Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 1
Konur í korseletttoppum og sjóð-
heitum satínkjólum | Daglegt líf
Lesbók | Íslensk myndlist 1930–1945 Hugmyndir um íslenskan her
í 400 ár Börn | Hvað þýða nöfnin? Keðjusagan Íþróttir | Þórður og
Tryggvi til Stoke Haukastúlkur unnu í körfu, en töpuðu í handbolta
Hafmeyjukjólar
og glansandi efni
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
ÞAÐ hljóp heldur betur á snærið hjá Björgvin
Birgissyni og áhöfn hans á Hákoni EA 148 nú í vik-
unni. Þeir fengu ríflega 720 tonn af góðri síld um
miðja vikuna, þar af 300 tonn í einu tíu mínútna
hali. Afurðaverðmæti þess afla er hvorki meira né
minna en 12,7 milljónir króna, eða ríflega milljón á
mínútu.
Björgvin segir að þeir hafi verið á leið út frá
Norðfirði á loðnumiðin þegar þeir sáu þessar fínu
lóðningar. „Við drifum síldarpokann undir trollið
og hentum því út. Það tók tíu mínútur að ná 300
tonnum svo það er óhætt að segja að það hafi verið
góð veiði. Það er ekki oft sem það gerist. Síðan tók-
um við þrjú höl, 160 tonn í tveimur og 100 í einu.
Við fengum þetta í Norðfjarðardýpi og á Gerp-
isgrunni, en liggjum núna inni á Norðfjarðarflóa og
erum að frysta.
Síldin geymd í sjókælitönkum
Við erum með um 50% nýtingu í flökuninni og
fáum 85 krónur á kílóið af flökum, svo þetta stóra
hal skilar afurðum upp á 12,7 milljónir króna. Við
verðum að frysta fram á mánudag, en þá verðum
við komnir með fullfermi, því við erum með 320
tonn af frystri loðnu um borð.
Við geymum síldina í sjókælitönkum fyrir flökun
og erum því með úrvals hráefni og algjörlega átu-
lausa síld. Með þessari síldveiði nú verðum við bún-
ir með síldarkvótann og förum aftur á loðnuveið-
ar,“ segir Björgvin.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Yfir milljón
á mínútu hjá
Hákoni EA
Óvænt síldveiði
ÖRYGGI var í gær hert veru-
lega í Írak í aðdraganda þing-
kosninganna sem fara þar fram
á morgun, sunnudag, en m.a.
ríkir nú útgöngubann á kvöldin,
hömlur hafa verið settar á bíla-
umferð, landamærum Íraks
lokað og flugumferð til Bagdad
stöðvuð. Skæruliðar í landinu
hafa hvatt Íraka til að hunsa
kosningarnar og í gær stóðu
þeir fyrir nokkrum árásum með
þeim afleiðingum að a.m.k.
fimm bandarískir hermenn og
tólf íraskir borgarar biðu bana.
Kosningarnar fóru í reynd af
stað í gær en þá gátu Írakar
sem búsettir eru fjarri heima-
högunum, en hafa engu að síður
kosningarétt, byrjað að kjósa.
Sumir óttast ofsóknir
Fyrstir til að kjósa voru Írak-
ar sem búsettir eru í Ástralíu
en alls hafa rúmlega 280.000
manns í fjórtán ríkjum skráð
sig til þátttöku. Þetta er minna
en reiknað hafði verið með en
margir hafa kosið að taka ekki
þátt af ótta við ofsóknir síðar
gegn þeim sjálfum eða ættingj-
um þeirra í Írak.
Mikið ofbeldi undanfarna
daga og vikur varpar skugga á
kosningarnar í Írak. Tilkynnti
bráðabirgðastjórn landsins í
gær að hún hefði handtekið tvo
nána samstarfsmenn Jórdan-
ans Abu Musab al-Zarqawi en
samtök hans hafa lýst á hendur
sér mörgum af verstu ódæðis-
verkunum í Írak undanfarna
mánuði. Sögðust talsmenn
stjórnarinnar vongóðir um að
þeir myndu hafa hendur í hári
al-Zarqawis sjálfs innan tíðar.
Reuters
Íraskur maður, sem búsettur er í Íran, greiðir atkvæði í írösku þingkosningunum í Teheran í gær.
Öryggi hert vegna
kosninga í Írak
Bagdad, London. AFP.
Bandamenn/16
ANDERS Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, fór í gær
fram á að múslimaklerkar í Dan-
mörku létu það vera að skipta sér af
stjórnmálum landsins, en hópur
klerka er sagður vera að undirbúa
herferð gegn ríkisstjórninni og vilja
þeir hvetja kjós-
endur til að kjósa
stjórnarand-
stöðuflokkana í
þingkosningum
sem fara fram 8.
febrúar.
Múslimaklerk-
ar í Danmörku
hafa lengi verið
ósáttir við inn-
flytjendastefnu
stjórnarinnar og
stuðningur hennar við innrásina í
Írak hefur einnig verið umdeildur.
Fogh sagði hins vegar í gær að
múslimaklerkar ættu ekki að skipta
sér af dönskum stjórnmálum, hver
sem afstaða þeirra til þjóðmála væri.
Sagði hann að prestar dönsku þjóð-
kirkjunnar notuðu ekki kirkjur til að
hvetja kirkjugesti til að kjósa
ákveðna flokka. „Í Danmörku er
stjórnmálum og trúmálum haldið að-
skildum,“ sagði Fogh.
Þessu mótmælti raunar Kamal
Qureshi, þingmaður Sósíalíska þjóð-
arflokksins, SF. Benti hann á að
tveir þingmenn Danska þjóðar-
flokksins, sem styður stjórnina,
væru jafnframt prestar og að þeir
hefðu talað fyrir stefnumálum sínum
bæði úr ræðupúlti danska þingsins
og kirkjunnar.
Íslam er annar stærsti trúflokkur
í Danmörku en um 170 þúsund
manns, eða um 3% þjóðarinnar, eru
skráð í íslamska söfnuði.
Fogh setur
ofan í við
múslima-
klerka
Segir afskipti klerka af
stjórnmálum óeðlileg
Anders Fogh
Rasmussen
Kaupmannahöfn. AFP.
LEIKKONAN Sharon Stone stal
senunni á Heimsviðskiptaráð-
stefnunni í Davos í Sviss í gær en
henni tókst þá að safna einni millj-
ón Bandaríkjadala, 62 milljónum
ísl. kr., til handa bágstöddum
börnum í Afríku á aðeins fimm
mínútum.
Stone var stödd á fundi um fá-
tækt í heiminum sem ýmis fyr-
irmenni sóttu. Hagfræðingurinn
Jeffrey Sachs hafði nýlokið máli
sínu, þar sem kom fram að 150
þúsund börn í Afríku létust í mán-
uði hverjum vegna þess að þau
hefðu ekki rúmnet til að verjast
moskítóflugum, sem dreifa mal-
aríu. Stone stóð þá upp og bað um
orðið. Hvatti hún aðra viðstadda
til að taka þátt í því með sér að
hjálpa Benjamin Mkapa Tansan-
íuforseta, sem var meðal þátttak-
enda í pallborðsumræðum, að
draga úr barnadauða í Afríku.
Hét hún sjálf tíu þúsund dollurum.
Aðrir í salnum létu ekki sitt eftir
liggja eins og kom í ljós er fund-
arstjórinn, Bill Frist, greindi frá
afrakstri þessarar óundirbúnu
fjáröflunar skömmu síðar. Reuters
Stone stal
senunni í Davos
Safnaði milljón dollurum á fimm
mínútum handa börnum í Afríku
FORMAÐUR rússneskrar nefnd-
ar, sem rannsakar gíslatökuna í
barnaskóla í Beslan í september,
hefur skýrt frá því að háttsettir
menn í rússneska hernum hafi
hjálpað gíslatökumönnunum.
Tveir samverkamannanna hafi
þegar verið handteknir og þriggja
til viðbótar sé leitað. Þeirra á með-
al séu háttsettir herforingjar.
„Án samverkamanna hefði ver-
ið ógerningur að fremja svo um-
fangsmikið hryðjuverk,“ sagði
formaður nefndarinnar, Alexand-
er Torshín. Gíslatökunni lauk með
skotbardaga og sprengingum sem
kostuðu 330 manns lífið, þar af var
tæpur helmingur börn. Shamil
Basajef, tétsneskur hryðjuverka-
foringi, hefur lýst gíslatökunni á
hendur sér.
Íbúar Beslan, sem er í Norður-
Ossetíu, eru mjög óánægðir með
rannsóknina og gruna nefndina
um að leyna upplýsingum um
hvernig hryðjuverkamennirnir
gátu laumað miklu magni af
sprengjum og byssum í skólann.
Rússneskir fjölmiðlar hafa sagt að
hryðjuverkamennirnir kunni að
hafa mútað herforingjum til að
geta flutt vopnin.
Herforingjar
hjálpuðu gíslatöku-
mönnum í Beslan
Moskvu. AP.
STOFNAÐ 1913 27. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is