Morgunblaðið - 28.01.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2005 15
ÚR VERINU
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
71
14
0
1/
20
05
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
71
14
0
1/
20
05
Aðalfundur
Landsbanka Íslands hf.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram
til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með
skriflegum hætti eigi síðar en átta dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal um framboð til
bankaráðs eigi síðar en 31. janúar 2005.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fela í sér hækkun á heimild bankaráðs
til hækkunar hlutafjár. Er hluthöfum bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu
liggja frammi í aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, sjö
dögum fyrir aðalfund. Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn
á Nordica hótel, laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00.
410 4000 | landsbanki.is
GERT er ráð fyrir því að hreinn
hagnaður sjávarútvegsins hafi verið
ríflega 6% á síðasta ári og verði svip-
aður á þessu. Það er nokkur lækkun
frá árunum 2002 og 2003 en þá var
hreinn hagnaður um 10%. Fjár-
málaráðuneytið hefur birt samhliða
þjóðhagsspá mat á afkomuhorfum í
sjávarútvegi í undanförnum
skýrslum og kemur þetta fram þar.
Afkomumatið byggist á framreikn-
ingi á rekstri greinarinnar frá 2003
sem er ný samantekt frá Hagstofu
Íslands. Afkoma sjávarútvegs á
árinu 2003 var töluvert betri en
framreikningur ráðuneytisins gaf til
kynna. Þessi útkoma virðist sýna að
greinin getur aðlagast með skjótum
hætti þegar rekstrarskilyrði versna,
en þess ber að geta að gengi íslensku
krónunnar hækkaði um 6%, erlent
verð sjávarafurða lækkaði um 5% og
framleiðslan dróst saman um ½%
árið 2003. Samkvæmt samantekt
Hagstofunnar var vergur hagnaður
(EBITDA) um 21% af tekjum í stað
tæplega 16% eins og ráðuneytið
hafði áætlað með hliðsjón meðal
annars af framangreindum rekstr-
arskilyrðum. Munurinn er enn meiri
þegar um er að ræða hreinan hagn-
að fyrir beina skatta en þar munar
miklu um nýtt mat Hagstofunnar á
svonefndri árgreiðslu sem lækkar
um 2 ma. kr. milli 2002 og 2003.
Útvegurinn
stendur af
sér öldurótið
! " #
$ % $ $
$
&'()
$* *
+,
-.
/0.-
1.
-.
-.0
--.-
00.
.'
-.
--.
--'.1
/'.'
.-
-.1
1.
-.
-.
-.-
-.
1./
+$
2
3
4 *$ $
*5
6 78
9
: ;$
; 1.(
.(
<.(
<.(
.(
-.(
.(
!" #
$%&
.(
.(
.1(
<-.(
.(
<.(
.(
ÞORSK í Breiðafirði skortir æti að
mati Jóns Kristjánssonar, fiskifræð-
ings. Félag smábátaeigenda á Snæ-
fellsnesi efndi til
fundar í Ólafsvík
fyrir skömmu
undir yfirskrift-
inni Hvað er að
gerast í sjónum?
Þar greindi Jón
frá niðurstöðum
af rannsóknum
sínum á vexti
þorsks á Breiða-
firði. Meginniður-
staða Jóns er sú að vöxtur þorsks sé
eðlilegur og nokkuð góður fyrstu
þrjú ár ævinnar eða þar til hann nær
1–1½ kg þyngd en þá hægi verulega
á vextinum og hann nánast stöðvist.
Telur Jón að það megi rekja til
skorts á æti hjá þorskinum.
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
Jóhann Sigurjónsson, og fleiri sér-
fræðingar frá Hafró andmæltu þess-
um niðurstöðum Jóns og töldu að
rannsaka þyrfti þetta betur. Í lok
fundar lýsti þó forstjórinn því yfir að
sú vinnuregla yrði tekin upp hjá
stofnuninni að ekki yrði lögð til
reglugerðarlokun fyrir línu á grunn-
slóð nema að undangenginni aldurs-
greiningu.
Ein meginástæða þessa fundar var
megn óánægja meðal smábátaeig-
enda með lokun innanverðs Breiða-
fjarðar fyrir línuveiðum stóran hluta
síðustu haustvertíðar. Fundurinn
samþykkti ályktun sem er eftirfar-
andi:
Átelja vinnubrögðin
„Opinn fundur Snæfells – félags
smábátaeigenda á Snæfellsnesi hald-
inn í Ólafsvík 26. janúar 2005 – átelur
vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar
sem viðhöfð voru við ákvörðun um
reglugerðarlokun á sunnanverðum
Breiðafirði 6. nóvember sl. Stofnunin
sagði of hátt hlutfall ungþorsks vera í
afla línubáta og því hefði hún lagt til
við sjávarútvegsráðherra að hann
lokaði veiðisvæðinu. Forsenda til-
lagna stofnunarinnar til ráðherra
voru lengdarmælingar sem reiknað-
ar voru til aldurs. Snæfell mótmælti
ákvörðun sjávarútvegsráðherra
harðlega og benti á að þó fiskur væri
undir viðmiðunarmörkum Hafrann-
sóknastofnunar væri hér um að ræða
fisk sem orðinn væri kynþroska og
eldri en 4 ára. Hann ætti því að veiða
en ekki friða.
Snæfell ákvað að ráða til sín óháð-
an vísindamann til að gera rannsókn-
ir á þorski smærri en 55 cm. Nið-
urstöður liggja nú fyrir. Á
veiðisvæðinu er hægvaxta kynþroska
fiskur undir viðmiðunarmörkum.
Fundurinn harmar að röng ráðgjöf
hafi orðið til þess að hamla atvinnu
fjölda manns á Snæfellsnesi í einn og
hálfan mánuð. Fundurinn krefst þess
að ríkisstjórn Íslands láti fara fram
heildarendurskoðun á reglum sem
gilda um lokun veiðisvæða og að
framkvæmt verði mat óháðra aðila á
friðunarstefnu Hafrannsóknastofn-
unar á smáþorski og árangri hennar
við uppbyggingu þorskstofnsins. Þar
til niðurstaða liggur fyrir verði sjáv-
arútvegsráðherra óheimilt að beita
reglugerðarlokunum á grunnslóð
nema fyrir liggi aldursgreining á
grundvelli rannsóknar af kvörnum
eða af hreistri.“
Þorskinn í Breiða-
firði vantar æti
Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson
Breiðafjörður Smábátasjómenn og aðrir áhugamenn voru fjölmennir á
fundinum sem haldinn var í Klifi í Ólafsvík.
Jón Kristjánsson
TILRAUNIR norska athafna-
mannsins Kjells Inge Rökke til að
sameinast íslenzkum fyrirtækjum
hafa farið út um þúfur. Rökke reyndi
að fá bæði Samherja og HB Granda
til samstarfs við sjávarútvegsfyrir-
tæki sitt Aker Seafood með það í
huga að komast inn í sölukerfi Ís-
lendinga.
Frá þessu er greint í norskum fjöl-
miðlum, meðal annars Dagens Nær-
ingsliv og á fréttavefnum Intrafish.
Þar segir að viðræður hafi staðið yfir
vikum saman en nú sé ljóst að ekkert
verði úr sameiningu. Aker Seafood
er með útgerð og fiskverkun í Noregi
og Danmörku og er mjög stórt í snið-
um eða svipað og íslenzku fyrirtækin.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir það ekki rétt
að rætt hafi verið um sameiningu eða
gagnkvæma eignaraðild við Aker
Seafood. Hins vegar hafi eigendur
Samherja og Aker Seafood, rætt um
hugsanlega samvinnu á mörkuðum
fyrir sjávarafurðir.
Sturlaugur Sturlaugsson, forstjóri
HB Granda, vildi ekkert tjá sig um
þetta mál.
Rökke
hafnað?