinni. „Það var hand-
ritið. Ég heillaðist strax af því og sagði umboðs-
manni mínum að ég vildi leika í þessari mynd.
Svo leið og beið því ekki tókst að afla nægilegs
fjármagns til að hefja framleiðslu. En ég
gleymdi ekki myndinni, þannig að þegar ég
frétti af því að búið væri að fá þýskan bakhjarl
sem ég þekkti þá minnti ég á mig.“
Kier hlýtur að teljast með djarfari leikurum;
segist tilbúinn til að „prófa að leika í öllum
myndum einu sinni“.
„Ég hef gaman af því að ferðast og kynnast
fólki. Um það snýst kvikmyndagerð. Mér líður
sjaldnast betur en í miðjum tökum, á bólakafi
þegar brjálað er að gera. Ég nýt þess að vinna,
og setjast svo niður með öllu þessu hæfi-
leikaríku fólki með rauðvínsglas að loknum erf-
iðum tökudegi. Stundum vil ég alls ekkert
hætta, vil halda áfram að taka upp fram á nótt.“
– En það er svo margir leikarar sem kvarta
undan vinnuálagi og þykir bókstaflega leið-
inlegt að taka þátt í tökunum, vilja bara sjá sig á
hvíta tjaldinu?
„Ég veit. Það er fullt af slíku fólki í faginu.
Hugsar ekki um annað en vinnutímareglur
stéttarfélagsins og að allt vinnuferlið verði að
vera samkvæmt viðurkenndum reglugerðum.
Þetta fólk á að hætta að leika, gerast bílasalar
og láta okkur hinum eftir vinnu sína, okkur sem
tökum þátt í kvikmyndagerð af ástríðu.“
Bremsulaus lífskúnstner
Og það leyndi sér ekki í þessu símasamtali að
Kier er maður ástríðufullur. „Ég elska kvik-
myndir og allt sem þeim viðkemur, en það er
líka margt annað sem ég elska; ég mála t.d.,
safna listaverkum og antíkhúsgögnum og hef
yndi af garðyrkjustörfum. Svo nota ég allar frí-
stundir til að lagfæra húsið mitt. Ég er vinsæl-
asti viðskiptavinurinn í byggingavöruversl-
unum hér í Palm Springs.“ Og þannig þeytist
þessi skemmtilegi og stórkenjótti viðmælandi
úr einu í annað, svo blaðamaður á fullt í fangi
með að halda í við hann og koma honum að efn-
inu, sem er kvikmynd Marteins og Jeffs. Og
áfram bunaði hann út úr sér eins og bremsulaus
BMW á þýskri hraðbraut:
„Segistu vera frá Íslandi? Vá, mig hefur alltaf
langað að koma til Íslands - finndu fyrir mig
ástæðu til að koma til Íslands - talaðu við ein-
hvern fyrir mig - finndu eitthvað handa mér að
gera þarna - komdu þeim skilaboðum áleiðis að
mig langi til að leika í bíómynd á Íslandi - ann-
ars veit ég voðalega lítið um landið, veit að þar
er kalt og dimmt og að Björk sé þaðan, svo veit
ég hver Friðrik [Þór Friðriksson] er - kann vel
við myndir hans, gæti vel hugsað mér að vinna
með honum - ég væri fínn í að leika í mynd á Ís-
landi - þið eruð heppin að eiga Björk að, hún er
besta landkynning sem nokkur þjóð gæti feng-
ið, alveg yndislegur listamaður, svo einstök, svo
einlæg - það voru forréttindi að fá að gera með
henni mynd, reyndar lékum við aldrei saman í
Dancer in the Dark, hún var búin þegar ég kom
til sögunnar, en hún gerði alveg ótrúlega hluti í
þessari mynd, hún er alveg ótrúleg - mig langar
að hitta hana, þú verður að hjálpa mér að koma
því í kring - langar að hitta hana og son hennar,
helst manninn hennar líka [Matthew Barney],
ég er mikill unnandi listaverka hans - ég er
nefnilega listaverkasafnari, sjáðu til.“
– Já, þú hefur unnið mikið með Lars Von
Trier og leikið í nánast öllum myndum hans,
tókst blaðamanni loksins að lauma inn.
„Já, í nær öllum. Ég myndi aldrei segja nei
við Lars. En ég myndi heldur aldrei leyfa hon-
um að leikstýra mér, hann getur það ekki. Ég
mæti bara á settið og geri það sem ég kann. Og
ef hann maldar í móinn og biður mig að gera
eitthvað annað, segi ég honum að hann hefði þá
bara átt að skrifa hlutverkið öðruvísi. Við skilj-
um hvor annan ég og Lars.“
– Myndirðu kannski segja að þú værir einn af
fáum leikurum sem skilur Lars?
„Já, hann er misskilinn maður. Ég líka.“
– Hann er einnig mjög umdeildur .
„Já. Annaðhvort elskar fólk hann eða hatar.“
– Heldurðu að þú sért umdeildur?
„Nei, annaðhvort elskar fólk mig eða veit ekki
af mér,“ segir Kier og hlær hratt - og hátt.
Alveg sama um vondu myndirnar
Kier hefur verið elskaður eða afskiptur í nær 4.
áratugi. Allt frá fyrstu myndum hefur hann haft
djúpstætt „költ“-orðspors - og gerir enn.
„Þú hefur örugglega lesið um mig á Netinu,
hvernig ég fæddist. Ég er lánsamur djöfull. Það
var í Köln árið 1944, í seinni heimsstyrjöld, í
miðri loftárás. Móðir mín hafði beðið um að
liggja inni lengur eftir að hún átti mig. Það féll
sprengja á spítalann og við mæðginin fundumst
í rústunum.“ Udo Kierspe, eins og hann hét þá,
hóf leikferil sinn í Lundúnum, fyrir slysni, 19
ára - hafði farið þangað til að læra ensku.
„Költ“-stimpilinn fékk hann eftir að hann
kynntist Paul Morrissey og fékk hlutverk í
tveimur Andy Warhol-myndum, Flesh for
Frankenstein og Blood for Dracula.
„Af öllum mínum myndum get ég nefnt tvær
sem breyttu lífi mínu hvað mest; Flesh for
Frankenstein – vegna þess að eftir hana hef ég
alltaf getað farið mínar eigin leiðir – og My Own
Private Idaho – en hún opnaði mér dyrnar til
Bandaríkjanna, færi mér atvinnuleyfi og kenni-
tölu, skapaði mér nafn og andlit í Hollywood.
Upp frá því fékk ég reglulega hlutverk í stórum
myndum fyrir hærri summur en áður.“
– En hefur umboðsskrifstofan þín aldrei beð-
ið þig um að leika í færri og betri myndum?
„Betri myndum? Það er engin leið að vita fyr-
irfram hvort myndirnar sem ég leik í verði góð-
ar eða slæmar. Auðvitað er gleðilegra þegar
þær reynast góðar en mér er líka alveg sama
þótt þær séu vondar. Þá bara horfi ég ekki á
þær. Eins og ég segi alltaf: „Þetta er bara bíó-
mynd.“ Ég hef ekki séð allar myndir sem ég hef
leikið í og hef reyndar lítinn áhuga á sumum
þeirra. Ég er t.d. ekki búinn að sjá Surviving
Christmas og lifi það af. Hver segir að maður
verði að sjá allar myndir sem maður leikur í?“
Metið hans Lee í hættu?
Hinn lúsiðni Kier hefur leikið í yfir 150 myndum
á ferlinum og segist hvergi nærri hættur. Ætli
markmiðið sé e.t.v. á slá met Christopher Lees?
(Hefur leikið í yfir 250 myndum og komst í
heimsmetabók Guinness fyrir vikið.)
„Auðvitað, og ég hætti ekki fyrr. Geri mynd-
irnar sjálfur ef þess þarf. Eina með mér út í
garði, eina með mér í sólbaði, eina með mér og
hundunum mínum, eina með mér í baði – alveg
þangað til ég er búinn að slá metið.“
Kier hefur þegar leikið í nálægt tíu myndum
síðan hann tók þátt í gerð One Point O árið
2003. „Það er nóg að gerast. Fullt af spennandi
myndum. Næst leik ég í mynd í Kambódíu og
var að enda við að klára blóðsugumynd í Rúm-
eníu. Ég elska blóðsugumyndir. Við Marteinn
og Jeff höfum rætt um að gera blóðsugumynd
saman. Mig langar að búa til framhald Blood for
Dracula og nota afturhvörf – „flassbakk“ – beint
úr þeirri mynd. Mig langar að gera blóðsugu-
mynd á Íslandi - heldurðu að það væri ekki ein-
hver til í að gera með mér blóðsugumynd á Ís-
landi?“
Blaðamaður jánkar um hæl. „Auðvitað. Hve
margar?“
Kvikmyndir | Udo Kier er duglegastur leikara og fer með hlutverk í hálfíslensku myndinni One Point O
„Annaðhvort elskar fólk
mig eða veit ekki af mér“
Udo Kier fer með hlutverk hins dularfulla Derricks í One Point O.
Hann hefur leikið í yfir 150
kvikmyndum og segist stað-
ráðinn í að bæta met Christ-
ophers Lees. Þýski leikarinn
Udo Kier ræðir við Skarp-
héðin Guðmundsson um
eina þá nýjustu, One Point
O, eftir Martein Þórsson og
Jeff Renfroe.
skarpi@mbl.is
One Point O verður forsýnd í kvöld að við-
stöddum leikstjóranum Marteini Þórssyni.
Almennar sýningar hefjast á morgun.