Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 31
Ríkisstjórn George W. BushBandaríkjaforseta ákvað ívikunni að hætta við aðáfrýja til hæstaréttar í
Washington úrskurði áfrýj-
unardómstóls í borginni Philadelphiu
í fyrra um að endurskoða bæri til-
lögur um að slaka til varðandi reglur
um eignarhald og
markaðshlutdeild
fjölmiðlafyr-
irtækja. Fjölmiðl-
unarráð alríkisins,
FCC, samþykkti
naumlega árið
2003 að aflétta
ýmsum hömlum
sem gilt höfðu í
áratugi og eiga að
hindra einsleitni í
fjölmiðlun. Í frétt
dagblaðsins The New York Times á
fimmtudag segir að umskiptin í af-
stöðu stjórnvalda setji spurn-
ingamerki við kaup tveggja fjölmiðla-
risa, The Tribune Group og Media
General, á dagblöðum og sjónvarps-
stöðvum.
Stórfyrirtækin sömdu um kaupin í
þeirri trú að gerðar yrðu tilslakanir á
reglunum. En að sögn blaðsins verð-
ur hlutdeild þeirra á umræddum
markaðssvæðum hærri en gildandi
reglur leyfa. Ef þau ætli að halda öll-
um nýju fjölmiðlunum innan sinna vé-
banda verði fyrirtækin að fara fram á
undanþágu frá reglum.
Hæstiréttur setti á sínum tíma
frest til næstkomandi mánudags fyrir
þá sem vilja áfrýja. Michael K. Pow-
ell, formaður FCC og sonur Colins
Powells, fyrrverandi utanrík-
isráðherra, beitti sér ákaft fyrir því
að regluverkið yrði einfaldað og slak-
að á hömlum. Flest stóru sjónvarps-
fyrirtækin og önnur stór fjölmiðlafyr-
irtæki, þar á meðal News
Corporation, Tribune, The Gannett
Company og The New York Times
Company, voru hlynnt því að slakað
yrði á reglunum en þau höfðu einkum
hug á því að auka umsvifin á sjón-
varpsmarkaðnum. Bandaríkjaþing
samþykkti í fyrra lög um að sama fyr-
irtækið megi eiga sjónvarpsstöðvar
sem nái til allt að 39% landsmanna.
Þingmenn úr báðum flokkum
andvígir tilslökun
Hámarkið var áður 35% en Powell
vildi hækka það í 45%. Hann vildi
einnig að fyrirtæki með rekstur í
einni af stærstu borgunum mætti
eiga allt að þrem sjónvarpsstöðvum,
átta útvarpsstöðvar og eina kap-
alsjónvarpsstöð auk dagblaðs. Gild-
andi reglur banna fyrirtækinu að eiga
bæði bæði dagblað og ljósvakastöð í
sömu borginni, samkvæmt þeim er
einnig bannað að fyrirtæki eigi tvær
sjónvarpsstöðvar á sama markaðs-
svæðinu.
Stórar fjölmiðlasamsteypur vestra
vilja að fjölgað verði markaðssvæðum
þar sem leyft sé að eiga bæði dagblöð
og ljósvakamiðla, þ. e. útvarps- og
sjónvarpsstöðvar. Sum þeirra, eink-
um Tribune, þrýstu fast á dóms-
málaráðuneytið síðustu dagana áður
en niðurstaðan fékkst á miðvikudag,
að sögn lögfræðinga sem komu að
málinu og vildu þau að úrskurðinum í
Philadelphiu yrði áfrýjað. Sum stór-
fyrirtækjanna segjast ætla að áfrýja
upp á eigin spýtur en ólíklegt er að
þau hafi erindi sem erfiði ef þau njóta
ekki fulltingis dómsmálaráðuneyt-
isins.
Andstöðu við tilslakanir hefur ver-
ið haldið uppi af breiðfylkingu marg-
víslegra afla, hópum þingmanna úr
röðum jafnt repúblikana sem demó-
krata, einnig stéttarfélögum, neyt-
endasamtökum, trúarsamtökum, fé-
lögum listamanna og
mannréttindahópum. Óttast sumir
þessara aðila, ekki síst trúarhópar,
að frekari samþjöppun myndi auka
framleiðslu á ósiðlegri framleiðslu.
Gagnrýnendur aukins markaðs-
frelsis og minna regluverks segja að
þegar sé orðin of mikil samþjöppun á
fjölmiðlamarkaði, uppsprettur frétta
og upplýsinga fyrir lesendur og
áhorfendur séu í reynd orðnar fá-
breyttari en áður. Einnig muni frek-
ari samþjöppun valda því að sköp-
unargáfa verði heft og gæðum í
staðbundnum fréttaflutningi muni
hnigna.
Fjölmiðlarisarnir og Powell segja
hins vegar að vöxtur nýrra fjölmiðla,
ekki síst Netsins, hafi gefið neyt-
endum kost á fleiri frétta- og upplýs-
ingalindum en þeir hafi nokkurn tíma
fyrr getað nálgast. Þessir nýju miðl-
ar séu í harðri samkeppni við bæði
sjónvarp og blöð. Powell bendir einn-
ig á að gervihnattasjónvarp og kap-
alsjónvarp hafi fært neytendum fjöl-
marga valkosti og fullyrðir að aukin
samþjöppun í eignarhaldi myndi ekki
skaða samkeppni.
„Geðþótti og óvarkárni“
Í úrskurðinum í Philadelphiu var
fjallað um mál gegn FCC sem kennt
var við Prometheus Radio Project en
að málshöfðuninni stóðu samtök
nokkurra lítilla úvarpsstöðva. Segir
dómstóllinn að FCC hafi alls ekki
sett fram nægilega góð rök til að
réttlæta nýju reglurnar og beitt bæði
„geðþótta og óvarkárni“ þegar ráðið
reyndi að slaka á gömlu reglunum.
Búist er við því að rétturinn í Phila-
delphiu muni, ef hæstiréttur hnekkir
þá ekki úrskurði hans, þrátt fyrir allt,
vísa tillögum Powells aftur til fjöl-
miðlunarráðsins til frekari umfjöll-
unar. Þykja þessi málalok mikið áfall
fyrir Powell sem gerði á sínum tíma
umræddar tilslakanir á reglum um
eignarhald á fjölmiðlum að einu
helsta markmiði sínu. Hann skýrði
nýlega frá því að hann myndi hætta í
mars en sagði niðurstöðuna í Phila-
delphiu valda því að reglur um fjöl-
miðlun væru nú orðnar óskýrar og
ruglingslegar. Sjálfur hefur hann
sagt það hafa verið pólitísk mistök af
sinni hálfu að mæla ekki með breyt-
ingum í áföngum, breyta ekki fjöl-
miðlaumhverfinu smátt og smátt. Þá
hefðu pólitísku átökin ekki orðið jafn-
afdrifarík.
En í grein The New York Times
segir að hver sem eftirmaður hans
verði sé ólíklegt að hann muni beita
sér fyrir jafnumfangsmiklum og rót-
tækum tilslökunum á reglunum um
fjölmiðlun og fyrirrennarinn vegna
þess pólitíska umróts sem tillögur
Powells hafi valdið. Þingmenn og
sumir embættismenn segja að ef til
vill muni ráðið þó slaka nokkuð á
sumum reglunum.
Embættismenn segja að ein af
ástæðum þess að dómsmálaráðu-
neytið og FCC ákváðu að fara ekki
með málið áfram fyrir hæstarétt hafi
verið ótti við að hæstiréttur gæti tek-
ið upp á því að endurskoða túlkanir á
stjórnarskrárákvæðum sem snerta
tjáningarfrelsið og gæti niðurstaðan
orðið til að torvelda aðgerðir fjölmiðl-
unarráðsins gegn ósiðlegu efni í út-
varpi og sjónvarpi. Ráðið sektaði fyr-
ir slík brot í fyrra oftar en nokkru
sinni fyrr og fjárhæðirnar voru einn-
ig þær hæstu sem um getur. Þrýsti-
hópar, sumir þeirra íhaldssamir, hafa
beitt sér fyrir því að gengið verði enn
harðar fram í þessum efnum.
Segir ráðið ekki hafa
gætt almannahagsmuna
Demókratarnir tveir í fjölmiðl-
unarráðinu, Jonathan S. Adelstein og
Michael J. Copps, voru báðir á móti
tillögum Powells en atkvæði féllu
þrjú gegn tveimur þegar greidd voru
atkvæði í fyrra. Þeir fögnuðu mjög
ákvörðun stjórnvalda um að áfrýja
ekki til hæstaréttar og sögðu hana
mikinn ósigur fyrir Powell. „Með
þessu er viðurkennt að ráðið hafi
ekki rökstutt nógu vel [nýju] regl-
urnar og viðurkennt er að það hafi
ekki gætt almannahagsmuna,“ sagði
Adelstein. „Þetta er söguleg ákvörð-
un fyrir hreyfinguna sem berst fyrir
lýðræðislegri fjölmiðlun.“
Copps varaði hins vegar við því að
slagurinn væri ekki búinn og sagði að
næsti formaður ráðsins ætti að gæta
varkárni og gera ekki sömu mistök
og Powell. „Þetta eru góðar fréttir en
við verðum að halda vöku okkar og
koma í veg fyrir að einhver reyni að
lauma samþjöppun smám saman í
gegn með hjálp ráðsins,“ sagði Mich-
ael J. Copps.
Hætt við tilslakanir
á fjölmiðlareglum
Stjórn Bush hyggst
ekki reyna að fá
hæstarétt til að
hnekkja dómi áfrýj-
unarréttar sem vísaði
frá tillögum hennar
um að fjölmiðlarisar
mættu eiga bæði blöð
og sjónvarpsstöð á
sama markaðssvæði.
Morgunblaðið/Ásdís
Ein af röksemdum þeirra sem vilja slaka á reglum um eignarhald fjölmiðla
í Bandaríkjunum er að Netið sé nýr og öflugur keppinautur hefðbundinna
sjónvarpsstöðva.
Michael
K. Powell
’Gagnrýnendur aukinsmarkaðsfrelsis og
minna regluverks segja
að þegar sé orðin of
mikil samþjöppun á fjöl-
miðlamarkaði, upp-
sprettur frétta og upp-
lýsinga fyrir lesendur
og áhorfendur séu í
reynd orðnar fábreytt-
ari en áður. ‘
ns yrðu
s á hlut
jálfir að
sem
göngu á
ans sem
yrir fyr-
net yrði
yrirtæk-
n héldi
r nefni-
g fremst
stu sem
eins og
utnings,
rekstri
ar sem
irtækis-
ðal ann-
er mjög
stýrt af
og verð-
g að það
á þeirri
gt er að
ndingu,“
manum
að upp-
öð, sem
na band-
landinu
nað í því
iptafyr-
gang að
rirtækið
hefur að sínu eigin kerfi rétt eins og
lög kveða um.“
Brynjólfur bætti við varðandi
grunnnetið að tiltekinn opinber aðili
hefði ákveðið að fara út fyrir hefð-
bundið verksvið sitt og lagt út í
samkeppni í rekstri fjarskiptanets á
höfuðborgarsvæðinu. Þarna væri
hann að vísa til Orkuveitu Reykja-
víkur.
„Samkeppni er af hinu góða, en
grunnur hennar hlýtur að vera sá
að jafnræði sé með aðilum. Svo er
ekki að okkar mati hvað varðar fjar-
skiptarekstur Orkuveitu Reykja-
víkur. Mikið tap hefur verið á fjar-
skiptarekstri þeirra á undanförnum
árum, eins og alþjóð veit, og að okk-
ar mati hefur hann verið niður-
greiddur af tekjum af einkaleyfis-
skyldri starfsemi, þ.e.a.s. af heitu
og köldu vatni og rafmagni,“ sagði
Brynjólfur.
Hann benti á að Orkuveita
Reykjavíkur þyrfti ekki að veita
dreifðum byggðum þjónustu eins
og Símanum bæri að gera og lyti al-
mennt engum kvöðum eins og Sím-
inn gerði.
„Það er hagur allra fyrirtækja á
fjarskiptamarkaði að stjórnvöld
standi vörð um gagnsæja og heið-
arlega samkeppni og komi í veg fyr-
ir að markaðsráðandi orkusölufyr-
irtæki noti fjármagn sem myndast
hefur vegna einkasölu á orku til að
greiða niður fjárfestingar vegna
fjarskiptakerfis,“ sagði Brynjólfur.
Hann sagði að stjórnendur Sím-
ans hefðu unnið markvisst að því
síðustu misserin að auka virði fyr-
irtækisins. Afkoma fyrirtækisins
hefði verið umfram áætlanir á ný-
liðnu ári og það með öðru hefði auk-
ið verðmæti þess.
Ímyndin jákvæð
„Við höfum líka lagt mikla
áherslu á að breyta og nútímavæða
ásýnd fyrirtækisins og efla þjón-
ustuna. Þetta endurspeglast í því að
okkar mælingar sýna að ímynd fyr-
irtækisins á samkeppnismarkaði er
orðin mjög jákvæð og að traust við-
skiptavinanna til þess hefur aukist.
Þetta endurspeglast í viðhorfi al-
mennings til fyrirtækisins og fram-
tíðar þess. Þetta er mjög ánægju-
legt og ég held að andinn í
fyrirtækinu sé mjög góður. Við er-
um tilbúin og tökum þeirri áskorun
sem felst í heiðarlegri og opinni
samkeppni við þá tvo aðila sem
helst eru í samkeppni við okkar
fjarskiptarekstur, þ.e.a.s. Og Voda-
fone og Orkuveitu Reykjavíkur. Við
ætlum okkur að taka þátt í öllu því
nýjasta sem er að gerast á þessum
markaði og erum á fleygiferð hvað
varðar að innleiða nýja tækni og
kynna nýja þjónustu fyrir við-
skiptavinum okkar. Við munum efla
fyrirtækið og styrkja þjónustuna til
að mæta aukinni samkeppni með
það að leiðarljósi að verða fyrsta val
fólks þegar fjarskipti þess eru ann-
ars vegar, enda getur fyrirtækið
boðið alla fjarskiptaþjónustu á ein-
um stað,“ sagði Brynjólfur Bjarna-
son að lokum.
tið verði ekki aðskilið við einkavæðingu Símans
Morgunblaðið/Kristinn
MEÐAL íslenzkra kvenna hef-
ur upp komið sá misskilningur,
að mál vort sé svo einsniðið að
viðhorfi karla, jafnt í hversdags-
legu tali sem í virðulegum text-
um, að naumast verði við unað.
Er svo kallað, að slíkt misrétti
birtist í sjálfu málkerfinu, þar
sem karlkyn ráði ríkjum hvar-
vetna, enda sé öll málvenja und-
irorpin þessu ofríki hins „sterk-
ara“ kyns. Virðast konur þessar
ætlast til „úrbóta“ sem vart yrði
séð hvar staðar næmu. Augljóst
er hvílík málspjöll þar yrðu fram-
in.
Sá misskilningur sem þarna er
á ferð, er af því sprottinn, að teg-
undarheitið maður er karlkyns.
Þegar rætt er um þessa tegund
án kyngreiningar, er því eðlilegt
að fram komi karlkynið, og felst
þar engin afstaða til kynferðis
karla og kvenna.
Ef sagt er: „Íslendingar eru
allir þjóðhollir“, þá er ljóst að
orðið allir á við bæði kyn, því
um er að ræða tegundina maður
án kyngreiningar. Fáir segðu:
„Íslendingar eru öll þjóðholl“,
enda væri íslenzkri tungu þar
misboðið.
Sama máli gegnir um önnur
karlkyns tegundarheiti í ríki
náttúrunnar. Sagt er: „Þröstur-
inn er mófugl; rödd hans er fög-
ur.“ Hins vegar: „Lóan er mó-
fugl; rödd hennar er fögur.“ Að
sjálfsögðu er átt við bæði kyn
hvorrar tegundar; en tegundar-
heitin, þröstur og lóa, eru karl-
kyns annað en kvenkyns hitt;
og þau ráða ferðinni.
Vonandi endurskoða konur
þessar málstað sinn, áður en
fitjað yrði frekar upp á hættu-
legri villu, sem sprottin væri af
misskilningi.
Helgi Hálfdanarson
Karlkyn og
kvenkyn
efa með
m ýmsir
hönd á
ttir sem
kunnug.
9–23 og
að sögn
ar, fyr-
málefnið
Féð var
inum í
ei verið
harm-
Bern-
að mikil
0 árum
vík. Þá
höndum
hamfar-
fnunina
u rokk-
unni til
uðaust-
u
t