Morgunblaðið - 29.01.2005, Page 6
6 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÞETTA var afar lærdómsríkt. Ég
held að við höfum fengið mjög
góða innsýn inn í það hvernig
starfið er á bensínstöðvunum,“
sagði Hjörleifur Jakobsson, for-
stjóri Olíufélagsins, í samtali við
Morgunblaðið, en hann brá sér í
gær, ásamt miklum meirihluta
starfsmanna á aðalskrifstofu Olíu-
félagsins, í starfskynningu út á
þjónustustöðvar félagsins á höf-
uðborgarsvæðinu.
Að sögn Hjörleifs voru það
Esso-skólinn og markaðsdeild
neytendasviðs sem stóðu fyrir
uppákomunni.
„Við reynum með reglubundum
hætti að veita starfsfólki innsýn í
hvað aðrir innan fyrirtækisins eru
að gera og nú var komið að okkur
að kynnast störfunum úti á þjón-
ustustöðvum félagsins þar sem ná-
lægðin við viðskiptavininn er hvað
mest,“ segir Hjörleifur og tekur
fram að einnig sé uppátækið liður
í því að efla samstöðu meðal
starfsmanna.
Aðspurður segist Hjörleifur
hafa byrjað daginn á því að af-
greiða pylsur, því næst verið á
kassa og loks tekið vaktina úti þar
sem hann var m.a. að dæla bens-
íni, setja á bíla rúðupiss og þvo
bílrúður, en þetta var að sögn
Hjörleifs fyrsta aðkoma hans að
fyrrgreindum störfum. „Maður
hefur horft á þessi störf sem
kúnni þannig að maður vissi hvað
þau fælu í sér, en það er svo ann-
að að vera hinum megin við borðið
og vinna þau.“ Spurður hvort við-
skiptavinum hafi komið á óvart að
sjá forstjóra fyrirtækisins vinna
fyrrnefnd störf jánkar Hjörleifur
því. „En raunar sýndist okkur að
kúnnarnir hefðu virkilega gaman
að þessu. Og þeir sýndu okkur
„lærlingunum“ mikla þolinmæði
þegar eitthvað bjátaði á.“ Spurður
hvort eitthvað hafi komið sér á
óvart segir Hjörleifur það helst
vera það hvað álagstopparnir eru
kröftugir en starfið skemmtilegt
og þar beri hæst samskipti við
ánægða viðskiptavini.
Starfsmenn aðalskrifstofu Olíufélagsins fóru í starfskynningu í gær
Okkur
„lærling-
unum“
sýnd mikil
þolinmæði
Hjörleifur Jakobsson forstjóri tók vaktina úti þar sem hann dældi bensíni, setti rúðupiss á bíla og þvoði bílrúður.
UNDIRRITAÐUR var nýr kjara-
samningur stéttarfélaga við Alcan á
Íslandi vegna starfsmanna við álver-
ið í Straumsvík um miðnætti í fyrra-
kvöld.
Samningarnir voru gerðir á milli
Samtaka atvinnulífsins vegna Alcan
og Félags iðn- og tæknigreina,
Verkalýðsfélagsins Hlífar, Félags
járniðnaðarmanna, Rafiðnaðarsam-
bands Íslands vegna Félags ís-
lenskra rafvirkja og Félags raf-
eindavirkja, Verslunarmannafélags
Hafnarfjarðar og Félag matreiðslu-
manna.
Gildir samningurinn til 30. nóv-
ember árið 2008. Nær hann til um
fjögur hundruð manns, sem er um
80% af föstu starfsfólki Alcan.
Svipaðar launahækkanir og
í samningi bankamanna
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafiðnaðarsambands Íslands, er
ánægður með nýgerðan samning.
Viðræður um endurnýjun kjara-
samnings við Alcan hafa staðið yfir
síðan í nóvember. Hinn nýi kjara-
samningur er töluvert flókinn skv.
upplýsingum RSÍ, einkum vegna
flókinna bónuskerfa. Var mikil vinna
lögð í að enduskoða bónuskerfin og
nokkur önnur atriði samningsins.
Skv. upplýsingum Guðmundar
eru launahækkanir á samningstím-
anum svipaðar og í öðrum samn-
ingum sem gerðir hafa verið. Þar
sem um fastlaunasamninga er að
ræða og því ekki gert ráð fyrir
launaskriði eru hækkanir á samn-
ingstímabilinu heldur meiri en
grunnlaunahækkanir í almennu
kjarasamningunum.
Að sögn Guðmundar eru launa-
hækkanir svipaðar og í nýgerðum
samningi bankamanna sem sömdu
um tæplega 19% hækkun grunn-
launa fyrr í þessum mánuði.
Samið var um samskonar breyt-
ingar á lífeyrisgreiðslum og á al-
mennum markaði. Ákveðinn hluti
fastra bónusgreiðslna er fluttur inn í
launakerfin.
Samningurinn verður kynntur á
næstu dögum og á atkvæðagreiðslu
um samninginn að vera lokið fyrir
10. febrúar.
Ryðji brautina fyrir
gerð annarra samninga
Guðmundur gerir sér vonir um að
samningurinn við Alcan verði til
þess að greiða brautina fyrir öðrum
stóriðju- og virkjanasamningum
sem ólokið er, jafnvel strax í næstu
viku.
Viðræður RSÍ við Norðurál eru
komnar á fullt skrið eftir nokkurt
hlé yfir hátíðarnar og er ekki talin
ástæða til annars en að ætla að
samningar náist fljótlega. Þá standa
yfir viðræður við orkufyrirtækin
Landsvirkjun, Landsnet, RARIK og
Norðurorku og við Landsnet, sem
hóf störf um áramótin, um endur-
nýjun kjarasamninga.
Hnökrar á viðræðum
við Járnblendiverksmiðjuna
Viðræður við Járnblendiverk-
smiðjuna ganga hins vegar brösug-
lega og eru hnökrar á þeim viðræð-
um að sögn Guðmundar. Búið er að
halda 12 samningafundi en lítill
gangur hefur verið í viðræðunum
vegna hörku fyrirtækisins í afstöðu
til gildissviðs samningsins, að sögn
hans. Snýst hún um að fyrirtækið
vill geta úthýst öllum störfum á
svæðinu utan vinnu við bræðsluofn
sem það telur vera kjarnastarfsemi
allt annað sé utanaðkomandi þjón-
usta. Stéttarfélögin vilja að samn-
ingurinn nái til allra starfa við dag-
legan rekstur og viðhald á svæðinu
eins og ætíð hefur verið til þessa og
þannig sé það í öllum öðrum samn-
ingum.
Stéttarfélög og Alcan
hafa náð samningum
NOKKUR helstu atriði sem samið
var um í kjarasamningi nokkurra
verkalýðsfélaga og Alcan á Íslandi
eru:
50 þúsund króna eingreiðsla
verður greidd 24. febrúar.
Upphafs- og áfangahækkanir frá
1. janúar sl. eru 3,25% og 2,25%.
Laun hækka 1. janúar 2006 um 3%.
1. janúar 2007 um 2,5% og 1. jan-
úar 2008 um 2,25%.
Samið var um hækkun á nám-
skeiðsálagi, gæða- og nýting-
arbónus og á öryggis- og um-
gengnisbónus. Þá var samið um
nýjan bónus, svonefndan
ristíðnibónus, sem getur verið allt
að 1%.
Ristíðnibónus vísar til þeirrar
vinnu sem fram fer í kerskálum
þegar starfsmenn reyna að halda
niðri risi í kerjum að sögn Kolbeins
Gunnarssonar formanns verkalýðs-
félagsins Hlífar. Ris þetta er loft-
púði sem myndast á milli álsins og
raflausnarinnar og er ávallt leitast
við að eyða til því til að ná fram
betri straumnýtingu.
Þá var samið var um aukinn rétt
á svonefndum flýttum starfslokum,
meðal annars við 65 ára aldur, og
um aukinn rétt vegna veikinda er-
lendis.
Þá var samið um hækkun ið-
gjalds til lífeyrissjóðs og um gjöld
til starfsmenntunarsjóða, að því er
fram kemur á heimasíðu verka-
lýðsfélagsins Hlífar.
Samið um
ristíðnibónus
Morgunblaðið/Þorkell
MAÐUR um tvítugt var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 18. febrúar
í gærkvöld vegna ítrekaðra bíl-
þjófnaða á höfuðborgarsvæðinu að
undanförnu. Hann hefur þegar vís-
að lögreglunni á þrjá stolna bíla en
er grunaður um frekari brot. Rann-
sóknardeild lögreglunnar er með
málið til meðferðar og hefur bíl-
unum verið komið til eigenda sinna.
Þeir voru óskemmdir að sögn lög-
reglu. Maðurinn hefur komið við
sögu lögreglu áður.
Grunaður um
ítrekaða
bílþjófnaði
RAFIÐNAÐARMENN sem starfa
hjá Símanum felldu nýgerðan
kjarasamning í atkvæðagreiðslu
sem lauk á fimmtudaginn.
Á kjörskrá voru 250. Alls kusu
133 og sagði 61 já eða 45,8% en
nei sagði 71 eða 53,4%
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, segir að vitað sé hvaða at-
riði hafi valdið því að
samningurinn var felldur og á
hann von á að teknar verði upp
viðræður mjög fljótlega.
Felldu samning
við Símann
„ÉG ER furðu lostinn yfir yfirlýs-
ingum Alþýðusambandsins og
finnst kveðjur
úr þeim ranni
kaldar í garð op-
inberra starfs-
manna,“ sagði
Ögmundur Jón-
asson, formaður
Bandalags
starfsmanna
ríkis og bæja,
um ályktun mið-
stjórnar ASÍ í
lífeyrismálum.
Ögmundur sagði að ASÍ setti
saman í eina spyrðu eftirlaunalög
þeirra Davíðs Oddssonar og Hall-
dórs Ásgrímssonar annars vegar
og lífeyrisréttindi opinberra
starfsmanna hins vegar, réttindi
sem BSRB og önnur samtök á
þessum vettvangi hefðu barist fyr-
ir um áratugaskeið. Þetta væru
réttindi sem samið hefði verið um í
kjarasamningum og tækju til tug-
þúsunda einstaklinga.
Ögmundur sagðist ekki skilja yf-
irlýsingu Alþýðusambandsins öðru
vísi en þannig að nú þyrfti, um leið
og gerðar yrðu breytingar á ráð-
herra- og þingmannafrumvarpinu,
að samræma lífeyrisréttindi opin-
berra starfsmanna því sem gerðist
almennt á markaði.
„Þetta er ekkert annað en krafa
um að réttindin verði rýrð og kem-
ur heim og saman við yfirlýsingar
aðila á vinnumarkaði um að opin-
berir starfsmenn séu oftryggðir
og baktryggðir og slíkt sé af hinu
illa og verði að afnema. Mér finnst
ekki undarlegt að heyra slíkt frá
samtökum atvinnurekenda, en er
vægast sagt mjög undrandi á þess-
um málflutningi innan úr ranni
verkalýðshreyfingarinnar og mót-
mæli þessum málflutningi hástöf-
um, enda er það svo að það er
mjög að þykkna í mönnum út af
þessu máli,“ sagði Ögmundur enn-
fremur.
Segir ASÍ senda
kaldar kveðjur
til opinberra
starfsmanna
Ögmundur
Jónasson
STÚLKAN sem lögreglan í Hafn-
arfirði hafði leitað að eftir að henn-
ar var saknað frá því á sunnudags-
kvöld kom í leitirnar á
fimmtudagskvöld um kl. 19 heil á
húfi. Ekki var rétt með farið í
Morgunblaðinu að lögreglan hafi
lýst eftir henni, heldur var hennar
leitað. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Stúlkan fundin